Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLl 1992. 9 Ítalía: Hægt hef ði verið að bjarga dómaranum Reiði og gremja íbúa Palermo á It- alíu út af getuleysi ítalskra stjóm- valda í baráttunni gegn mafíunni braust út í gær við jarðarfór fimm öryggisvarða sem létu lífið í árás á dómarann Paolo Borsellino sem barðist mjög gegn mafíunni. Allt var á suðupunkti við jarðarfór- ina og varð jafnvel að flytja forseta landsins, Oscar Luigi Scalfaro, út úr dómkirkjunni eins fljótt og auðið var. Sömu sögu var að segja um for- sætisráðherrann Giulio Amato og lögreglustjóra Palermo þar sem fólk- ið við jarðarförina tók upp á því að hrópa ókvæðisorð að embættis- mönnunum. Fyrir utan kirkjuna söfnuöust saman nokkur þúsund manns og hrópuöu: „Út með stjómmálamenn- ina. Mcifíuna út úr kirkjunni." Voru syrgjendur gramir yfir því að lög- reglan skyldi reyna að girða af svæð- ið í kringum kirkjuna til að komast hjá látum. Öryggisverðir í borginni hafa sagt að yfirvöld hefðu getað gert meira til að koma í veg fyrir árásina á dómar- ann sem lengi var talinn aöalskot- mark mafiunnar. Reuter Mikil mótmæli brutust út viö jarðarför fimm öryggisvarða er létust í árásinni á ítalska dómarann Paolo Borsell- ino. Áttu háttsettir ráðamenn fótum fjör að launa. Sfmamynd Reuter ______________Údönd Útflutningur áöpum Áætlað er aö Indónesía muni flytja út 13.500 apa á þessu ári Um er að ræöa apa frá eyjunni Súmötru sem flestir verða seldir til Bandaríkjanna að því er dag- blað í Indónesiu skýrði frá í rnorgun. Samkvæmt upplýsingum stjórnvalda er mikið um svokall- aða macaque-apa eða apa með langt skott á Súmötru og því verður leyft að flytja þá út. Aparnir verða aðallega notaðir sem tilraunadýr. Grænffrið- ungarífjár- hagskröggum Grænfriöungar tilkynntu í gær að þeir hygðust skera niöur fjár- útlát sín á næsta ári um fjórðung þar sem stuðningur manna hefur minnkað til muna. „Þessi niöurskurður skapast sökum rojög mínnkandi tekna í sumum löndum vegna alþjóð- legrar efnahagskreppu," segir í fréttatilkynningu frá samtökun- um. Grænfriðungar munu skera niöur útgjöld sín úr tæpum tveimur milljörðum á þessu ári í tæpan einn og hálfan railljarð á næsta ári. Búist er við að það þurfi að segja fólki upp en ekki er ætlunin að skera niður í flota samtakanna sem hefur sjö skip á sínum snær- um. Reuter Færeyingar vilja úr hvalveiðiráðinu Yfirvöld í Færeyjum íhuga nú að segja sig úr Alþjóða hvalveiðiráöinu sökum deilna sem sprottnar eru upp innan ráðsins um grindhvalaveiðar. Fundur Alþjóða hvalveiðiráðsins í júní samþykkti ályktun þar sem farið var fram á ítarlega rannsókn á þeim aðferðum sem Færeyingar nota við grindhvalaveiðar sínar. í fréttatHkynningu frá landsstjórn Færeyja segir að þeir hafi unnið eftir bestu getu með fulltrúum ráðsins og skýrt þeim ítarlega frá veiðiaðferð- um sínum. „Okkur sýnist að það skipti engu máli hve miklum tíma og orku við eyðum í að koma fram með upplýs- ingar um staðreyndir málsins eða hversu mikil vinna fer fram í rann- sóknarhópum á vegum ráðsins. Þess- ar upplýsingar munu á endanum verða notaðar gegn okkur,“ segir Kjartan Hoydal, sjávarútvegsráð- herra Færeyinga. Atli Dam, lögmaður Færeyinga, segir að Alþjóða hvalveiðiráðið sé orðið að sjálfseyöingarráðstefnu sem eigi litla framtíðarmöguleika. Stjómvöld ætla aö skipa nefnd til að kanna hvernig Færeyingar geti á löglegan hátt sagt sig úr Alþjóða hvalveiðiráðinu. Færeyingar, sem hafa sjálfstjóm í eigin málum, hafa á fundum hvalveiðiráðsins haft full- trúa í dönsku sendinefndinni þar sem Danir fara enn með utanríkis- og varnarmál fyrir Færeyjar. Ritzau og Reuter Deilumaríírak: Eftirlitsmenn SÞ gefast upp Eftirlitsmenn Sameinuðu þjóð- anna fyrir utan landbúnaðarráðu- neyti íraka hættu varðstöðu sinni í morgun að sögn sjónarvotta. Mark Silver, yfirmaður eftirlits- nefndarinnar, sagöi í gær að menn sínir væm í hættu fyrir utan ráðu- neytið sökum sífelldra mótmæla al- mennings. Eftirhtsmenn hafa staðið vörð fyrir utan ráðuneytið en þeir telja hugsanlegt að þar leynist gögn um írösk vopn. Yfirvöld í írak hafa ekki viljað hleypa rannsóknarmönn- unum inn í ráðuneytið. Silver sagöi í viðtali í gær að mót- mæli almennings við vem þeirra fyr- ir utan ráðuneytið yröu sífellt harð- ari og að ekki hefði veriö orðið við beiðni Sameinuðu þjóðanna um ör- yggisráðstafanir fyrir mennina. „Ég sé ekki að Irakar eigi eftir að hleypa okkur inn í bygginguna eins og staðan er núna,“ sagði Silver. Stjómvöld í Bandaríkjunum, Bret- landi og Frakklandi hafa varað írak við og sagt að afleiðingamar yrðu alvarlegar fyrir landið ef staðið yrði í vegi fyrir rannsóknum eftirhts- mannanna. Hernaðaraðgerðir hafa ekki verið útilokaðar. Sendiherra íraks hjá Sameinuðu þjóðunum sagði í gær að þó að ein- hverjum sprengjum yrði varpað á Bagdad eða aðrar borgir landsins þá myndu yfirvöld ekki láta undan. Reuter Reykjavíkurvegi 62 sími 650680, Hafnarfirði IjtyiTl ?ii"

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.