Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1992, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992.
LífsstQl dv
DV kannar verð í matvöruverslunum:
Bónus selur aðeins
fjórar tegundir af tólf
- Fjarðarkaup selur allar
Vikuleg verðkönnun DV var gerð
í gær. Farið var í Bónus Skútuvogi,
Hagkaup Eiðistorgi, Kaupstað við
Hringbraut, Miklagarð og Fjarðar-
kaup.
Valdir voru tólf vöruflokkar af
handahófi áður en lagt var af stað í
könnunina. Þegar upp var staðið
kom sú athyglisverða niðurstaða í
Neytendur
ljós að Bónus selur aðeins fjórar af
þeim tólf vörutegundir sem teknar
voru í könnunina, Mikligarður átta
af tólf en Fjarðarkaup allar tólf. í
Bónusi og Miklagarði er þó sama
vara til í flestum tilfellum en undir
öðrum vörumerkjum. Það dugar
bara ekki f verðkönnun þar sem allt-
af verður að bera saman sömu vöru
af sömu þyngd og innihaldi.
Perur ódýrastar í Bónusi
Perur voru langódýrastar í Bónusi
eða 61 króna hvert kíló. Dýrastar
voru þær í Fjarðarkaupum og Kaup-
stað á 99 krónur. Hagkaup var með
næsthæsta verðið, krónur 95 og
Mikligarður seldi perurnar á 66
krónur. Munur á hæsta og lægsta
verði er 62%.
Lambahryggur af nýslátruðu var
ódýrastur í Fjarðarkaupum og
Miklagarði eða 735 krónur. Verðið í
Miklagarði er með 3% staðgreiðslu-
afslætti. Kílóverð af hrygg var 758 á
Hagkaup og 804 í Kaupstaö. Á flest-
um stöðum var til kjöt frá haustslátr-
un 1991 og var þaö mun ódýrara.
Lambahryggur ’92 fékkst ekki í Bón-
usi. Munur á hæsta og lægsta verði
var 9%.
Barilla pastaskrúfur
aðeins á tveimur stöðum
Barilla pastaskrúfur fengust að-
Hæsta og lægsta verð
Bananar
1i3kí.*3-
Grænmeti og ávextir eru ýmist á upp- eða niðurleið í verði,
Palmol. uppþv.
160.....-....
Hæst Lægst
eins á tveimur stöðum af þessum
fimm, í Hagkaupi kr. 65 og í Fjarðar-
kaupum kr. 66. Munurinn er rétt
rúmt eitt prósent sem varla telst
mikið. Barilla skrúfur fengust ekki í
Miklagarði, Kaupstað eða Bónusi.
Mikligarður og Kaupstaður selja It-
aliana pastaskrúfur í pokum og er
verðmunur mjög mikill. 500 g poki
kostar 67 krónur í Miklagarði en 82
krónur í Kaupstað.
Heinz bakaðar baunir fengust ekki
í Bónusi né Miklagarði. í Kaupstað
kostuðu þær 55 krónur en 52 krónur
í Hagkaupi og Fjarðarkaupum. Mun-
urinn er 5% í allt. í Bónusi fengust
Heinz bakaðar baunir „Vegaterian"
sem eru kryddaðri en þessar venju-
legu. Hálfdós kostaði 44 krónur.
Verðmunur á lambahrygg af nýslátruðu er níu af hundraði.
Palmolive uppþvottalögur fékkst
ekki í Bónusi og ekki í Hagkaupi.
Dýrastur var hann í Kaupstað á kr.
137 en ódýrastur í Miklagarði á kr.
102. Munurinn er 34 prósent. í Fjarð-
arkaupum kostaðir Palmolive 123
krónur.
HuntsÞ tómatsósa, 680 g, fékkst ekki
í Miklagarði og ekki í Bónusi. Dýrust
var hún í Hagkaupi, kr. 109, en ódýr-
ust, kr. 104, í Fíarðarkaupum. Mun-
urinn á hæsta og lægsta verði er 5%.
Bónus selur Hunt’s tómatsósu í 907
g flösku á 123 krónur.
-JJ
Tómatar hækka í verði
Verð á tómötum hefur hækkað
stöðugt síðan í ágústlok. Þann 26.
ágúst var meðalverð á tómötum 181
króna en er nú 226 krónur og er mis-
munur 25%. Grænu vínberin eru á
uppleið aftur en fyrir hálfum mánuði
var meðalverðið 140 krónur en er nú
169 krónur.
Mandarínurnar hafa lækkað mikið
frá því í síðustu könnun sem gerð
var þann 7. október. Þá var meöal-
verðið 195 krónur en er nú 150 krón-
ur.
Blómkál er á uppleið milli vikna.
Þann 14. október var meðalverð 149
krónur en er nú 187 krónur.
Meðalverð á kínakáli er á hægri
uppleið en meðalverðið er nú 109
krónur en var 101 króna fyrir viku.
Rauða paprikan hrapar hins vegar
í verði á milli kannana. Þess ber að
geta að verð á rauðri papriku var
kannað síðast fyrir mánuði og þá var
meðalverðið 534 krónur en er nú 338
krónur.
-JJ
Sértilboð og afsláttur:
Á sértilboði hjá Bónusi má fá stk. 1 pakka, 538 g poka af engifer-
Ariel Ultra, 2,8 kg á krónur 929, tiu kökum á kr. 141, Krakus rauðrófur
stykkja pakkníngu af hulstrum yfir í sneiðum, 454 g á 29 krónur, 2 stk.
myndbandsspólur á kr. 499, nýja fljótandi handsápa frá Hreini; ann-
Frónkexið Smell á kr. 79 fyrir 225 að með dælu og hitt er áfylling,
g pakkningu, Tapir salemispappír, samtals á 219 kr.
32 rúllur í pakka á 589 krónur og í Miklagarði er mikiö til af Better
Negrakossa frá Opal, 6 stykki í Value vörum á tilboðsverði. Tóm-
pakka, á krónur 99. atsósan kostar 69 kr. 906 g, bakaðar
Á vikutilboði í verslunum Kaup- baunir á kr. 39, ananas í bitum, 454
staðar er reykt medisterpylsa á g á 49 krónur og örbylgjupopp á
krónur 489 kílóið, Heinz bakaðar kr. 79 með þremur í pakka.
baunir, hálfdós á 39 krónur, Polo Sértilboð þessa vikuna í Hag-
myntubrjóstsykur á 85 kr„ fimm kaupi er nautahakk sem lækkar
rúlJur í pakkningu, Rollo súkkul- úr 639 krónum í 499 krónur, Em-
aðimolar, 3 rúllur á 99 krónur mess vanillustangir, 10 stk. á kr.
pakkinn, og Frón Smellur (nýtt á 199, Bla Tern salemispappír, 8 rúll-
markaði) á kr. 79. ur á 129 krónur. Bondelle grænar
Fjaröarkaup em með mörg sértíl- baunir, 400 g á 39 kr. og 5 tegundir
boð á kjarapalli. Þar má nefna af Knorr gryta á 139 krónur pakk-
Hatting bruður á 69 krónur með 18 inn. -JJ