Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1993, Qupperneq 13
r
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1993.
13
Sviðsljós
Halldóra, sem hér stigur fram þegar úrslitin voru tilkynnt, hjólar og rennir sér á skíðum í frístundum sínum en
hún segir einnig að ferðalög utanlands séu eitt af áhugamálum sínum.
Nýárskvöld á Hótel íslandi:
Halldóra krýnd for-
síðustúlka Vikunnar
Halldóra Halldórsdóttir, tvítugur
nemandi í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti, var krýnd forsíðustúlka
Vikunnar á Hótel íslandi á nýárs-
kvöld. Auk krýningarinnar var boðið
upp á fjölmörg skemmtiatriði þar
sem Tango De Tempo, Heiðrún Anna
Bjömsdóttir, Los Svaka Gæjos og
söngtríóið Gibb-bræður komu við
sögu. Páli Óskar Hjálmtýsson var
kynnir en Sálin hans Jóns míns lék
fyrir dansi.
Átta stúlkur kepptu um útnefning-
una en auk kjörs Halldóru var Ámý
Hlín Hilmarsdóttir, 18 ára verslunar-
skólamær, valin tíl að keppa fyrir
íslands hönd í fegurðarsamkeppni
sem haldin verður í Flórída. Forsíðu-
stiilkan frá í fyrra, Laufey Bjama-
dóttir, mun einnig taka þátt í sömu
keppni.
Stúlkurnar sýndu m.a. dansatriði á úrslitakvöldinu og Því miður, strákar! Forsiðustúlka Vikunnar er þegar
hér má þekkja Brynju Valdísi Gísladóttur fremst á mynd- búin að finna mannsefnið og er trúlofuð.
inni. DV-myndir ÞÖK
Indverska prinsessan Leoncie:
Kynnir tónlist sína í Ev-
rópu og Bandaríkjunum
Indverska prinsessan Leoncie, sem búsett hefur ver-
ið á íslandi í mörg ár, er með mörg jám í eldihum
þessa dagana. Innan skamms heldur Leoncie til Dan-
merkur, Svíþjóðar, Hollands og fleiri Evrópulanda þar
sem hún ætlar að kynna tónlist sína. í framhaldi af
þeirri för hefur stefnan verið sett á Bandaríkin en
menn þar í landi fá líka að heyra hvað prinsessan
hefur fram að færa í tónlistinni.
í ferðinni ætlar Leoncie að leika og syngja lög af
plötunni Story from Brooklyn sem kom út á síðasta
ári. Platan er merkileg fyrir margra hluta sakir en
hún er gefin út í Tékkóslóvakíu. Upptökur fóra fram
þar, í Soul Kitchen studíóinu í London og á íslandi.
Sextán lög em á plötunni og má þar nefna Madonna
Is Dead (That Is the Question), Safe Sex (Take Me
Deeper), Saving My Body for You og Have Faith en
það síðasttalda má jafnframt heyra í kvikmyndinni A
Friend for Rainy Weather H.
Þá má geta þess að sjónvarpsstöðin MTV, sem sýnir
tónlistarmyndbönd, hefur sýnt mikinn áhuga á mynd-
böndum prinsessunnar.
Leoncie, sem hefur lýst tónlistinni á Story from Bro-
oklyn sem danstónhst, ráðgerir að gefa út aðra plötu
seinna á þessu ári en um útgáfu hennar sér fyrirtæki
í Skandinavíu sem hefur gert samning við indversku
prinsessuna á íslandi.
Leoncie stefnir hátt í tónllstinni.
DV-mynd Brynjar Gauti
Vanefndauppboð
Vegna vanefnda fyrri uppboðskaupanda verður fasteignin Lágahlíð, Mos-
fellsbæ, þinglýst eign Sigurðar Ragnarssonar og Ragnheiðar Katrinar Hall,
seld á vanefndauppboði sem haldið verður á eigninni sjálfri þriðjudaginn
12. janúar 1993 kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru: Húsnaeðisstofnun ríkis-
ins, Lífeyrissjóður verslunarmanna, Lífeyrissjóðurstarfsmanna ríkisins, Gunn-
ar Ingvarsson, Sparisjóður Hafnarfjarðar, Kesara A. Jónsson, Búnaðarbanki
Islands, Sparisjóður vélstjóra og íslandsbanki hf.
Sýslumaðurinn í Reykjavík
fAuglýsing um
fasteignagjöld
Lokið er álagningu fasteignagjalda í Reykjavík árið
1993 og verða álagningarseðlar sendir út næstu
daga ásamt gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjald-
anna.
Gjalddagar fasteignagjalda eru 15. janúar., 1. mars
og 15. apríl.
Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni í Reykjavík,
en einnig er hægt að greiða gíróseðlana í næsta
banka, sparisjóði eða pósthúsi.
Skráningardeild fasteigna, Skúlatúni 2, veitir upplýs-
ingar um álagningu gjaldanna, sími 632520.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar, sem fengu
iækkun á fasteignaskatti á liðnu ári, hafa fengið hlut-
fallslega lækkun fyrir árið 1992. Framtalsnefnd mun
yfirfara framtöl gjaldenda þegar þau liggja fyrir, vænt-
anlega í mars- eða aprílmánuði, og úrskurða endan-
lega um breytingar á fasteignaskattinum, m.a. hjá
þeim sem ekki hafa þegar fengið lækkun en eiga rétt
á henni samkvæmt þeim reglum sem borgarstjórn
setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. I. nr. 90/1990 um tekju-
stofna sveitarfélaga. Verður viðkomandi tilkynnt um
niðurstöðu, ef um breytingu verður að ræða.
Borgarstjórinn í Reykjavík
5.janúar1993
OPIÐ HÚS
Á MORGUN
Frá kl. 9.00-16.00
Á morgun, laugardaginn 9. janúar,
verður opið hús í forvarnarstöðinni MÆTTI
og fá gestir að æfa sig ókeypis í tækjum og
æfingarsölum.
Leiðbeinendur veita ráðleggingar varðandi
þjálfun og mataræði. Kynning verður á
námskeiðum og stundatöflu MÁTTAR.
Hverjir stunda MÁTT?
• ÍÞRÓTTAFÓLK • BARNSHAFANDI KONUR
• KONUR OG KARLAR í LEIKFIMI OG TÆKJAÞJÁLFUN
• FÓLK I ENDURHÆFINGU • LANDSLIÐSMENN ( SKÁK
• ÞROSKAHEFTIR • BAKVEIKIR
• ELDRI BORGARAR • ALÞINGISMENN • KONUR MEÐ
BÖRN Á BRJÓSTI • SLÖKKVILIÐSMENN
• OG ALLIR HINIR
Komdu líka og prófaðu!
Vilji - vellíðan
FAXAFENI 14 108 REYKJAVÍK SÍMI 689915