Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1993, Qupperneq 28
36
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1993.
Suðvestan kaldi og él
Þögnin
er best
„Þetta er nú besta ræöan sem
þingmaðurinn hefur flutt,“ sagöi
Jóhannes Geir Sigurgeirsson eft-
ir aö Hjörleifur Guttormsson
haföi þagað í fimm mínútur í
ræðustól
Samskot.
„Til þess aö Hannes Hólmsteinn
gæti um fijálst höfuö strokið fjár-
hagslega var honum fengin staöa
í Háskólanum gegn vilja Félags-
Ummæli dagsins
vísindadeildar. En launakjörin
hjá því opinbera geta hamlaö
fijálsri hugsun. Því lögöu nokkur
fyrirtæki, sem flest eru rekin í
skjóh einokunar og einkaleyfa,
saman i púkk og tryggja þessi
samskot nú Hannesi næöi til aö
hugsa og skrifa og taka þátt í
„fijálsri" samkeppni á fjölmiðla-
markaönum," segir rithöfundur-
inn Örnólfur Árnason.
Tryggur geltir
„Þaö er því varla nema von aö
manni detti í hug, þegar Hannes
geltir, að honum hafi verið sigað.
Og við slíku gjammi er svo sem
ekkert hægt aö segja nema í
hæsta lagi: Svei þér, Tryggur,"
segir Örnólfur jafnframt.
Eldmóður bjartsýninnar
„Eldmóðurinn, sem fylgir því
að rætt sé um 97 prósenta at-
vinnu, er mun líklegri til að skapa
atvinnulausum vinnu,“ segir Jón
G. Hauksson í forystugrein
Fijálsrar verslunar en hann telur
það vænlegra en tala um 3% at-
vinnuleysi.
Á höfuðborgarsvæðinu verður vest-
an og suðvestan kaldi eða stinnings-
kaldi en suðaustan kaldi í nótt. Élja-
Veðrið í dag
gangur. Frost 2-4 stig.
Búast má við stormi á suðvestur-
miðum, suðausturmiðum, norður-
djúpi, austurdjúpi, Færeyjadjúpi og
suðvesturdjúpi. Einnig má búast við
mikifli ísingu á norðurdjúpi.
Fram eftir morgni verður aflhvöss
norðan- og norðvestanátt með éljum
víða um landið norðan- og austan-
vert en síðdegis léttir þar heldur til
með fremur hægum suðvestanvind-
um. Sunnan- og suðvestanlands er
útflt fyrir suðvestan stinningskalda
og síðar kalda. Allhvöss norðaustan-
átt verður áfram á Vestfjörðum og
sums staðar snjókoma þar. Veður fer
fltið eitt kólnandi, einkum austan til.
Um 600 kílómetra norðaustur af
Langanesi var kröpp gSS^miflíbara
lægð sem hreyfðist norðaustur en á
Grænlandshafi var heldur vaxandi
en nærri kyrrstæð 970 millíbara
lægð.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyrí snjóél -2
Egilsstaðir skýjað -3
Galtarviti snjókoma -5
Keíla víkurflugvöllur haglél -3
Kirkjubæjarklaustur léttskýjað -4
Raufarhöfn snjókoma -2
Reykjavík skafrenn- -3
Vestmannaeyjar ingur
snjóél -1
Bergen skúr 3
Helsinki þokumóða -3
Kaupmannahöfh rigning 2
Ósló súld 4
Stokkhólmur skýjað 1
Þórshöfn haglél 1
Amsterdam heiðskírt 6
Barcelona heiðskírt 4
Berlín súld 2
Chicago snjókoma -6
Feneyjar þokumóða -2
Frankfurt alskýjað - 7
Glasgow úrkoma 2
Hamborg súld 7
London skýjað 4
LosAngeles rigning 14
Lúxemborg rigning 7
Madríd þokuruön. -2
Malaga heiðskírt 1
MaUorca þokuruðn. 1
Montreal alskýjað -2
New York alskýjað 6
Nuuk snjókoma -19
Orlando þokumóða 22
-1 Ð\ *
V\V
Veðrið kl. 6 í morgun
„Mér finnst þetta mesti heiður
sem hægt er að fá á íslandi. Þetta
er ótrúlega mikill heiöur sem mér
er sýndur og er afar þakklátur,"
segir Knut ödegárd skáld sem ný-
verið var sæmdur stórriddara-
krossi falkaorðunnar fyrir framlag
siít til eflingar menningartengslum
milli íslands og Noregs. Knut hefúr
þýtt mikinn Qölda íslenskra skáld-
verka, skrifað stóra bók um ísland
Maður dagsins
í Noregi og gefið út um 20 frum- :
samdar bækur. Hann er kvæntur
Þorgerði Jngólfsdóttur kórstjóra.
fulltrúl í stjóm norska rithöfunda-
sambandsins og eignaðist strax
raarga vini, aðallega rithöfunda og
Ustamenn. Siðan kom ég árlega.aö
hitta vinina, byrjaöi að læra ís-
lensku og strax 1973 gaf ég út Ijóöa-
þýöingar eftir Einar Braga og hef
haldiö áfram að þýða íslenskar
bókmenntir.
Svo kom ástin sterkt inn í mynd-
ina 1980 þegar ég var staddur hér
Knut 0degard.
á íslandi. Ég var í heimsókn hjá
Thor Vilhjálmssyni og sagði hon-
um að ég ætti að sjá um dagskrá í
Niðarósdómkirkiunni og þar átti
líka íslensk söngkona að koma
fram. Thor viidi kynna okkur en
ég víldi ekkcrt liitta þessa konu.
Thor hringdi strax í Þorgerði en
hún vildi heldur ekki hitta mig.
Thor gaf sig ekki og keyrði mig
heim til hennar og skildi mig þar
eftir. Smám saman uppgötvuðum
við að þetta var ástin stóra og mikla
og við giftumst árið eftir. Þá gerðist
ég „tengdasonur íslands" eins og
Vigdís Finnliogadóttir segir í for
mála að bók minni um ísland sem
kom út í Noregi í haust.“
Knut var forstj óri Norræna húss-
ins 1984-1989 en þá fékk hann ævi-
langt heiðurslaun frá norska stór-
þinginu til að stunda skáldskap
sinn og vera menningartengiliöur
railii Noregs og íslands.
Myndgátan
Lausn gátu nr. 518:
E* ÞOR-A-
Málflytjandi sakbomings
Ey*súR—
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði
Handbolti
í kvöld eru tveir hörkuspenn-
andi leikir á dagskrá í 1. deild ís-
landsmótsins í handknattleik.
Á Akureyri verður nágranna-
slagur þegar Þór tekur á móti erk-
ifjendunum í KA klukkan 20.30.
Má búast við að Akureyringar
fjölmenni og styðji sína menn.
Hinn leikurinn er ekki síður
spennandi því að þá mætast Sel-
foss og Valur á Selfossi og hefst
íþróttir í kvöld
sá leikur klukkan 20. Einar Þor-
varðarson og Sigurður Sveinsson
komu báðir frá Val og það ekki
alveg hávaðalaust, auk þess sem
þetta eru þau tvö lið sem mætast
í úrslitum bikarkeppninnar.
Tónninn verður því væntanlega
gefinn í kvöld.
I.deild karla:
Þór-KA kl. 20.30.
Selfoss-Valur kl. 20.00.
Skák
Biskup féll fyrir borð er við birtum
lausnir á jólaskákþrautunum í DV á
gamlársdag. Lesendur hafa þvi varla
fengið botn í lausnarleikina.
Þótt þrautin hefði verið rétt upp sett
er hún birtist upphaflega er rétt að sýna
hana aftur. Staðan er eftir Leonid Kubbel
frá 1908. Hvítur leikur og heldur jafntefli:
1. Hc4+ Kf3 2. Hxh4 g2 3. Hh3+ Kf4 Ef
3. - Kf2 4. Hh2 og vinnur síðasta peðið
en nú hyggst svartur leita skjóls á ffi.
Honum verður ekki kápan úr því klæö-
inu. 4. Hh4+ Kf5 5. Hh5+ Kffi 6. Hhl!!
og eftir þennan óvænta leik kemur í ljós
að hvort sem svartur drepur hrókinn og
vekur upp hrók eða drottningu er hvítm-
patt og skákin jafntefli.
Bridge
Þegar þessar linur eru ritaöar er lokið 6
umferðum af 23 í Reykjavíkurmótinu í
sveitakeppni. Þrjár sterkar sveitir hafa
náð nokkurri forystu, sveit Glitnis er í
fararbroddi með 128 stig, sveit VÍB er
með 125 og sveit Landsbréfa 121 stig. Á
öðru spilakvöldinu kom þetta spil fyrir
en það er mjög forvitnilegt. Flestir spilar-
anna í AV spiluðu 3 grönd og tilþrif buð-
ust, bæði í sókn og vörn. Spil 6, austur
gjafari og AV á hættu:
♦ Á1052
V ÁD8763
♦ DG8
♦ --
* D43
V K1094
♦ ÁK
+ G986
* 9876
»5
♦ 7643
+ K1073
Þar sem Aðalsteinn Jörgensen var sagn-
hafi fékk hann út tígulgosa. Hann spilaði
laufníu strax í öðrum slag og setti drottn-
inguna þegar norður sýndi eyðu. Suður
drap á kóng og fann bestu vömina, spil-
aði einspilinu í hjarta. Norður fékk á
drottninguna og hefði nú getað hnekkt
samningnum með þvi að spila lágum
tígli. Hann spilaði þess í stað lágum spaða
og Aðalsteinn tryggði samninginn með
því að svína laufáttu og leggja niður
hjartakóng. Hrólfur Hjaltason varð sagn-
hafi í þremur gröndum eftir hjartaströgl
hjá norðri. Útspilið var hjarta sem Hrólf-
ur átti á tíuna heima. Hann sá nú að
hættan í spilinu var sú að hjörtun lægju
5-2 og laufkóngur hjá suðri. Hrólfur fann
snjallan millileik við því vandamáli með
því að spila spaða. Norður hefur ekki
efni á að setja ásinn og gosi blinds átti
slaginn. í þeirri stöðu lagði Hrólfur niður
laufás en 4-0 legan setti óvænt strik í
reikninginn. Suður gat nú komið í veg
fyrir að sagnhafi fengi 4 slagi á lauf en
gaf samninginn með þvi að drepa á lauf-
kóng þegar laufinu var spilað í annað
sinn. Að vísu verður norður að hitta á
réttu vömina, að henda aldrei spaða í
laufm. ísak örn Sigurðsson