Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1992, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1992.
17
Herjólfur var smiðaður í Noregi, svo og fiskiskip á færibandi fyrir milljarða á ári hverju, segir m.a. i grein
höfundar.
Norðmanna
María, kona nóbelskáldsins
Knuts Hamsun, sagði að fátt væri
eins háleitt og aö berjast við bolsje-
vika. Hún var þá að réttlæta gerðir
sínar og samlanda við að senda son
hennar og unga menn til að berjast
við hlið Þjóðveija á austurvígstöðv-
unum.
Norðmenn hafa lengi varað við
hættunni í austri, ekki síst frændur
sína, íslendinga.
Varla má opna norskt dagblað án
þess að þar megi lesa um hugsanleg
átök út af hafsvæðunum norður af
Noregi, kjarnorkuóhöpp eða ein-
faldlega hernaðarmátt Ný-Rúss-
lands í náinni framtíð.
Norðmenn velta því og fyrir sér
hvort þeir muni verða utangarðs í
EB eða hvort NATO muni leysast
upp líkt og Varsjárbandalagið.
Óhkt íslendingum sem einangra
sig frá Evrópu og vilja ekki taka á
móti flóttamönnum eða vita yfir-
höfuð af sameiginlegum Evrópu-
vandamálum.
Ef íslendingar ættu að bera sig
saman við Svía ættmn við að taka
við 1000 flóttamönnum frá Júgó-
slavíu. Norðmenn spyija sig hins-
vegar hvar þeir séu staddir í ljóna-
gryfjunni og hafa aðeins tekið við
á þriðja þúsund flóttamönnum.
„Fleygið byssunum“
Sagði Knut Hamsun við ungu
norsku hermennina viku eftir inn-
rás Þjóðverja. Tveim mánuðum
síðar gáfust Norðmenn endanlega
upp. Norðmenn munu seint gleyma
„elliafglöpum" skáldsins en ekki
síst minnast þess hve illa þeir voru
í stakk búnir til að mæta innrásarl-
iðinu.
Norðmenn hafa oft beitt landa
sína harðræði til að sannfæra þá
um hættuna af nágrönnunum í
Evrópu. Það tók Norðmenn 8 ár
eftir stríð að gera upp sakir við 30
þúsund föðurlandssvikara. Norð-
menn hikuðu ekki við að láta virt-
asta og mest lesna skáld sitt á geð-
veikrahæli öðrum til yiðvörunar.
Á sama tíma voru íslendingar í
uppbyggingarvímu með nýfengið
lýðræði og nutu dyggilegs stuðn-
ings og hjálpar Norðmanna við að
komast inn í hemaðarbandalagið
NATO.
Rússagrýla og
viðskiptahagsmunir
Getum við lært af reynslu Norð-
KjaHarinn
Sigurður Antonsson
framkvæmdastjóri
manna? Eflaust sjáum við tleira en
frændsemi í háttemi Norðmanna
en þar sannast máltækið að frænd-
ur em frændum verstir. Að sjálf-
sögðu eru Norðmenn skyldir íbú-
um N-Rússlands frá ómunatíð. Rétt
eins og við emm skyldir Norð-
mönnum en einkum írum, ef draga
má ályktun af blóðflokkum. Norð-
menn vilja halda Rússum í hæfi-
legri fjarlægð, ekki aðeins á sviði
hermála heldur og óttast þeir sam-
keppni þeirra á markaðnum.
Ibúar í N-Noregi mótmæltu ný-
lega ódýrum rússneskum fiski úr
Barentshafi á fiskmörkuðum sín-
um. Á sama tíma véluðu þeir ís-
lenska fiskeldismenn til að halda _
uppi háu verði á eldislaxi í Evrópu.
Á síðasta ári vísuðu Norðmenn
mörgum Rússum úr landi fyrir iðn-
aðamjósnir. Skyldu þeir t.d. hræð-
ast að rússneskir iðnaðarmenn
selji íslendingum skip í náinni
framtíð?
Herjólfur var smíðaður í Noregi
svo og fiskiskip á færibandi fyrir
miUjaröa á ári hverju. Á sama tíma
og vinna hraðminnkar hérlendis.
Olíuágóðann nota Norðmennirnir
til þessara viðskipta en þeir eru að
verða í skjóh olíu ein auðugasta
þjóð álfunnar. 10% undirboð hefur
nægt og Norðmenn hafa tryggt sér
milljarða viðskipti til að halda
blómlegu atvinnulífi gangandi.
Sendimenn óþarfir
Leitun er að jafn óhagstæðum
viðskiptajöfnuði milli landa. Til að
kóróna það höldum við úti sendi-
herra og ríkisfréttamanni í Noregi.
Góður geymslustaður fyrir sendi-
herra komna á efri ár. Enda kvað
vera sumarfagurt í suöurfjörðun-
um en nokkuð dýr kostur fyrir
eyþjóðina. Nær væri að senda
sendiherrann til landa sem við höf-
um meira að sækja til eða selja.
Reyndar væri nóg að hafa sameig-
inlegan sendiherra fyrir Norður-
lóndin ef ekki einnig fyrir Rússland
í Danmörku.
Með afnámi viðskiptahafta og
vegabréfsskriffinnskunnar nægir
að láta kaupsýslumenn, einstakl-
inga og vináttufélög sjá um tengsl-
in. Sendiferðir í nafni menningar á
vegum skattgreiðenda eða ríkisfyr-
irtækja ættu að afleggjast og greið-
ast einungis af þeim er þær vilja
og njóta. Vera fréttamanns ríkisút-
varpsins er öhu óskiljanlegri en
vera sendiherrans. Hann væri bet-
ur kominn í Mið-Evrópu. Áhrif
Norðmanna eru orðin óþarflega
mikil á íslandi.
Þáttur fjölmiðla í Hamsun og Tre-
holtsmálinu var álíka ósjálfstæður
og hjá okkur í Geirfmns- og Klúbb-
máhnu. Upplýsingar láku frá lög-
reglunni og síðan var skáldað og
fyht í eyðumar til að sennilegur
glæpur yrði dómtekinn (galdra-
brennur nútímans). Mótsagna-
kennt á tímum upplýsinga og frið-
arverðlauna til handa Mikhaíl
Gorbatsjov í Osló.
Sigurður Antonsson
„Leitun er að jafn óhagstæðum við-
skiptajöfnuði milli landa. Til að kóróna
það höldum við úti sendiherra og ríkis-
fréttamanni í Noregi. Góður geymslu-
staður fyrir sendiherra komna á efri
áv, U
EFTIRFARANDI MYNDMENNTA-
NÁMSKEIÐ ERU í BOÐI HAUSTIÐ 1992
Hlutateikning, 3 kest. á viku í 11 vikur. Verð kr. 6.600.
Teiknun og málun, 1. fl. og framhaldsflokkur, 4 kest.
á viku. Verð kr. 8.800.
Módelteikning, 1. fl. og framhaldsflokkur, 4 kest. á
viku. Verð kr. 13.300.
Stutt umhverfis- og haustlitanámskeið.
Verð kr. 5.000.
Teiknun og litameðferð f. unglinga. Verð kr. 4.500'.
Upplýsingar í síma 12992 og 14106.
Greiðsluáskorun
Gjaldheimtan í Mosfellsbæ skorar hér með á gjald-
endur í Mosfellsbæ, Kjalarneshreppi og Kjósar-
hreppi, sem ekki hafa staðið skil á eftirfarandi opin-
berum gjöldum, þ.e. tekjuskatti, útsvari, eignarskatti,
sérstökum eignarskatti, kirkjugarðsgjaldi, gjaldi í
Framkvæmdasjóð aldraðra, sérstökum skatti á versl-
unar- og skrifstofuhúsnæði, aðstöðugjaldi, iðnlána-
sjóðs- og iðnaðarmálagjaidi, slysatryggingu skv. 36.
gr. almannatryggarl., slysatryggingargjaldi v/heimil-
isstarfa, útflutningsráðsgjaldi, verðbótum af tekju-
skatti og útsvari, sem voru álögð 1992 og féllu í
gjalddaga 1. ágúst 1992 ásamt eldri gjöldum, að
greiða þau nú þegar og eigi síðar en innan 15 daga
frá dagsetningu áskorunar þessarar.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir van-
goldnum eftirstöðvum gjaldanna að þeim tíma liðn-
um.
Mosfellsbæ 23. sept. 1992
Gjaldheimtan í Mosfellsbæ
NÁMSKEIÐ
UM ÍÞRÓTTALÆKNISFRÆÐI •>
Eins og áður hefur komið fram verður námskeið um
íþróttalæknisfræði á vegum Ólympíunefndar íslands
haldið í íþróttamiðstöðinni í Laugardal dagana 1. til
3. okt. nk. Forstöðumenn verða læknarnir Birgir
Guðjónsson og Sigurjón Sigurðsson.
Námskeiðið hefst fimmtudaginn 1. okt. kl. 17.15 og
verður fram haldið á sama tíma daginn eftir en laugar-
daginn 3. október hefst námskeiðið að morgni kl.
9.15.
Námskeiðið stend**r yfir í 4-5 klukkustundir hvern
dag með stuttu matarhléi.
Námskeiðið er einkum ætlað læknum, sjúkraþjálfur-
um og íþróttaþjálfurum. Gestur á námskeiðinu verð-
ur prófessor Ingard Lereim frá Þrándheimi sem mun
fjalla um mjúkpartameiðsli (soft tissue injury) og
einnig um blóðdóping.
Sérfræðingar í læknisfræði og sjúkraþjálfarar munu
fjalla um helstu meiðsli sem fyrir koma hjá íþrótta-
mönnum, meðferð þeirra og endurhæfingu.
Fjallað verður ítarlega um lyfjamisnotkun í íþróttum,
um reglur, töku sýna, líkamlegar afleiðingar og refs-
ingar.
Kynnt verða nýjustu viðhorf í kyngreiningu, bæði
með tilliti til almennrar skoðunar og sérhæfðra litn-
ingarannsókna.
Þátttaka er ókeypis og hafa allmargar umsóknir um
þátttöku þegar borist en heildarfjölda getur þurft að
takmarka.
Umsóknir um þátttöku berist til skrifstofu Ólympíu-
nefndar íslands eða ISÍ í síma 813377 fyrir 29. sept-
ember nk.
Undirbúningsnefnd