Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1992, Page 11
11
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992.
Útlönd
Tugþúsundir kolanámumanna mótmæla í Lundúnum:
Rekið Major en
ekki námumenn
Ríkisstjórn Johns Major, forsætis-
ráðherra Bretiands, lifði af miltil-
væga atkvæðagreiðslu um lokun
kolanáma landsins í þinginu í gær-
kvöldi. Major neyddist til að fallast
á að námunum yrði ekki lokað fyrr
en eftir gagngera endurskoðun á
stefnu stjómarinnar í orkumálum til
að koma í veg fyrir uppreisn innan
íhaldsflokksins.
íhaldsmenn felldu með 320 atkvæð-
um gegn 307 tillögu Verkamanna-
flokksins um að fresta lokun allra
kolanámanna 31 sem tilkynnt var um
í síðustu viku. Þijátíu þúsund námu-
menn hefðu misst vinnuna við þær
aðgerðir og aðeins nítján námur
hefðu staðið eftir í öllu landinu.
í umræðunum í þinginu í gær til-
kynnti Michael Heseltine iðnaðar-
ráðherra, sem stóð á bak við upphaf-
legu áætlunina, að sfjórnin hefði gef-
ið enn meira eftir. Auk þeirrar 21
námu, sem þegar hefði verið hætt við
að loka þar til endurskoðun orku-
stefnunnar hefði farið fram, sagöi
Heseltine að nokkrum hinna tíu, sem
eftir væra, yrði haldið opnum í 90
daga á meðan málið væri skoðað.
A meðan þingmenn ræddu kola-
máhð tóku tugþúsundir námumanna
og fjölskyldna þeirra þátt í mótmæla-
göngu umhverfis Hyde Park í mið-
borg Lundúna. Fólkið bar kröfu-
spjöld
þar sem m.a. mátti lesa: „Rekiö Maj-
or en ekki námumennina".
Vegfarendur klöppuðu námu-
mönnum lof í
lófa og ökumenn þeyttu bíiflautur
sínar þeim til stuðnings.
Til að bæta gráu ofan á svart fyrir
John Major sýndi skoðanakönnun í
blaðinu European í gær að hann
nýtur nú aðeins stuðnings 16 prósent
þjóðarinnar. Enginn forsætisráð-
herra hefur notið jafn lítilla vinsælda
frá því farið var að kanna þær árið
1938. Reuter
„Þetta er lika framtíðin mín,“ segir á skiltinu sem kolanámumaðurinn frá
Jórvikurskíri og litill sonur hans héldu á við komuna til London í gær þar
sem þeir tóku þátt i mótmælum gegn stefnu stjórnvalda. Simamynd Reuter
Aðstoð við Færeyjar
rædd í danska þinginu
Beiðni Hennings Dyremose, fjár-
málaráðherra Danmerkur, um 500
milljóna danskra króna lán til fær-
eyskra stjómvalda, verður rædd í
danska þinginu. Það verður gert að
kröfu Framfaraflokksins sem ætiar
í dag að leggja fram tillögu um að
umsóknin til fj árhagsnefndarinnar
verði dregin til baka.
Milijónimar fimm hundrað, sem í
íslenskum krónum eru á fimmta
milljarð, eiga að koma í veg fyrir að
til greiðslustöðvimar komi hjá Sjó-
vinnubankanum, næststærstabanka
Færeyja. Þess vegna er danska þing-
ið í nokkurri tímaþröng.
Tillaga Framfaraflokksins verður
tekin til fyrstu umræðu á þriðjudag
í næstu viku og til afgreiðslu næst-
komandi fimmtudag. Ekki fyrr en
eftir það getur fjárhagsnefndin sam-
þykkt umsóknina, aðeins einum degi
áður en greiðslustöðvun Sjóvinnu-
bankans á aö ganga í gildi.
Mikhr efnahagsörðugleikar steðja
nú að færeysku samfélagi. Þeir era
að hluta til vegna margra ára eyðslu
um efni fram og að hluta vegna
minnkandi tekna af sjávarútvegin-
um.
Fjárhagsnefnd danska þingsins
hefur lýst undrun sinni á því að
umsóknin, andstætt því sem sagði í
fyrri upplýsingum frá fjármálaráöu-
neytinu, felur ekki í sér kröfu um
að lániö verði dregið frá framlagi
Dana til Færeyja ef bankinn getur
ekki sjálfur endurgreitt það.
Færeysk stjómvöld leita nú leiða
til að draga úr útgjöldum sínum og
skha hallalausum fjárlögum, eins og
gert var að skhyrði þegar Sjóvinnu-
bankanum var bjargað frá gjald-
þroti. Hugmyndir eru um að hækka
virðisaukaskatt og skera niður laun
opinberra starfsmanna um fimmtán
prósent. Ritzau
Gjöf Jóns Sigurðssonar
Samkvæmt reglum skal veita fé úr sjóðnum Gjöf
Jóns Sigurðssonar „til verðlauna fyrir vel samin vís-
indaleg rit og annars kostar til þess að styrkja útgáf-
ur merkilegra heimildarrita". Heimilt er og að „veita
fé til viðurkenningar á viðfangsefnum og störfum
höfunda, sem hafa vísindarit í smíðum". Öll skulu
rit þessi „lúta að sögu íslands, þókmenntum þess,
lögum, stjórn og framförum".
Þeir sem óska að rit þeirra verði tekin til álita um
verðlaunaveitingu skulu senda nefndinni eitt til þrjú
eintök. Æskilegt er að umsögn viðurkenndra fræði-
manna, sérfróðra um efni ritsins, fylgi.
Framangreind gögn skulu send í forsætisráðuneytið,
Stjórnarráðshúsinu, 150 Reykjavík, en stíluð til verð-
launanefndarinnar, fyrir 1. desember næstkomandi.
Reykjavík, 19. október 1992
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar
Guðrún Ólafsdóttir, Sigurður Líndal og
Valgerður Gunnarsdóttir
GOODýYEAR
VETRARHJÓLBARÐAR
GOODýYEAR
60 ÁR Á ÍSLANDI
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
m
HEKLA
FOSSHÁLSI 27
SÍMI 695560 674363
Söf nuðu hrísgrjónum
fyrir sveltandi Sómali
Frönsk skólabörn söfnuðu allt að
átta þúsund tonnum af hrísgrjónum
fyrir sveltandi íbúa Sómahu, nóg th
að fæða eina og hálfa mhljón bama
í hálfan annan mánuð.
Söfnunin var skipulögð af franska
mannúðarmálaráðuneytinu, í sam-
vinnu við menntamálaráðuneytið,
póstþjónustuna, frönsku ríkisjám-
brautimar og bamasjóð Sameinuðu
þjóðanna.
Hrísgrjónin verða hutt endur-
gjaldslaust með járnbrautum th
Marsehle þar sem þau fara um borð
í skip sem siglir með þau til Mogadis-
hu, höfuðborgar Sómalíu. Skipið
kemur á áfangastað þann 20. nóv-
ember og munu SÞ sjá um að dreifa
hrísgijónunum meðal bágstaddra.
Pierre Bérégovoy forsætisráðherra
bar lofsorði á söfnunina í þingi í gær.
Reuter