Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1992, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1992.
m Endurmenntunamámskeið Háskóla Islands:
A annað hundrað manns
hafa skráð sig í
Merming
Lars-Áke Engblom, forstjóri
Norræna hússins, og Bjarni
Daníelsson, skólastjóri MHÍ,
með hluta af koparnum á milli
sín.
Þak Norræna
hússinsnotað
til listsköpunar
Þegar Norræna húsið var byggt
var sett á það koparþak. Kopar-
inn hiefur ekki staðist íslenska
veðráttu og hefur koparinn nú
verið flarlægður og settur pappi
í staðinn, en efsta lagið verður
samt með koparþynnu til að
breyta ekki úthti hússins. Það er
von manna að pappinn dugi betur
en margoft haíði verið reynt að
ráða bót á þaklekanum en án ár-
angurs. Mestur var þaklekinn í
bókasafninu og suma rigningar-
daga fylltust margar fötur af
vatni og starfsfólkið varð að
breiða plast yflr bækurnar til
þess að forðast vatnsskemmdir.
í vor komu til landsins ekkja
Alvars Aalto og Elissa Aalto arki-
tekt og gáfu þau samþykki að
skipt yrði um þakklæðningu, þar
sem koparinn var sprunginn á
mörgum stöðum. Norræna ráð-
herranefndin veitti aukafjárveit-
ingu, eina milljón danskra króna,
til viðgerðarinnar, en að sögn
Lars-Áke Engblom, forstjóra
Norræna hússins, var þaklekinn
mjög mikill síðastliðinn vetur.
Koparþakið fær nú nýtt hlut-
verk, því að sú hugmynd kom upp
á stjómarfundi Norræna hússins
að nýta mætti koparinn af þakinu
til dæmis til að skapa úr honum
listaverk. Haft var samband viö
Bjarna Daníelsson, skólastjóra
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands, og þáði hann koparinn með
þökkum. -HK
Stnfómuhljómsveitin:
OsmoVanska
nýraðalhljóm-
sveitarstjóri
Undirritaður hefur verið samn-
ingur við Osmo Vánská, nýjan
aðalhljómsveitarstjóra Sinfóniu-
hljómsveitar íslands, til tveggja
ára. Mun hann taka við starfi 1.
september 1993. Osmo Vánská er
hljómleikagestum að góðu kunn-
ur en hann hefur nokkrum sinn-
um stjómað Sinfóníunni við góð-
an orðstír. Vánská er fæddur 1953-
og er af þeirri kynslóð finnskra
hljómsveitarstjóra sem hafa vak-
ið heimsathygli á seinustu ámm.
Eftir að Vánská vann hina alþjóð-
legu Bescanon keppni fyrir unga
hljómsveitarstjóra hefur hann
stjórnaö helstu hljómsveitum
Norðurlanda svo og hljómsveit-
um víða um heim. Hann hefur
verið aöalhljómsveitarstjóri Sin-
fóníuhljómsaveitarinnar í Lathu
í Finnlandi síðan 1988, auk þess
sem hann hefur stjómað talsvert
af upptökum fyrir BIS útgáfufyr-
irtækiö og var upptaka hans
ásamt fiðluleikaranum Leonidas
Kavakos á fiðlukonsert Sibelius-
ar tilnefndur sem besti geisla-
diskur ársins 1991 hjá tímaritinu
Gramophone. -HK
Eins og undanfarin ár gengst End-
urmenntunarstofnun Háskóla ís-
lands fyrir kvöldnámskeiðum sem
öllum em opin. Menningarnám-
skeiðin em mörg og er skráning þeg-
ar hafin. Það er á mörgum sviðum
sem hægt er að sækja fróðleik enda
námskeiðin fjölbreytt. Þegar er mikil
eftirspum í námskeiö sem nefnist
Brennu-Njáls saga og em komnir á
annað hundrað þátttakendur, sem
sýnir að enn er mikill áhug á fom-
bókmenntum okkar. Leiðbeinandi á
þessu námskeiði er Jón Böðvarsson,
fyrrverandi íslenskukennari í MH
og skólameistari Fjölbrautaskóla
Suðumesja, nú ritstjóri Iðnsögu ís-
lendinga. Hefur hann búiö til prent-
unar skólaútgáfur af Brennu-Njáls
sögu og Kjalnesinga sögu. Auk þess
sem efnisþráður Njálu verður rakinn
og skýrður er fjallað um efnistök,
sögugerð, sögusvið, staðháttalýsing-
ar, liklegan ritunartíma sögunnar,
lífsviðhorf og hugmyndaheim höf-
undar. Þá verður farið í ferð á sögu-
slóðir í Rangárvallasýslu.
Nokkur önnur námskeið á sviði
menningar eru í boði. Má þar nefna
Tónsmíðar Mozarts. Þar mun Guð-
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleik-
ari sigraði í keppninni um Tónvak-
ann, tónlistarverðlaun Ríkisútvarps-
ins 1992. Hún tekur við verðlaunun-
um á sérstökum hátíðartónleikum í
Háskólabíói 26. nóvember. Leikur
hún við það tækifæri einleik í selló-
konsert í h-moll ópus 104 eftir Anton-
ín Dvorák með Sinfóníuhljómsveit
íslands. Verða verlaunin, 250 þúsund
krónur, afhent á tónleikunum. Auk
þess verða geröar útvarpshljóðritan-
ir með leik Bryndísar Höllu á næsta
ári.
Bryndís Halla er 27 ára gömul. Hún
hóf nám í sellóleik hjá Gunnari Kvar-
an en sótti síðan framhaldsnám til
Bandaríkjanna í New England tón-
listarháskólanum í Boston og síðar
einkatíma í Amsterdam. Haustið
1990 var hún ráðin leiðandi sellóleik-
ari Sinfóníuhljómsveitar íslands og
gegnir hún þeirri stöðu í dag.
Dómnefnd keppninnar skipuðu
auk Guömundar Emilssonar, tónlist-
arstjóra Ríkisútvarpsins, þau Anna
Guðný Guðmundsdóttir píanóleik-
ari, Bjöm Th. Ámason, skólasijóri
og formaður Félags íslenskra hljóm-
listarmanna, Gunnar Kvaran selló-
mundur Emilsson, tonlistarstjóri
RÚV, rýna í nokkur fegurstu verka
Mozarts og skyggnast ásamt þátttak-
endum á bak við tjöldin í von um
dýpri skilning og ánægju.
Túlkun og tjáning tilfinninga í
myndlist. Leiðbeinandi á þessu nám-
skeiði er Gunnar Árnason, heim-
spekingur og kennari í listheimspeki
við Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands. Á námskeiðinu verður meðal
annars íjallað frá ýmsum hliðum um
hið rótfasta viöhorf að myndlist sé
ætlað að tjá tilfinningar listamanns:
ins sem og aö miðla til og vekja hjá
áhorfandanum tilfinningar. Skoðað-
ar verða fornklassískar og róman-
tískar hugmyndir um þetta efni, auk
viðhorfa í nútímamyndlist.
Á námskeiðinu Er til kvenlegur
ritháttur? mun Helga Kress, prófess-
or í almennri bókmenntafræði, fialla
um bókmenntir, konur og kynferði.
Þar verður meðal annars fiallað um
undirstöðuatriði femínískra bók-
menntafræða, rætt verður um hug-
takið kvenleiki í ráðandi menningu
karla og lesin verða valin íslensk og
erlend bókmenntaverk frá 20. öld,
einkum styttri textar eða kaflar úr
leikari, John A. Speight, söngvari og
formaður Tónskáldafélags íslands,
Rut Magnúsdóttir, söngkennari og
framkvæmdastjóri Tónlistarfélags-
ins, og Sigursveinn K. Magnússon,
skólastjóri og formaður stjómar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands.
AUs tóku 44 tónlistarmenn þátt í
keppninni, 23 léku eöa sungu í hljóð-
veri Ríkisútvarpsins og af þeim voru
Njálu
verkum, ásamt nokkrum greinum
og fræðiritum um efnið.
Guðbergur Bergsson rithöfundur
verður leiðbeinandi á 'námskeiði um
spænskar bókmenntir. Þar veröur
fiallað um nýju epíkina eða frásagn-
arlistina í spænskum samtímaskáld-
skap með hliðsjón af undirstöðu
hennar, Don Kíkóta. í lokin verður
fiallað um spænska ljóðlist frá 1900-
1992.
Hér hefur aðeins veriö stiklað á
námskeiðum á sviði menningarmála,
en önnur forvitnileg námskeið er
einnig boöið upp á, til dæmis Þrír
meistarar siðfræðinnar, Aristoteles,
Kant og Mill, þar sem Vilhjálmur
Árnason dósent er leiðbeinandi, og
Alheimurinn og við: Þættir úr
stjörnufræði og heimsmynd okkar
fyrr og nú. Leiðbeinendur þar eru
Guðmundur Amlaugsson, fyrrver-
andi rektor, og Gunnlaugur Björns-
son stjarneðlisfræðingur.
Eins og fyrr segir eru námskeið
þessi öllum opin og era einu sinni í
viku, 6-10 vikur. Flest þeirra byrja
snemma í október.
-HK
8 valdir til aö koma fram í beinni
útsendingu á Sumnartónleikum Rík-
isútvarpsins sem haldnir vora á
fimmtudagskvöldum í ágúst. Bryn-
dís Haila Gylfadóttir var valin úr
þessum hópi en hún lék á útvarps-
tónleikum 27. ágúst og með henni
Steinunn Bima Ragnarsdóttir píanó-
leikari.
I listasalnum Nýhöfn i Hafnarstræti stendur nú yfir málverkasýning á verkum eftir Guðbjörgu Lind sem unnin eru
með olíu á síðustu tveimur árum. Þetta er sjötta einkasýning Guðbjargar en hún hefur einnig tekið þátt i samsýn-
ingum hér heima og erlendis. Á myndinni er Gubjörg Lind fyrir framan eitt málverk sitt. DV-mynd BG
Bryndís Halla Gylf adóttir sigr-
aði í keppninni um Tónvakann
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari ásamt Guðmundi Emilssyni, tónlistar-
stjóra Ríkisútvarpsins, og Tómasi Tómassyni, starfsmanni tónlistardeildar
Rfkisútvarpsins, en þeir sáu um skipulag og framkvæmd keppninnar.
Rithöf-
undargegn
Stofnuð hefur verið hreyfingin
Rithöfundar gegn lestrarskatti. í
yfirlýsingu frá samtökunum seg-
ir meðal annars aö tilefnið sé
ráðagerðir stjórnvalda um stór-
aukna skattheimtu af bókagerð á
íslandi. Þessi skattheimta mun
fyrirsjáanlega koma harðast niö-
ur á útgáfu íslenskra skáldrita,
svo og allri útgáfu stórra og vand-
aðra verka sem ekki seljast nema
á löngum tima. Hún mun skaða
bæöi prentlist og bókaútgáfu i
landinu og geraþað mun örðugra
en það er nú að rithöfundar dragi
fram lífið með skrifum sínum.
Rithöfundarnir sem skrifa undir
þessa yfirlýsingu eru: Einar Már
Guðmundsson, Einar Kárason,
Fríða Á. Sigurðardóttir, Guð-
bergur Bergsson, Gyrðir Elías-
son, Sigurður Páisson, Steinunn
Siguröardóttir, Thor Vilhjálms-
son, Þorsteinn frá Hamri og Þor-
steinn Gylfason.
Grænlenski leikflokkurinn
Sílamuit mun halda sýningu í
Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi annaö kvöld. Sýnir flokkur-
inn trommudansa, grímuleiki og
segir hefðbundnar sögur af eski-
móum á Grænlandi, Alaska og
Kanada sem færðar hafa verið í
leikbúning. í leikhópnum, sem
staddur er hér á landi í tilefni
fimm ára afmælis Norðvestur-
landasamstarfsins, eru fiórir
ungir grænlenskir leikarar. Leik-
stjórinn, Lars Lövström, lærði í
leikhússkóla Tukak-leikhússins
sem er grænlenskt leikhús sem
starfar á Jótlandi. í ráði er að
Silamuit-leikhópurinn verði
kjarninn í þjóðleikhúsi Græn-
lands sem til stendur að stofna.
Ingólfurskrifar
lífssögu Báru
Sigurjónsdóttur
í fyrra skriíaði Ingólfur Mar-
geirsson mest seldu bók ársins,
Lifróður, þar sem hann ræddi við
og skrifaði um lífshlaup Árna
Tryggvasonar leikara. IngóJfur
hefur unnið að nýrri bók sem
kemur út fyrir jólin. Fjallar hann
þar um lífshlaup annars þekkts
Islendings, Báru Sigurjónsdóttur
kaupmanns. Það er bókaforlagið
Örn & Örlygur sem gefur bókina
út. Hjá sama forlagi kemur einnig
út ævisaga Helga Hallvarðsson-
ar, skipherra hjá Landhelgis-
gæslunni. Það er Atli Magnússon
blaöamaður sem ræðir viö Helga
og skrifar bókina.
verðlaunanna
Framlag íslands til evrópsku
Felixverðlaunanna veröur í ár
leikna kvikmyndm Svo á jörðu
sem á himni eftir Kristinu Jó-
hannesdóttur og heimildarmynd
in Verstöðin ísland - ár í útgerð
eftir Eriend Sveinsson. Aö mati
dómnefndar er Svo á jörðu sem á
himni áhrífamikið verk sem flétt-
ar saman séríslenskan efniviö og
evrópska og sammannlega skír-
skotun. Um Verstöðina ísland
segir i áliti nefndarinnar að hún
dragi saman mikinn fr óðleik um
líf í útgeröarbæ og lýsi því á
metnaöarfullan hátt. Afliending
verðlaunanna fer fram í Berlín í
desember.