Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992.
3
py______________________________________________________ Fréttir
Skipstjómarmenn á Hafdísi ÍS 25:
Sýknaðir af ákæru um
ölvun við skipstjórn
Héraðsdómur Vestfjarða hefur
sýknað þijá sjómenn af Hafdísi ÍS 25
frá ísafirði af sakargiftum um að
hafa verið ölvaðir við siglingu skips-
ins í ísafjarðarhöfn og á Skutulsfirði
þann 7. september 1990. Þremenning-
unum, skipstjóra, stýrimanni og yfir-
vélstjóra, var gefið að sök að hafa
I brotið áfengislög auk þess'sem skip-
stjórinn var einnig ákærður fyrir að
hafa veitt áhöfn skipsins áfengi, bæði
í fyrirsiglinguogmeðanáhennistóð.
Skipstjórinn í ríkið
I Áhöfnin, 5 menn, mættu um borð
í ísafjarðarhöfn að morgni umrædds
dags. Ætlunin var að þrífa skipið og
undirbúa skipti á aðalvél eftir vertíð-
ina. Eftir hádegið fór skipstjórinn í
verslun ÁTVR og keypti fyrir sam-
eiginlegan sjóð skipveija 5 flöskur
af vodka og tæpa tvo kassa af bjór.
Ráðgert hafði verið að halda upp á
vertíðarlok um kvöldið. Undir kvöld
var ákveðið að sigla út á Skutulsfjörð
til að dæla úr vélarrúmi og ná sem
mestri olíu og óhreinindum úr botni
skipsins. Er komið var út undir Arn-
ames snarbeygði skipstjórinn skip-
inu til bakborða og stjórnborða í því
skyni að auðvelda losun á úrgangin-
um. Skipið vakti slíka athygh úti á
I firði að lögreglu var gert viðvart.
Um kvöldið tók rannsóknarlög-
reglumaður á móti skipinu er það
í Akaumls-
land á 36
árajeppa
Júlía Imsland, DV, Höfn:
Gestkvæmt var á tjaldstæðinu á
Höfn á sunnudag og þar gat að líta
margan eðalvagninn. Eitt farartækið
öðrum eldra vakti þó sérstaka at-
hygh en það var 36 ára gamall Land-
Rover. Eigendur hans eru hjónin
I MattogFionaDickinsonfráLundún-
um sem eru á hringferð um landið
ásamt 3 ungum bömum sínum.
| Þessi enska fjölskylda lét það ekki
á sig fá þó veðrið væri ékki upp á
það besta - tjaldaði stóm hústjaldi,
sinnti venjulegum heimihsstörfum
1 og þvottur var hengdur til þverris.
Annir hjá skattinum:
Álagningar-
seðlartil 193
þúsund
gjaldenda
Álagningarseðlar til 193 þúsund
j gjaldenda verða póstlagðir þegar eft-
ir næstu helgi. Þeir sem greitt hafa
of mikið til hins opinbera á árinu
i 1991, eða eiga rétt á bótum úr ríkis-
sjóði, fá jafnframt sendar ávísanir
eða tilkynningar um greiðslu inn á
bankareikninga.
Álagningu lýkur ekki formlega fyrr
en laugardaginn 1. ágúst og fyrr mun
fólk ekki geta nýtt sér endurgreiðslur
og bætur úr ríkissjóði. Kærufrestur
vegna álagningar fyrir 1991 rennur
út laugardaginn 29. ágúst.
lagðist að bryggju aftur. Hann sendi
þá tvo lögreglumenn, sem höfðu
fylgst með skipinu, aftur á stöðina.
40 mínútum síðar bað hann um að-
stoð aftur þegar handtaka átti skip-
stjórann, stýrimanninn og yfirvél-
sfjórann vegna grans um ölvun
þeirra. Blóðprufa var síðan tekin úr
mönnunum og reyndist alkóhól-
magn í blóði þeirra vera 1,47,1,0 og
1,61 prómih. Við lögregluyfirheyrsl-
ur játaði vélstjórinn að hafa drukkið
bjór meðan skipið var á siglingu en
stýrimaðurinn kvaðst hafa drukkið
allt að 5 bjóra og fjótlega orðið svo
ölvaður að hann myridi lítið eftir sjó-
ferðinni.
Skipstjórinn viðurkenndi að hann
hefði fengið sér einn bjór með áhöfn-
inni um kaffileytið en eftír það ekki
drukkið neitt fyrr en undir lok sigl-
ingarinnar, þá rúmlega einn bjór í
viðbót. Þar á meðal hefði. hann
drukkið að hluta úr einni bjórflösku
í viðurvist lögreglumannsins, meðal
annars í bifreið hans á leið niður á
stöö. Rannsóknarlögreglumaðurinn
ritaði í skýrslur að þremenningarnir
hefðu allir verið áberandi ölvaðir.
Allir sýknaðir
Varðandi stýrimanninn var niður-
staða héraösdóms á þá leið að þar
sem hann hefði, að eigin sögn og sam-
kvæmt framburði skipstjórans, ekki
verið á vakt og farið með stjóm
skipsins í umræddri siglingu væri
hann sýknaður af ætluðu broti á
áfengislögunum - enda væri skip-
stjórn „hlutrænt" skhyrði fyrir því
að refsað yrði fyrir brot á slíku lagaá-
kvæði.
Héraðsdómur taldi að þó sýnt hefði
verið fram á að vélstjórinn hefði ver-
ið ölvaður, samkvæmt blóðsýnistöku
og játningu hans þar um hjá lög-
reglu, yrði hann einnig sýknaður þar
sem ekkert hefði fram komið í mál-
inu sem hnekkti framburði hans og
annars vélstjóra um að undirmaður-
inn hefði annast vélgæsluna og þar
með stjóm vélarinnar. Sýknan var
byggð á lagaákvæði um að vafa beri
að meta sakbomingi í hag.
Fyrir dómi bar skipstjórinn að hafa
drakkið 4-5 bjóra eftir að búið var
að binda skipið við bryggju og rann-
sóknarlögreglumaöurinn kominn
um borð. Þessu mótmælti lögreglu-
maðurinn og fullyrti að skipstjórinn
hefði ekki haft tök á að drekka neitt
áfengi eftir að hann kom um borð. í
dómi héraðsdóms segir aö ekki verði
annað af gögnum málsins ráðið én
skipstjórinn og lögreglumaðurinn
hefðu verið meira eða minna einir í
um 40 minútur inni í skipinu áður
en þeir urðu samferða í einkabifreið
lögreglumannsins á stöðina.
Héraðsdómur taldi það „óvenju-
lega að fmmrannsókn málsins stað-
ið“ að leyfa skipstjóranum að hafa
bjór hjá sér í brúnni á meðan á sam-
ræðum hans við lögreglumanninn
stóð og að fá óátahð að hafa með sér
bjórflösku í bílnum og niður á lög-
reglustöð. Héraðsdómur taldi einnig
að lögreglumanninum hefði borið að
óska liðsinnis annarra lögreglu-
manna og gera nauðsynlegar ráð-
stafanir til að koma í veg fyrir spill-
ingu sakargagna. Með hhðsjón af
þessu og því að ekki fór leit fram í
skipinu að umbúðum undan áfengi
eftir handtöku taldi héraðsdómur
varhugavert að hafna framburði
skipstjórans „þótt fremur sé hann
ótrúverðugur". M.a. með hliðsjón af
því og að vafa beri að meta sakborn-
ingi í hag var skipstjórinn sýknaður
af ákæruatriði um að hafa brotið
áfengislög við stjórn skipsins. Hann
var einnig sýknaður af sakargiftum
um að hafa veitt skipverjum sínum
áfengi. Þar var stuðst við neitun
skipstjórans sem studd var fram-
burði annarra skipveija.
Ríkissjóður var dæmdur th að
greiða allan sakarkostnað, þar með
tahn 130 þúsund króna málsvamar-
laun Hhmars Ingimundarsonar,
skipaðs verjanda hinn þriggja
ákærðu í máhnu.
-ÓTT
DV-mynd Ragnar
Hjónin með börn sín og jeppann góða.
*
M<
24 MYNDA FILMA FYLGIR
HVERRI FRAMKÖLLUN
*0'
24 mynda filma er innifalin i veröinu.
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
REGNBOGA
FRAMKÖLLUN
HAFNARSTRÆTI 106, AKUREYRI, SÍMI 27422
SÍÐUMÚLA 34, REYKJAVÍK, SÍMI 682820.
Óskum eftir umboðs-
mönnum úti á landi.
Uppl. í sima 96-27422.
STÓRK0STLEGT
ÚRVALN0TAÐRA
BÍLA I EIGU
JÖFURS HF.
Mazda 323 LX 1,3 '87, 4ra g„ 3ja d„
grænn, útv./segulb., ek. 80.000. V.
420.000.
Cherokee Laredo 4,0 '88, sjálfsk., 5
d„ steingrár, ek. 112.000, álfelgur,
útv./segulb. V. 1.690.000.
Dodge Ramcharger 5,9 '87, sjálfsk.,
3ja d„ svartur, ek. 41.000, 33" dekk,
álfelgur, rafm. í öllu, útv./segulb. V.
1.690.000.
MMC Lancer GLX 1,5 '87, vökvast.,
rafm. i öllu, útv./segulb., 5 g„ 4ra d„
hvítur, ek. 72000. V. 490.000.
Ford Bronco II 2,8 '84, sjálfsk., 33"
dekk, brettakantar, útvarp, brúnn, ek.
100.000. V. 840.000.
Dodge Aries 2,2 '87, sjálfsk., 4ra d„
blágrár, vökvastýri, bein innspýting,
samlæsingar, ek. 62.000. V. 580.000.
Cherokee 2,8 '86, litiö ekinn, útv./seg-
ulb„ sjálfsk., 3ja d„ rauður, ek. 86.000.
V. 1.060.000.
OplA vlrka daga kl. 9-18,
laugardaga 12-16
Allt að 24 mán.
óverðtryggð greiðslukjör.
BKLHF
Skeljabrekku 4
- símar 642610 og 42600.
Peugeot 405 GR 1,6 '92, 5 g„ rafm. i
rúöum, samlæsingar, 4ra d„ stein-
grár, ek. 8.000.
Suzuki Fox 413 JX 1,3 '88, 5 g„ 3ja
d„ gulur, ek. 68.000, blæjubíll, nýskoö-
aður, útv./segulb. V. 520.000.
-kaa