Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1992, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1992, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992. Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Stefnt í tvísýnu „Það gefur auga leið, að svona getur þetta ekki geng- ið lengi, án þess að efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar sé stefnt í tvísýnu.“ Þetta sagði Þórður Friðjónsson, for- stjóri Þjóðhagsstofnunar, um hina geigvænlegu skulda- söfnun íslenzku þjóðarinnar í ræðu á fundi sambands sveitarfélaga. Menn munu vilja heyra annan boðskap, nú þegar samdráttur hefur verið í efnahagsmálum síðan 1988. Gott væri, ef staðan væri slík, að unnt væri að auka erlendu skuldimar og láta féð standa undir hvers konar framkvæmdum og atvinnubótum um þessar mundir. Margir leggja slíkt til, jafnvel ýmsir þeir stjórnmála- menn, sem vonast hafði verið til að sýndu ábyrgð. En þetta er einfaldlega ekki hægt, án þess að við fórum að tefla í tvísýnu með efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. í umræðunni um EES hefur einmitt komið fram, hversu dýrmætt efnahagslegt sjálfstæði er þorra þjóðarinnar. Lítum nánar á skuldastöðuna. Við greiðum 27 milljarða á ári hverju í vexti og afborg- anir af erlendum lánum, sem við höfum tekið. Þetta mun samsvara árstekjum um 25 þúsund launþega í land- inu. Þetta svarar til 27 nýtízku frystitogara. Skuldir þjóðarinnar hafa síðasthðin tíu ár rúmlega tvöfaldazt í erlendri mynt. Þær hafa á þessu tímabih vaxið um 60 af hundraði að raungildi. Útflutningur okk- ar, sem á að standa undir greiðslubyrðinni, hefur vaxið mun minna á þessum tíma. Hlutfall erlendra skulda af útflutningstekjum okkar hefur hækkað úr 119 prósent- um árið 1982 í 155 prósent á næsta ári samkvæmt áætl- un Þjóðhagsstofnunar. Greiðslubyrðin svonefnda hefur því stóraukizt að undanförnu. Vextir og afborganir af erlendum lánum námu 20,7 prósentum af tekjum okkar af útflutningi árið 1982, en hlutfalhð verður komið upp í 29,5 prósent á næsta ári. Meira en fjórði hver, raunar næstum þriðji hver „fisk- ur“, sem við flytjum út, fer því einfaldlega í hít er- lendra skulda. Samt halda einhverjir, að nú gætum við leyft okkur að taka enn meiri lán á þeim forsendum, að betri tímar í þjóðarframleiðslu okkar komi „síðar“. Skuldir okkar munu aukast á næsta ári. Það hefur þegar verið ákveðið, þótt allir tah um að „takmarka skuldaaukninguna“. Kjör okkar á næstu árum munu að miklu fara eftir því, við hvað skuldaaukningin verð- ur takmörkuð eða hvenær hún verður stöðvuð. Horfur um þjóðarbúskapinn eru slæmar næstu tvö árin, en rök má færa fyrir því, að eftir það séu sæmilegar vonir um bata. Vemdun fiskstofnanna ætti að skha sér í auknum afla. Aðhd að hinu evrópska efnahagssvæði ætti að verða örvandi fyrir framleiðsluna. Orkubúskapurinn virðist samkeppnisfær á alþjóðlegum markaði. Að öhu samanlögðu eru vonir th að við getum lært eitthvað af mistökum síðustu ára, í stjómun landsins og efnahags- málanna. Því er ástæða th hóflegrar bjartsýni á fram- haldið. En skuldasöfnuninni verður að linna mjög fljót- lega, eigi ekki hla að fara. Við eigum að fara varlega í að slá samanburði við hrakfarir Færeyinga upp í kæm- leysi. Forstjóri Þjóðhagsstofnunar telur, þrátt fyrir sam- dráttarskeiðið, sem nú stendur, að óskynsamlegt sé að setja markið lægra en svo, að okkur heppnist að stöðva skuldasöfnunina erlendis á árinu 1994. Hagstjómin hljóti á næstu misserum að miðast við þetta markmið. Eha séum við að stefna í tvísýnu. Haukur Helgason „Landsfundarályktun Sjálfstæöisflokksins frá árinu 1991 tekur auðvitað af allan vafa um það hverju Sjálfstæö- isflokkurinn lofaði..." segir Finnur m.a. - Frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins 1991. Skattahækkunarskriða Sjálfstæðisflokksins Þeir sem eru sæmilega komnir til vits og ára og ekki eru orðnir þaö ellihrumir að minnið sé farið að gefa sig muna það enn einna skýrast frá síðustu alþingiskosn- ingum að Sjálfstæðisflokkurinn hét þjóðinni skattalækkun kæmist hann til valda. Kosningaloforð Sjálfstæðis- flokksins hljóma nú þannig af vör- um forsætisráðherra að það hafi verið lofað að stöðva skattahækk- unarskriðu fyrri ríkisstjómar eða a.m.k. að hækka ekki skatta og þegar hann stendur varnarlaus og uppvís að því að brjóta aöalkosn- ingaloforð eigin flokks þá fullyrðir hann aö ekki sé um að ræða skatta- hækkanir þó aö skattar séu hækk- aðir. - Þetta er nú aldeilis trúverð- ugur málflutningur! Loforð Sjálfstæðisflokksins Landsfundarályktun Sjálfstæðis- flokksins frá árinu 1991 tekur auð- vitað af allan vafa um það hveiju Sjálfstæðisflokkurinn lofaði í skattamálum fynr síðustu kosn- ingar. Aulaleg undanbrögð forsæt- isráðherrans frá þeirri stefnu em eins og hvert annað yfirklór. í landsfundarályktuninni segir: „Sjálfstæðisflokkurinn viil iækka skatta. Leita þarf leiöa til aö lækka núverandi skattahlutfall niður í 35%. Skattbyrði heimilanna er með þeim hætti að ekki verður við un- að. Svo mikil er skattbyrðin oröin að alþýðufjölskyldan hefur vart fyrir brýnustu nauðsynjum. Skatt- hlutfóll þurfa að lækka. Skattþrep- um þarf að fækka". Svikin loforð Hvemig em nú efndimar hjá for- sætisráðherranum, manninum sem mest talar um hversu duglegur hann sjálfur sé að standa við kosn- ingaloforð sín? í tengslum við ný- kynntar aðgeröir ríkisstjómarinn- ar í efnahagsmálum er tekjuskatt- ur einstaklinga hækkaður um 1,5% Kjallariim Finnur Ingólfsson alþingismaður Framsóknar- flokksins í Reykjavík eða um 2.850 milljónir. Sjálfstæðis- flokkurinn lofaði hins vegar að lækka tekjuskatt einstaklinganna um 9.100 milljónir. Skattprósenta tekjuskattsins er því komin í 41,29% en Sjálfstæðis- flokkurinn lofaði að lækka hana niður í 35%. Því til viðbótar er 5% hátekjuskattur lagður á upp á 300 milljónir. Skattþrepum í viröis- aukaskatti er fjölgað í stað þess að fækka þeim eins og lofað var. Við það aukast álögur á almenning um 1.800 milljónir. Bensíngjald er hækkað um 350 milljónir til viðbótar við þá hækk- un sem fyrirhuguð er í fjárlaga- frumvarpinu. Bamabætur em lækkaðar um 500 milljónir króna sem er bein skattahækkun á bam- margar fjölskyldur. Vaxtabætur eru lækkaðar um 500 milljónir króna sem er bein skattahækkun á unga fólkið sem hefur verið að eignast húsnæði á undanfornum ámm. Skattur ofan á skatt Þessum skattaálögum er nú bætt við 1000 millj. kr. lyfjaskatta á sjúkhnga, 700 mihj. kr. skatta á þá sem sækja þurfa læknisþjónustu sérfræðinga, 370 millj. kr. skatta á þá sem sækja þurfa þjónustu heilsugæslulækna, 260 mihj. kr. skatta á elh- og örorkulífeyrisþega og 280 mihj. kr. skatta á sjómenn. En þessir skattar vom lagðir á fyrr á þessu ári. Þó svo aö túlkun forsætisráð- herra á skattalækkunarloforðum Sjálfstæðisflokksins væri tekin ghd þá stenst hún ekki vegna þess að farin er af stað fyrir tilverknað skattalækkunarflokkanna, Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðuflokks- ins, stærri og umfangsmeiri skatta- hækkunarskriða heldur en við höf- um nokkm sinni fyrr kynnst. Skattahækkunarskriða sem mun hrífa með sér og leggja undir sig margar alþýöufjölskyldur í þessu landi sem vom þó að mati Sjálf- stæðisflokksins fyrir kosningar nógu skattpíndar fyrir. Finnur Ingólfsson „Kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins hljóma nú þannig af vörum forsætis- ráðherra að það hafi verið lofað að stöðva skattahækkunarskriðu fyrri ríkisstjórnar.. Skoðaiiir annarra Stutt í kynþáttahatrið „Stundum má greina ótta og jafnvel óvhd í garð úúendinga hér á landi og þá einkum í garð þeirra sem lengst em að komnir. Til allrar hamingju höfum við samt ekki átt við mikil kynþáttavandamál að stríða. Hingað hefur leitað fólk hvaöanæva að og m.a. átt sinn þátt í að bjarga verðmætmn í sjávarút- vegi þegar ekki fengust íslendingar til starfa. Margt af því fólki er nú oröiö góðir og gegnir íslend- ingar. Menn skulu þess þó minnugir, að oft reynist stutt í kynþátahatrið þegar að kreppir. Það er því brýnt að aht hugsandi fólk bregðist hart við og for- dæmi hvers konar kyhnþáttafordóma hvort sem þeir birtast hér á landi eða erlendis. Alhr íslending- ar hljóta að harma og fordæma uppgang nýnasism- ans 1 Þýskalandi og þau hryðjuverk sem hann hefur staðiö fyrir.“ Forystugrein Alþýðbbl. 2. des. Kjölfestan horfin „Erfitt er að gera sér fuha grein fyrir áhrifum geng- isfellingarinnar á verðlag.. .Verst er að nú hefur verið gefið fordæmi, gengisfellingarleiðin er enn th og enginn veit hvenær gengið fehur næst. í greinar- gerö með ráðstöfunum ríkisstjómarinnar segir, að gengisvog verði óbreytt, en hhðsjón verði höfð af útflutningsvog við daglega ákvörðun gengis. Þetta má skhja þannig, að notuð verði sú vog sem gefur lægra gengi. Ný gengisfehing á næsta ári myndi ekki koma jafnmikið á óvart og þessi. Fast gengi hefur veriö helsta forsenda stööugleikans undanfarin ár og öh áætlanagerö verður erfiðari þegar þessi kjöl- festa er horfin." Vísbending, vikurit um viðskipti og efnahagsmál

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.