Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1993, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1993.
Iþróttii; ?
Kemst Útfa
bestu kytf ini
- reynir að komast að á PGA-mótaröðinni í
Mótherjar FH
og Vals töpuðu
- íslendingaliðin einnig í þýska boltanum
Þýsku liðin Essen og WaUau Massen-
heim töpuðu bæði leikjum sínum í þýsku
úrvalsdeildinni í handknattleik á mið-
vikudagskvöldið. Waliau, sem leikur gegn
FH-ingum í Evrópukeppni meistaraliða á
sunnudaginn, tapaði á útívelii gegn Laut-
erhausen, 23-20, og Essen, sem leikur gegn
Val í Evrópukeppni bikahafa á sunnudag-
inn, tapaði á útivelli fyrir Lemgo, 21-19.
íslendingaliðin
töpuðu bæði
íslendingaliðin í þýsku úrvalsdeildinni
urðu að láta í minni pokann fyrir andst
ingum sínum. Turo Dusseldorf, hð Héc
Gilssonar, tapaði á heimavelli fyrir I
magen, 18-21, og Sigurður Bjarnason
félagar hans í GrosswaUstadt biðu la
hlut fyrri Rostock á útivelli, 21-20. Sigi
ur skoraði 3 af mörkum liðs síns sem 1
ur kært. GrosswaUstadt telur að einn li
maður Rostock hafi átt að vera í li
banni. Dusseldorf er í 16. sæti með 15
eftir 19 leiki en Grosswallstadt í 10. s
með 19 stig.
Hvað gera FH
- Sigurður Bjamason spáir Massenheim
Lið FH og Vals héldu utan nú í morg-
unsárið til Þýskalands en á sunnudag-
inn leika þau á Evrópumótunum í
handknattieik. FH mætir þýsku meist-
urunum Wallau Massenheim í Evrópu-
keppni meistaraliða og Valur gegn Tu-
sem Essen í Evrópukeppni bikarhafa
og eru báðir leikimir í 8-liða úrslitum
keppninnar. DV leitaði til Sigurðar
Bjarnasonar sem leikur með Grossw-
aldstadt í þýsku úrvaldeildinni
og spurði hann um möguleika FH og
Vals.
Róður FH-inga verður þungur
„Það er alveg ljóst að róður FH-inga
verður þungur. Wallauliðið er geysi-
sterkt, bæði sóknar- og vamarlega.
Finnski landsliðsmaðurinn Mikael
KáUmann stjórnar leik þess af festu og
þá er það með stórskyttumar Schwalb
og Schöne. Hornamenn liðsins skora
mikið af mörkum, línumaðurinn mjög
öflugur og í markinu stendur einn besti
markvörður Þjóðverja, Peter Hoff-
mann. Af þessu má sjá hversu sterkt
liðið er. Ég hef hins vegar heyrt að
Það era 900 kylfingar sem fá að reyna
að komast inn í PGA-mótaröðina. Þeir
leika 72 holur á sex völlum, 150 á hverj-
um. Þeir 300 bestu komast áfram og
spila aftur 72 holur. Betri helmingur
þeirra, 150 kylfmgar, leika síðan 108
holur og þeir 50 sem þar ná bestum
árangri komast beint í PGA. Hinir 100
öðlast þátttökurétt á Nike-mótaröðinni
sem er önnur sterkasta mótaröðin í
Bandaríkjunum.
Úlfar fyrstur íslendinga
Úlfar Jónsson er fyrsti íslenski kylfing-
urinn sem reynir að komast í atvinnu-
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri;
„Ég er loksins búinn að ákveða þetta.
Ég ætia að gefa þessu tvö ár, reyna
þetta tvívegis ef ég þarf þess með. Þetta
er gífurlega erfitt verkefni og margir
af bestu kylfingum heims hafa ekki
komist inn í þetta í fyrstu tilraun,"
sagði Úlfar Jónsson, íslands- og Norð-
urlandameistari í golfi, í samtali við
DV í gær. Úlfar hefur ákveðið aö reyna
að komast að í PGA-mótaröðinni í
Bandaríkjunum en þar leika allir bestu
kylfmgar heims. Fyrri tilraunina og
vonandi þá einu gerir Úlfar í haust.
Nýir golfhermar komnir til íslands:
„Henta vel hér á landi“
„Mér líst mjög vel á þetta og ég tel að þessi tæki henti íslenskum kylfmgum
einkar vel. Stærsti kosturinn er eflaust sá að það er mjög mikið hægt að læra
1 þessu tæki,“ sagði Úlfar Jónsson, Norðurlanda- og íslandsmeistari, í golfi í
samtali við DV en hann ásamt fleiri kylfmgum kynnti sér nýja tegund golf-
herma á blaðamannafundi í gær sem Sveinsson hf. heildverslun boðaði til.
Kylfingar, jafnt heimsfrægir sem skemmra á veg komnir, telja að hér sé um
byltingu aö ræöa fyrir kylfinga sem ekki geta stundað golf allan ársins hring.
Um er að ræða golfhermi annars vegar til nota í heimahúsum og eins fyrir
golfklúbba. Kylfan (öll áhöld innbyggð í einu) er stutt og beinir ljósgeisla aö
kúlunni. Eftir hvert högg sést kúlan svífa á glæsigolfvöllum erlendis á tölvu-
skjá og nánar upplýsingar eru gefnar um hvað fór úrskeiðis og hvaö þarf að
laga. A sunnudag kl. 10-18 verða herrriamir til sýnis og prufu fyrir almenning
hjá Kjarna hf„ Nýbýlavegi 26 í Kópavogi, og þar munu meistaraflokksmenn
mætaogspreytasig. -SK
Wrightfékk
ss
Fjölnir úr Grafarvogi vann í gær-
kvöldi rpjög þýðingarmikinn heima-
sigur gegn Fýlki í botnbaráttu 2.
deíldar karla i handknattleik. Loka-
tölur 25-23 eftír 14-12 í leikhiéi.
Ólafttr Arnarsson skoraði 6 mörk
fýrir Fjölni og Kjartan Sturlaugsson
skoraði 6 mörk fyrir Fylki. Ögri er
neöst í 2, deild meö 0 stig, þá kemur
Fylkir með 5 stig og Fjöinir er í
þriöja neðsta sæti með 6 stíg.
-SK
Ian Wright, sóknarmaðurinn
snjalli h)á Arsenal, var í gær úr
skurðaður í þriggja leikja bann
al' enska knattspyrnusamband-
inu.
Wright var fundinn sekur urn
að hafa siegið til Davids Howell í
leik Tottenham og Arsenal fyrir
skömmu og komst upp um atvik-
ið í sjónvarpi. Leikbann Wrights
tekur gildi 16. þessa mánaöar. Þá
var Georghe Graham, fratn-
kvæmdastjóri Arsenal, sektaöur
um 500 pund fyrir ummæli sem
hann hafði um dómarann eftir
þennan sama leik.
Allir heilírhjá Man. Utd
Manchester United getur teflt
fram sínu sterkasta liði þegar lið-
ið tekur á móti Tottenham i
ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spymu á imorgun. Þéir Ryan
Giggs, Paul Ince og Andrei Kanc-
helskis sem gátu ekki leikið gegn
Bury í vikunni vegna meiðsla eru
allir oðnir heilir. Leikurinn verð-
ur sýndur í Ríkissjónvarpinu.
-GH
Ulfar Jónsson, GK,
er íslands- og Norð-
urlandameistari
golfi. Nú hyggst
hann ná enn lengra
í íþróttinni, nefnilega
að komast að í
bandarísku móta-
röðinni PGA. Úlfar
er í dag með +3 í
forgjöf.
DV-mynd GK,