Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1992, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992.
Fréttir
Rjúpnaskyttan frá Seyðisfírði sem rann um 200 metra niður hlíð:
Fann fótinn fara í
tvennt og rann niður
- „Ég verð að skjóta mig til þín,“ sagði hjálparmaður á hjaminu 1 flallinu
Egill Ragnarsson, 33 ára rjúpnaskytta, (jögurra barna faðir og lögreglumað-
ur (rá Seyðisfirði slapp ótrúlega vel eftir að hafa runnið og fallið um 200
metra niður hlfð við Orrustubala í Hánefsstaðadal I Seyðisfirði.
DV-mynd GVA
„Eftir þetta get ég ekki annað en leik-
ið á als oddi og verið mjög kátur yfir
að vera á meðal manna,“ sagði Egill
Ragnarsson, 33 ára ijúpnaskytta,
íjögurra bama faðir og lögreglumað-
ur frá Seyðisfirði sem slapp ótrúlega
vel eftir að hafa runnið og fallið um
200 metra niður hlíð við Orrustubala
í Hánefsstaðadal í Seyðisfirði í síð-
ustu viku. Áður en Egill rann niður
fjallið hlaut hann opið beinbrot eftir
byltu en stöðvaðist í mosavöxnum
árfarvegi tæpa 2 metra fyrir ofan
stall þar sem 75-100 metra fall er nið-
ur. DV heimsótti Egil á Borgarspítal-
ann í gærkvöldi:
„Það var dásamlegt veður, logn en
frost, þegar ég gekk eftir hliðinni um
klukkan ellefu um morguninn og var
kominn í ansi mikla hæð. Þarna var
hált því það hafði frosið eftir rign-
ingu. Ég var með jöklabrodda undir
skónum. Ég rak broddana í einhvers
staðar, þeir stoppuðu í ísnum og ég
fór kollhnís fram yfir mig. Broddam-
ir gáfu ekki eftir og ég fann vinstri
fótinn fara í tvennt. Þetta var opið
beinbrot, báðar pípumar í fótleggn-
um fóru í sundur. Það leyndi sér
ekki. Ég missti vettlingana og rann
af stað niður hlíðina og reyndi að
stoppa mig með byssunni. Það gekk
ekki. Ferðin á mér var orðin svo
mikil að ég vildi ekki fórna hinum
fætinum til að stöðva mig.
„Ég taldi
himininn þrisvar“
Ég rann fyrst niður um 60 metra
kafla og fór þar fram af stalli í fjall-
inu og síðan fram af annarri brún.
Þá taldi ég himininn þrisvar. Fallið
var tugir metrar í lausu lofti. Ég hef
sennilega farið þijár veltur í fallinu.
Ég kom svo niður á öxlinni, bar
hendur fyrir höfuðið og greip að mér
lappimar og stöðvaðist svo í mosa
við lækjarfarveg. Ég var með bak-
poka með rjúpum í sem tók höggiö
af höfðinu og bakinu. Þetta var einn
og hálfan metra fyrir ofan brún þar
sem 75-100 metrar eru niður.
Ég var mjög vel klæddur en blotn-
aði strax á bakinu og niður eftir lík-
amanum í köldum lækjarfarvegin-
um. Ég þorði ekki að hreyfa mig
vegna hættu á að renna fram af brún-
inni en tróð ijúpunum undir mig til
aö hlífa líkamanum við vatninu.
Ég vissi af fjórum ijúpnaskyttum í
fjallinu og byijaði að öskra af öllum
kröftum. Efdr 7-10 mínútur fékk ég
svörun. Einn mannanna skaut 2
skotum, ég öskraði og hann skaut
aftur 2 skotum. Ég sá svo mann koma
hlaupandi niður fjallið á móti. Kuld-
inn var aö drepa mig.“
Egill segir að kall sitt hafi maður-
inn heyrt í um 2 kílómetra fjarlægð
- ástæðuna fyrir því að kallið heyrð-
ist var kröftugt öskur hans í logni
og mikilli kyrrð í ísilögðu íjallinu.
„Beygðu þig, ég þarf
að skjóta mig til þín“
„Hann vissi að eitthvað var að og
fór að Hánefsstöðum til að kalla á
hjálp. Annar maöur, Ellert Guðjóns-
son, kom til mín og þurfti að fara
yfir ána í dalnum. Hann var kominn
til mín um 2 tímum síðar. Hann var
ekki á broddum og þurfti aö fara
útfyrir til að komast að mér.
Þegar hann var í 30-40 metra fjar-
lægð kallaði hann: „Beygðu þig frá,
ég þarf að skjóta mig til þín.“ Hann
þurfti að skjóta í hlíðina um 20 skot-
um vegna íssins. Þegar hann komst
til mín lét hann mig fá veiðijakkann
og ullarvettlinga og byijaði að nudda
mig. Hann var sjálfur orðinn mjög
kaldur vegna bleytu, blotnaði þegar
hann þurfti að fara yfir ána.“
Fékk 9 teppi en skalf samt
„Brotni fóturinn skalf djöfullega en
Ellert veitti mér mikinn stuöning til
að halda mér vakandi. Mér fannst
langur tími líða þar til björgunar-
sveitin og læknirinn komu klukkan
um hálfþrjú. Ég var þá orðinn mjög
kaldur og skalf stanslaust. Læknir-
inn ákvað aö kalla á þyrluna eins og
skot og björgunarsveitarmennimir
settu níu ullarteppi yfir og undir mig
og klipptu utan af mér blautan gail-
an. Samt skalf ég áfram.
Þyrlan kom svo um klukkan hálf-
sjö. Læknir seig niður, hann skoðaði
mig, ég var spelkaður og hifður um
borð og morfíni síðan dælt í mig.“
EgUl verður nokkra mánuði að
jafna sig eftir slysið. Hann slapp þó
alveg við meiðsl á höfði og bol. Hann
hlaut tvö beinbrot á vinstri fótlegg,
annað á vinstri hendi og er talsvert
marinn á þeirri hægri. Mikil mildi er
talin aö ekki fór mun verr. Egill ætlar
aftur í ijúpu þegar hann getur - til
aðhreyfasigogujótaútivistar. -ÓTT
í dag mælir Dagfárí________________
Niðurskurður á niðurskurði
Ekki er ríkistjómin fyrr búin að
tilkynna niðurskurð á fjárlögum
og ríkisútgjöldum en hún tilkynnir
nýjan niðurskurð. Nú er sagt aö
enn vanti tvo miUjarða króna upp
á að ná réttum halla á fjáriög og
var þó ríkissfjómin nýbúin að
skera niður átta hundmð milljónir
til að komast niður í þann halla
sem hún telur réttan.
Þetta með hallann er sérmál. Eins
og allir vita hafa ríkisstjómir und-
anfarinn áratug gert tilraun til að
afgreiða hallalaus fjárlög. Það hef-
ur ekki tekist betur en svo aö í
hvert skipti, sem ríkisreikningar
em birtir, kemur í ljós að hallinn
er verulegur og þvi meira sem
sparað er því meira fer í ríkisrekst-
urinn. Á endanum gáfust ríkis-
sfjómimar upp við að afgreiða
hallalaus fjárlög og hafa nú afgreitt
íjárlög með halla, sem eykst jafn-
skjótt og búið er að skera niður í
hann.
Núverandi ríkisstjóm hefur sem
sagt ákveðið að hallinn sé í lagi, svo
framarlega sem hann er réttur og
hefur markið verið sett á sex millj-
arða króna halla á þeim fjárlögum
sem gengið verður frá fyrir ára-
mótin. Hvemig talan sex verður
heilög í því sambandi er flestum
hulin ráðgáta, enda víös fjarri því
að hallinn verði neins staðar í nám-
unda viö þá tölu. Samt hefur allt
starf ríkissfjómarinnar gengið út á
það aö halda sér við sex milljarða
í hallarekstur, enda virðist í sjálfu
sér aukaatriði hvort það stenst,
vegna þess að spamaðurinn eykur
sífellt á hallann þegar upp er staðið.
Engu að síður hafa ráðherrar set-
ið uppi með þennan halla og keppst
við að koma sínum útgjöldum nið-
ur á það stig að hallinn standist.
Mikil vinna var lögð í það í sumar
að skera niður hjá einstökum ráðu-
neytum og þannig var frumvarpið
kynnt í haust að mikiö afrek hefði
verið unnið í niðurskurði.
En svo komu efnahagsaðgerðir
og aftur þurfti að skera og ákveðið
að skera niöur um tólf hundrað og
fjörutíu milljónir. Þann niðurskurð
skám þingflokkamir niöur í átta
hundmð milljónir sem reyndist
svo fimm hundruö milljónir. Ekki
var fyrr búið að skera niður niður-
skurðinn en í ljós kemur að enn
þarf að skera niður af þeim niöur-
skurði sem búið var áður að skera
niður. Nú þarf að skera niður um
tvo milljarða í viðbót við þær átta
hundmð milljónir sem búið var að
ákveða eftir að búið var að ákveða
að skera niður tólf hundmð og
fjömtíu milljónir um fimm húndr-
uð milijónir.
Ef sömu hlutfóll em notuð má
reikna með því að stjórnarflokk-
amir fari í þennan niðurskurð og
nái tólf hundraö milljónum og era
þeir þá búnir að ná þeim tveim
milljörðum sem síðustu kröfúr em
uppi um, en þá er auðvitað eftir að
skera niður þær tólf hundrað og
fjömtiu milljónir sem áður höfðu
verið skornar niður um átta hundr-
uð milljónir niður í fimm hundmð
milljónir. Með öðrum orðum, nið-
urskurðurinn sem rétt nýbúið er
aö gera hefur fariö í annan niður-
skurð en þann niöurskurð sem
upphaflega var búið að tilkynna og
aftur verður að skera niöur þær
átta hundmö miljónir sem áður var
búið að skera niður um fimm
hundmð milljónir.
Þetta er .auðvitað þrælavinna
þegar haft er í huga að þvi meir sem
sparað er og skoriö niður því meir
aukast ríkisútgjöldin og því meir
þarf að skera niður. Stundum spyr
maður sjálfan sig hvort nokkuð sé
eftir af tekjum ríkisins og hvort
nokkuð sé eftir til útgjalda eftir
allan þennan niöurskurð. Hefur
ríkisvaldið nokkur efni á því að
verja peningum til eins eða neins
þegar alltaf þarf að skera niður og
hallinn er stööugt að aukast og
ekkert er afgangs fyrir það sem rík-
isstjómin vill gera við peningana,
sem ekki hafa verið skomir niöur?
Er eitthvað til að skera niður, þegar
niðurskurður á niðurskurð ofan
hefur ekki annað í fór með sér en
aö aftur þarf að grípa til niður-
skurðar?
Veslings þingmennimir. Þeir em
ekki öfundsverðir. Sitja greyin og
skera niður og skera niður niður-
skurðinn til þess eins að fá nýjan
niðurskurö til að kljást við sem er
algjörlega óháður gamla niður-
skurðinum. Og alltaf stækkar hall-
inn!
Dagfari