Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1993, Side 25
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1993.
33
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stórasviðiðkl. 20.00.
MY FAIR LADY
Söngleikur byggður á leikritinu
Pygmalion
eftir George Bernard Shaw
8. sýn. í kvöld, uppselt, fim. 14/1, örfá
sæti laus, fös. 15/1, uppselt, lau. 16/1,
uppselt, fös. 22/1, örfá sæti laus, fös.
29/1, örfá sæti laus, lau. 30/1, uppselt.
HAFIÐ eftir Ólaf Hauk Simonar-
son.
Lau. 9/1, mið. 13/1, fim. 21/1, lau. 23/1, fim.
28/1.
DÝRIN í HÁLSASKÓGI eftir
Thorbjörn Egner.
Á morgun kl. 14.00, örfá sæti laus, sun.
10/1 kl. 14.00, örfá sæti laus, sun. 10/1
kl. 17.00, örfá sæti laus, sd. 17/1 kl. 14.00,
örfá sæti laus, sd. 17/1 kl. 17.00, örfá
sæti laus, lau. 23/1 kl. 14.00, sun. 24/1 kl.
14.00, sun. 24/1 kl. 17.00, mið. 27/1, sun.
31/1 kl. 14.00, sun. 31/1 kl. 17.00.
Smíðaverkstæðið
EGG-leikhúsið í samvinnu við Þjóð-
leikhúsið.
Sýningartimi kl. 20.30.
DRÖG AÐ SVÍNASTEIK eftir
Raymond Cousse.
Þýðing: Kristján Árnason.
Lýsing: Ásmundur Karlsson.
Leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson.
Leikstjóri: Ingunn Ásdisardóttir.
I hlutverki svinsins er Viðar Eggertsson.
2. sýn. í kvöld, uppselt, 3. sýn. 15/1,4.
sýn. 16/1.
STRÆTI eftir Jim Cartwright.
Sýningartimi kl. 20.00.
Á morgun, örfá sæti laus, sun. 10/1, mið.
13/1, fim. 14/1.
Ath. að sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekki er unnt að hleypa gestum i sal
Smiðaverkstæöisins eftir að sýnlngar
hefjast.
Litla sviðiðkl. 20.30.
RÍTA GENGUR MENNTA-
VEGINN eftir Willy Russel.
í kvöld, á morgun, fim. 14/1, uppselt, iau.
16/1.
Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn
eftir að sýning hefst.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Aðgöngumiðar grelðist viku fyrir sýningu
ella seldir öðrum.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá 13-18 og fram
aö sýningu sýningardaga.
Miðapantanir frá kl. 10 virka daga i síma
11200.
Greiðslukortaþj. - Græna linan 996160.
LEIKHÚSLÍNAN 991015.
Þjóðleikhúsið -góða skemmtun.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
Kópavogi
Spilað og dansað í kvöld, föstudagskvöld,
að Auðbrekku 25 kl. 20.30. Ný 3ja kvölda
keppni. Allir velkomnir.
Aödáendaklúbbur Elvis
Presley á íslandi
í kvöld, fóstudag, kl. 22 verður aðdáenda-
klúbbur Elvis Presley á íslandi stofnaður
á Hard Rock Café í Reykjavík. Ungur
maður, Sveinn Guðfmnson, á veg og
vanda af stofnun klúbbsins. Hann hefúr
verið í sambandi við alþjóðaráð aðdá-
endaklúbba Elvis Presley aö undanfómu.
Aðgangur á fyrsta fundinn er ókeypis og
öllum opinn.
Markaður Bókvörðunnar
Bókvarðan í Hafnarstræti 4 hefur opnað
sinn árlega bókamarkað. Dregnar verða
fram úr skúmaskotum og geymslum alls
kyns bækur, íslenskar og erlendar,
bamabækur, ævisögur íslendinga, hér-
aðasögur, kvæði, sálmar, ferða- og ævi-
sögur útlendinga, sálarfræðirit, uppeldis-
fræð, guðfræði, heimspekirit, guðspeki,
hagnýt efni og blandaðar fagbókmenntir,
auk tímarita, blaða og ritraða af ýmsu
tagi frá síðustu 100 árum. Bækumar em
verðlagðar á bilinu 50-250 kr. Bókamark-
aðurinn verður opinn rúmlega vikutíma
dagl. kl. 10-16 og um helgina á sama tíma.
Skagfirðingafélagið í
Reykjavík
verður með fjölskyldubingó í Drangey,
Stakkahlið 17, simnudaginn 10. janúar
nk. kl. 14.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðið:
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
eftir Astrid Lindgren
Tónlist: Sebastian.
Sunnud. 10. jan. kl. 14.00, örfá sæti laus,
sunnud. 10. jan. kl. 17.00, örfá sæti laus,
sunnud. 17. jan. kl. 14.00, örfá sæti laus,
sunnud. 17. jan. kl. 17.00, fáein sæti laus,
sunnud. 24. jan. kl. 14.00, fimmtud. 28. jan.
kl. 17.00.
Miðaverð kr. 1.100, sama verð fyrir börn
og fullorðna.
Skemmtilegar gjafir: Ronju-gjafakort,
Ronju-bolir o.fl.
Sýningartiml kl. 20.00.
BLÓÐBRÆÐUR
söngleikur eftir Willy Russell.
Frumsýning föstud. 22. janúar kl. 20.00.
Uppselt.
2. sýn. sunnud. 24. jan. Grá kort gilda.
Örfá sæti laus.
3. sýn. föstud. 29. jan. Rauð kort gilda.
Örfá sætl laus.
Sýningartimi kl. 20.00.
HEIMA HJÁÖMMU
eftirNeil Simon.
Laugard. 9. jan., næstsiðasta sýning, laug-
ard. 16. jan, síðasta sýning, laugard. 23.
jan., síðasta sýning.
Litla sviðið
Sögur úr sveitinni:
eftir Anton Tsjékov
PLATANOV OG VANJA
FRÆNDI
PLATANOV
Laugard. 9. jan. kl. 17.00, uppselt, aukasýn-
ing fim. 14. jan., laugard. 16. jan kl. 17.00,
uppselt, aukasýnlng fim. 21. jan., laugard
23. jan. kl. 17.00, uppselt.
Síðasta sýning.
VANJA FRÆNDI
Laugard. 9. jan., uppselt, aukasýning fös.
15. jan., laugard. 16. jan., uppselt, laugard.
23. jan. kl. 20.00, uppselt, aukasýning sun.
24. jan.
Siöasta sýning.
Verð á báðar sýningarnar saman aðeins
kr. 2.400.
KORTAGESTIR, ATH. AÐ PANTA ÞARF
MIÐA Á LITLA SVIÐIÐ.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn i salinn
eftlr aö sýning er hafin.
GJAFAKORT, GJAFAKORT
ÖÐRUVÍSIOG SKEMMTILEG GJÖF!
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17.
Miðapantanir í sima 680680 alla virka
daga frákl. 10-12.
Greiðslukortaþjónusta -
Faxnúmer 680383.
Leikhúslinan, sími 991015.
Aðgöngumiðar óskast sóttir þrem
dögum fyrir sýn.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús.
Málaskóli Halldórs
Vorönn er að hefjast hjá Málaskóla Hall-
dórs og eru þar kennd eftirfarandl tungu-
mál: enska, þýska, franska, spænska, ít-
alska, danska, sænska, rússneska og ís-
lenska fyrir útlendinga. Innritun er til
12. janúar, 13. janúar eru skírteini afhent
og kennsla hefst 14. janúar og stendur tii
apríl-mai. Námskeiðiö er 30 kennslu-
stimdir og stendur yfir í 15 vikur. Nem-
endur mæta eitt kvöld í viku og eru tvær
kennslustundir í senn. Námskeiðsgjald
er 15.000 kr. og innifahð í því eru bækur.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur veitir
félagsmönnum sínum styrk og ýmsir
starfsmenntunarsjóðir starfsmannafé-
laga greiða námsgjöldin að fullu fyrir
sína félagsmenn. Nánari upplýsingar og
innritun í síma 26908 frá kl. 13-19 virka
daga. Kennslan fer fram í Miðstræti 7.
Félag eldri borgara
Göngu-Hrólfar taka á móti gestum sínum
úr Hana-nú hópnum á Miklatúni kl. 10 á
laugardgsmorgun. Gengið niður í Ris og
veitingar bomar fram. Létt skemmtun til
kl. 14.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardag kl. 14 í Húnabúð,
Skeifunni 17. Allir velkomnir.
Vopnfirðingafélagið í
Reykjavík
byijar 25. starfsár sitt með því að halda
árvisst þorrablót þann 23. janúar kl. 19.30
að Skipholti 70, 2. hæð.
Leikhús
Leikfélag Akureyrar
ÚTLENDINGURINN
Gamanleikur
effir Larry Shue.
íkvöldkl. 20.30.
Laugard. 9. jan. kl. 20.30.
Miðasala er í Samkomuhúsinu, Hafn-
arstræti 57, alla virka daga nema
mánudaga kl. 14 til 18 og sýningar-
daga frá kl. 14 og fram að sýningu.
Símsvari fjrir miðapantanir allan
sólarhringinn.
Greiðslukortaþj ónusta.
Sími í miðasölu:
(96)24073.
TWll
ISLENSKA OPERAN
2mcui <dó 3avmnemno<w
eftir Gaetano Donizetti
íkvöldkl. 20.00. Uppselt.
Sunnud. 10. jan. kl. 20.00. Uppselt.
Siðasta sýningarhelgi.
Mlðasalan er opin frá kl. 15.00-19.00
daglega en til kl. 20.00 sýningardaga.
SÍMI11475.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
LEIKHÚSLÍNAN 99-1015.
Langur laugardagur á
Laugaveginum
Á morgun er langur laugardagur á
Laugaveginum. Þá verða verslanir við
Laugaveg og Bankastræti opnar til kl. 17.
Flestar búðir verða með útsölu eða tilboð
í tilefni dagsins. Frítt er í stöðumæla og
bílageymsluhús í miðbænum. Framvegis
verður fyrsti laugardagur hvers mánaðar
langur laugardagur á Laugavegi.
Gönguklúbbur Hana-nú
Gönguklúbbi Hana-nú er boðið til veislu
til Göngu-Hrólfa í Reykjavik laugardag-
inn 9. janúar. farið verður með rútum frá
Fannborg 4 kl. 10. Mætum í Fannborg-
inni upp úr hálftiu með smápeninga í
rútumar.
Vegguriim
KÍTSTöKF
Höfundur: Ó.P.
Flórídakynning
Á morgun, laugardag, kl. 14 verður kynn-
ingarfundur á Hótel Sögu þar sem kynnt-
ar verða fasteignir til sölu á Flórída.
Veittar verða ítarlegar upplýsingar í
máh og myndum, verð á eignum, lána-
möguleikar, staðsetning o.s.frv. Fyrir
kynningunni stendur Sigríður Guð-
mundsdóttir, fasteignasah á Flórída, sem
einnig starfar á fasteignamiðluninni
Huginn.
Söguferð um miðbæinn
Pétur Péturssön þulur heldur áfram að
ganga í gegnum söguna í miðbænum á
laugardaginn, 9. janúar. (Ath. breyttan
vikudag.) Farið verður frá Hafnarhúsinu
kl. 14 og gengið eftir Hafnarstræti og
Lækjargötu ef tími vinnst til. Pétur mun
fjalla um menn og málefni á fyrri tíð og
sögu svæðisins. Klæðið ykkur vel því
viða verður stansað. í lok göngunnar
býður veitingahúsið Lækjarbrekka upp á
kaffisopa. Gangan mun taka um eina og
hálfa klukkustund.
Gönguhópur Hólmasels
Gönguhópur félagsmiðstöðvarinnar
Hólmasels í Seljahverfi byrjar aftur laug-
ardaginn 9. janúar eftir jólafrí. Hópurinn
hittist vikulega kl. 10.30 við félagsmið-
stöðina að Hólmaseli 4-6 og gengur um
hverfið og næsta nágrenni undir stjóm
íþróttakennara. Sem fyrr eru allir íbúar
Seijahverfis, ungir sem aldnir, boðnir
velkomnir í hópinn. Efiir gönguna gefst
fólki kostur á aö fara í sund í sundlaug
Ölduselsskóla.
Opið hús hjá
Bahá’íum
að Álfabakka 12, laugardagskvöld kl.
20.30. Bemard Granotier, doktor í félags-
fræði frá Sorbonne 1969, flytur fyrirlest-
urinn „Harmony Between Cultures".
Bemard er höfundur metsölubókar um
innflytjendur í Frakklandi. Hann hefur
m.a. unniö hjá Unesco og Sameinuðu
þjóðunum. Fyrirlesturinn er þýddur á
íslensku jafnóðum. Heitt á könnunni og
allir velkomnir.
Kynning á Know-How
eyðublaðasafninu
Penninn hf. og útgáfuþjónustan Umgjörð
hf. standa þessa dagana fyrir kynningu
á Know-How eyðublaðasafninu. Kynn-
ingin fer fram í verslun Pennans í Haílar-
múla og geta þeir sem áhuga hafa komið
og skoðað eyðublöðin og keypt sér sett
ef áhugi er fyrir hendi. Know-How eyðu-
blaðasafnið kom út seint á síðasta ári og
hlaut strax prýðilegar viðtökur. Vegna
vaxandi áhuga hefur nú verið ákveðið
að auðvelda mönmun að nálgast eyðu-
blöðin með þvi að hafa þau til sölu í versl-
un Pennans í Hallarmúla, en eftir sem
áður geta fyrirtæki haft samband beint
við Umgjörð hf. 1 s. 684224.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur um fjarkennslu
Englendingamir Anthony Kaye og Robin
Mason, sem kenna viö Opna háskólann
í London, em staddir hér á landi dagana
6.-10. janúar. Heimsókn þeirra tengist
námsbraut um alm. kennaranám með
Qarkennslusniði sem hleypt var af stokk-
unum 6. janúar 1993. í dag, 8. janúar, kl.
17-19 flytur Robin Mason fyrirlestur:
„Refining the Use of CMC in Distance-
Education". Fyrirlesturinn verður flutt-
ur á ensku og haldinn í stofu B-201 í
Kennaraháskóla íslands og er öllum op-
inn.
Fyrirlestur um lan
Hammilton Finlay
Sunnudaginn 10. janúar kl. 13.30 mun
Greame Murray, forstöðumaður The
Fruitmarket Gallery í Edinborg, halda
fyrirlestur um myndhstarmanninn Ian
Hamilton Finiay en sýning á verkum
hans verður opnuð á Kjarvalsstöðum 9.
janúar. í fyrirlestrinum, sem verður á
ensku, mim Murray tala um listamann-
inn, verk hans og sýna litskyggnur frá
„Litlu Spörtu", garðinum sem listamað-
urinn hefur verið að yrlga og endurbæta
sl. 25 ár og er nú orðinn eitt merkasta
samtímalistaverk í Evrópu. Fyrirlestur-
inn er öllum opinn.
_______________________Meiming
Góðir tónleikar hjá S.Í.
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt tónleika í gærkvöldi
í Háskólabíói. Á efnisskránni voru verk efdr Claude
Debussy, Andrzej Panufnik, Frederick Debus og Jam-
es MacMUlan. Stjómandi var Jerxy Maksymiuk frá
Póllandi og einleikari á Göu var Simon Kuran.
EfnisvaUö á þessum tónleikum var venju fremur
ferskt og fjölbreytt. Þeir hófust á verki Debussys, Prin-
temps. I verkinu má heyra frjóanga ýiniss þess sem
einkenndi síðar hin bestu verk þessa ágæta höfundar.
Þaö hefur þannig verið boðberi nýs tíma. Hins vegar
hefur þaö ekki hina smuröu mýkt sem síðar ein-
kenndi hljómsveitarverk Debussys og ekki heldur
sambærilegan áhrifamátt. Fiðlukonsert Panufniks er
undir greinUegum áhriíum frá Béla Bartok en þó aUs
engin stæling. Þvert á móti hefur verkiö mjög sér-
kennhegt aðdráttarafl og með köflum tæra fegurð.
Flutningur Símons Kuran var mjög tU þess falUnn að
draga fram þessa kosti verksins og var leikur hans
frábærlega góður. Tandurhreinn skýrleiki og næm til-
finning fyrir hinum finustu blæbrigðum túikunarinn-
ar ásamt með faUegum fiðlutóni er það sem lifir í
minningunni um þennan ágæta flutning. Hljómsveitin
lék einnig sérlega vel en aðeins strengimir tóku þátt
í flutningi þessa verks.
Eftir hlé hófust tónleikarnir á verki DeUus, In a
Summer Garden. Það er áheyrilegt verk sem ekki skil-
ur þó mikið eftir og virtist ekki hrífa áheyrendur sér-
staklega. Má vera að ástæðan fýrir því hafi verið sú
að fólk beið spennt eftir verki hinnar nýju skosku
stjömu James MacMiUan, The Confession of Isopbel
Gowdie. MacMiUan hefur vakið mikla athygU í Bret-
landi upp á síðkastiö, meöal annars með þessu verki
og er því haldið ffam að þar fari snihingur sem takist
að sameina sanna hst og vinsældir. Verkið sem þarna
var flutt hljómaði hvað efnivið varðar frekar kunnug-
lega. Fyrri hlutinn var þéttriðinn vefur í stíl sem mik-
ið hefur verið notaður undanfarin allmörg ár og á
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
rætur að rekja til Ligetis og Boulesar. Síöari hlutinn
virtist byggður á fórnardansinum úr Vorblóti Strav-
inskys. Það sem sérstakt er við verkið og er sennileg
ástæða fyrir vinsældum þess og áhrifum er hversu
skýr og einfaldur framsetningarmátinn er. Ungæðis-
legur kraftur og aht að því ofbeldiskenndur grófleiki
hrífur áheyrendur ómótstæðilega með sér og minnir
töluvert á vinnubrögö höfunda kvikmynda og sjón-
varpsefnis nútímans. Að þessu leyti endurspeglar
verkið samtíma sinn og talar það tungumál sem flest-
ir skilja. Um sumt minnir þessi tónhst á hina frægu
bresku fiðlustjörnu, Nigel Kennedy, sem býr sig eins
og knattspymubuhu, en svo eru þeir menn nefndir,
sem ganga berserksgang og beija fólk eftir leiki,
Kennedy sphar Vivaldi eins og það sé rokktónhst og
þarf ekki að spyrja að vinsældunum.
Flutningur hljómsveitarinnar á verki MacMihans
var mjög góður og greinilegt að hljómsveitarstjórinn
náði nvjög vel til hijómhstarmannanna. Var honum
vel fagnað í lokin. Maksymiuk er góður gestur sem
vonandi kemur oftar hingað.