Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1992, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1992, Page 36
Hafir þú ábehdingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrí ft-Dreifing: Sími 63 27 00 Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 27. JÚLl 1992. HaUdórBlöndal: Sæti meiri nið- urskurðien “ aðrir ráðherrar „Samkvæmt fyrstu drögum frá því í apríl varðandi fjárlagagerðina fyrir næsta ár er ætlast til að meira verði skorið niður í landbúnaðarráðuneyt- inu heldur en í öðrum ráðuneytum, annað árið í röð. Og eins er tekið mjög myndarlega á varðandi sam- gönguráðuneytið. Nú skilst mér aö menn vilji halda því verki áfram að ná ríkisfjármálunum saman. Ég geri ráð fyrir því að hver og einn velti því fyrir sér hver hlutur hans sé í því efni, ekki síður alþýðuflokks- menn heldur en sjálfstæðismenn,“ segir Halldór Blöndal landbúnaðar- og samgönguráðherra. .— Alþýðuflokkurinn hefur lagt til að framlög til landbúnaöarmála verði skorin niður um tvo milljarða á næsta ári, þar af milljarður í niður- greiðslum. Þá hafa kratar neitað að ganga frá nýjum búvörusamningi við bændur fyrr en samstaða hefur náðst innan rikisstjómarinnar um fjár- lagatillögur þeirra. Halidór segist ekki tilbúinn að ræða opinberlega frá þeim ágreiningi sem risinn er upp innan ríkisstjóm- arinnar um landbúnaðinn. Hann segir málið verða til umræðu á ríkis- sijómarfundi í dag og þá muni línur skýrast. -kaa Þverá í Öxarfirði: Ungurdrengur drukknar Ungur drengur á þriðja aldursári féll í Þverá í Öxarfirði við sumarbú- staðaiand við ána og drukknaði. Slysið varð laust fyrir klukkan 4 á laugardag. Þrjú böm munu hafa ver- ið að leik við ána og eitt bamanna fallið í hana. Hin bömin gerðu við- vart og björgunarsveitin á Kópaskeri -*var kölluð á staðinn til leitar. Drengurinn fannst um tveimur tímum síðar, nokkm neðar við ána og var látinn er að var komið. Ekki er hægt aö greina frá nafni drengsins aðsvostöddu. -ÍS EM yngri spfiara 1 bridge: íslendingar lentu í 17. sæti Evrópumóti yngri spilara lauk í gær með sigri Itala en íslenska landsliðið endaði í 17. sæti af 23 þjóð- um. Árangur liðsins veldur nokkrum vonbrigðum þar sem liðið var í 8. -ÍÞsæti er mótið var hálfnað. Láðinu gekk mjög illa í síðari hluta mótsins oghrapaðiniðurum9sæti. -ÍS LOKI Hvað hafa Halldórog sauðkindin til saka unnið? fefeMJPŒ'liARMM HIAll POi SlGlilil IHvO Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra hefur fengið aukið fylgi við sinar hugmyndir um leyfilegan afiá á næsta ári. I fýrstu virtist sem Þorsteinn hefði lítinn sem engan stuðning í eigin þingflokki en nú hefur fylgi við hans hugmyndir aukist jafnt og þétt. Þingmenn Al- þýðuflokks voru fyrir fáum dögum lítt hrifnir af hugmyndum Þor- steins um afla á næsta ári en nú virðist sem hann sé að vinna þing- flokk Alþýðufiokks á sitt band. Þorsteinn vill að ekki verði veidd nema 190 þúsund tonn af þorski á næsta fiskveiðiári en hann vill taka áhættu í öðrum tegundum og að veidd verði 30 til 35 þúsund þorsk- ígildistonn umfram þaö sem Haf- rannsóknastofnun leggur til. Um þetta virðist aukinn stuðningur vera. Veiðiheimildir Hagræðingarsjóðs eru annað raál. Þar er ekki sam- staöa um hvort veiðiheimildunum verður úthlutað eins og Þorsteinn vill. Sighvatur Björgvinsson segir það sama að gefa eftir með veíðiheim- ildir Hagræðingarsjóðs og styrlga sjávarútveginn með 500 milljóna króna framlagi. Friðrik Sophusson er sömu skoðunar. Eins og kunn- ugt er eiga veiðiheimildir Hagræð- ingarsjóðs að skila 525 milljónum króna til að standa undir rekstri Hafrannsóknastofnunar. Verði heimildunum úthlutað þarf að fjár- raagna Hafrannsóknastofnun með framlagi úr ríkissjóði. Nú er rætt um, sem málamiðlun, aö það sem veitt verður úr öðrum stofnum en þorski, það er umfram það sem Hafrannsóknastofnun leggur til, veröi selt og þaö verði einnig gert með kvóta Hagræöing- arsjóðs en ekki á um 40 krónur kílóið heldur á sex tii átta krónur kílóið. Þetta myndi skila ríkissjóði ámóta upphæö og ef kvóti Hagræð- ingarsjóðs yrði seldur á 525 millj- ónir króna. Rikisstjómarfundur er í dag. Fískveiðiraáiið er ekki á dagskrá. Þingflokkur Alþýðufiokksins kem- ur saman í dag til að ræða fiskveiði- málið. Ákvörðun um ársaflann verður tekin á ríkisstjómarfundi morgun. Þegar Friðrik Sophusson fjármálaráöherra var spuröur í gær hvort samstaða yröi innan rík- isstjórnarinnar sagðist hann ekki vera i nokkrum vafa um aö svo yrði. -sme Sighvatur Björgvinsson: Þeim stóð greinilega ekki á sama sem horfðu á Tómas Tómasson stökkva í teygju trá krana við Kringluna í gær. Þar var samankominn fjöldi manns sem varpaði öndinni léttar þegar ofurhuginn var lentur. DV-myndir GVA Velferð mannskepnunnar eða sauðkindarinnar? „Hvort eiga menn að passa meira upp á velferð mannskepnunnar eða velferð sauðkindarinnar," sagði Sig- hvatur Björgvinsson um tillögu Al- þýðuflokksins um verulegan niður- skurö til landbúnaðarmála á næsta ári. Þegar Sighvatur var spurður hvort Alþýðuflokksmenn ættu í átökum við Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra vegna þessa svaraði hann: „Það er skoðanaágreiningur á milli okkar. Halldór hefur ýmislegt til síns máls þegar hann segir að ástandið í landbúnaðinum sé orðið mjög slæmt vegna mikils samdráttar. Þá spyrjum við á móti hvort rétt sé að svara því með að halda áfram að moka pening- um í sömu framleiðslu - sem er langt umfram þaö sem þjóðin þarf á að halda, er það rétta aðferðin?" sagði Sighvatur Björgvinsson. -sme Maður drukknar í Reyðarfjarðarhöf n Bifreiö var ekið fram af bryggju- kanti hafnarinnar 1 Reyðarfirði und- ir morgun aðfaranótt sunnudagsins meö þeim afleiðingum að ökumaður bílsins drukknaði. Hinn látni var 32 ára Reykvíkingur. Lögreglunni á Eskifirði höfðu bor- ist fréttir frá Reykjavík þar sem farið var að óttast um manninn og var talið að hann hefði verið á leið til Reyðarfjarðar. Leit var gerð á staðn- um og kafari fann bifreiðina í höfn- inni laust eftir klukkan 7 á sunnu- dagsmorgun. -ÍS Tilkynnt var um innbrot í Múla- kaffi í nótt en þaðan var stolið skipti- mynt. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þar að verki. Málið er í rann- sókn hjá RLR. -bjb Veðrið á morgun: Rigning eða skúrirum mestallt land Á hádegi á morgun verður rign- ing eða skúrir um mestallt land- ið. Hitastigið verður á bilinu 8- 12 stig og hlýjast verður á Norð- urlandi. Veðrið í dag er á bls. 44 Wb Kjúklinga- borgarar Kentucky Fried Ghicken

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.