Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Síða 29
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992. 41 Helgarblaðið íslenskttónlistarsumar 1992 er hafið: Endurútgáfur verða áberandi „Við buöum í fyrsta skipti í fyrra upp á íslenskt tónlistarsumar. Átakiö tókst með slíkum ágætum aö sala hljómplatna fjórfaldaðist miðaö við sumarið á undan. Þar af leiðandi ætlum við að endurtaka leikinn aftur í sumar og höfum enga ástæðu til að ætla annaö en að viðtökumar verði jafn góðar og í fyrra,“ segir Steinar Berg ísleifs- son, útgefandi og formaður félags hljómplötuframleiðenda. Islenskt tónhstarsumar 1992 hófst formlega með alíslenskunj stórtónleikum í Laugardalshöll að kvöldi sextánda júní. Aðsókn var frábær. Steinar Berg bendir á að þar hafi strax verið að finna merki um aö sumarið veröi vel heppnað. „Það hefur margoft verið reynt að efna til íslenskra tónleika í Höllinni sextánda eöa sautjánda júní en að- -sóknin hefur aldrei verið neitt til að hrópa húrra fyrir fyrr en nú.“' Það eru Félag íslenskra tónlistar- manna, hljómplötuframleiðendur og STEF, Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, sem standa að íslensku tónlistarsumri. Kostnaði vegna átaksins er haldið í algjöru lágmarki eins og í fyrra. Tónlistarmenn og útgefendur sjá síðan sjálfir um að koma sér á framfæri og vekja athygli á sér og sínu. í fyrra var nánast eini kostn- aðurinn við að prenta á boh og veggspjöld. íslensk uppfinning íslenska tónhstarsumarið er ís- lensk uppfmning, ef svo má aö orði komast. Átak í líkingu við það hef- ur ekki fariö fram neins staðar annars staðar svo að vitað sé. „Við erum mjög stoltir af árangr- inum og höfum kynnt hann fyrir kohegum okkar erlendis," segir Steinar Berg. „Viö ákváðum í fyrra að prófa að skapa íslenskan tónhst- armarkað á öðrum tíma en bara fyrir jóhn. Reyndin undanfarin ár hefur því miður verið sú aö þaö hefur verið nánast ómögulegt aö gefa út plötur á öðnun tíma en á haustin. Árangurinn varð stórkostlegri en við hefðum þorað að vona. Við fengum líka frábæran stuðning út- varpsstöðvanna. Sérstaklega stóð rás tvö sig vel. Þar var ákveðiö að fimmtíu prósent tónhstar, sem leikin var, skyldu vera íslensk. Þegar fólk fékk að hringja og velja sér óskalög var reyndin sú að allt að níu lög af hveijum tíu voru ís- lensk. Okkar tónhst á því svo sann- arlega hljómgrunn meðal þjóðar- innar. Aðrir fjölmiðlar fylgdu í kjölfar rásar tvö. Við erum að vona aö við fáum svipaðan stuðning út- varpsstöðvanna í sumar og í fyrra. Að auki held ég að ég megi segja að smásöluverslunin í landinu sé samstihtari núna en áður,“_heldur Steinar Berg áfram. Það er meiri samstaða og eining en á fyrri árum mihi þessara samkeppnisaðila um heildarmarkmiöiö, aö gera íslenskt tónhstarsumar sem veglegast. Til dæmis er ljóst að mjög htið verður í boði af erlendu efni á næstu mán- uðum. Það sem selst hefur á þessu ári eru plötur með Nirvana, Queen og Red Hot Chili Peppers. Aðrir titl- ar hafa varla verið með í sam- keppninni. Þaö eru engir sterkir erlendir titlar til viðbótar á leiðinni þannig að það er, virðist mér, sam- staða um að íslensk útgáfa muni bera uppi sumarið í hljómplötu- verslunum landsins." Annað yfirbragð Það sem fyrst og fremst ein- kenndi íslenska tónhstarsumarið í fyrra var annars vegar platan GCD með Bubba Morthens, Rúnari Júl- íussyni og félögum þeirra og hins vegar önnur plata hljómsveitarinn- ar Stjórnarinnnar. Þær voru lang- söluhæstu plötur sumarsins og dansleikja- og hljómleikahald GCD og Stjórnarinnar vakti sömuleiðis mikla athygh. Dálítið kemur út af nýju efni i sumar. Safnplötur Skíf- unnar og Steina eru uppfullar af nýju efni með þekktum og óþekkt- um hstamönnum. Þá hefur Stjóm- in gefið út sína plötu, Sáhn hans Jóns míns er komin með plötu þar sem blandað er saman nýju efni og eldra og Todmobile verður með nýja tónhst og hljómleikamúsík í bland á sinni plötu. Það sem fyrst og fremst mun ein- kenna sumarið eru endurútgáfur eldri platna á geisladiskum. Skífan og Geimsteinn senda ahnokkrar á markaðinn og Steinar mun fleiri. „Sumar þessar útgáfur eru aukn- ar og endurbættar," segir Steinar Berg. „Ég get nefnt sem dæmi að á fyrstu Trúbrotsplötunni verður bætt við lögum af tveimur tveggja laga plötum sem hljómsveitin gaf út og einu lagi að auki sem aldrei fyrr hefur komið út á plötu. Það er lagið Breyttu bara sjálfum þér eftir Gunnar Þórðarson og Þorstein Umsjón: Ásgeir Tómasson Eggertsson. Á Grýluplötunni verða fjögur lög til viðbótar sem voru á fyrstu plötu hljómsveitarinnar. Sérstakur bækhngur fylgir Stuð- mönnum með fjölmörgum upplýs- ingum þannig að það er heilmikil vinna lögð í margar þessar útgáf- ur.“ Móttökur margra þeirra endur- útgefnu titla, sem þegar eru komn- ir út, hafa verið mjög góðar. Fyrsta plata Þursaflokksins og Sturla með Spilverki þjóðanna hafa selst mjög vel. Búast má við góðri sölu ýmissa annarra titla sem ýmist eru ný- komnir út eða aö koma á næstu vikum. Skífan kemur tíl að mynda með tvær fyrstu plötur Brunaliðs- ins á næstu dögum, tvær sólóplötur Björgvins Hahdórssonar verða endurútgefnar á einum diski, Geimsteinn hefur sent frá sér fyrstu plötu Áhafnarinnar á Hala- stjörnunni. Steinar endurútgefur á fyrri hluta ársins milh þijátíu og fjörutíu titla. Fyrirtækið á útgáfu- rétt á öllu sem Fálkinn, SG-hljóm- plötur og íslenskir tónar gáfu út á hönum árum og áratugum svo og því sem komið hefur út hjá fyrir- tækinu sjálfu í sautján ára sögu þess. Útvarp Unnendur eldri tónhstar verða því ekki afskiptir á íslensku tónhst- arsumri 1992. Plötur, sem endurút- gefnar verða á geisladiskum, verða sennhega nálægt fimmtíu talsins. Útvarpsplötusnúðar fagna sjálfsagt líka. Það heyrir nánast sögunni th að sphaöar séu vinylplötur í út- varpi. Endurútgáfa erlendra platna Todmobile, Síðan skein sól og Ný dönsk komu fram á alislenskum stórtónleikum i Laugardalshöll að kvöldi sextánda júní. DV-myndir RaSi hefur verið í miklum blóma und- anfarin ár. Því var ekki seinna vænna fyrir íslenska útgefendur að slást í hópinn. Æth einhver stöð- in að spha annað hvert lag íslenskt á íslensku tónhstarsumri ætti verkið að verða mun auðveldara í ár en í fyrra. Það er að segja ef stöð- in bindur sig ekki nær eingöngu við að leika nýja tóihist. Steinar Berg Isleifsson segir enga ástæðu th annars en að búast við góðu sumri. Viðtökurnar í fyrra gefa að hans mati thefni th bjart- sýni: „Við fjórfólduöum söluna í fyrra miðað við árið á undan og höfum enga ástæðu th annars en að ætla að við náum jafnvel betri árangri í sumar en í fyrra," segir hann víg- reifur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.