Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1993, Síða 11
FÖSTUDAGUR 8. JANUAR 1993.
11
Meiuiing____________________________pv
Þjóð-
skáldin
Hver eru þjóðskáld 19. aldar? Eru það Júlíana Jónsdóttir, Guðný Jóns-
dóttir og Ólöf Sigurðardóttir? Ef svo er þá er bókin Þjóðskáldin, Úrval
úr bókmenntum 19. aldar, vel heppnuöJ)ók því verk þessara kvenna
koma þar fyrir.
Hver er mesta skáld okkar íslendinga á 19. öld? Ef miðað er við það
rými sem verkum skáldanna er gefið í þessari Stórbók, er það Jón Thor-
oddsen, því verk hans fá nær helmingi meira rými en samanlögö verk
Jónasar Hallgrímssonar, Matthíasar Jochumssonar, Stephans G. Step-
hanssonar, Þorsteins Erlingssonar, Hannesar Hafstein og Einars Bene-
diktssonar.
Einar H. Kvaran og
Þorgils gjallandi
Einar H. Kvaran skammaðist út í Sigurð Nordal fyrir að koma í veg
fyrir að Einar fengi nóhelsverðlaunin í bókmenntum. Nordal benti rétti-
lega á að í síðari verkum sínum stýrði Einar persónunum allt of mikið
og gerði þær að málpípum fyrir dulhyggjutrú sína. í Stórbókinni er smá-
sagan Vonir eftir Einar H. Kvaran og er það langt frá því að vera hans
besta verk. í bók þar sem lögð er áhersla á „úrval“ í bókmenntum verð-
ur að gera kröfur til þess að bestu verk hvers höfundar séu með, en ekki
þau verk sem henta veljaranum vegna þess að þau eru stutt, þegar veljar-
inn hefur eytt þriðjungi bókarinnar undir verk eins skálds.
Sá sem valið hefur verkin í Stórbókina er Guðmundur Andri Thorsson.
Hann skrifar snubbótta kynningu á hverjum höfundi og nær hver kynn-
ing ekki að fylla þá blaðsíðu sem henni er gefin. Smásagan Gamalt og
nýtt er eina verkið sem er í bókinni eftir Þorgils gjallanda. Þetta verk
er langt frá því að vera „löngu orðið sígilt" (10). Líklega er þetta versta
Bókmerintir
Árni Blandon
verk bókarinnar svo að meira að segja setjaranum (OGÁ), sem stendur
sig yfirleitt vel, hefur ofboðið og útbíað það með prentvillum: „mér varð
að taka mér“ (555); „svaf sér Guðni" (560); „úflúð“ (593); „að kom Gleipni“
(598). Þankapunktar eru ýmist tveir eða fjórir (584), tveir eða þrír (585),
tveir, þrír og fjórir (576) eða tveir, þrír og fnnm (582). Auk þess vantar
stóra stafi á ýmsa staði (554, 563, 579, 583, 598 x 2).
Rimsirams
Það verður að virða Andra það til betri vegar þó að hann skyldi ekki
gefa sér tíma til að vanda vinnu sína við þessa bók og útkoman sé hálf-
gert rimsírams. Það er þó altént uppbót að þjóðleg reisn er yfir verkinu,
ekki síst þar sem það er prentað í Hong Kong.
„Ó, þér unglinga fjöld og íslands
fullorðnu synir!
Svona er feðranna frægð fallin í
gleymsku og dá“!
Þjóöskáldin: Úrval úr bókmenntum 19. aldar, 769 bls.
Guðmundur Andri Thorsson valdi
Mál og menning, 1992 (Stórbók)
Sviðsljós
Menn veltu fyrir sér gæðum ullarinnar. F.v. Þorsteinn
Jónsson, Helgustöðum, Kristinn Arnþórsson ullarmats-
maður, Jóhannes Ríkharðsson, ráðunautur hjá Búnað-
arsambandi Skagafjarðar, Númi Jónsson, Reykjarhóli,
og Gunnar Steingrímsson, Stóra-Holti.
Svona ber Viðar Pétursson á Hraunum sig að við rún-
inginn. DV-myndir Örn Þórarinsson
Námskeið í rúningi
og meðhöndlun á ull
Öm Þórarmsson, DV, Fljótum:
Búnaðarfélag Fljótahrepps gekkst
nýlega fyrir námskeiði í rúningi og
meðferð á ull. Leiðbeinendur voru
Guðmundur Hallgrímsson, bústjóri á
Hvanneyri, sem fjallaði um rúning
fjárins og Kristinn Amþórsson ullar-
matsmaður sem sýndi flokkun og
meðferð á ull og gerði grein fyrir
hvemig væri æskilegast að bændur
skiluðu vörunni í hendur ullarmats-
manna.
Námskeiðið stóð í einn dag og það
sóttu nær allir bændur í sveitinni
sem búa með sauðfé en flestir bænd-
ur í hreppnum taka nú orðið af
sauðfé á veturna, ýmist í nóvember
eða á útmánuðum.
Hundrað-
asta
bemsku-
brekið
Þáttaröðin Bemskubrek, þar sem
umfjöllunarefmð er ungdómsár Ke-
vins Amold, hefur nú verið við lýði
í sex ár en hundraðasti þátturinn var
tekinn upp á dögunum. Af því tilefni
var bökuð myndarleg afmælisterta
sem aðalleikaramir hámuðu í sig
áður en þeir fóm heim að lesa hand-
ritið að þætti númer hundrað og eitt.
ÍSLANDSBANKA
Sparileiðir íslandsbanka fœra
þérgóða ávöxtun á bundnum
og óbundnum reikningum
Sparileib 3 gaf Sf 3 % raunávöxtun
á árinu 7 992 sem var hœsta raunávöxtun mebal
óbundinna reikninga í bönkum og sparisjóöum.
ÍSLANDSBANKl
- / takt við nýja tíma!
Sparíleib 4 er bundinn reikningur sem gaf
6,3% raunávöxtun áriö 1992.
Ávaxtaðu sparifé þitt á árangursríkan hátt. íslandsbanki býður
fjórar mismunandi Sparileiðir sem taka mið afþörfum hvers og eins.
o
o