Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Síða 33
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992.
49
Merming
Heillandi heimstónlist
Það var allsérstök upplifun að verða vitni að tónleik-
um dönsku hljómsveitarinnar Bazaar í Púlsinum
fóstudagskvöldið 22. maí. Ekki er auövelt að lýsa mús-
íkinni enda koma þeir félagar víða við. Flest lögin eða
verkin skiptast í tvo, þrjá eða fleiri þætti eins og gjam-
an tíðkast í klassískri tónlist og í hverjum þætti tekur
við ný laglína eða frekari útfærsla á fyrri stefjum
ásamt því aö takturinn breytist.
Fyrsta verkiö hófst t.d. án ákveðins takts en var síð-
an lengst af í sömbutakti. Síöan tók við verk sem
minnti helst á austur-evrópska músík eða sígaunamús-
ík og endaði í eins konar Tarantellu. Þriðja verkið og
það síðasta fyrir hlé var róleg habenera til að byija
með en var komið í sterkan rokkrytma í restina og
minnti þá helst á gamlar evrópskar hljómsveitir eins
og Nice, Focus og Pink Mice, ef einhver man eftir þeim.
Það var þegar Hammond B-3 orgelið réð ríkjum í allri
almennilegri rokktónlist. Anders Koppel orgelleikari
er einn af þessum stóru sem í Hammondskólann fóru,
Keith Emerson Danmerkur, og sér auk þess um allan
bassaleik í tríóinu á fótbassa hljóðfærisins, og auðvitað
er „Leslie" með viftu og tilheyrandi í farteskinu. Peter
Bastian leikur aðallega á fagott en einnig á klarínett,
annað svonefnt G-klarínett og hitt rúmlega hundrað
ára gamalt sem hann blæs í með sérstakri tækni sem
kemur frá Búlgaríu. í raun hljómar hljóðfærið, þegar
þessari tækni er beitt, allt öðruvísi en maður á að
venjast, og notar Bastian það aöaliega í sígaunastefjun-
um sem Bazaar flytur af miklu listfengi. í bók sinni
„Ind i musikken" lýsir Bastian hvernig hann heillað-
ist af aðferð búlgarskra og tyrkneskra klarínettleikara
og hætti ekki fyrr en hann gat tileinkað sér þennan
stíl sjálfur.
Gott dæmi um hvaða myndir eitt verk getur tekið á
sig í meðfórum Bazaars var eitt lag eftir hlé sem byij-
aði í hægum rúmbutakti, skipti svo í fönk, svo í rokk
og endaði í cha-cha. Flemming Quist Möller er slag-
verksleikari tríósins og í meira lagi snjall. Hann hafði
hjá sér fjórar risatrumbur sem minntu á congatromm-
ur í yfirstærð auk þess að vera með lítið trommusett
Djass
Ingvi Þór Kormáksson
án bassatrommu. Hann var mikið á ferðinni og svitinn
bogaði af honum í hitanum frá sviðsljósunum. Bastian
hjálpaði líka öðru hvoru til við slagverkið, lék á tam-
borínu, quiro og fleira slíkt og í einu lagi lék hann á
ocarinu, sem er leirflauta ættuð frá Ítalíu, og er hún
svo lítil að hún rúmast í öðrum lófa hljóðfæraleikar-
ans.
Mikill léttleiki, íjör og spilagleði fylgir tónlist Baza-
ars. Eitt þyngsta verkið sem þeir fluttu var frumsamiö
í tilefni Islandsferðarinnar og var í sjö þáttum. Það
var að mestu án þeirra spunakafla sem tríóið leggur
ríka áherslu á, heldur má lýsa því sem rytmísku kam-
merverki.
Þeir impróvisera mikið í Bazaar en gera það ekki
eins og djassspilarar eða rokkspilarar eða klassískir
spilarar heldur blanda þessu öllu saman ásamt aust-
ur-evrópskri spunahefð, held ég.
í lok tónleikanna söng Peter lag sem mér heyrðist
heita „Barndommens solrige dage“ og gerði það með
nokkuð grínaktugum tilburðum. Þannig lauk þessu.
Tónlist Bazaars er sannarlega „bizarre", mjög
skemmtileg og frábærlega leikin. Eins og einn tón-
leikagestur sagði: „Maður er bara dauðþreyttur enda
ekki á hverjum degi sem maður fer í heimsreisu."
Laugardalslaug lokuð
Vegna viðgerða, hreinsunar og endur-
bóta verður Laugardalslaug lokuð mánu-
daginn 25. maí, þriðjudaginn 26. mai og
miðvikudaginn 27. mai. Laugin verður
opnuð aftur fimmtudaginn 28. maí, upp-
stigningardag, kl. 8.
Tónleikar
Skriðjöklar á Tveimur vinum. Skörtuðu þeir litríkum svuntum eins og sjá má.
DV-mynd GVA
Skriðjöklar saman á ný
Sjálfsagt muna flestir eftir hljómsveitinni Skriðjöklum sem nutu mikilla
vinsælda fyrir fáeinum árum. Var ávallt mikill galsi og húmor í meðlimum
hljómsveitarinnar sem átti heimastöðvar norðan heiða.
Skriðjöklar höfðu ekki skemmt í Reykjavík í þijú ár er þeir komu saman
og skemmtu gestum á Tveimur vinum síðastliðið fóstudagskvöld. Sem fyrr
fóru þeir ekki troönar slóðir í lagavali og sviðsframkomu og höfðu gestir
gaman af.
Fyrirlestrar
Félag íslenskra skraut-
fiskaáhugamanna
Gordon ChurchiU, þekktur skrautfiskaá-
hugamaður er væntanlegur til landsins
og mun hann meðal annars halda fyrir-
lestur í vegum FISK í Þróttheimum mið-
vikudagskvöldið 27. maí kl. 20.30. Allir
eru velkomnir. Gordon er með dómara-
réttindi og hefur víða keppt í ræktun
skrautfiska erlendis.
Námskeid
91-19799. Þar eru einnig veittar nánari
upplýsingar.
Málstofa í hjúkrunarfræði
Margrét Gústafsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur ræðir um Samskipti við sjúklinga
með skert hugarstarf í málstofu sem
haldin verður í dag, 25. maí, kl. 12.15 í
setustofu á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu
34. Málstofan er öllum opin.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu kl. 13-17. Reykjanesferö
27. maí. Lögfræðingur er við eftir hádegi
á þriðjudögum.
Ljóðatónleikar í
Norræna húsinu
Kristján Elís Jónasson barýton og Guð-
björg Siguijónsdóttir píanóleikari halda
ljóðatónleika í Norræna húsinu í kvöld,
25. maí, og hefjast þeir kl. 20.30. Á efnis-
skránni eru lög eftir Sigfús Einarsson,
Björgvin Guðmundsson, Mozart, Strauss,
Hugo Wolf, Tsjajkovskij og norræna höf-
unda.
Ráðstefnur
80 ára afmæli Verkfræðinga-
félags íslands
í tilefni af 80 ára afmæli Verkfræðingafé-
lags íslands gengst félagið fyrir alþjóða-
ráðstefnu sem í styttingu er nefnd „Nátt-
úruhamfarir ’92“. Ráðstefnan verður
haldin í stofu 101 í Odda og stofu 101 í
Lögbergi dagana 18. og 29. maí.
Leikhús
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
Sími 11200
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Sími680680
:on '
ÞRÚGUR REIÐINNAR
Byggt á sögu
JOHNS STEINBECK
Leikgerð: FRANK GALATI
ELÍN HELGA 'GUÐRÍÐUR
eftir Þórunni Slgurðardóttur
i kvöld, 22.5., kl. 20.00, fös. 29.5. kl. 20.00,
næstsiðasta sýn., má. 8.6, kl. 20, siðasta
sýnlng.
EMIL
í KATTHOLTI
eftir Astrid Lindgren
STÓRA SVIÐID KL. 20
Þriðjud. 26 mai. Fáein sæti laus.
Miðvikud. 27. maf. örfá sætl laus.
Fimmtud. 28. maí. Uppselt.
Föstud. 29. mai. Uppselt.
Laugard. 30. mai. Uppselt.
Sunnud. 31.maí.
Þriðjud. 2. Júní.
Miðvikud. 3. júni.
Föstud. 5. júni. Fáein sætl laus.
Laugard. 6. júni. Uppseit.
Miðvikud. 10. júni.
Fimmtud. 11.júni.
Föstud. 12. júni. Fáein sætl laus.
Laugard. 13. júnf. Fáeln sæti laus.
flm. 28.5. kl. 14., tvær sýnlngar eftir, sun.
31.5. kl. 14., næstsiðasta sýnlng, og kl. 17,
siðasta sýning.
MIÐAR Á EMIL í KATTHOLTISÆKIST
VIKU FYRIR SÝNINGU, ELLA SELDIR
ÖÐRUM.
Aðeins 4 sýningar eftlr.
ATH. SYNINGUM LÝKUR 21. JÚNÍ NK.
MIÐAR ÓSKAST SÓTTIR 4 DÖGUM FYRIR
SÝNINGU - ANNARS SELDIR ÖÐRUM.
LITLA SVIÐIÐ
í HÚSIJÓNS ÞORSTEINSSONAR,
LINDARGÖTU 7
KÆRA JELENA
eftir Ljudmilu Razumovskaju
Þri. 26.5. kl. 20.30, uppselt, mið. 27.5. kl.
20.30, uppselt, sun. 31.5. kl. 20.30, uppselt,
mlö. 3.6. kl. 20.30, uppselt, fös. 5.6. kl.
20.30, uppselt, lau. 6.5. kl. 20.30, uppselt,
lau. 13.6. kl. 20.30, uppselt, sun. 14.6. kl.
20.30, uppselt.
Siðustu sýningar.
EKKIER UNNT AÐ HLEYPA GESTUM í
SALINN EFTIR AÐ SÝNING HEFST. MIÐAR
Á KÆRU JELENU
SÆKIST VIKU FYRIR SÝNINGU
ELLA SELDIR ÖÐRUM.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ
Gengið inn frá Lindargötu
ÉG HEITIÍSBJÖRG,
ÉG ER LJÓN
eftir Vigdisi Grimsdóttur.
í kvöld kl. 20.30, örfá sæti laus, sun. 24.5.
kl. 20.30, mi. 27.5. kl. 20.30, sun. 31.5. kl.
20.30, tvær sýningar eftir, fös. 5.6. kl. 20.30,
næstsiðasta sýning, lau. 6.6., siðasta sýn-
Ing.
Athugið, verkið verður ekki
tekið aftur til sýninga í haust.
EKKIER UNNT AÐ HLEYPA
GESTUM INN í SALINN
EFTIR AÐ SÝNING HEFST.
MIÐAR Á ÍSBJÖRGU SÆKIST VIKU
FYRIR SÝNINGU ELLA SELDIR ÖÐR-
UM.
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 alla
daga nema mánudaga og fram að
sýningum sýningardagana. Auk þess
er tekið á móti pöntunum i sima frá
kl. 10 alla virka daga.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
GRÆNA LÍNAN 99-6160.
HÓPAR, 30 MANNS EÐA FLEIRI,
HAFISAMBAND í SÍMA11204.
LEIKHÚSGESTIR, ATHUGIÐ:
ÓSÓTTAR PANTANIR
SELJAST DAGLEGA.
SMÁAUGLÝSINGASiMINN
FYRIR LANDSBYGGÐINA:
99-6272
SiGRÚN ÁSTRÓS
eftir Willy Russell.
LITLA SVIÐIÐ KL. 20.
Föstud. 29. mai.
Laugard. 30. mal. Næstsíðasta sýning.
Sunnud. 31. mai. Siðasta sýning.
Miöasala opin alla daga frá kl. 14-20
nema mánudaga frá kl. 13-17.
Miðapantanir í sima alla virka daga
frá kl. 10-12.
Sími 680680.
Faxnumer: 680383.
Leikhúslinan 99-1015.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur.
Borgarleikhús.
Leikfélag Akureyrar
Saga leiklistar á Akureyri
1860-1992
er komin út!
Bókln er til sölu i miðasölu leikfélagsins.
Þar geta áskrifendur vltjað bókarlnnar við
hentugleika.
Sími I miðasölu: (96) 24073.
AND
LEIKHÚSIÐ
í Tunglinu (Nýja bíói)
DANNI
OG DJÚPSÆVIÐ BLÁA
eftir John Patrick Shanley
i leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar
Fimmtud. 28. mai kl. 21.
Miðaverð kr. 1200.
Miðapantanir i sima 27333.
Miðasala opin sýnlngardagana frá kl. 19.
Mlðasala er elnnlg I veitlngahúsinu, Lauga-
vegi 22.
LEIKHÚSTILBOÐ Á PÍSA
Sumarnámskeið
í sumar gengst Unglingaregla I.O.G.T.
fyrir fjórurn sumarnámskeiðum, sem
ætluð eru bömum á aldrinum 9-12 ára.
Hvert námskeið stendur í 9 daga og í lok
þess er farið í útilegu. Námskeiðin eru
frá ki. 10-16 virka daga. Fyrsta námskeið-
iö verður í Reykjavik, Þarabakka í
Mjódd, 1.-12. júní. I Hafnarfirði verður
námskeið daganan 15.-26. júní og á Akra-
nesi 30. júní til 10. júlí. Fjórða námskeið-
ið verður haldið 13.-24. júlí. Þátttökugjald
er kr. 5.000 fyrir barniö. Innifalið í því
em námskeiðsgögn og ferðir, þar með
taldar ferðir vegna útilegu. Skráning fer
fram dagana 26., 27. og 29. mai í síma
ERT ÞÚ ÖRUGGLEGA
ÁSKRIFANDI?
BNN BÍLL * MANUÐl IÁSKRIFTARGETRAUN
Á FULLRI FERD!