Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992.
17
Sviðsljós
Stjórn Sveinafélags pípulagningamanna. Talið frá vinstri eru: Jón Magnús
Magnússon, Halldór Garðarsson, Birgir Hólm, Daníel Halldórsson og Sig-
urður Rúnar Ólafsson. DV-myndirS
Sveinafélag
pípulagninga-
manna 60 ára
Sveinafélag pípulagningamanna
var stofnað af merkum mönnum
þann 11. maí 1932. Félagið varö því
sextugt nú fyrir skömmu og var hald-
ið upp á tímamótin í húsnæði þess
að Skipholti 70 á laugardaginn milli
fjögur og sex.
Var margt góðra manna og kvenna
samankomið í tilefni dagsins. Auk
pípulagningamannanna sjálfra mátti
líta þama maka þeirra, sem og við-
skiptavini.
Á borðum vom svo hinar bestu
krásir, snittur og fleira, og skemmtu
menn sér að sjálfsögðu mjög vel eins
og vera ber í slíkum veislum.
Eskifj arðarskóli:
Böm fengu hjálma að gjöf
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði:
Um nokkurra ára skeið hefur
Foreldrafélag Eskifjarðarskóla
verið starfrækt með miklum
myndarbrag. Á dögunum beitti fé-
lagið sér fyrir kaupum á hjálmum
fyrir nemendur í 1. bekk gmnn-
skólans. Þar sem hjálmarnir eru
fremur dýrir, tókst að fá Lands-
bankann á staðnum til að fjár-
magna kaupin að hluta til. Hjálm-
arnir vora svo afhentir nemendum
við hátíðlegt tækifæri að viðstödd-
um skólastjóra, kennurum, stjórn
Foreldrafélagsins og nemendum
yngstu bekkja skólans.
Bjarni Sveinsson lögreglumaður
hvatti nemendur óspart til að nota
hjálma við hjólreiðar. Sýndi hann
þeim myndband sem greindi frá
reynslu ungs drengs sem varð fyrir
alvarlegu slysi á hjóli fyrir nokkr-
um árum en hefur siðan verið í
hjólastól.
Að sögn Eyglóar Friðriksdóttur,
formanns Foreldrafélagsins, verð-
ur það eftirleiðis árviss viðburður
að gefa nemendum yngsta bekkjar-
ins þennan þarfa öryggisbúnað í
upphafi skólaárs.
Nemendur i 1. bekk Eskifjarðarskóla fengu hjólreiðahjálma að gjöf.
Eiginkonur pípulagningamannanna létu sig að sjálfsögðu ekki vanta. Hér
eru þær saman i hóp Hrefna Bergsveinsdóttir, Mjöll Gunnarsdóttir, Ósk
Sigurjónsdóttir og Svana Guðjónsdóttir.
Allir krakkarnir í leikskólunum þremur á Selfossi og foreldar þeirra
mættu á tjaldsvæðið í bænum og efndu til veislu. Með þessum hætti
var verið að fagna sumri og þakka fyrir góðan vetur. Sláturfélag Suður-
lands gaf allar pylsurnar sem etnar voru. DV-mynd Kristján Einarsson
COMBI
CAMP
Það tekur aðeins 15 sek.
að tjalda.
COMBI CAMP er traustur
og góður félagi í ferðalagið.
Léttur í drætti og auðveld-
ur í notkun.
COMBI CAMP er hlýr og
þægilegur með fast gólf í
svefn og íverurými.
COMBI CAMP er á sterk-
byggðum galvaniseruðum
undirvagni, sérhönnuðum
fyrir íslenskar aðstæður, á
fjöðrum, dempurum og
10" hjólbörðum.
COMBI CAMP er einn
mest seldi tjaldvagninn á
Islandi undanfarin ár og á
hann fæst úrval aukahluta.
COMBI CAMP er til sýnis
í sýningarsal okkar.
TÍTANhf
LÁGMÚLA 7
SÍMI 814077
FYRIR ÞA SEM GETA AKVEÐIÐ FERÐIR SINAR MEÐ MEIRA EN FJOGURRA DAGA FYRIRVARA
•‘‘“T.w*'"4"
SAGA Nýja Saga Class sérgjaldið,* sem er 20% lægra en fullt Saga Business Class
BUSINESS fargjald, gildir frá öllum áfangastöðum innanlands. Saga Class sérgjald er
CLASS bundið því skilyrði að bókað sé og greitt samtímis a.m.k. fjórum dögum fyrir
brottför. Saga Class sérgjald gildir einungis báðar leiðir í beint flug og er miðað við að flogið
sé fram og til baka á sömu flugleið. Heimferð þarf að bóka með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.
20%
(qbQ
Saga Class sérgjald gildir til efiirtalinna áfangastaða:
Kaupmannahöfn, Ósló, Gautaborg, Stokkhólmur,
Helsinki (1.6. - 7.9.), Glasgou), Lottdon, Amsterdam, Lúxemborg.
*háð samþykki yfirvalda. GUdistími til 31.10.1992
FLUGLEIDIR
Traustur tslenskur ferðafélagi