Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1992, Side 19
18
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1992.
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1992.
31
Iþróttir
1. deild kvenna í handbolta hefst í kvöld:
Hörkuleikur
að Hlíðarenda
Sport-
stufar
r~Tj Bandárískl kylfingur-
I I Raymond Floyd
I ^ | varð á sunnudaginn
fyrsturtilaövinnasig-
ur bæði á öldungamóti og at-
vinnumóti á sama keppnistíma-
biiinu þegar hann vann stórt öld-
ungamót í Indianapolis. Floyd er
fimmtugur og enn á meðal þeirra
bestu því aö auk eins sigurs á
atvinnumóti í ár varð hann annar
á tveimur mótum og annað þeirra
var sjálft bandaríska meistara-
mótið.
Buffalo Bills
vann risasigur
Þremur umferðum er lokið í am-
eríska fótboltanum, NFL-deild-
inni, og í þriðju umferðinni um
helgina bar hæst risasigin- Buff-
alo BiUs á Indianapolis Colts,
38-0. Buffalo er með fullt hús
stiga ásamt Miami Dolphins,
Pittsburgh Steelers, Dallas
Cowboys og Philadelphla Eagles.
Örslit á sunnudagskvöld urðu
þessí:
New Orleans - Atlanta.10-7
Green Bay - Cineinnati.24-23
Houston - Kansas City...23-20
Minnesota - Tampa Bay...26-20
Seattle-NewEngland....10-6
SF 49ers - New York Jets.31-14
Philadelphia - Denver.30-0
Washington-Detroit......13-10
Miami - LARams.........26-10
Dallas - Phœnix.........31-20
Cleveland-LARaiders...28-16
Pittsbmgh - San Diego..23-6
Buffalo Bills - lndianapolis....38-0
New York Giants - Chicago ...27-14
Kaup Sevilla á
Maradona frágengin
í gærkvöldi var gengið frá kaup-
um spænska liösins SeviIIa á arg-
entínsku knattspyrnustjörminni
Diego Maradona frá Napólí á ítal-
íu. Sevilla greiöir Napófi 7,5 miilj-
ónir dollara, eöa 420 miUjónir
króna, fyrir Maradona, en þaö er
sama upphæð og Napólí greiddi
Barcelona fyrir hann fyrir átta
árum.
Graham fórnar fegurð
fyrir baráttu
George Graham, framkvæmda-
stjóri enska knattspymuliðsins
Arsenal, segist því miöur veröa
að fóma fegurðinni fyrir barátt-
una ef hann ætlaöi að halda vinn-
unni, „Ég verð að velja á rnilli
þess aö ná árangri eða spila fal-
legan fótbolta og tapa alltaf. Gegn
Sheffield United á laugardag varö
ég að taka tvo snjalla leikmenn
út af til aö forðast tap og því miö-
ur verö ég að grípa oftar til þess
ráðs,“ sagði Graham sem tók hina
leiknu Paul Merson og Anders
Limpar afvelli þegar Arsenal var
1-0 undir á laugardaginn - með
þeim árangri að lið hans náði að
jafna rétt fyrir leikslok.
OB ó toppnum
í Danmörku
OB er áfram efst í dönsku úrvals-
deildinni í knattspymu eftir 2-0
sigur á B1909 á sunnudaginn.
Ónnur úrsiit: AaB - Silkeborg
1-2, AGF-Köbenhavn tM),
Frem - Næstved 3-1 og Lyngby -
Bröndby 0-2. OB er meö 13 stig,
FC Köbenhavn 11, Silkeborg 10,
AaB 10, Bröndby 10, AGF 7, Frem
7, Lyngby 5, Næstved 5 og B19Q9
2 stig.
Aðalfundur knatt-
spyrnudeiidar HK
Aðalfundur knattspyrnudeildar
HK verður haldinn í félagsheim-
ilinu í Digranesi fimmtudags-
kvöldið 8. október og hefst klukk-
an 20.
Keppni í 1. deild kvenna í handknatt-
leik hefst í kvöld með fimm leikjum.
í vetur leika 12 lið í deiidinni, einu
fleira en í fyrra. Selfoss og Fylkir
hafa bæst í hópinn en Keflavík send-
ir hins vegar ekki lið að þessu sinni.
íslandsmeistarar Víkings hefja tit-
ilvömina með því að sækja Val heim
og hefst leikur liðanna að Hiíðarenda
klukkan 18. Selfoss og ÍBV mætast á
Selfossi klukkan 18.30 og síðan hefj-
ast þrír leikir klukkan 20. Fylkir og
Stjaman leika í Austurbergi, Grótta
og Fram á Selfjamamesi og Haukar
og FH í Strandgötuhúsinu í Hafnar-
firði. Fyrstu umferðinni lýkur síðan
þegar Armann og KR mætast í Laug-
ardalshöllinni á laugardaginn.
Talsvert var um félagaskipti milli
kvennaliðanna í sumar og sérstak-
lega var mikil hreyfing til nýliðanna,
Selfoss og Fylkis. Meistarar Víkings
máttu hins vegar sjá á bak sterkum
leikmönnum.
Tvær frá Júgóslavíu
Tvær handknattleikskonur frá fyrr-
um Júgóslavíu leika hér á landi í
vetur. Það er landsliðsmarkvörður-
inn Maria Samardija, sem ver mark
Víkinga, og Vesna Tomajek, einnig
landsliðskona, sem leikur með Ár-
manni. Þá mun Judith Ezstergal frá
Ungverjalandi leika áfram með ÍBV
eins og tvö undanfarin ár.
Tvær í leikbanni
Tvær veröa væntanlega í leikbanni
í fyrstu umferðinni í kvöld, Anna
G. Einarsdóttir og Ágústa Sigurðar-
dóttir sem hyggjast leika með Fylki
í vetur. Ármenningar hafa ekki vilj-
aö skrifa undir félagaskipti þeirra en
HSÍ hefur farið fram á greinargerð
frá Armanni um málið fyrir helgi.
Þessar stúlkur skiptu um félag:
Andrea Atladóttir, Víkingur - ÍBV
Anna G. Einarsd., Ármann-Fylkir
Anna K. Sveinsdóttir, ÍR - FH
Auður Hermannsd., Fram - Selfoss
Ágústa Sigurðard., Ármann - Fylkir
Ásta Sölvadóttir, Keflavík - Valur
Dagný M. Jónsdóttir, Valur - Armann
Drífa Gunnarsd., Stjarnan - Selfoss
Ellen Óskarsdóttir, Þór A. - Fram
Erla Magnúsdóttir, Valur-Fylkir
Eva Baldursdóttir, FH - Fylkir
Guöný Þórisdóttir, ÍR - Fylkir
Heiða Erlingsd., Víkingur - Selfoss
Helga Kristjánsdóttir, IBV - Stjarnan
Hjördís Guðmundsd., Vík. - Selfoss
Hrafnhildur Gunnlaugsd., Vík. - KR
Hrefna B. Ingólfsdóttir, Valur - Fylkir
Hulda Bjamadóttir, Fram - Selfoss
Inga B. Ólafsdóttir, Stjaman - Fylkir
Inga B. Sigurðard., Þróttur - Fylkir
Ingibjörg Jónsdóttir, ÍBV - Stjaman
Ingunn Guðmundsd., Valur-Fylkir
íris Sæmundsdóttir, ÍBV - Víkingur
Kristín Gunnarsd., Selfoss - Ármann
Kristjana Gunnarsd., Keflav. - Selfoss
Kristrún Hermannsdóttir, ÍR - Fylkir
Ragnheiður Júlíusd., Valur - Haukar
Ragnheiður Gíslad., Valur-Armann
Rut Baldursdóttir, FH - Fylkir
Sara Haraldsdóttir, Grótta - Fylkir
Sólveig Steinþórsd., Grótta - Fylkir
Stefania Guðjónsd., ÍBV -Stjaman
Steinunn Þorkelsdóttir, ÍR - Fylkir
Una Steinsdóttir, Valur - Stjaman
Unnur Siguröard., Keflavík - Fram
Þórunn Þórarinsd., Afture. - Stjaman
-VS
Evrópumótin 1 handknattleik:
Víkingar leika ytra
Víkingar munu leika alla leiki sína í 1. umferð Evrópumóta félagsliða í
handknattleik erlendis, bæði í karla- og kvennaflokki. í báðum tilfellum eru
andstæðingamir norskir, karlalið Víkings leikur við Runar í IHF-bikamum
og kvennaliðiö við Bækkelaget í Evrópukeppni meistaraliða og verður leikið
í Noregi dagana 2. og 4. október.
Kvennalið Stjömunnar mun hins vegar leika báða leiki sína við Skovbakk-
en frá Danmörku í Evrópukeppni bikarhafa hér heima og fara þeir báðir
fram um næstu helgi, á laugardag og sunnudag.
Valsmenn sækja Stavanger í Noregi heim um næstu helgi í Evrópukeppni
bikarhafa í karlaflokki og síöari leikur liðanna fer fram hér á landi sunnudag-
inn 4. október.
FH leikur við Kyndil í Færeyjum í Evrópukeppni meistaraliöa í karlaflokki
á föstudagskvöldið og liðin mætast síðan aftur í Kaplakrika föstudaginn 2.
október. -VS
Enn eitt kæramálið í knattspymu:
Víðir kærir leik ÍR og UMFG
Víðismenn úr Garði hafa kært leik Grindavíkur og ÍR til dómstóls íþrótta-
bandalags Suöumesja. Þeir telja lið ÍR ólöglegt í þeim leik sem og í flestum
öðrum í síðari umferð 2. deildar keppninnar í knattspymu.
Kristján Halldórsson og Guðjón Jóhannesson voru í leikbanni þegar ÍR lék
viö Leiftur í sumar en vom þó á leikskýrslu sem liðsstjórar. Leiftur kærði
en fylgdi málinu ekki eftir alla leið og því var þar með vísað frá dómstóli KSÍ.
Víðismenn telja að fyrst svo fór eigi Krislján og Guðjón eftir að taka út
leikbann sitt. ÍR vann Grindavík, 1-0, í lokaumferð 2. deildar og bjargaði sér
með því frá falli en Víðir féll í staðinn í 3. deild.
Fari svo að Víðir vinni þetta mál heldur liðið sæti sínu í 2. deild en það
yrði þá hlutskipti ÍR-inga að falla í 3. deild. -VS
ISLANDSMOTIÐ I
HANDKNATTLEIK, 1. DEILD KARLA
IR - VIKINGUR
f SELJASKÓLA í KVÖLD KL. 20
Halda nýliðarnir sigurgöngu sinni áfram?
Komið og sjáið spennandi leik.
adidas
*>peinn«iíabari
Islensku keppendurnir á ólympíumóti þroskaheftra slógu svo sannarlega i gegn á mótinu og unnu til fjölda-
margra verðlauna. Frammistaða íslenska liðsins vakti mikla athygli og á myndinni hér að ofan sést íslenski hópurinn eftir að leikun-
um lauk í Madrid á Spáni. Önnur frá vinstri í neðri röð er Sigrún Huld Hrafnsdóttir sem vann til 9 gullverðlauna á mótinu.
Símamynd Reuter
Drengjalandslið íslands í miklum ham á Selfossi:
Rassskelltu Dani
- unnu 4-1 sem er stærsti sigur okkar gegn Dönum 1 landsleik
Amar og Bjarki Gunnlaugssyn-
ir, knattspymutvíburamir frá
Akranesi, fara til þýsku meistar-
anna Stuttgart 25. október og
dvelja þar við æfingar í átta daga.
Þeir eru nú í Hollandi þar sem
þeir hófti æfingar með Feyenoord
á mánudagsmorguninn og veröa
út þessa viku.
Pétur og Baldur í banni
Pétur Araþórsson úr Fram og
Baldur Bjamason úr Fylki voru
í gær úrskuröaðir í eins leiks
bann af aganefnd KSÍ, Pétur
vegna fjögurra og Baldur vegna
sex gulra spjalda. Þeir verða því
i leikbanni í fyrsta leik næsta
keppnistimabils. Sama er að segja
um Hafþór Kolbeinsson úr KS
sem var kominn með fjögur gul
spjöld.
Liverpool komst
í hann krappan
Liverpool varö aö sætta sig við
4-4 jafhtefii á heimavelli gegn 3.
deildar liðinu Chesterfield í fyrri
leik liðanna i 2. umferð deildar-
bikarkeppninnar í knattspymu í
gær. Chesterfield komst í 0-3 og
2-4 en Mark Wright náði aö jafiia
metin 5 mínútum fyrir leikslok.
Hin þrjú mörkin gorðu Ronny
Rosenthal, Mark Walters og Don
Hutchison, hans fyrsta mark fýr-
ir Liverpool. Örslit lelkja í deild-
arbikarkeppninni í gær urðu
þannig:
Arsenal - Millwall...... 1-1
Bolton - Wimfaledon........1-3
Bristol C - Sheff. Utd....2-1
Bury-Charlton.............0-0
Cambridge - Stoke.........2-2
Carlisle - Norwich........2-2
C.Palace - Lincoln........3-1
Exeter - Oldham...........0-1
Leeds - Scunthorpe...........4-1
Liverpool - Chesterfield...4-4
Notts County - Wolves......3-2
Watford - Reading.........2-2
Wigan-Ipswich.............2-2
Skoski dcildabikarinn
St. Johnstone - Rangers....1-3
-GH
íslenska drengjalandshðið í knatt-
spymu mætti Dönum í gærkvöldi fyrri
leik liðanna í Evrópukeppni landsliða
og fór leikurinn fram á Selfossi. íslensku
strákamir fóru á kostum og sigmöu 4-1,
staðan í hálfleik var 2-0.
Eggert Magnússon, formaður KSÍ,
fylgdist með leiknum og kvaðst mjög
ánægður með hina góöu frammistöðu
íslenska liðsins: „Þetta er stærsti sigur
okkar á Dönum,“ sagði Eggert.
Frábært
Amar Ægisson, fyrirliði íslenska liðsins
var að vonum ánægður með stöðu mála:
„Þetta var alveg frábært. Það er það
eina sem maður getur sagt. Annars er
ég alveg klár á þvi að þetta er okkar allra
besti leikur. Samstaðan var mjög góð -
og þetta bara stórkostlegt einu orði
sagt,“ sagði Amar.
Gangur leiksins
Leikur íslenska liðsins var mjög góður
allan tímann og sömuleiðis frábær bar-
átta. Ljóst er að tilkoma Þorbjöms
Sveinssonar og Björgvins Magnússonar
var til bóta. Erfitt er að taka einn fram
yfir annan því liðið er skipað mjög jöfn-
um leikmönnum.
Strax á 8. mínútu náði ísland forystu
með frábæm marki Þorbjörns Sveins-
sonar. Markið haföi mjög jákvæð áhrif
á leik okkar manna og á 17. mínútu
bættu strákamir við marki númer tvö,
Kjartan Antonsson skallaði óverjandi
úr aukaspyrnu sem Þorbjörn tók frá
vinstri kanti.
í síðari hálfleik reyndu Danirnir að
klóra í bakkann og á 62. mínútu skoraði
David Nielsen eina mark Dana. íslensku
piltamir vom ekki af baki dottnir og á
66. mínútu bætti Þórhallur Hinriksson
við 3. marki íslenska liösins, eftir góðan
undirbúning Eiðs Guðjohnsen og á 77.
mínútu gerði Nökkvi Gunnarsson 4. og
síðasta mark íslands með föstu skoti.
Sannkölluö markaveisla.
Meiriháttar
Þórður Lámsson, annar þjáifari ís-
lenska liðsins, var að vonum ánægður
með sína menn:
„Þetta er alveg meiriháttar. Danir tefla
fram mjög sterku liði en við vorum ein-
faldlega betri í kvöld,“ sagði Þórður.
íslenska liöið gott
Poul Erik Beck, þjálfari Danska liösins,
var mjög óhress með norska dómarann:
„Hann var okkur mjög óhagstæður. En
þetta er ekki búið, við eigum heimaleik-
inn eftir,“ sagði Poul Erik.
Dómari var Thore Hollung frá Noregi
og heföi hann mátt sýna meiri röggsemi.
-Hson
'V
Nökkvi Gunnarsson innsiglar glæsilegan sigur á Dönum á Selfossi í gær með því aö skora fjóröa mark íslands.
DV-mynd Hson
íþróttir
Jói til ÍBV
Jóhannes Atlason hefur verið ráð-
inn þjáifari 1. deildar liðs ÍBV í
knattspymu á næsta keppnistíma-
bili. Frá þessu var gengið í gær-
kvöldi. Jóhannes tekur viö af Óm-
ari Jóhannssyni sem stjómaöi
Eyjaliðinu í sex síðustu umferðun-
um á íslandsmótinu og tókst á
ævintýralegan hátt að bjarga liðinu
frá faÚi. Ómar tók við af Sigurlási
Þorleifssyni sem ákvað aö hætta
störfum.
Jóhannes Atlason er gamal-
reyndur þjálfari seni meðal annars
hefur þjálfað lið Fram, KA, Þórs
og síðast Stjömuna. í ár tók hann
sér frí frá þjálfun eftir aö hafa ver-
ið verið við stjómvölinn hjá Stjörn-
unni frá árinu 1989.
Kominn tími til að
fá mann ofan af landi
„Við teljum að Jóhannes sé maður-
inn sem okkur vantar. Hann er
reynslumikill þjálfari sem undan-
tekningarlaust hefur náð góðum
árangri. Þá held ég að það sé kom-
inn tími til að fá mann ofan af landi
til að þjálfa lið okkar en síðustu 20
árin eða rúmlega það hafa þjálfam-
ir verið heimamenn eða útiending-
ar,“ sagði Jóhannes Ólafsson,
formaður knattspymuráðs ÍBV,
við DV í gærkvöldi. Samningur
Jóhannesar Atlasonar er til eins
árs.
LíklegastaðTeitur
þjálfi liöTrömsö
Það ætti að koma í ljós i byrjun
næsta mánaðar hvaöa lið Teitur
Þórðarson þjálfar á næsta keppnis-
tímabili en hann lætur senn af
störfum sem þjálfari norska liðsins
Lyn. „Ég var í Tromsö og ræddi
þar við forráðamenn liðsins og
kynnti mér aðstæður hjá félaginu.
Mér leist mjög vel á þaö sem ég sá
og það er ljóst að það er margt við
höndina sem þarf til hjá félaginu.
Það má segja að það sé líklegast í
dag að ég þjálfi liðið á næsta tíma-
bili en við munum ræða frekar
saman,“ sagði Teitur í samtali við
DV í gær.
Lið Tromsö hefur átt erfitt upp-
dráttar í norsku knattspyrnunni í
sumar og er sem stendur í 4.-5.
neðsta sæti 1. deildar og ekki enn
laust við fallbaráttuna.
- En er möguleiki á því að Ólafur
Þórðarson, bróðir þinn, leiki með
Tromsö ef af samningum verður?
„Það hefur ekki verið rætt neitt
sérstaklega en ég tel það alls ekki
útilokað," sagði Teitur. -GH/SK
þjálfari ÍBV.
Jóhannes Atlason var í gær ráðinn
Samningar tókust ekki á fundi FH og HK í gær:
Allt í hnút hjá Hansa
- HK-menn bjartsýnir á að HSÍ veiti Hans leikheimild í dag
Forráðamenn handknattleiks-
deilda FH og HK hittust á fundi í
gær og reyndu að komast að sam-
komulagi um félagaskipti Hans
Guðmundssonar úr FH í HK.
Samningar tókust ekki og er Hans
því enn án leikheimildar.
FH-ingar vilja fá peningagreiðslu
frá HK en forráðamenn Kópavogs-
liðsins segja það útilokað vegna
framkomu FH um síðustu helgi.
HSÍ mun veita Hans leikheimild
nú í hádeginu nema FH leggi fram
haldbær rök til HSÍ með greinar-
gerð fyrir hádegi í dag þess efnis
að það eigi kröfur á Hans. Fari svo
að FH-ingar sendi inn greinargerð
með haldbærum rökum að mati
HSÍ mun HK kæra til dómstóls HSÍ
og málið verða tekið fyrir í héraði.
„Við erum bjartsýnir á að HSÍ
veiti Hans leikheimild nú í hádeg-
inu og að hann geti leikiö meö okk-
ur gegn KA í kvöld. Við teljum víst
að FH eigi engar kröfur á Hans.
Ég vona að Kópavogsbúar sýni
stuðning sinn, mæti á leikinn og
hvetji okkur hvort sem Hans verð-
ur með eða ekki,“ sagði Valsteinn
Stefánsson, formaður handknatt-
leiksdeildar HK, við DV í gær-
kvöldi.
„Við vorum tilbúnir fyrir nokkm
síðan að borga FH 450 þúsund
krónur fyrir Hans eða sömu upp-
hæð og við fáum frá KA fyrir Ósk-
ar Elvar Óskarsson. FH-ingar vildu
að við legöum fram persónulegar
ábyrgðir fyrir þessari upphæð eða
skrifuðum ávísun fram í tímann
en það tókum við ekki mál. Eftir
framkomu þeirra undanfarið erum
við orðnir stífir og því viljum við
að HSÍ úrskurði í þessu máÚ,“ sagði
Valsteinn.
FH-ingar lögðu væntanlega fram
greinargerð til HSÍ nú í morgun og
þá ætla þeir að senda yflrlýsingu
frá sér um þetta mál í dag.
-GH
Nú er ijóst
að Gunnar
Gíslason
mun ekki
þjálfa lið KA
í knattspym-
unni næsta
sumar og
reyndar er
óvist hvort
hann leikur
knattspyrnu hér á landi. Allt eins
gæti farið svo að hann yrði í Sví-
þjóð. Reyndar er yfir höfuð óvíst
hvort hann leikur knattspymu
áfram en hann hefur átt við þrá-
lát meiðsli að stríða og var oft
utan vallar í sumar af þeim sök-
um.
Þá hefur Ormarr Örlygsson
ákveðið að leika ekki knatt-
spymu næsta sumar en hann
hefur veriö einn aðaimáttarstólpi
KA-Hðsins. Botninn datt úr KÁ-
tiðinu í iok keppnistímabiisins.
Liðið var 7 sekúndur frá því að
vinna bikarinn og féll síðan í 2.
deild eftir mikla baráttu. Og nú
hefur enn eitt áfalliö dunið yfir
KA-menn. -GK Akureyri
Qunnar Gíslason.
Amór Guðjohnsen:
„Fer aldrei
til Anderlecht"
„Vegna
ummæla
Verschuer-
ens, fram-
kvæmda-
stjóra And-
erlecht, í DV
í gær vil ég
taka fram að
ég mun aldr-
ei fara aftur
til Anderlecht sem leikmaöur og
það hefur aldrei staðiö til,“ sagði
Arnór í samtati við DV í gær.
„Anderlecht kom illa fram við
mig á sínum tíma og ég færi ekki
aftur þangað þó mér væri boðinn
þrefaldur samningur. Mín mál
em í ólestri vegna viðskipta And-
erlecht við Bordeaux og hafa þró-
ast öðravísi en ég vildi," sagði
Arnór.
í DV í gær sagöi Verschueren,
framkvæmdastjóri Anderlecht,
meðal annars að ekki kæmi til
greina að láta Amór leika með
Anderlecht að nýju. Tíu lands-
liösmenn væm í tiðinu og tiöið
væri þegar fullmótað fyrir keppn-
istímabilið. -VS
Amór Guðjohnsen.
Helgi Slgurðsson.
„Það verð-
ur gaman að
sjá aðstæöur
lyá danska
liðinu og ef
ég fæ hag-
stætt tilboð
er eg reiðu-
búinn að slá
til," sagði
Helgi Sig-
urðsson, sóknarmaðurinn efni-
legi úr Víkingi, í samtati við DV
í gær.
Eins og DV hefur áður sagt frá
hefúr danska úrvalsdeildartiöið
B1909 boðið Heiga til sín. Hann
fer beint til Óðinsvéa eftir leik
Vlkinga gegn CSKA í Moskvu í
Evrópukeppni meistaratiða í
næstu viku, dvelur í fjóra daga
hjá B1909 og leikur æfingaleik
með liðinu.
Með Helga í för verður Gunnar
Öm Kristjánsson, förmaður
knattspyrnudeildar Vflóngs, og
jafhvei einnig Logi Ólafsson,
þjátiari Vikings.
B1909 vann sér sæti í dönsku
úrvalsdeildixmi fyrir þetta tíma-
biIenhefurgengiðiUa. -VS