Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1993, Blaðsíða 3
I
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1993.
Fréttir
Fæðingabomba á fæðingardeildinni 1 Reykjavík:
19 börn á einum degi
- sængurkonurliggjaíöllumhomum
. 19 konur eignuöust böm á fæð-
ingardeild Landspítalans þriðju-
daginn 5. janúar en það er mesti
fjöldi fæðinga sem orðið hefur á
deildini á einum sólarhring. Var
met frá 8. ágúst 1990 slegið þegar
19 börn fæddust í 18 fæðingum.
Eldra met var frá júlí 1988 þegar
18 böm fæddust í 17 fæðingum.
Á mánudag vom 13 fæðingar og
í fyrradag vom þær 15, samtals 47
fæðingar á þremur dögum. Þessi
fæðingabomba varð til þess að
sængurkvennadeildimar yfirfyllt-
ust og leggja varð nokkrar konur
inn á setustofur deildanna.
„Við höfum áður upplifað toppa
í fæðingum en þetta verður erfitt
þegar fæðingar era mjög margar
marga daga í röð. Þá fyllist allt hér
og við getum ekki veitt jafn góða
þjónustu og ummönnun og venju-
lega. Það er náttúrlega mjög slæmt
að þurfa að leggja konur í rúm inni
á setustofu en það er ekki annað
að gera. En starfsfólkið gerir allt
sem það getur til að hlutimir gangi
sem best en þetta eykur álagið á
það til muna. Það er síðan umhugs-
unarefni að einungis ein fæðingar-
deild skuli vera fyrir 100 þúsund
manna borg,“ sagði Kristín Ingi-
björg Tómasdóttir, yfirljósmóðir á
fæðingardeild Landspítalans, þeg-
ar DV leit þar inn í gærdag. Þá
vora fæðingar enn í fullum gangi
og biðu sex konur eftir því að kom-
ast niður á sængurkvennadeildina.
Á sængurkvennadeildunum
tveimur eru samtals 43 rúm og eitt
aukarúm en vegna örtraðarinnar
nú hafa fleiri aukarúm verið sótt.
Á smærri deildinni voru rúm
frammi á gangi og þar sátu konur
og spjölluðu þar sem setustofunni
hafði verið breytt í sjúkrastofu. Á
stórri setustofu beggja deildanna
lágu síðan tvær konur, Kristín
Magnúsdóttir og Halldóra Þórðar-
dóttir. Þær fæddu í fyrrakvöld og
sögöust ekki hafa fengið mikinn
nætursvefn vegna erils og tölu-
verðs ráps en bára sig vel. „Viö
verðum aö taka því sem fæst undir
kringumstæðum sem þessum. Ef
þetta versnar bönkmn við bara upp
á hjá honum Sighvati ráðherra,“
sögðu þær.
Frá áramótum og þar til um miðj-
an dag í gær höfðu 70 fæðingar
verið á fæðingardeildinni. Kristín
sagði spána fyrir janúar hljóða upp
á 253 fæðingar en þær gætu orðið
allt að 300.1 desember var gert ráð
fyrir 173 fæðingum en þær urðu
245. Það sem meðal annars raskar
spánni era þungaðar konur utan
af landi og fyrirburafæðingar.
í fyrra fæddust 2884 böm á deild-
inni í 2813 fæöingum, þar af 63 tví-
burafæöingum og 4 þríburafæðing-
um. Að meðaltali fæðast 8-10 börn
á sólarhring á fæðingardeild
Landspítalans. -hlh
Þær Kristín Magnúsdóttir, t.v., og Halldóra
Þóröardóttir liggja á annarri setustofu deild-
anna.
Þær Jóhanna Hjartardóttir, t.v., Nína Björk, með nýfædda Ólafs-
dóttur, og Gerða Gunnarsdóttir sátu og spjölluðu á gangi ann-
arrar sængurkvennadeildar Landspítalans í gær. Fæð-
ingabomba síðastliðna daga yfirfyllti sængurkvennadeildirnar
svo raða þurfti rúmum á gangana og gera sjúkrastofur úr setu-
stofunum. DV-myndir Brynjar Gauti
■
iðin
r
Laugavegi 97
25%-70%
afslattur
TSALA