Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Qupperneq 19
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992.
19
Fréttir
Bræðumir Rúnar og Reimar
Þorleifssynir með hákariinn sem
kom í grásleppunet.
DV-mynd Heimir
Heimir Kristiiissan, DV, Dalvik:
Rúnar Þorleifsson var aö vitja
um grásleppunet á dögunum
undan Ríplinum á Ufeaströnd,
skammt norðan Dalvíkur, sem
hann hafði ekki farið í 112 daga.
Þegar hann var að byrja að draga
djúpendann þá kom upp feikna-
stór sporðblaðka og netið allt í
kuðli.
Rúnari leist ekki á blikuna svo
hann kallaði í Reimar bróður
sinn, sem var að vitja um net lít-
ið eitt utar og bað hann um að-
stoð. Fóru þeir bræður á grunn-
endann og drógu þar til að allstór
hákarl kom upp í netinu og höfðu
þeir hann milli bátanna. Hákarl-
inn var dauöur. Tókst þeim að
greiða hann út netinu á tæpum
tveimur tímum og tjóðruðu við
ból uppi í íjöru meðan lokið var
við að draga.
Á þessum slóðura er Hákarla-
klettur, þar sem sagt er að Þor-
valdur á Sauðanesi hafl tjóðrað
hákarla sína við á sinum tíma.
Það mun næsta einsdæmi að
hákarl komi í svona net og á þetta
grunnu vatni.
Eskifjörður:
atvinnuiausir
Regina Thorarensen, DV, Eskifirói:
Aö sögn Jónu HaUdórsdóttur á
bæjarskiifstofu Eskifjarðarkaup-
staöar eru í dag 19 manns þar á
atvinnuleysisbótum.
Talan komst þó upp í 45-50
manns um síðustu áramót. Úr
rættist þegar loðnuveiðarnar
byrjuðu fyrir alvöru þegar Ilða
tók á janúarmánuð. íbúafjöldi á
Eskifirði er í dag 1038.
Ég verð vör við aö kviði er í
fólki en ég vona og álykta að þetta
breytist og lagist. Fólk verður aö
gæta þess að missa ekki þolin-
mæðina þótt á móti blási i bili.
um myndun
Annað kvöld, þriðjudaginn 26.
maí, tlytur Gunnlaugur Bjöms-
son stjarneðlisfræðingur erindi
um myndun sólkerfa á fundi í
Stjömuskoðunarfélagi Seltjam-
amess.
Fundurinn verður haldinn í
stofu 20 í VaUiúsaskóla og hefst
klukkan 20.30.
Landsbankinn 1 Keflavik:
Ferðamaður seg-
ist haf a keypt þar
falsaða seðla
Ljósrit af falsaða 100 dollara seðlinum. Yfirstimplaður counterfeit - falsaður.
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Það kom hingað maður í bankann
og sagðist vera með falsaðan 100 doU-
ara seðU sem hann heföi keypt hér.
Við tókum þá ákvörðun að greiða
manninum upphæðina og senda seð-
ilinn til sérfræðings í Danmörku,"
sagði Hjálmar Stefánsson, útibú-
stjóri Landsbankans í Keflavík, í
samtaU við DV.
„Skömmu síðar kom í ljós að seðiU-
inn var falsaður og munum við skoða
máUð nánar. Það er mjög erfitt að
sjá fólsunina á seðUnum og hann
verður geymdur hér í bankanum
sem sýnishom.
Maðurinn gæti hafa keypt þennan
100 doUara seðU hvar sem er á lægra
gengi og við höfum aðeins hans frá-
sögn. Að vísu keypti hann héma í
bankanum átta 100 doUara seðla. Ég
held að hann hafi ekki lent í vand-
ræðum út af þessu. Þetta hefur ekki
áður komið fyrir hér-í bankanum og
við munum skoða málið alveg niður
í kjölinn," sagði Hjálmar.
Maðurinn, sem í þessu lenti er héð-
an af Suðurnesjum og vUdi ekki láta
nafns síns getið, en hann sagði í sam-
tali við blaðið að hann hefði keypt
gjaldeyri í ferðatékkum og seðlum í
Landsbankanum í Keflavík. Af tíu
100 doUara seðlum hefðu sjö verið
falsaðar eftirprentanir. Hann var á
FUipseyjum þegar hann greiddi her-
bergi á hóteU fyrirfram og notaði 100
doUara seðlana.
Um nóttina vakti hótelstjórinn
hann og sagði að seðlarnir, sem hann
hefði greitt með, væru falsaðir. Það
munaði minnstu að Suðurnesjamað-
urinn lenti í stórvandræðum vegna
þessa máls og greinUega fagmenn
sem falsað höfðu þessa peninga. Þeir
voru alUr með B-númeri og enginn
þeirra var meö sama númerinu.
Suðumesjamaðurinn greiddi hót-
elherbergið á ný og fékk folsuðu seðl-
ana aftur sem hann svo seldi á svört-
um markaði. Ekki um annað að ræða
þvi að hann var orðinn blankur og
var í vandræðum. Ef hann hefði ver-
ið gripinn þarna með falsaða dollara
gat hann átt yfir höfði að eyða næstu
árum í fangelsi á Filipseyjum. Hann
tók þó einn 100-dollara seðil með mér
heim til íslands og afhenti Lands-
bankanum í Keflavík.
Stóraukin
f iskirækt á
vatnasvæði
Lýsu
Símon Sigurmonsson, DV, Görðunv
Á aðalfundi Veiöifélagsins Lýsu
í Staðarsveit var samþykkt sam-
hljóða að stórauka fiskirækt á
vatnasvæði Lýsu á SnæfeUsnesi.
Sleppt verður 16 þúsund laxa-
seiðum í svæðið í sumar. í fyrra
var sleppt 4.000 seiðum í svæðið
í fyrsta sinn um langt árabil.
Þetta veiðisvæði hefur verið
mjög vinsælt hjá innlendum
veiðimönnum en veiði hefur ver-
ið í daufara lagi undanfarin ár.
Eskiíjöröur:
Minnkandiafli
hjá togurunum
Regína Thorarensen, DV, Eskifirði:
Hér hefur verið hlýtt og logn
en golan getur verið svolítið köld.
Hólmanesíð kom í vikunni með
90 tonn af blönduðum fiski og
Hólmatindur kom á laugardag
með 50 tonn.
Það var fremur lítið fiskirí hjá
togurunum á síðasta ári og er
enn. Þar af leiðandi minnkaði
atvinnan í landi - yfirleitt ekki
meira en átta tímar á dag hjá
landverkafólki.
Það er annað en hér þekktist
fyrir nokkrum árum. Þá vann
fólk svo mikið að nálgaðist vinnu-
þrælkun en þá var líka liægt að
leggja peninga fyrir til mögru
áramia.
Turin Digitai/Surift Servo
MITSUBISHI M23
Þriggja hausa tæki með fullkominni kyrrmynd og sjálfvirkum hausahreinsibún-
aði. Skipanir á skjá, Intellegent Picture nær því besta úr gömlum myndbönd-
um. Digital tracking. Swift servo gerir alla þræðingu og hraðspólun mun hrað-
virkari og öruggari. Klippimöguleikar. Ýmsir leitunarmöguleikar, svo sem tímale-
itun og punktaleitun (index), barnalæsing o.fl.
Kr. 39.950. Sértilboð kr. 34.950 stgr.
MITSUBISHI M34
Fjögurra hausa tæki með long play, skipunum á skjá, swift servo gerir alla
þræðingu og hraðspólun mun hraðvirkari og betri, digital tracking, ýmsir leitun-
armöguleikar, punktaleitun (index), tímaleitun, intellegent picture nær því besta
úr gömlum myndböndum, ársupptökuminni, fullkomin fjarstýring, barnalæsing
o.fl.
Krj43v950^Sértilboð kr. 37.950 stgr.
MITSUBISHI M35
Fjögurra hausa tæki með long play, 8 tíma upptökuafspilun, skipanir á skjá.
Swift servo gerir alla þræðingu og hraðspólun mun hraðvirkari og betri. Sjálf-
virkur hausahreinsibúnaður. Klippimöguleikar, intellegent picture nær því besta
úr gömlu myndböndunum, ýmsir leitunarmöguleikar, svo sem punktaleitun
(Index), tímaleitun, barnalæsing o.fl.
Kr. 49.950. iértilboð kr. 44.950 stgr.
barnalæsing, intelligent picture nær því besta úr gömlum
myndböndum, árs upptökuminni, digital tracking, fullkomin
fjarstýring o.fl.
MITSUBISHI M54
Fjögurra hausa tæki með long play, 8 tíma upptöku/afspilun, skipanir á skjá.
Fullkomin kyrrmynd. Nicam Hifi stero. Swift Servo gerir alla þræðingu og hrað-
spólun mun hraðvirkari og betri. Skipanir á skjá, digital tracking. Intellegent
picture nær því besta úr gömlum myndböndum. Ýmsir leitunarmöguleikar, svo
sem punktaleitun (Index), tímaleitun, barnalæsing o.fl.
Kr. 55.950. Sértilboð Kr. 49.950 stgr.
MITSUBISHI M55
Fjögurra hausa tæki með long play, 8 tíma upptöku og afspilun. Nicam Hifi
stero, NTSC afspilun á Pal tæki, afspilun á S-VHS spólum, punktaleitun
(Index), tímaleitun, skipanir á skjá, ársupptökuminni, sjálfvirk hausahreinsun,
swift servo gerir alla þræðingu og hraðspólun mun hraðvirkari og öruggari.
Klippimöguleikar, intellegent picture nær þvi besta úr gömlu myndböndunum,
digital tracking, fullkomin fjarstýring, barnalæsing o.fl.
Sértilboð kr. 65.950 stgr.
MITSUBISHI M82
Super VHS tæki með NTSC afspilun, NICAM HIFI STEREO, swift servo gerir
alla þræðingu og hraðspólun mun hraðvirkari og betri, intellegent picture nær
því besta úr gömlu myndböndunum, sjálfvirk hausahreinsun, skipanir á skjá,
punktaleitun (Index), tímaleitun, klippimöguleikar, ársupptökuminni, digital
tracking, forritanleg fjarstýring. Barnalæsing o.fi.
Sértilboð kr. 119.950 stgr.
Vönduö verslun
Munalán
Afborgunarskilmálar
FAKAFENI 11 - SIMI 688005