Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1992.
45
Þórunn Lárusdóttir, fegurðardrottning Norðurlanda 1992, og móðir hennar, Sigríður Þorvaldsdóttir, fegurðardrottn-
ing íslands 1958. Þær mæðgur eiga það einnig sameiginlegt að vera hrifnar af leikiistinni og getur verið að Þór-
unn feti i fótspor móður sinnar í þeim efnum.
Fegurðardrottningamar Þórunn Lárusdóttir og Sigríður Þorvaldsdóttir:
Fegurð og leik-
listaráhugi
„Hefði mamma ekki hjálpað mér
hefði ég ekki vitað í hvora löppina
ég átti að stíga. Hún hjálpaði mér aö
pakka ofan í ferðatöskurnar og veitti
mér góð ráð. Þar kom reynsla hennar
svo sannarlega að góðum notum. Ég
hafði til að mynda ekki hugmynd um
að ég þyrfti að hafa með mér dragt.
En maður varö að vera alveg tipp-
topp allan daginn alla dagana og það
vissi mamma allt um,“ segir Þórunn
Lárusdóttir, nýkjörin fegurðar-
drottning Norðurlanda.
Þær mæðgur, Þórunn, 19 ára, og
Sigríður Þorvaldsdóttir leikkona
eiga það sameiginlegt að hafa báðar
verið kjömar fegurðardrottningar,
en það eru 34 ár á milli titlanna. 1958
var Sigríður kjörin fegurðardrottn-
ing íslands, þá rétt 17 ára gömul. Sig-
ríður býr því yfir reynslu sem hún
gat miðlað áfram til dóttur sinnar.
Sú reynsla virðist hafa komið Þór-
unni að góðum notum.
Hressar og kátar
Þómnn var nýkomin heim þégar
DV hitti þær mæðgur í vikunni. Hún
mætti til vinnu í hljómplötuverslun
Skífunnar strax daginn eftir að hún
kom heim frá keppninni í Finnlandi
og var að átta sig. Hún var þreytt en
einnig mjög lukkuleg þar sem unn-
ustinn, Georg Bergþór Friðriksson,
mætti með trúlofunarhringa þegar
hann tók á móti drottningunni sinni.
Hann hafði reyndar keypt þá fyrir
keppnina en en trúlofunin átti sér
stað í bílnum við Leifsstöð.
„Það er alveg óskapleg vinna sem
fylgir því að taka þátt í svona sam-
keppni. Ég þurfti að mæta á kynning-
ar, blaðamannafundi og auðvitað
alltaf að vera mjög vel til höfð. Til
aö vera alltaf tipp-topp þurfti ég að
vakna snemma á morgnana, mála
mig, setja í mig rúllur og fleira. Til
þess hafði maður enga sérstaka hjálp
en við Heiðrún Anna Bjömsdóttir,
sem einnig tók þátt í keppninni,
hjálpuðumst mikið að. Það gladdi
okkur því óneitanlega undir lok
keppninnar að það skyldi umtalað
hve hressar og kátar við værum allt-
af.“
- En hvernig varð þér nú við að
heyra nafnið þitt kallað upp í úrslit-
unum?
„Mér brá alveg ofsalega. Ég hafði
hreppt ljósmyndafyrirsætutitilinn,
Miss Press, sem blaðamenn og ljós-
myndarar völdu, og þóttist nokkuð
góð að hafa hreppt hann.“
Til Hollywood
Móðir Þórunnar, Sigríður Þor-
valdsdóttir leikkona, man einnig þá
tilfinningu að heyra nafnið sitt kallað
upp í úrslitum fegurðarsamkeppni.
Þá, 1958, vora hlutimir hins vegar
öðruvísi og kröfumar til stúlknanna
aðrar. En Sigríður naut góðs af titlin-
um. Hún fór til Bandaríkjanna stuttu
síðar til að taka þátt í keppninni
ungfrú alheimur, Miss Universe.
Henni gekk ipjög vel, komst í hóp 15
útvalinna sem kepptu um titilinn.
Þá var það besti árangur íslenskrar
fegurðardísar á erlendri gmndu. En
Sigríður ætlaði sér annað og meira
en að taka þátt í þessari keppni.
„Ég fór í keppnina til að komast til
Bandaríkjanna og læra meira í leik-
list. Ég hafði útskrifast sem leikkona
og hárgreiðsludama sama ár og ég
sigraði hér heima en hugurinn
stefndi á leiklistarskóla í Hollywood.
Fór svo að ég dvaldi í Bandaríkjun-
um í fimm ár, kom rétt heim til ís-
lands til aö fá dvalarleyfið fram-
lengt. Ég var þrjú ár í Hollywood og
síðan tvö i Dallas í Texas,“ sagði Sig-
ríður. Hún veiktist fyrir nokkrum
áram en hefur náð sér mjög vel.
En Þórunn og Sigríður eiga fleira
sameiginlegt en fegurðina. Þómnn
útskrifaðist af raungreinabraut MH
í vor og hana langar í læknisfræði.
En listagyðjan kallar. Leiklistará-
hugi Þórunnar er mikill og einnig
áhugi á söng.
„Mig langar líka að verða leikkona,
get- varla gert upp hug minn,“ segir
hún.
Þómnn hefur sungið með íslensku
óperunni, í Nóaflóðinu og Carmen.
Þá lék hún af og til í Þjóðleikhúsinu
þegar hún var yngri og með leikfélag-
inu í Mosfellsbæ. Tónlistin lætur
Þómnni ekki ósnortna en hún blæs
í trompet eins og faðir hennar, Láms
Sveinsson, og systur, Ingibjörg og
Hjördís Elín. Þá spilar hún einnig á
píanó.
En nú bíður önnur fegurðarsam-
keppni. Þórunn fer áleiðis til Japans
5. október til að taka þátt í keppninni
Miss Intemational. „Ég lit meira á
þá keppni sem skemmtilegt ævintýri
en ég ætla að reyna mitt besta og er
alveg til í slaginn. Mamma ætlar líka
að hjálpa mér að pakka,“ segir Þór-
unn og kímir.
-hlh
Þórunn varð þriðja i keppninni um titllinn Ungfrú ísland
1992. Móðir hennar og systur, Ingibjörg, t.h., og Hjör-
dís Elín, samtagna henni ásamt unnustanum, Georg
Bergþóri. DV-mynd Hanna
Þórunn og systur hennar blása í trompet með pabba,
Lárusi Sveinssyni trompetleikara.
SÖLUSTARF - SNYRTIVARA
Heildverslun óskar eftir að ráða kraftmikla sölumann-
eskju í heils dags starf (helst vana) við sölu á snyrti-
og gjafavöru.
Áhugasamar leggi inn upplýsingar um aldur og fyrri
störf til DV fyrir 23. sept., merkt „w-71531“.
FASTEIGN IASALA
lögfræðingur, sem hefur si arfað sjálfstætt að lög-
fræðistörfum í 25 ár og hef fasteigna-/skipasölu jafnfra ur í hyggju að fara út í mt málflutningsstörfum
öinurn, osKar eiiir ao ía sem skiptafræðínga eða aðra m< un. Eignaraðild að fasteigi soiumenn ivo unQu vio- ið sambæriiega mennt- lasölunni kæmi vel til
greina að fengnum góðun i reynslutíma. Nýtt og
glæsilegt húsnæði fyrir sta rfsemina er fyrir hendi.
Snyrtimennska, góð framkc ma og heiðarleiki skil-
yrði. Umsóknir um aldur 0{ } fyrri störf sendist DV,
merkt „W-7103", fyrir 25. s ept. nk.
Viltu verða fyrirsæta!
Módelskóli Jönu heldur
námskeið fyrir þær/þá sem
vilja læra að sitja fyrir hjá
Ijósmyndara.
Námskeiðið stendur yfir í 3
daga og verðurtekiðfyrir:,
snyrting, litir, framkoma, stíll
og lýkur með Ijósmyndatöku.
Anna og útlitið
Upplýsingar í s. 682270,98-34255
Reykjavíkurprófastsdæmi vesíra
Laugarneskirkju v/Kirkjuteig
105 Reykjavík
Innritun fermingarbarna vorsins 1993 í Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra fer fram vikuna 20.-26. september. Óskað er eftir að foreldr-
ar komi með börnunum til innritunar.
1 Áskirkju þriðjud. 22. sept. kl. 17.
í Bústaðakirkju miðvikud. 23. sept. kl. 17-18.
f safnaðarheimili Dómkirkjunnar þriðjud. 22. sept. kl. 17.
í Grensáskirkju sunnud. 20. sept. að lokinni messu og miðvikud.
23. sept. kl. 14-17.
í Hallgrímskirkju þriðjud. 22. sept. kl. 16.
í Háteigskirkju fimmtudaginn. 24. sept. kl. 16.
í Langholtskirkju 21.-25. sept. kl. 9-12 og 13-17 alla dagana.
í safnaðarheimili Laugameskirkju þriðjud. 22. sept. kl. 17-18.
í Neskirkju mánud. 21. sept. og þriðjud. 22. sept. kl. 18 báða dagana.
í Seltjarnameskirkju miðvikud. 23. sept. kl. 15-17.
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra
Toyota Corolla
Touring 1992
1600, 5 gíra, 5 dyra, svartur, ekinn
aðelns 150 km. Verð 1.500.000 stgr.
^ N0TAÐIR BÍLAR
BYGGIR Á TRAUSTI
HEKLUHÚSINU LAUGAVEGI 174
SÍMAR 695660 OG 695500
Ljósmynd: Fríða Jónsdóttir.