Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992. 57 Hjónaband Þann 4. júlí voru gefin saman í hjóna- band í Háteigskirkju af séra Braga Friðrikssyni Guðrún Sigurfinnsdótt- ir og Gústav Gústavsson. Ljósm. Sigr. Bachmann. Þann 13. júní voru gefin saman í hjónaband í Kópavogskirkju af séra Ægi Fr. Sigurgeirssyni Sigríður Guðjohnsen og Guðgeir Sigmunds- son. Heimili þeirra er að Hhðarhjalla 67, Kópavogi. Ljósm. Sigr. Bachmann. Tilkyimingar Sléttuúlfarnir Hljómsveitin Sléttuúlfamir hefiir ákveð- ið að leika opinberlega í ágúst og sept- ember. Úlfamir munu byrja ferð sína um landið um verslunarmannahelgina á bindindismótinu í Galtalæk og hefur að þvi tilefni sent frá sér nýtt lag sem ber nafhið Ástfangin við Galtalækjarskóg. Úlfamir munu leika m.a. á Sjallanum á Akureyri, í Vestmannaeyjum, Keflavík, Akranesi, Hafiiarfirði, Reykjavík og á fleiri stöðrnn. Norræna húsið Opið hús verður í Norræna húsinu fimmtudaginn 23. júlí kl. 20.30. Þá mun Bjöm G. Jónsson tala um umhverfismál á íslandi. Fyrirlesturinn er fluttur á sænsku. Eftir kaffihlé verður sýnd kvik- mynd Osvaldar Knudsens; Eldur í Heimaey, og er hún með norsku tali. Aögangur er ókeypis. Jórdaníukvöld sem haldið var í Listasafni íslands sl. mánudagskvöld verður endurtekið -1 kvöld, miðvikudagskvöld 22. júli, kl. 20. Þeir sem hafa skráð sig á biðlista verða að staðfestajpöntun sína og sækja miðana í Listasafn Islands. Uppl. í síma 621000. Húnvetningafélagið í Reykja- vík í tílefni Þess að 40 ár em liðin frá því að fyrst var gróðursett í Þórdísarlundi í Vatnsdal verður samkoma í lundinum laugardaginn 25. júlí sem hefst með dag- skrá kl. 15. Þama gefst gott tækifæri til að skoða lundinn og sjá árangur tíjá- ræktar í 40 ár. Allir era velkomnir. Gítar festival ’92 Dagana 22.-25. júlí verður haldið Gítar festival á Akureyri. Alla dagana verður gítamámskeið í Tónlistarskóla Akur- eyrar frá kl. 9-13 og munu allir efnileg- ustu gítamemendur taka þátt í nám- skeiðinu en einnig er hægt að sitja nám- skeiðið sem hlustandi. 25. júlí munu svo þátttakendur á námskeiðinu halda tón- leika í Akureyrarkirkju kl. 18. Leiðbein- andi á námskeiðinu verður Amaldur Amarson. Meðan á festivalinu stendur verða haldnir tónleikar hvem dag. Þeir sem halda tónleika era þau Jennifer Anne Spear, 22. júli kl. 18, Kristinn H. Ámason, 23. júli kl. 20.30, og Einar Kristj- án Einarsson og Kristinn H. Ámason, 24. júli kl. 20.30. Allir tónleikamir verða haldnir í kapellu Akureyrarkirkju. Að- gangseyrir á tónleikana er kr. 700. Nán- ari uppl. í síma 96-11460 (Öm) eða 96-24284 (Lýður). Tapaðfnndið Lyklakippa tapaðist af bíl á leiðinni niður Hringbraut fyrir u.þ.b viku. Kippan er hringlaga með hestaskeifu á, einnig mun hanga á kipp- unni hengilás af hestakerra. Finnandi er vinsamlegst beðinn að hringja í síma 624931, fundarlaunum er heitíð. Exizt Hljómsveitín Exizt hefur gefið út sina fyrstu geislaplötu sem ber nafnið Afler midnight. Þó þetta sé fyrsta geislaplata hljómsveitarinnar er hún þó orðin gömul í faginu. Hún hefur starfað með hléum í 8 ár og oft verið sögð elsta bílskúrshljóm- sveit landsins. Hljómsveitín spilar meló- dískt þungarokk og mun halda útgáfu- tónleika á Púlsinum 6. ágúst nk. Exizt gefur út plötuna sjálf en Japis dreifir henni. Landsbréf hf. Landsbréf hf. buðu bridgesveit Lands- bréfa til uppskeruhátíðar fyrir skömmu þar sem haldið var upp á einstakan ár- angur sveitarinnar þau tvö ár sem hún hefur spilað undir nafni Landsbréfa hf. Viö það tækifæri afhentí bridgesveitin Landsbréfum bikara til varðveislu og Landsbréf þökkuðu fyrir sig með gefa spilurunum Heimsbréf. Sérfræöingar Landsbréfa njóta aðstoðar hins virta breska verðbréfafyrirtækis Barclays de Zoete Wedd við erlendar fjárfestingar. Veiöivon Þeir veiddu þessa tvo laxa á Torfa- stöðum í Sogi um helgina, Pétur Pétursson og Sævar Pálsson. Þar hafa veiðst 50 bleikjur og 3 laxar. DV-mynd GFR Korpa hefur gefið 177 laxa og þeir feðgar Guðmundur Benediktsson og Guðmundur Guðmundsson veiddu 3 laxa í ánni fyrir skömmu. DV-mynd Rafn Eyfjörð Staðan á veiðitoppnum 1 gærkveldi: Þverá í Borgarf irði með fjögur hundruð og fjörutíu laxa forystu Það virðist fátt koma í veg fyrir að Þverá í Borgarfirði verði efsta veiðiáin þetta sumarið, forysta henn- ar er nú mjög örugg. „Þverá hefur gefið 1440 laxa og hann er 23 pund sá stærsti,“ sagði Sölvi Hilmarsson, kokkur í veiðihús- inu við Helgavatn, í gærkveldi. „Norðurá var að skríða yfir þúsund laxa og hollið sem hætti á hádegi í dag veiddi næstum 80 laxa, stærsti laxinn er 19 pund,“ sagði Halldór Nikulásson, veiðivörður við Norö- urá, í gærkveldi en áin er 1 öðru sæti yfir þær fengsælustu þetta sum- arið. „Þessi 19 punda lax veiddist í morg- un og það var Guðlaugur Bergmann sem veiddi hann fyrir nokkrum mín- útum á Kálfhylsbrotinu,“ sagði Hall- dór. Grímsá í Borgarfirði situr í þriðja sæti með 900 laxa „Grímsá hefur gefið 900 laxa og hann er 17,5 punda sá stærsti enn- þá,“ sagði Rúnar Marvinsson, kokk- ur í veiðihúsinu við Grímsá, í gær- kveldi. Næst kemur Laxá í Aðaldal með 830 laxa og hann er 24 pund sá stærsti þar og svo Langá á Mýrum með 700 laxa. Svo kemur Laxá á Ásum með sínar tvær stangir með 300 laxa. Laxá á Refasveit hefur gefið 82 laxa „Ég var að koma af bökkum Laxár á Refasveit og veiðin gekk vel þrátt fyrir leiðinlegt veður, það var hífandi rok en laxamir uröu 7 hjá mér,“ sagði Eirikur Sveinsson á Akureyri í gærkveldi. „Stærsti laxinn sem ég veiddi var 12 pund en sá stærsti á land ennþá er 17 pund, veiddur á maðk, það voru Garðar og Kristján sem veiddu fisk- inn í Efri-Rana. Tveir laxar hafa veiðst á flugu og tveir á spún, hitt hefur maðkurinn allt gefið. Það er töluvert af fiski í Laxá. Fnjóská í Fnjóskadal hefur gefið 84 laxa og hann er 18 punda sá stærsti, það var Heiðar Agústsson sem veiddi laxinn. Það var Vatns- leysuhylur sem gaf lax. Þessa dagana gengur Fnjóská imdir nafninu „Gulláin“,“ sagði Eiríkur í lokin. Veiðin í góðu lagi í Flekkudalsá „Það er kominn 121 lax á land og hann er 12 pund sá stærsti," sagði Ólafur Pétursson í Galtartungu í gærkveldi er við spurðum um afla- tölur úr Flekkudalsánni. „Besta hollið veiddi 38 laxa og það næsta á eftir því fékk 16 laxa en lax- inn er smár hjá okkur. Hann mætti vera stærri,“ sagði Ólafur ennfrem- ur. Torfastaðir í Sogi hafa gefið 50 bleikjur og 3 laxa „Það eru komnar 50 bleikjur á land og þrír laxar,“ sagði Pétur Pétursson en hann var að koma úr Soginu. „Stærstu bleikjumar hjá okkur em 5 pund en mest eru þetta tveggja og þriggja punda. Það em flugumar Peacock, Peter Ross, Black Gnat og Muddler sem hafa gefið best í sil- ungsveiðinni. Laxamir sem hafa veiðst em 4, 7 og 9 pund. Við sáum töluvert af fiski og laxar vom að stökkva í Klettsfljótinu,“ sagði Pétur ennfremur. -G.Bender Laxagengd á vatna- svæði Lýsu Símon Siguimonsson, DV, Görðum: Mikil breyting til batnaðar hefur orðið á laxagengd á vatnasvæði Lýsu á Snæfellsnesi á þessu sumri. Lax hefur gengið fyrr en vanalega og meiri fiskur gengur upp en áður. Veiði á stöng hefur verið jafnari og meiri en síðustu sumur. Þetta virðist vera árangur af laxa- seiðasleppingum í fyrrasumar sem skila sér ipjög vel. í fyrra var sleppt 4000 gönguseiðum og nú í sumar var sleppt samtals 15000 seiðum. Endur- heimtur á þessu fiskisvæði hafa allt- af verið góðar en alllangt er síðan seiðum var sleppt þar áður. Aðstaða fyrir stangaveiðimenn er mjög góð. Gistihúsið Langaholt er rétt við vötnin og ána. Veiðisvæðið er aðgengilegt og em þess dæmi að jafnvel fatlað fólk hefur veitt hér í hjólastól undanfarin sumur. Jóhannes Jóhannesson, veiðimaður frá Ólafsvík, með 4 laxa sem hann fékk á svæðinu 15. júlí. DV-mynd Símon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.