Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Side 18
18
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992.
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992.
47
íþróttir
Iþróttir
Fjölnir kom-
inn
i4.umferð
Piölnir Þorgeirsscm gerði sér
lítið fyrir og komst áfram í 4.
umferðina I forkeppni heims-
meistaramótsins í snóker sem nú
stendur yfir í Englandi. Pjölnir
sigraði Alfonso Bellushi, 5-4, í
hörkuspennandi leik í gærdag
sem stóö yfir í fjóra klukkutíma.
Fjölnir komst snemma í 4-1 en
Bellushi jafnaöi metin, 4-4. Fjöln-
ir sigraði síðan í úrslitaleik og
tryggði sér sigur í einvíginu.
Fjölnir er því komixm 14. umferö
en þar eru 250 keppendur sem
halda áfram með útsláttarfyrir-
komulagi. Fjölnir mætir í dag
Michael J. Smith. „Úthaldið
skiptir miklu máli þegar keppt
er svona stíft og ég held ég hafi
betra úthaid en flestir hinir spil-
aramir. Þetta er spennandi og
skemratilegt en það væri frábært
að ná aö komast áíram úr for-
keppnixmi," sagði Fjöhúr í spjalli
við DV. Hann þarf að sigra í
næstu tveimur umferðum til aö
komast i sjálfa úrslitakeppnina
en þetta er í fyrsta skipti sem ís-
lendingur nær svona langt í
heimsmeistarakeppni atvitmu-
maxma. -RR
Risastökk
hjá Powell
Heimsraethafum í langstökki
karla, Bandaríkjamaðurinn Mike
Powell, er til alis líklegur á
ólympíuleikunum sem hefjast í
Barceiona um næstu helgi. Pow-
ell, sem varö heimsmeistari á HM
í Tókýó áriö 1990 og setti nýtt
heimsmet, 8,95 metra, náöi 1 gær
að stökkva lengsta stökk sögunn-
ar í þessari grein á fxjálsíþrótta-
móti í Sestriere á Ítalíu. Stökk
Powells mældist hvorki meira né
minna en 8,99 metrar en vind-
styrkurinn var of mikill og nýtt
heimsmet því ekki löglegt. „Ég
mun bæta heimsmetiö f Barcel-
ona. Það er engin spuming,“
sagði Powell eftir risastökkiö.
-GH
Drechsler
einnigmeð
risastðkk
Þýska stúlkan Heike Drechsler
náði frábærum árangri á sama
móti í iangstökki kvenna. Hún
stökk 7,63 metra sem er 11 sentí-
metrum lengra en heimsmet
rússnesku stúlkunnar Galinu
Chistyakovu. Eins og hjá Poweil
var meðvindur of mikill og því
ekki um nýtt heimsmet aö ræöa.
-GH
TveSrleikiril
deildkvenna
Tveir leikir verða í 1. deild
kvetma i knattspyrau f kvöid.
Stórleikur verður á Skaganum
þar sem bikarmeistarar ÍA fá
efsta lið deildarinnar, VaL f heim-
sókn á Skipaskaga. Leikir þess-
ara liða hafa jafhan verið fiörugir'
og skemmtilegir og bæði liö hafa
veriö í fremstu röð undanfarin
ár. Þá mætir Stjaman KR í
Garðabæ. Sfjarnan, sem sigraði f
2. deild á síöasta ári, hefur aðeins
ieikið fjóra leiki f deildinni og
hlotiö sjö stig. KR-stúIkurnar
hafk leikið sex leiki en aðeins
hlotið Qögur stig og verða að fara
aö taka sig á ætli þær sér ekki
að lenda f botnbaráttunni f haust.
12. deiid kvenna leika Dalvfk og
KS og KA mætir Leiftri. í D-riöh
4. deildar verða þrír leikir. Á
Djúpavogj leika Neistinn og KSH,
Sindri mætir Huginn frá Seyðis-
firöi og í Feliabæ ieika Huginn
ogEinheiji. -ih/RR
Mjólkurbikarkeppnin í knattspymu:
Forgjöfin
dugði vel
- frábær byijun ÍA gegn Víkingum
Bjöm Leósson, DV Akranesi;
Þrjú mörk Skagamanna á fyrstu
15 mínútunum gegn Víkingum í gær-
kvöldi tryggðu Skagamönnum sæti í
undanúrshtum mjólkurbikarkeppn-
innar. Víkingar náöu að svara tví-
vegis fyrir sig en jöfnunarmarkið leit
á sér standa og Skagamenn unnu 3-2.
Fyrsta markið kom á 4. mín. Sig-
urður Jónsson vippaöi yfir Guð-
mund Hreiðarsson, markvörð Vík-
inga, eftir laglegt þríhyrningsspil við
Harald Ingólfsson. Á 13. mín. lék
Haraldur Hinriksson upp vinstri
kant, gaf fyrir markið þar sem Þor-
steini Þorsteinssyni mistókst að
hreinsa frá marki sínu, Þórður Guð-
jónsson var fyrstur í boltann og
þrumaði honum í netið af markteig.
Á16. min. lá boltinn enn á ný í marki
íslandsmeistaranna. Alexander
Högnason gaf á Amar Gunnlaugsson
sem gaf sér góðan tíma, lék á vamar-
mann og skoraði með hægri fótar
skoti rétt innan vítateigs.
Eftir þessa orrahríð dró nokkuð af
Skagamönnum, þeir gáfu efdr miðj-
una og vörðu þetta óvænta og mikla
forskot sitt. Ekki veröur annað sagt
en Skagamenn hafi nýtt færin í upp-
hafi leiksins, þrjú mörk í þremur
sóknum. Víkingar minnkuðu mun-
ihn á 32. mín. eftir þunga sókn. The-
odór Hervarsson Skagamaður bjarg-
aði á marklínu og loks lauk sókn
Víkinga með hnitmiðuðu skoti Aðal-
steins Aðalsteinssonar í vinstra
homið á Skagamarkinu, óveijandi
fyrir Kristján Finnbogason.
Síðari hálfleikur var ekki eins fjör-
ugur og sá fyrri, leikurinn fór aö
mestu fram á miðjunni en lítið varö
úr þegar boltinn nálgaðist vítateig-
ana. Sóknaraðgerðir Skagamanna
voru ekki eins vel útfærðar og í upp-
hafi leiks en vömin var traust og
hafði góðar gætur á framherjum Vík-
inga. Hinn ungi markvaröahrelhr
Vikinga, Helgi Sigurðsson, fann þó
leiðina í netiö á 61. mín. Atli Einars-
son gaf fyrir markið frá vinstri kanti
á Helga sem skallaði boltann efst í
fjærhornið. Fyrr í hálíleiknum vildu
Víkingar fá vítaspymu er einn leik-
manna ÍA fékk boltann í hönd sína
í vítateignum en Þorvarður Bjöms-
son var á öðru máli. „Ég skil ekki
af hveiju dómarinn dæmdi ekki víta-
spymu, hann stoppaði boltann
greinilega með hendinni," sagði Logi
Ólafsson, þjálfari Víkinga, í viðtali
við DV efdr leikinn.
Víkingar sóttu stíft síðustu mínút-
ur leiksins án þess þó að eiga hættu-
leg marktækifæri. A 68. mín. sluppu
Skagamenn þó með skrekkinn er
Ólafur Adolfsson hitti ekki boltann
en Helgi Sigurðsson var ekki nógu
fljótur að átta sig og Kristján mark-
vörður náði til boltans í tæka tíð.
Skagamenn fengu einnig færi úr
skyndisóknum gegn fáliðaðri vöm
Víkinga en Guðmundur varði skot
þeirra Þórðar og Amars.
Leikurinn var ágæt skemmtun fyr-
ir áhorfendur en sterkur vindur kom
í veg fyrir að knattspyrnan yrði betri.
Siguröur Jónsson og Haraldur Ing-
ólfsson voru bestu menn Skaga-
manna í þessum leik og Luka Kostic
var einnig sterkur í vöminni. Hjá
Víkingum voru Aðalsteinn Aðal-
steinsson og Guömundur Ingi Magn-
ússon bestir ásamt Jani Zilnik. Þá
fær Helgi Sigurðsson einnig hrós fyr-
ir glæsilegt mark. í hð Skagamanna
vantaði Bjarka Gunnlaugsson, sem
er meiddur, og hjá Víkingum er Tom-
islav Bosnjak enn frá af sömu
ástæðu.
Bjöm LeÓŒcm, DV, Akraneá:
„Þaö er engu líkari en við höfum
verið að gefa þeira afmæliegjaflr í
tileftú af 90 ára afinæli Akranes-
bæjar. Einbeitingin var ekki fyrir
hendi þegar við fengum þessí mörk
á okkur og þaö er erfitt aö byija
3-0 undir. Annars lékum viö vel í
siðari hálfleik en það er eins og
menn skilji ekki fyrr en skellur í
tönnunum. Nú verðum við að ein-
beita okkur aö deildinni, við erum
á lelðinlegum stað þar en höftun
ekki enn gefið upp alla von um að
verða ofarlega," sagöi Logi Olafs-
son, þjálfari Víkinga eftir leikinn.
„Viö vissum að Víkingar yrðu
erfiöir en viö spiluðum vel fyrstu
20 mín. leiksins en síðan fóra menn
að slappa af í stöðunni 3-0. Við er-
um ekki vanir aö klára þessi færi
en í kvöld geröist það loks. Ég vii
taka það fram aö dómarinn á heið-
ur skiliö, þetta var best dæmdi leik-
ur okkar á þessu ári,“ sagði þjálf-
ari Skagamanna, Guðjón Þórðar-
son, eftir leikinn en þess má geta
að ieikinn dæmdi Þorvaröur
Bjömsson.
íslandsmótið - 4. deild:
Stórslgur Hattar
Magnús Jónaason, DV, Austurlandi:
Tveir leikir vom háðir í D-riöli 4.
deildar í gærkvöldi. Höttur vann enn
eina ferðina og nú vann Egilsstaðal-
iðið Val frá Reyðarfirði, 7-0. Mark-
vörður Vals, Jónas Hjartarson, fékk
rautt spjald eftir aðeins 5 mínútur
og því léku Valsarar einum færri það
sem eftir var. Hattarmenn vora ekki
í vandræðum eftir það og sigruðu
stórt. Vilberg Jónasson skoraði 3
mörk Hattar og þeir Hilmar Gunn-
arsson, Eysteinn Hauksson, Freyr'
Sverrisson og Hörður Guðmundsson
skomðu allir eitt mark hver.
Þá gerðu Austri og Leiknir 3-3 jafn-
tefli á Eskifirði. Birgir Jónasson, Jó-
hann Harðarson og Bogi Bogason
gerðu mörk Austra en fyrir Leikni
skomðu þeir Kári Jónsson, Ágúst
Sigurðsson og Jakob Atlason.
Jón Grétar Jónsson skorar sigurmark Valsmanna gegn FH-ingum i gærkvöldi. Á innfelldu myndinni fagna Valsmenn markinu.
Sigurganga Vals
heldur áfram
- bikarmeistaramir unnu FH-inga og hafa ekki tapað bikarleik í rúm þrjú ár
„Þaö var gott að vinna þetta og eins
og hefur sýnt sig þá geta bikarleikir
farið á alla vegu. Það var samt óþarfi
að láta þá skora í lokin og það setti
óneitanlega pressu á okkur en við höfð-
um þetta og það skipti öllu máli. Mér
er alveg sama hvaða lið við fáum í
næstu umferð en viö ætlum ekki aö
láta bikarinn átakalaust af hendi,“
sagði Sævar Jónsson, fyrirhði Vals, eft-
ir að bikarmeistaramir höfðu sigrað
FH-inga, 2-1, í 8 liða úrshtunum í gær-
kvöldi. Valsmenn eru þar með komnir
áfram í bikamum enn eina ferðina en
liðið á ótrúlega sigurgöngu að baki í
keppninni. Liöið hefur ekki tapað bi-
karleik í rúm þrjú ár og er það hreint
ótrúlegur árangur.
Leikurinn var ekki ýkja skemmtileg-
ur og fátt um færi. Bæði lið fengu ágæt
færi í upphafi en það vora Valsmenn
sem skoruöu á 22. mínútu. Eftir þvögu
í vítateig FH-inga barst boltinn til Jóns
Grétars Jónssonar sem sendi boltann
fram hjá vamarmönnum og í netið.
Jafnræði var með liðunum það sem eft-
ir var fyrri hálfleiks en FH-ingar náðu
upp nokkurri pressu á mark Vals undir
lok hálfleiksins án þess þó að fá afger-
andi færi.
Valsmenn byrjuðu seinni hálfleik bet-
ur og vora hættulegri í sóknum sínum.
Anthony Karl þrumaði boltanum yfir
úr ágætu færi á markteigshominu á 58.
mínútu en fjórum mínútum síðar kom
annað mark Valsmanna og var það af
ódýrari geröinni. Salih Porca fékk bolt-
ann fyrir utan vítateig og skaut fóstu
skoti beint á markið. Ekki vildi betur
til en svo að Daði Lárusson, hinn ungi
markvörður FH-inga, missti boltann
milli handa sinna og í netið. Þetta slysa-
lega mark setti FH-inga út af laginu.
Það var ekki fyrr en undir lokin að
dálítill broddur kom í sóknarleikinn
eftir að þeim Herði Magnússyni,
markaskoraranum mikla, og Davíð
Garðarssyni var skipt inn á. Það var
einmitt Davíö sem náði að minnka
muninn 5 mínútum fyrir leikslok með
ágætu skallamarki eftir sendingu fyrir
markið frá vinstri. Þrátt fyrir örvænt-
ingarfullar sóknir FH-inga á lokamín-
útunum tókst þeim ekki að jafna og
urðu að játa sig sigraða gegn Valsmönn-
um í annað skipti í bikarleik á tveimur
árum.
Valsmenn léku ekkert sérstaklega vel
þrátt fyrir sigurinn. Jón Grétar og
Porca komust vel frá sínu og einnig
vora vamarmennimir Sævar og Einar
Páll Tómasson sterkir.
Lið FH hefur ekki verið sannfærandi
í sumar og sérstaklega hefur sóknar-
leikur liösins verið ómarkviss. Andri
Marteinsson lék vel að vanda á miðj-
unni og Daníel Einarsson var sterkur
sem klettur í vöminni. Varamennimir
Davíð og Hörður hleyptu krafti í sókn-
ina undir lokin en dugði ekki til. Hörð-
ur var meiddur og byrjaði því ekki inn
á að þessu sinni.
„Það er ekkert við þessu að gera. Við
erum úr leik og verðum að einbeita
okkur að deildinni. Við fengum á okkur
ódýr mörk í leiknum og vorum óheppn-
ir,“ sagði Njáll Eiðsson, þjálfari FH-inga
eftir leikinn. .rr
Anthony Karl Gregory Valsmaður i baráttu vlð FH-ingana Björn Jónsson og
Danfel Einarsson f leik liðanna f gærkvöldi. DV-mynd GS
Mjólkurbikarkeppnin 1 knattspymu:
GotthjáKA
- sigraði Fram og jafnaði smn besta árangur 1 bikamum frá upphafi
Guðmundur Hilmarsson, DV, Akureyrr
Lið KA er komið í 4 Uöa úrsht í
mjólkurbikarkeppninni í knatt-
spymu eftir 2-1 sigur á Fram í norð-
annepjunni á Akureyri í gærkvöldi.
Liðiö jafnaði þar með besta árangur
sinn í bikarkeppninni frá upphafi en
KA komst í undanúrslit árið 1986.
KA-menn gerðu út um leikinn í síð-
ari hálfleik og fógnuðu gríðariega
þegar Guðmundur Stefán Maríasson
dómari flautaði til leiksloka.
Fram byrjaði betur
Leikurinn var kaflaskiptur og réð
sterkur norðanvindurinn nokkuð
um gang mála í leiknum. Fyrri hálf-
leikurinn var frekar tíðindalitiU en
Framarar, sem léku með vindinn í
bakið í fyrri hálfleik, vom sterkari
aðilinn. A19. mínútu náði Fram for-
ystu með marki Jóns Erlings Ragn-
arssonar. Ríkharður Daðason braust
þá upp vinstri vænginn, lék
skemmtilega á Ormar Örlygsson og
gaf á Jón Erlings sem var í dauða-
færi og hann átti ekki í erfiðleikum
með að setja boltann fram hjá Hauki
Bragasyni í KA-markinu. Fram-hðið
náöi oft upp ágætum samleiksköflum
i fyrri hálfleik en náði ekki að ógna
marki KA neitt verulega. Á lokamín-
útu hálíleiksins átti þó Valdimar
Kristófersson skaUa sem Haukur
varði vel.
KA skipti um gír
í síðari hálfleik skiptu KA-menn um
gír svo um munaði og Framarar áttu
lengstum í vök að veijast. Gunnar
Már Másson gaf tóninn strax á 1.
mínútu síðari háiíleiks en þá varði
Birkir Kristinsson skot hans vel.
Mínútu síðari var Jón Erling nálægt
því að bæta við marki fyrir Fram en
Haukur bjargaði með úthlaupi eftir
að Jón var kominn á auðan sjó. Jöfn-
unarmark KA lá lengi í loftinu og
Gunnar Már var tvívegis hársbreidd
frá því aö skora, fyrst varði Birkir
glæsilega en síöan hitti Gunnar ekki
boltann fyrir opnu marki.
Á 69. mínútu kom jöfnunarmarkið.
Bjami Jónsson átti þá þrumuskot að
marki Fram, knötturinn lenti í Pétri
Ormslev og þaðan fyrir fætur nýhð-
ans Jóhanns Amarsonar sem skor-
aði af stuttu færi. Þetta mark virkaði
sem vítamínsprauta á leikmenn Ak-
ureyrarhðsins og 10 mínútum síðar
kom sigurmarkið. Páh Gíslason fékk
þá sendingu inn fyrir vörn Fram og
skoraöi meö góðu skoti í stöng og inn
frá vítateigshnu. KA-menn voru nær
þvi að bæta við þriðja markinu það
sem eftir lifði leiks en Framarar að
jafna.
Mikil barátta
í KA-liðinu
KA-hðið sýndi gríöarlegan baráttu-
vilja í þessum leik og í síðari hálfleik
lék liðið mjög vel. Vömin var fóst
fyrir með Öm Viðar sem besta mann
og þeir Pavel Vandas, Páh Gíslason
og Gunnar Már Másson gerðu mik-
inn usla í vöm Fram. Þaö er greini-
legt að meira býr í KA-liðinu heldur
en staða hðsins í Samskipadeildinni
segir.
Framarar miður sín
Framarar era eitthvaö miður sín
þessa dagana. Liðið lék ágætlega í
fyrri hálfleik en í þeim síðari datt
botninn úr leik þeirra og leikmenn
hðsins gáfust hreinlega upp. Stemn-
ingsleysi og skortur á baráttu hefur
einkennt leik þeirra bláklæddu upp
á síökastið og meðan svo er geta þeir
ekki átt von á góðu. Pétur Amþórs-
son og Jón Erling Ragnarsson voruN
þeirra sprækastir og Jón Sveinsson,
sem lék nú í byrjunarhði í fyrsta sinn
í sumar, stóð fyrir sínu.
Fyrirhði Fram, Kristinn R. Jóns-
son, meiddist á ökkla á 15. mínútu
og þurfti hann aö fara af leikvehi og
svo gæti farið að hann missti af leik
KR og Fram næstkomandi mánudag.
Strákarnir sáu um þetta
- sagði Gunnar Gíslason, þjálfari KA, sem lék ekki síðari hálfleikinn
Guðmundur HBinaisson, DV, Akuieyri;
„Strákamir sáu um þetta og klár-
uðu dæmið. Þeir mættu tvieíldir til
leiks í síðari hálfleik og gáfu allt í
þennan leik. Fyrst viö erum komn-
ir þetta langt þýðir ekkert annað
en að fara aha leið,“ sagði Gunnar
Gíslason, þjálíari KA, Gunnar varð
fyrir meiðslum í fyrri hálfleik og
gat ekki leikið í síðari hálfleik.
„Mér fannst þetta sanngjam sig-
ur og síðari hálfleikurinn var eitt
af því besta sem við höfum sýnt í
sumar. Strákamir sköpuðu sér
færi og baróttan í hðinu til fyrir-
myndar. Ég á enga óskaandstæð-
inga í undaúrshtunum, viö þurfum
hvort sem er að vinna til að fara
alla leiö,“ sagöi Gunnar.
„Hitti hann vel“
„Viö sýndum hvað býr í Uðinu og
þetta var virkilega sætur sigur og
sýnir aö við getum lagt aö velh
hvaða lið sem er. Ég fékk boltann
frekar óvænt inn fyrir og ég var
orðinn það þreyttur að ég skaut frá
vítateig í stað þess að fara nær. Ég
var heppinn, hitti boltann vel og
gaman að sjá hann liggja í net-
inu,“ sagöi Páll Gíslason sem skor-
aöí sigurmark KA.
„Vantaöi baráttuna“
„Það vantaði alla bráttu hjá okkur
og ég var virklega óánægöur með
leik okkar í síðari hálíleik. Það var
taugaveiklun í mönnum og aht fór
öfugt þegar þeir settu pressu á okk-
ur. Nú verðum við bara að klára
deildina fyrst svona fór,“ sagði Pét-
ur Ormslev, þjáifari og leikmaður
Fram, eftir leikinn.
„ Alveg toppurinn“
„Þetta var alveg toppurinn að
skora í jafnþýðingarmiklum leik
og þessum. Ég fékk boltann óvænt
eftír skot Bjama og það var ekkert
um arrnað að ræða en að skora fram
hjá Birki sem er mjög góður mark-
vöröur. Mér er sama hvaða Uð við
fáum svo framarlega sem leikurinn
veröur hér ó Akureyri," sagði Jó-
hann Arnarson, 19 ára nýhði i KA
sem lék sinn fyrsta heila leik með
KA í sumar og skoraði um leið sitt
fyrsta mark fyrir felagið.
Pétur Arnþórsson Framari i baráttu við Gunnar Gíslason, tll hægri, og Jóhann Amarson en það var efnmitt hann
sem jafnaði metin fyrir KA.