Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Síða 28
56 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992. Menning 2000 ára litadýrð í Listasafni íslands Nú líður senn að lokum sýningar Listasafns íslands á búningum, skarti og mósaíkverkum frá Jórdaníu og Palestínu. Það er einsdæmi að sýningar sem þessi rati hingað norður í Dumbshaf og heíði sennilega ekki orðið nema vegna heimsóknar Husseins Jórdaníu- kóngs og þess að hér er um hluta farandsýningar að ræða sem hingað er komin frá Mosegaard-safninu í Danmörku og hægt var að fá án óheyrilegs kostnaðar. Hér er að sjálfsögðu um þjóðargersemar að ræða og það rýrir ekki gildið að svæðið fyrir botni Miðjarðar- hafs hefur verið í gegnum tíðina helsti getjunarpottur heimsmenningarinnar. Þarna mættust rómversk og grísk áhrif á tíma býsanska heimsveldisins og síðar hinn kristni heimur og hinn íslamski. Að stofni til er sýningin tvískipt. Annars vegar er um að ræða mósa- íkgólf sem grafin hafa verið upp úr hallar- og kirkju- rústum frá sjöttu og sjöundu öld - hins vegar búninga og skart frá seinni hluta nítjándu aldar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu sem fru Widad Kawar hefur safnað á sl. tuttugu og fimm árum. Búningarnir og skartið Búningamir koma bæði frá Jórdaniu og því land- svæði sem áður var Palestína. Frú Kawar sóttist mest Myndlist Ólafur Engilbertsson eftir hátíðabúningum kvenna í safn sitt vegna hins skrautlega útsaums. Því ber mikið á búningum á sýn- ingunni sem saumaðir voru fyrir brúðkaup eða sem hátíðarbúningar heldri kvenna. Hvert svæði hafði sitt mynstur sem var geómetrísk útlegging af t.d. fjórum eggjum í pönnu, tönn gamals manns, leiðinni til Egyptalands eða sóhnni. Einnig er þríhymingsformið áberandi á búningunum því það átti að vemda gegn „hinu illa auga“. Skartið er einnig að grunni til vemd- argripir, hálfmáni eða hylki með vemdartexta. Það er fróðlegt að sjá hvernig mynstrin einfaldast þar sem konumar höfðu minni tíma til útsaums, eins og t.d. í Nabus þar sem bómullar- og óhvutínsla tók mestaUan tíma þeirra. Einnig er útsaumurinn einfaldari í versl- unarborgum eins og Ma’an þar sem sýrlenskt mynstr- að sUki var algengt. Um 1960 tóku gerviefnin alveg yfirhöndina og eftir það hafa búningamir einfaldast og glatað söfnunargUdi. Merkustu búningamir eru því ugglaust hinir íburðarmestu í útsaumi, t.d. hinir risa- stóra, þreföldu búningar frá E1 Salt í neðsta sal. Hvað efnið varðar era það bómullar- og hörefnin sem hafa mest gUdi, bæði vegna upprana síns í jórdönsku og palestínsku landi og mynstranna sem njóta sín best á þeim. AlUr hafa búningamir þó mikið skreytigUdi og Uta- og formsamsetning þeirra ber vott um að Ustrænt eðU hefur verið konunum á þessum slóðum í blóð borið. Mósaíkin Mósaíkverkin í efri sölunum koma frá Þjóðminja- safni Jórdaníu og hafa þau öU fundist á síðustu áratug- um. Hin fyrstu fundust í Madaba-þorpinu suður af Amman í lok síðustu aldar. í efsta sal era t.a.m. leifar gólfs úr hinni brunnu höU í Madaba frá því á seinni Mósaíkverk frá Jórdaníu í Listasafni íslands. hluta sjöttu aldar og heUlegar dýramyndir úr Jómfrú- arkirkju og Dómkirkju sama þorps. AUar bera mynd- imar greinUega rómversk einkenni; natúralískar eftir- myndir dýra, húsa, mannfólks og plantna. Þegar íslömsk áhrif tóku að berast á sjöundu öld tóku þessar eftirmyndir veruleikans að víkja fyrir mynstrum sem áttu að túlka guðdóminn í stað þess að líkja eftir sköp- unarverkinu. TU að framfylgja hugsjónum Múhameðs vora t.d. fugla- og blómamyndir höggnar burt úr gólfi Jóhannesarkirkjunnar í Jerash. Önnur gólf eyðUögð- ust hins vegar af átroðningi forvitinna tuttugustu ald- ar bama. Þó þessi gólf gefi vissulega góða mynd af horfnu heimsveldi er hinu ekki að neita að mósaíklist býsantíska tímans reis mun hærra á veggjum kirkju- bygginga Miklagarðs. Við velkjumst á mUli amerískra og evrópskra menningarstrauma en þessi miðstöð Býsanz vann markvisst úr arfleifð íslams og kristni. Sýningin „2000 ára litadýrð" færir okkur heim sanninn um gUdi hins þjóðlega - um gUdi þess að viðhalda stað- bundnum hefðum í ólgusjó alþjóðlegra strauma. Upp- setning sýningarinnar er Listasafninu til sóma og sýn- ingin er af hæfilegri stærð fyrir sah þess. Danska sýn- ingin gaf þó fyUri mynd ef marka má sýningarskrá Mosegaard-safnsins. Lokadagur sýningarinnar er 26. júlí. Flaututónlist í Laugarnesi Tónleikar vora í Sigurjónssafni í gærkvöldi. Comel- ia Thorspecken flautuleikari og Cordula Hacke píanó- leikari, báðar frá Þýskalandi, léku verk eftir Eldin Burton, Franz Schubert, Kazuo Fukushima og Sergej Prokofiev. Efnisvalið á þessum tónleikum hafði á sér nokkum meðalmennskublæ. Verkin vora í sjálfu sér ekki bein- línis slæm, en ekki spennandi heldur. Fyrsta verkið var Sónatína eftir Burton sem að sögn flyfiendanna er amerískt tónskáld og fékk mikil verðlaun fyrir það í heimalandi sínu er það kom fyrst fram. Þetta er ein- mitt verk af þeirri gerð sem vinnur verðlaun í sam- keppni. Samviskusamleg eftirliking af virtum og vin- sælum verkum sem venjulega era um það bil hálfri öld eldri en verkið sem verðlauna skal. I þessu tilfelli var það Debussy sem stældur var með samstígum hljómahreyfingum, heiltónatónstiga og öðra tilheyr- andi. Ekki einu sinxú Schubert lyfti efnisskránni í hæðir á þessum tónleikum og brást þar krosstré sem önnur tré. Inngangur og tilbrigði við Ihr Blumlein alle getur ekki talist meðal bestu verka þessa höfuðsnill- ings og virðist þar vera heldur lítið í lagt. Einleiksverk fyrir altflautu, Mei eftir Fukushima, sem Thorspecken lék, er mjög líkt tugum ef ekki hundraðum flautu- verka sem samin hafa verið undanfama áratugi. Mik- ið væri gaman að heyra frumlegt flautuverk einhvem tíma. Metnaðarmesta verkið á þessum tónleikum var Sónata í D-dúr eftir Prokofiev sem er jafnþekkt í út- setningu fyrir fiðlu og píanó. Sagt hefur veriö um tón- hst Prokofievs að hún sé nítjándu aldar tónhst þar sem krossar og bé hafa ruglast. Sá ljóður er á þessu verki, sem einnig má finna á ýmsum öðrum eftir sama höf- und, að þar er púlsinn stundum barinn án þess að unnt sé að finna annan tilgang en að fylla upp í eyður hugmyndanna. Þrátt fyrir það er þessi tónhst fag- Tónlist Finnur Torfi Stefánssön mannlega unnin og hefur þegar best lætur yfir sér viðkunnanlegan hressleika. Flutningur þeirra stallna var þokkalegur en án sér- stakra tilþrifa. Flaututónninn varð sár og stundum skrækur á háu tónsviði. Ásláttur píanóleikarans vhdi týna blæfegurð sinni þegar hraði atburðarásarinnar jókst. Þrátt fyrir þessar athugasemdir var ánægjulegt að heimsækja Sigurjónssafn þetta kvöld, eins og oftast áður. Fréttir Hraðfrystihúsið, sem áður bar nafn KASK, ber nú nafn Borgeyjar hf. og er með stærri útgerðarfyrirtækjum í landinu. DV-mynd Ragnar Höfn Borgey nú eitt stærsta útgerðar- félag landsins - hefur yfirtekið sjávarútvegsrekstur kaupfélagsins JúJía Imsland, DV, Höfn: Fyrsti júh 1992 markaði tímamót hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga en þá tók útgerðarfélagið Borgey hf. við öhum sjávarútvegsrekstri kaup- félagsins, bæði útgerð ogfiskvinnslu. Útgerðarfélagið Borgey, sem er elst starfandi útgerðarfélaga á Höfn, var stofnaö 1946 og var kaupfélagið þar stór hluthafi. Eftir sameiningu félaganna á Borg- ey tvo togara, tvo báta og meirihluta í útgerðarfélaginu Hrísey hf. sem gerir út einn bát. Fiskveiðikvótinn er ahs um 6500 þorskíghdi. Fjárhags- staða fyrirtækisins er slæm og er unnið að endurskipulagningu. Meðal annars hefur verið leitað aðstoðar bæjarfélagsins á Höfn um kaup á hlutabréfum og hefur bæjarstjóm samþykkt að kaupa hlutabréf fyrir 100 mlilljónir króna. Einnig er reikn- að með hlutafé frá fleiri aðílum. Ákveðið hefur verið að selja annan togarann, Þórhall Daníelsson, og er verið að skoða thboð þau er borist hafa í hann. Framkvæmdastjóri Borgeyjar hf. er Hahdór Ámason og Einar Sveinn Ingólfsson, sem verið hefur forstöðu- maður fiárhagssviðs KASK, verður fiármála- og skrifstofustjóri Borgeyj- ar. Starfsmenn hjá fyrirtækinu era um 200. Bergþóra Arnórsdóttir sýnir dragt, húfu og tösku úr hreindýraskinni á útimarkaðnum á Egilsstöðum. DV-mynd Sigrún \/ * ■ 1 , ^ £5h 'i % ■ Hreindýraskinn kjörið ef ni í fatnað Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstööum; Á útimarkaði á Eghsstöðum 15. júh vora kynntar afurðir af hrein- dýram. Kjöt var grillað og gefið að smakka. Hom og miujagripir vora th sölu og síðast en ekki síst var á boðstólum fatnaður úr hreindýra- skinni. Það eru bændur á Jökuldal með Aðalstein Aðalsteinsson í broddi fylkingar sem hafa unnið að því á undanfómum árum að þróa þessa nýju vöra. Þeir hafa fengið th hðs við sig fatahönnuð og er nú saumað á nokkrum stöðum á Héraði. Á markaðnum voru jakkar, dragtir og stuttbuxur, húfur og töskur af mörgum gerðum. Hreindýraskinnin era mjúk og létt en þó sterkari en önnur skinn og því mjög hentug í fatnað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.