Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1992, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1992.
Spumingin
Ert þú flughrædd(ur)?
Sveinbjörn Ottesen verslunarmaður:
Nei, mér líður vel í flugvél en er loft-
hræddur.
Magnús Þórðarson verkamaður:
Nei, ég hef aldrei fundið fyrir því.
Bogi Reynisson nemi: Nei, alls ekki
en ég er voöalega hræddur við kven-
fólk.
Bryndís Eggertsdóttir, nemi í MH:
Nei, alls ekki.
Heiða Hannesdóttir framreiðslumað-
ur: Nei, en ég finn fyrir lofthræðslu.
Guðbjörg Helga Guðmundsdóttir
nemi: Nei, en ef ég er hátt uppi í stiga
finn ég fyrir lofthræðslu.
Lesendur
Um skaðsemi
lambakjötsáts
Ekki eru allir á einu máli um það hversu hollt sé að neyta kindakjöts.
Gunnlaugur Sveinsson skrifar:
Nokkrir aðilar hafa ritað í þennan
dálk til að svara hugleiðingu minni
„Á sauðkindin ísland?“ Fyrst skrif-
aöi HG og vildi kenna veðráttunni
um eyðingu íslands. Það er rétt að
oft eru veður válynd á íslandi, en
ekki dregur það úr þeim hroðalegu
náttúruspjöllum sem sauðkindin
hefur valdið. Sigríður Pálsdóttir
sendi mér einnig orð og efast um að
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, muni duga okkur launafólki
í baráttunni við landbúnaðarmaf-
íuna og sauðkindina. Efi Sigríðar er
til kominn, að hennar sögn, vegna
þess að Ögmundur sé í hrútsmerkinu
og vilji því ekki styggja sauðkindina.
Sigríður vitnar hér til rangra upp-
lýsinga því ég hef fyrir því öruggar
heimildir að Ögmundur eigi afmæli
17. júlí og sé því í krabbamerkinu.
Foringi eins og Ögmundur áttar sig
á því að til að hæta kjör alþýðunnar
á ekki að skera niður fé til félags-
mála heldur sauðfé. Ríkisstjórnin
þyrfti heldur ekki aö skera niður fé
á fjárlögum ef hún skæri niður
sauðfé. Það er sauðféð sem heldur
niðri lífskjörum félagsmanna BSRB
og er á jötunni í hálftómum ríkis-
sjóði.
Sauðkindin er vistfræðilegt slys á
ísiandi og sú mýta sem pólitíkusam-
ir hafa reynt að halda að þjóðinni,
að kjötið af kjötíjallalambinu sé
bragðbesta lambakjöt í heimi, er
upprunnin í sjálfbyrgingsfullum
heimóttarskap og fáfræði.
Eigi að auka lyst almennings á
kindakjöti þarf að merkja hvert
stykki með sláturdegi og upplýsing-
um um hvaðan kjötið kemur. Dytti
mönnum t.d. í hug að selja 3ja ára
gamla mjólk sem nýmjólk?
Ég hef snætt lambakjöt víða um
heim og einu sérkenni íslenska
lambakjötsins eru mörkennd fita,
sem venjulega er orðin þrá og bragð-
vond þegar kjötið hefur legið árum
saman í frysti. Á það skal jafnframt
bent hversu hætttilegt þetta kjöt er
heilsu launamanna. Gömul fita af
þessari gerð er rótin að fjölda æða-
og hjartasjúkdóma. Líffræðingur
segir mér að lambakjötsát geti t.d.
verið mun hættulegra en reykingar.
Við legu kjötsins í frysti árum saman
myndist í fitunni mólikúl sem festist
í blóögangi manna.
Ég hef það fyrir satt að mötuneyti
á vegum hins opinbera hafi notfært
sér kindakjötsútsölur og keypt feikn-
in öll af gömlu kindakjöti til að spara
í rekstri. Með þessu er beint og óbeint
verið að leggja þá launamenn, sem
bundnir eru þjónustu shkra mötu-
neyta, í gröfina.
Aö lokum þetta: Hvernig væri um-
horfs á íslandi ef hægt væri að breyta
því lambakjöti, sem grafið hefur ver-
ið á öskuhaugunum, aftur í gróður.
Þetta kjöt er framleitt á kostnað
landsins okkar sem er að fjúka á haf
út.
Efnahagsaðgerðir ríkisstj ómarinnar:
Sýnum samstöðu og mótmælum
Erla Ólafsdóttir hringdi:
Hrædd er ég um aö vinsældir ríkis-
stjómarinnar hafi hrapað heldur
betur núna eftir að hún kynnti nýj-
ustu efnahagsaðgerðimar. Skoðana-
kannanir á vinsældum hennar
myndu líklega sýna einhverja aðra
niðurstöðu nú heldur en fyrir fáein-
um vikum. Öllu má ofbjóða, og nú
held ég að Davíð og félagar hljóti að
hafa gengið skrefinu of langt.
Það er ótrúleg bíræfni af þeim fé-
lögum að ætla að hækka útgjöld
heimilanna í landinu með því aö
auka hitaveitukostnaðinn. Eg man
ekki betur en forsætisráðherrann
hafi sjálfur lofað öllu fogm í kosn-
ingabaráttunni síöustu. Þá fór hann
fógrum orðum um að vemda þyrfti
hag ’ heimilanna og ekki skyldi
hækka skattana. Þetta eru nú efnd-
imar.
Um kratana hef ég engin orð. Þeir
em og hafa alltaf verið til alls vísir.
En spurningin er: Hvert ætlar þessi
stjórn að stýra þjóðarskútunni? M.ér
sýnist hún stefna beint úpp á sker.
Atvinnuleysi er nú vaxandi og er það
mikið áhyggjuefni. Helst er þó að sjá
að ríkisstjórnin vilji heldur ýta undir
þá þróun heldur en hitt. Með því að
hækka bækur í verði er ekki einung-
is ráðist aö menningunni. Þetta þýðir
minni sölu, sem aftur þýðir minni
útgáfu sem hefur í fór með sér sam-
drátt. Hvað er þetta annað en aukn-
ing á atvinnuleysi.
Ég skora á fólk að sýna samstöðu
og mótmæla þessum efnahagsráð-
stöfunum ríkisstjórnarinnar.
Eru bátasjómenn einnota?
Jóhann Sigurðsson skrifar:
Varðandi sjómanninn sem missti
framan af fætinum um borð í Nirði
ÁR um daginn finnst mér það talandi
dæmi um hvað yfirvöld geta verið
treg og seinvirk. Engin deyfilyf mega
vera í bátum undir 130 tonnum aö
stærð. Hvað eru margir slíkir bátar
til í flotanum sem í eru samtals á
annað þúsund skip og bátar? Héldu
þeir hjá Siglingamálastofnun að eng-
inn myndi þurfa á deyfilyfjum að
halda í framtíöinni þegar þeir settu
reglumar? Böm eiga sjálfsagt betra
meö að skilja en þeir að líklegra er
að alvarleg slys gerist um borð í
minni bátunum.
Skipstjórinn á Aðalbjörginni kom
réttum orðum að þessum hlutum.
Hann sagði að þeir væru með 10 búnt
af smokkum um borð, (til hvers?)
tuttugu pör af einnota gúmmívettl-
ingum, eymapinna og nokkrar
magnyltöflur. Þetta er talandi dæmi.
Ég held að þeir hjá Siglingamála-
stofnun og þeir sem aö þessu standa
verði að gjöra svo vel að hraða sér
við að kippa þessum málum í lag
áöur en fleiri slys verða. Ella gætu
gerst hlutir sem yrðu ævarandi blett-
ur á starfi þeirra sem hlut eiga að
máh. Slysin gera ekki boö á undan
sér.
Hringið í síma
632700
mtllikl. 14 og 16
- eða skrifið
Naín símanr, vcrður að lylgla bréfum
Mikið hefur verið rætt um að bæta þurfi lyfjabirgðir um borð í bátum.
Hinrik Bjarnason skrifan
Höfundur íjölmiðlaumtjöllunar
í DV si. fóstudag hefur fyrir til-
beina ungs sonar síns orðið þess
áskynja að erlent efni fyrir börn
er talsett í Ríkisútvarpinu-sjón-
varpi og svo sem mönnum er
tamt ályktar hann tafarlaust aö
þetta muni nýtilkomiö. Svo er
ekki.
íslenskt tal hefur verið sett við
aht erlent efni fyrir yngstu böm-
in allan þann aldarfjórðung sem
Sjónvarpið hefur starfað og tal-
setning fyrír aðra aldurshópa
jókst hröðum skrefum aht til
haustsins 1988. Þá var því marki
náð að talsetja aht erlent efni,
ætlað börnum sérstaklega, utan
leikinna myndaflokka. Hefur sú
skipan haldist siðan og síst fyrir-
hugaður neínn samdráttur þar á.
Vandræði
Fínullar
Björn Magnússon hringdi:
Enn berast fréttir af vandræð-
um fyrírtækisins Fínuhar sem
nú er í Borgarnesi. Þarna hlýtur
beinhnis að vera um eitthvert
ahsherjarkiúöur að ræða. Þetta
fyrirtæki hefur ekkert við að
keppa nema sjálft sig. Samt sem
áður er það nú gjaldþrota. Fróð-
legt væri að vita um hina raun-
vemlegu ástæðu fyrir þessum
ósköpum.
Þakkirtil
hjúkrunarfólks
Guðrún Hansdóttír hringdi:
Sunnudaginn 13. september
lenti ég inni á bráðadeild Landsp-
italans. Oft hefur verið deilt á
alla aöiia sem óvinnusama og
stressvaldandi. Um tíma átti sú
ádeila rétt á sér, en þegar ég kom
á bráöadeildina nú fann ég strax
ylinn og kærleikann sem breiddi
faðm sinn á móti mér og varð ég
afslöppuð, ekki stressuð. Ahir
voru sem einn maður.
Síðan fór ég á deild 32 A. Hjúkr-
unarfólkiö þar kom á móti mér
meö opinn og kærieiksríkan
faðminn. Já, 'ahir sem einn. Þaö
var kærleikur sem vert væri aö
tala og skrifa um. Öllu þessu fólki
biö ég blessunar Guðs og megi
kærleikurinn lifa með því. Hvergi
vildi ég aimars staðar vera ef á
þyrfti aö halda. Við erum öU fólk
og þarfir okkar þær sömu.
Inrúlegar kveöjur og þakklæti
til allra.
Semjum
viöKaiser
Sigurjón hringdi:
Það eru ánægjulegar fréttir sem
berast af viðræöum Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra við álfyr-
irtækið Kaiser Aluminium. Við
ættum að drífa í að semja við það
fyrirtæki. Þar virðist vera aivara
á ferðinni.
Alumax virðist hins vegar ætla
að draga bæði haus á hala í mál-
inu. En eftir þvi getum við ekki
beðið. Okkur vantar álver - strax!
Ekki hækka
hitann
Sólveig hringdi:
Þetta ráðbrugg ríkisstjórnar-
innar að afnema endurgreiðslu á
virðisaukaskatti tíl hitaveitna
kemur eins og þruma úr heið-
skírulofti yfir launafólk. Viö, sem
studdum þessa stjóm til verka,
viljum einfaldlega ekki trúa að
enn elgi að hækka útgjöld heimU-
anna. Lengi má herða sultarólina
en nú er hún víðast komin í
innsta gat. Við getum ekki raeir.