Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1993, Blaðsíða 24
32
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1993.
Smáauglýsingar - Sími 632700
•Ath. Páll Andrésson. Simi 79506.
Ökukennsla/bifhjólakennsla.
Ný Primera/Ný bifhjól.
Engin bið, kenni allan daginn.
Aðstoð við endumýjun.
Visa/Euro. Símar 79506 og 985-31560.
Reyki ekki.
Ath. Eggert Þorkelsson, nýr BMW 518i.
Kenni á nýjan BMW 518i, lána náms-
bækur. Kenni allan daginn og haga
kennslunni í samræmi við vinnutíma
nemenda. Greiðslukjör. Visa/Euro.
Símar 985-34744, 653808 og 654250.
Ath. Magnús Helgason, ökukennsla,
bifhjólapró kenni á nýjan BMW 518i
’93. Ókuskóh og öll prófgögn ef óskað
er. Visa/Euro. Bílas. 985-20006,687666.
Jón Haukur Edwald.
Kenni allan daginn á Mazda 323f
GLXi ’92, ökuskóli, öll kennslugögn.
Visa/Euro. Sími 985-34606 og 91-31710.
Sverrir Björnsson. Kenni á Galant 2000
GLSi ’92 hlaðbak, hjálpa til við end-
umýjunarpróf, útvega öll prófgögn.
Engin bið. S. 91-72940 og 985-24449.
Ökukennsla Ævars Friðrikssonar.
Kenni allan daginn á Mazda 626 GLX.
Útvega prófgögn. Hjálpa við endur-
tökupr. Engin bið. S. 72493/985-20929.
■ Til bygginga
Vantar vinnuskúr meö rafmagnstöflu og
gám undir verkfæri. Upplýsingar í
síma 91-676058 á daginn og í síma
91-675413 á kvöldin, Ami.
Ódýrt þakjárn. Framleiðum þakjám
eftir máli, galvaniserað, hvítt og rautt.
Timbur og stál hf., Smiðjuvegi 11,
sími 91-45544.
■ Nudd
Þarft þú aö grenna þig og styrkja? Eru
axlimar stífar? Við björgum því. Frír
kynningartími. Trimformst. GYM 80,
Suðurlandsbraut 6, sími 678835.
■ Hár og snyrting
Salon a Paris hárgreiðslustofa. Er tekin
til starfa aftur. 10% stgrafsl. af perma-
enti og litunum næstu daga. Verið
velkomin. Sveinbjörg Haraldsdóttir,
hárgreiðslumeistari, s. 617840.
■ TQsölu
Kays sumarlistinn kominn. Yfir 1000
síður. Sumartíska fyrir alla. Búsáhöld,
íþrótta- og gjafavömr, leikföng o.fl.
Verð kr. 400 án bgj. Pöntunarsími
91-52866.
■ Verslun
dráttarbeislin á flestar gerðir bíla.
Samþykkt af Bifreiðaskoðun íslands.
Ásetning á staðnum. Póstsendum.
Opið alla laugardaga. Víkurvagnar,
Laufbrekku 24, s. 43911 og 45270.
MAMMAN
Borgarkringlunni
Útsalan er hafin. Mamman,
sérverslun fyrir verðandi mæður,
Borgarkringlunni, 2 hæð, sími 680818.
TILBOÐSVERÐ!
Þungaskattsmælar. Er ekki rétti
tíminn núna að skipta yfir af fasta-
gjaldinu á mæli? Eigum nokkra
barkadrifna þungaskattsmæla frá
VDO. Tilboð 22.500 staðgr. kominn í
bílinn. VDO mælaverkstæði, s. 679747.
Gjöfin sem kemur þægilega á óvart.
Stórkostlegt úrval af stökum
titrurum, settum, kremum, olíum
o.m.fl. f. dömur og herra. Sjón er sögu
ríkari. Ath. allar póstkr. dulnefndar.
Emm á Grundarstíg 2, s. 14448. Opið
14-22 virka daga, laugard. 10-14.
■ Hestamennska
Söðlasmíðaverkstæði,
Stangarhyl 6, sími 684655.
Nýsmíði - viðgerðir - verslun.
Pétur Þórarinsson söðlasmiður.
■ Jeppar
Ford Bronco II, XLT, V6, árg. '84, til
sölu, innfluttur notaður ’87, upphækk-
aður um 3" á gormum og íjöðrum
(Rancho), 31" dekk á álfelgum og
margt fl. Upplýsingar í síma 96-81143
á kvöldin og 985-38305 á daginn.
Toyota double cab dísil, árg. ’91,
ný dekk, white spoke felgur, Brahma-
hús, brettakantar, driflæsing aftan.
Toppbíll.
Upplýsingar á Bílasölu Keflavíkur,
sími 92-14444 og e.kl. 19 í s. 92-12247.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRADA A
VALDA ÞÉR SKAÐA! hixeroar
Meiming
Þorvaldur Þorsteinsson. Vel heppnað orðlistarverk.
Landbrot orð -
listarinnar
Þeir sem hefja nám í skáldskaparfræðum læra í
fyrsta tímanum að tíl séu þijár höfuðgreinar skáld-
skapar: epík, drama og lýrík. Aður en kemur að fyrsta
prófi hafa flestir skihð að þessar greinar birtast nær
aldrei ómengaðar heldur er þeim blandað saman í ein-
stökum orðlistarverkum, hvort sem við köllum þau
sögur, leikrit eða ljóð. Samt sem áður verða margir
steinhissa þegar þeir sjá ný skáldverk og þau raðast
ekki greiðlega i mót þessara greina, verk eins og bók
Þorvalds Þorsteinssonar, Engill meðal áhorfenda.
Engfil meðal áhorfenda er lítil bók að blaðsíðutali
en geymir þó rúmlega 40 ljóðrænar sögur í leikrits-
formi: sumar er hægt að leggja í munn lifandi leikara
en fleiri eru hugleikrit sem komast ekki á svið nema
í kolli lesenda. Þá er lýst sviðsmynd og sagt frá atburð-
um með slíku móti að þeim hentar enginn annar mið-
ill en orðin tóm. Dregnar eru upp raunsæjar og hlut-
bundnar myndir og teflt saman Iiinu ómögulega og
mögulega, Úfendum og dauðum, fortíð og nútíð, og
allt látíð gerast í einu örleikriti eins og þegar Þorvald-
ur spennir saman íslenska bókmenntasögu í „Hey“:
Jónas sjálfur kemur ríðandi fótbrotinn útúr þokunni
í Skjaldbreiðarhrauni (sem er á Bláskógaheiði og gamli
maðurinn sem þama er gæti því verið úr fyrsta kafla
íslandsklukkunnar), og reynir að senda strák í sjoppu
eftír pilla með því að gefa honum bláar bækur í öskju
(„þeir gáfu þetta út í hittiðfyrra"). Hesturiim fer að
róta í heysátu og skömmu síðar er kviknað í henni
(likt og arfasátunni á Bergþórshvoli) og við emm
skyndilega komin til Kaupmannahafnar þar sem menn
Áma Magnússonar bera bækur um strætí. Allt gerist
þetta á sviði þar sem leikhúsið er lesandinn sjálfur.
Togstreita orða og aðstæðna
Þau leikverk, sem byggja eingöngu á samtölum, era
mun auðveldari í uppfærslu. Þar er ekki leikið með
sama hætti á orðlist hins mögulega og í sviðsmyndar-
lýsingunum heldur er töluðum orðum teflt fram gegn
þeim aðstæðum sem persónumar era í hverju sinni.
Slökkviliðsmaður kemur inn í brennandi hús og á
mjög upphafið samtal við konu sem hann þarf að
bjarga. Slíkar samræður á ögurstund tíðkast í óperum
en þegar þær eru settar fram sem töluð orð í óbundnu
máli nást fram andstæður sem afhjúpa afkáraskap
þess sem fólk lætur útúr sér: oft fyllilega frambærileg-
ar setningar sem koma víða fyrir og lesandinn kann-
ast við en geta ómögulega gengið við þessar aðstæður.
Einnig má taka dæmi af „presti sem ræðir við fanga
fyrir aftöku". Þar hefst samtahð svona: „Prestur: Sæl-
inú. Ég er presturinn og ég ætla að spjalla svolítíð við
Bókmenntir
Gísli Sigurðsson
þig af því að það á að taka þig af lífi. Fangi: Já, það
er bara að koma að þessu skilst manni. Þetta er rosa-
lega skrýtið. Prestur: Já, er það ekki? Þetta hlýtur að
vera alveg furðuleg tilfinning, ekki síst fyrir svona
ungan mann eins og þig“ o.s.frv.
Engill meðal áhorfenda er ákaflega vel heppnað orð-
listarverk sem nýtir sér á frumlegan hátt möguleika
og merkingu orðanna. Það fer út fyrir þau mörk sem
hafa áður legið um skáldskapinn og býr til nýja ver-
öld með þeim efhiviði sem skáldin hafa: orðunum.
Merkingjn, sem þannig verður tíl, er þess eðlis að hún
mótast illa í orð og minnir kannski á myndlist og tónl-
ist að því leyti. Við lesendur og leikendur höfum síðan
úr nógu að moða hvort sem við viljum bara fara í
hugleik eða setja upp stutt og skemmtileg samtals-
stykki fyrir gesti okkar.
Þorvaldur Þorsteinsson
Engill meöal áhorfenda
Bjartur 1992
Sviðsljós
Kóngsdóttirin og
kókoshnetan
Cristina, dóttir Juan Carlos
Spánarkoniuigs, var á ferðalagi
í Argentínu og Kolombíu á dög-
unum. Kóngsdóttírin fór víða
og aðbúnaðurinn var ekki alltaf
upp á það besta. Cristina lét það
þó ekkert á sig fá og sýndi sam-
ferðamönnum sínum að hún er
engin pjattrófa. Hún lét sig
meira að segja hafa það að svala
þorsta sínum að hætti inn-
fæddra með því að sötra mjólk
úr kókoshnetu.