Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1993, Síða 18
26
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1993.
Fréttir
Endurgreiddur Perluvaskur kostar ríkissjóð 230 miUjónir:
Algjört svindl á kerf inu
„Ég tel það mjög óeðlilegt að
Hitaveita Reykjavíkur skuli hafa
látið endurgreiða sér virðisauka-
skatt vegna byggingar Perlunnar.
Þetta er algjört svindi á kerfinu.
Þó hitaveitur haíi veriö undan-
skildar virðisaukaskatti þá gerðu
menn ekki ráð fyrir að þær færu
út í það að byggja veitingastaði,
- segir Ólafur Ragnar Grímsson
íbúðablokk, skip eða eitthvað í þá
áttina. í raun var ríkið og þar með
skattgreiðendur látið niðurgreiða
kostnaðinn við þetta kaffihús um
hundruð milljóna," segir Ólafur .
Ragnar Grímsson, alþingismaður
og fyrrum íjármálaráðherra.
Samkvæmt upplýsingum, sem
DV hefur aflað sér hjá Hitaveitu
Reykjavíkur, fékk stofnunin alls
endurgreiddar um 230 miiijónir af
virðisaukaskatti vegna fram-
kvæmda við Perluna. Þessar end-
urgreiðslur fóru fram á árunum
1990, 1991 og 1992.
Alls reyndist byggingarkostnað-
ur Perlunnar um 1.700 milljónir.
Ljóst er því að kostnaðurinn hefði
orðið hátt í tveir milljarðar hefði
Hitaveita Reykjavíkur ekki nýtt sér
réttinn til endurgreiðslna.
Að sögn Eysteins Jónssonar,
skrifstofustjóra Hitaveitu Reykja-
víkur, var endurgreiðsla virðis-
aukaskattsins ekki til komin vegna
sérstakrar undanþágu hitaveitna
frá skattinum. Eins og önnur fyrir-
tæki og hlutafélög hafi Hitaveitan
rétt á endurgreiðslu enda skiii hún
virðisaukasatti af rekstrinum, þar
með tahð leigutekjum af Perlunni.
„Það hefði verið sérkennilegt ef við
hefðum ekki sótt þessa peninga,“
segir Eysteinn.
-kaa
Húsgagnaverslun i gömlu flugstöðinni. DV-myndir Ægir Már
KeflavíkurfLugvöllur:
Heilbrigðisráöuneytiö:
Bráðavöktum út-
deilt til sjúkrahúsa
í Reykjavík
Sighvatur Björgvinsson heilbrigð-
isráðherra hefur ákveðið að stefna
að jafnari skiptingu bráðavakta í
Reykjavík. í bréfi, sem ráðherrann
hefur ritað stjómendum Borgarspít-
ala og Landspítala, kemur fram að
um helgar skuli ósérhæfðar deildir
spítalanna skipta þessum vöktum
jafnt á milli sín. Á virkum dögum
verður Landspítalinn með bráða-
vaktir í tvo daga í viku en Borgarspít-
alinn þijá daga. Slysamóttaka verður
þó áfram á Borgarspítalanum.
Þar sem bráðavöktum hefur nú
verið hætt á Landakotsspítala munu
Borgarspítalinn og Landspítalinn fá
aukna fjármuni til að sinna þessum
vöktum. Alls er um tilfærslu upp á
267 milljónir króna að ræða. í sam-
ræmi við skiptingu vaktanna fær
Borgarspítalinn 227 milljónir en
Landspítalinn 40 milljónir.
í frétt frá heilbrigðisráðuneytinu
segir að með jafnari skiptingu bráða-
vakta sé leitast við að styrkja starf-
semi spítalanna, auka á verkaskipt-
ingu þeirra og draga úr tvöfóldun á
sérhæfðri þjónustu. Þá er stefnt að
því að á árinu verði unnið að tillög-
um um þróun og varanlega verka-
skiptingu Landspítala og Borgaspít-
aia. -kaa
Verslanir í gömlu f lugstöðinni
Ægir Már Kárasan, DV, Suðumesjum:
Það hafa margir spurt um hvaða
hlutverki gamla flugstöðin á Kefla-
víkurflugvelli, sem þjónaði íslend-
ingum og öðrum ferðaglöðum í yfir
tvo áratugi, gegni nú.
Stöðin hefur verið endumýjuð að
„ miklu leyti, veriö klædd að utan og
allar raflagnir endumýjaðar. Þar em
komnar m.a. verslanir og má nefna
að þar sem brottfararsalurinn var
og fólk lét innrita sig er komin mikil
húsgagnaverslun og leikfangaversl-
un. Við innganginn í brottför em
gleraugna- og bílasala, svo að eitt-
hvað sé nefnt.
„Með tilkomu flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar á Keflavikurflugvelh tók
vamarhðið aftur við rekstri gömlu
flugstöðvarinnar og rekur hana
áfram sem flugstöð en nú fyrir her-
Gamla flugstöðin á Keflavíkurflugvelli hefur verið endurnýjuð að miklu leyti.
flugvélar sem núllilenda á Keflavík-
urflugvelh eða flytja vaming og fólk
á vegum varnarhðsins. Einnig er í
húsinu ýmiss konar starfsemi á veg-
um vamarliðsins, svo sem skrifstof-
ur og verslanir vamarhðsins svo og
útibú Landsbanka íslands og Pósts
og síma, sem þjóna starfsmönnum
og fyrirtækjum á vamarsvæðinu,
varnarhðsmönnum, farþegum og
flugáhöfnum sem leið eiga um flug-
stöðina sem fyrr,“ sagði Friðþór Ey-
dal, blaðafuhtrúi vamarhðsins, í
samtali við DV.
eiga afltof htið af
smalahundum. Smala-
hundamenningin er vægast sagt á
mjög lágu plani hér á landi. Við
ræktun hefur verið lögö meiri
áhersla á útht en vinnueiginleika
og það á við um íslenska hundinn
jafht sem aðrar tegundlr. Úr þessu
vlþum við meðal annars bæta sneð
þessu nýstofhaöa félagi,“ segir
Gunnar Einarssqn, formaður
Smalahundafélags íslands, en þaö
var stofnaö á dögunum í Bænda-
höllinni.
Að sögn Gunnars er markmið
félagsins að stuðla að betri ræktun-
armenningu meðal eígenda smala-
hunda og beita sér fyrir sýningum
og keppnum. Erlendis sé mjög vin-
sælt að etja smalahundum í kapp
og enginn vafl sé á að svipað geti
orðið raunin hér á landi.
Gunnar hefur ræktað landa-
mærahunda af Colhe-kyni í mörg
ár sem hann segir mjog
smalahunda. Þá hefur hann flutt
til landsins hunda frá Nýja-Sjá-
landi sem hann segir að séu einkar
vel fallnir til að reka fé. Nú sé haf-
in skráning á þessum hundum eftir
reglum sem Alþjóðasamband fjár-
hunda hefur mótað. Þær reglur
sem þar gilda séu að því leytinu
frábrugðnar reglum Hundaræktar-
félags íslands aö meiri áhersla sé
lögðáeiginleikaenútht. -kaa
Skipstjórafélag Norðlendinga:
Undanþágunefnd fari
varlega í sakirnar
Gylfi Kristjáasson, DV, Akureyri'
Skipstjórafélag Norðlendinga sam-
þykkti á aðalfundi sínum að skora á
undanþágunefnd að með tilhti til at-
vinnuástands skipstjómarmanna
verði undanþáguveitingar stórhert-
ar. Það sé algjörlega óviðunandi að
réttindamenn gangi um atvinnulaus-
ir á meðan undanþágur til skip-
stjórnar séu veittar í stónun sth.
„Ástandið á vinnumarkaðnum er
að þyngjast hjá okkar félögum og við
eram með þessari samþykkt að ýta
á undanþágunefndina að gæta hófs í
undanþáguveitingum," segir Guð-
mundur Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri Skipstjórafélags Norð-
Nægur snjór í Hlíðarfjalli
Gylfi Kristjáiissan, DV, Akureyri:
Óvenjumikhl snjór er nú í Hhðar-
fjalh við Akureyri miðað við árstíma
og skíðabrekkumar þar opnar aha
daga fyrir almenning. Þá eru æfmgar
hafnar fyrir nokkru hjá keppnishð-
um Akureyringa.
í Hhðarfjalh eru 4 skíðalyftur sem
flytja um 3000 manns á klukkustund
og nær sú hæsta í 1000 metra hæð
og er það hæsta lyfta á landinu.
Ánægjuleg áramót á Selfossi
Regína Tharaiensen, DV, Selfossi:
„Ég veit ekki annað en að Selfyss-
ingar hafi átt gleðheg jól og ahir ný-
ársfagnaðir á Selfossi og nágrenni
hafi farið vel fram,“ sagði Stefán Jó-
hannsson, lögregluþjónn á Selfossi,
þegar fréttaritari DV leitaði frétta hjá
honum eftir áramótin.
Brekkur eru troðnar daglega og flest-
ar flóðlýstar þegar dimmt er. Þá er
ágætt gönguland í Hlíðarfjalh og 3,5
km göngubraut „sporuð" daglega.
Opiö er í Hlíðarfjalli frá kl. 13.00 til
18.45 mánudaga og föstudaga en th
kl. 20.15 þriðjudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga. Um helgar er opið kl.
10 th 17. Starfsemi skíðaskóla hefst
nk. mánudag og er skráning í símum
Skíðastaða.
lendinga. Guðmundur segir að huga
þurfi að þessu réttindamáh í tíma því
oft séu undanþágur veittar til langs
tíma, oftast 6 mánaða, og það sé erf-
itt aö hrófla við mönnum sem hafi
fengið undanþágu tíl skipstjómar-
starfa þótt réttindamenn eigi að sitja
fyrir um störf sem losni.
Á fundinum var einnig samþykkt
áskorun til sjávarútvegsráðherra að
hann beiti sér fyrir því að allur fisk-
ur, sem fer tíl vinnslu innanlands,
verði boðinn upp á viðurkenndum
fiskmörkuðum eða í tengslum við þá.
Jafnframt verði ákveðið lágmarks-
verð hinna ýmsu tegunda út af mörk-
uðunum.