Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1992, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1992, Blaðsíða 36
U1 ~vl Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 63 27 00 Frjálst,óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1992. Lentuíhvalnum: Það söng og hvein í öllu „Við vorum að fiska þegar Óli Bjarni sá hnúfubakinn koma upp að bátnum. Þegar hann varð var við okkur stakk hann sér undir bátinn og á færin og allt fór á fulla ferð og báturinn líka. Ég skar á eitt færið, en hann sleit hin tvö. Það söng og hvein í öllu og þetta gerðist allt mjög snöggt. Þetta var ægilegt ferlíki," sagði Óh Hjálmar Ólason, en hann var ásamt syni sínum, Óla Bjama Ólasyni, á trillunni Óla Bjarnasyni EA á veiðum sex sjómílur norð- norðaustur af Kolbeinsey á mánudag í blíðskaparveðri þegar þetta gerðist. „Það var óhemja af hnúfubökum þama, þetta er orðin plága. Þeir eru í loðnunni og veiða skipulega. Þeir fara í kringum torfumar og senda upp loftbólur. Fiskurinn var hættur að taka hjá okkur þegar þetta gerð- ist. Við færðum okkur bara austar og vomm með þijú tonn af ufsa í gær.“ „Það er óhemja af höfmngi hér. Þegar hann kemur hverfur ahur fiskur, hann étur það mikið. Fiski- fræðingar halda því fram að hann éti ekki þorsk en það er ekki rétt, ég veit það. Þeir eru mörg hundmð saman og það fer mikið fyrir þeim. Það er sjón að sjá þegar þeir stökkva og skeh á sjóinn með látum, þetta eru oft magalendingar," sagði Óh Hjálm- ar Ólason. -sme Eldsneytisgjaldið: Endurgreiða 30 miiyónir Ríkissjóður mun endurgreiða bandarískum flugfélögum allt að 30 milljónir krónur á næstunni. Með lagasetningu árið 1988 var ol- íufélögum gert að innheimta og greiða eldsneytisgjald þrátt fyrir að í gildi hafi verið milhríkjasamningur við Bandaríkin sem ekki heimilaði slíka gjaldtöku. Halldór Blöndal mun leggja fram frumvarp á Alþingi sem heimilcU' undanþágufrágjaldinu. -kaa Verkfallhjáísal? „Við ræðum kjaramáhn í dag á tveimur fundum. Meðal annars þaö hvað hægt er að gera til að knýja stjómendur álversins að samninga- borðinu," segir Sigurður T. Sigurðs- son, formaður Hlífar í Hafnarfirði. „Yrðu menn nokkuð hissa á því þó svo færi, ég yrði það ekki,“ sagði Sig- urður aðspurður hvort verkfallsboð- unværiánæstaleiti. -Ari LOKI Bíllinn hefurauðvitaöátt stefnumót á hótelinu! Yfirdrátturinn eykst um milljarð V / Um áramót verður yfirdráttur Reykjavíkurborgar í Landsbank- anum rúmlega 2,3 milljarðar króna eða 940 milljónum krónum hærri en stefnt var að í fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár. Þetta kom fram á borgarráðsfundi í gær. Á fundinum kom einnig fram að tekjur þessa árs vora ofáætlaðar um rúmlega 522 railljónir króna og að rekstrargjöld voru vanáætluð um 500 mihjónir króna. Meirihluta þessa mismunar verður mætt með yfirdrætti í Landsbankanum. Sam- kvæmt tjárhagsáætlun ársins var gert ráð fyrir að yfirdrátturinn yrði um 1,4 mihjarður í lok þessa árs, en hann mun verða rúmir 2,3 mihj- arðar króna. „Ég hef skynjað 1 hvað hefur stefnt á þessu ári. Sérstaklega eftir að é'gsá hvernig ársreikningúr fyr- ir siðasta ár kom út. Ég hef borið ugg í brjósti um að það stefndi í þetta núna á þessu ári. Mér þykir það alvarlegt að staðaþessa efnaða s veitarfélags hafi versnað svo á síö- ustu árum. Þetta sannar fyrir mér að það hafi margt verið geymt óleyst í pípunum þegar Davið Oddsson yfirgaf stólinn. Það var fortíðarvandi falinn í þeím píp- um,“ sagði Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknartlokks- íns. „Það er Ijóst að Reykjavíkurborg hefur haldiö fullum dampi og rúm- lega það 1 framkvæmdum á þessu ári. Það er nokkuö sem við erum ánægö með þar sem það hjálpar upp á atvinnuhfið hér í borginni," sagði Júhus Hafstein, borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokks. Helsta ástæða þess að tekjur hafa reynst þetta mikið lægri en gert var ráð fyrir er að vegna samdráttar hefur minna verið greitt af að- stöðugjöldum en búist var við. Eins hafa gjöldm reynst hærri vegna atvinnuástandsins í borginni. -sme Stúlku, sem var að bregða sér á salerni i kjallara gistiheimilisins á Snorrabraut 52, brá heldur illa þegar bifreið braut rúður í nálægu herbergi í gærkvöldi. Ökumaður bílsins var að beygja frá Snorrabraut upp Bergþórugötu er hann missti stjórn á bílnum. Billinn lenti fyrst á Ijósastaur, þá á afturhorni kyrrstæðs bíls og endaði „inni i kjallara" á gistiheimilinu. Á myndinni virða gestir fyrir sér framhorn bílsins þar sem það teygir sig inn i kjallara- herbergið. Engin slys urðu á fólki. -ÓTT Kirkjugarðar Reykjavíkur: Formaðurinn erhættur Helgi Ehasson lét af formennsku í stjórn Kirkjugarða Reykjavíkur á framhaldsaðalfundi í gærkvöldi. Höskuldur Jónsson varaformaður tók við formennskunni. Helgi sagði í samtali við DV að ástæða þess að hann hætti væri sú að hann hefði flutt á milli safnaða og því ekki haft umboð til stjórnar- setunnar og það hefði verið andstætt lögum að hann sæti lengur. Samþykkt var ályktun sem send verður Verðlagsstofnun. Helgi sagði vegna þess máls augljóst að þjónusta Kirkjugarðannamundihækka. -sme 20sígarettukart- onáArnarhóli Tveir menn sáust vera að reyna að brjótast inn á Glaumbar við Tryggvagötu á fjórða tímanum í nótt. Starfsmaður Securitas kom að þeim og flúðu þeir er þeir sáu th varðar- ins. Þjófamir flúðu sem fætur toguðu og skhdu verkfæri eftir á vettvangi. Kallað var á lögregluna en þjófarn- ir fundust ekki. Þó sást til manna- ferða við Arnarhól skömmu síöar en þegar að var komið fundust um 20 karton af sígarettum á hólnum. Þeg- ar DV fór í prentun í morgun lá ekki fyrir hvaðan kartonin eru en að sögn lögreglu var líklegt tahð að eigand- inn eða eigendur fyndust bráðlega. -OTT Veðriö á morgun: Léttskýjað vestanlands Á morgun verður norðaustan- gola eða kaldi um sunnan- og vestanvert landið en annars stað- ar skýjað. DáhtU súld á Austur- landi. Hitinn verður 3-11 stig. Veðrið í dag er á bls. 44 QFenner Reimar og reimskífur Vtoulsen Suðurtandsbraut 10. S. 680499.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.