Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993. Fréttir Tvítugur Reykvíkingur dæmdur 18 mánaða fangelsi 1 Héraðsdómi Reykjavíkur: Seldi ungmennum hass f yrir tvær milljónir - hátt í eitt hundrað aðilar, aðallega ungt fólk, tengdist lögreglurannsókn Tvítugur Reykvíkingur hefur ver- ið dæmdur í 8 mánaða fangelsi fyrir að hafa selt nokkrum ungmennum samtals um 1,6 kíló af hassi fyrir um tvær milljónir króna á tímabilinu nóvember 1989 og fram í mars 1990. Hann var jafnframt sakfelldur fyrir að hafa sama vetur keypt hass af tveimur aðilum fyrir röska eina milljón króna. 5 mánuðir af refsingu mannsins eru skilorðsbundnir þar sem um tveggja ára töf varð á mál- inu, sem hann átti ekki sök á, og hann hefur ekki hlotið refsidóm áð- ur. Ingibjörg Benediktsdóttir, hér- aðsdómari í Reykjavík, kvað upp dóminn. í byrjun árs 1990 bárust lögregl- unni í Reykjavík upplýsingar um að tvíburabræður, sem nú eru tvítugir, væru að selja unghngum fíkniefni. Við yfirheyrslur hjá fíkniefnadeild lögreglunnar viðurkenndu þeir kaup og sölu á miklu magni fíkniefna, að- allega hassi. Við rannsóknina voru hátt í eitt hundrað aðiiar yfirheyrðir og kom í ljós að fjöldi þeirra hafði ýmist selt eða keypt fíkniefni sem upphaflega komu frá bræðrunum. Einn aðih viðurkenndi síðan að hafa selt hinum dæmda í þessu máli um 600 grömm af hassi. Fyrir þaö var hann ákærður svo og fyrir aö hafa keypt um 200 grömm af öörum aðila. Bræðumir játuðu í gæslu- varðahaldi að hafa keypt um 1,5 kíló af hassi af manninum og staðfestu framburðinn fyrir dómi sama ár. Þegar máhð var tekið fyrir við Héraðsdóm Reykjavíkur breyttu bræðumir framburði sínum - þeir heíðu ekki keypt nema um 450-470 grömm af hassi af ákærða. Annar þeirra kvað tvo lögreglumenn hafa beitt sig andlegu oibeldi í gæsluvarð- haldinu, því hefði hann játað á sig 1,5 kíló. Lögreglumennimir vísuðu þessum fullyrðingum á bug og benti annar þeirra á fyrir dómi að frekar heföi þurft að „takmarka frásagnar- gleði“ tvíburabróöurins frekar en hitt - bræðumir hefðu verið fúsir th að tjá sig um sakargiftir á hendur þeim. Meö hhðsjón af framburöi bræðr- anna hjá lögreglu, sem þeir staðfestu síðar fyrir dómi, var ákærði sakfelld- ur fyrir að hafa selt bræörunum 1,5 kíló af hassi auk kaupa sinna á um 800 grömmum af hassi eins og honum var gefið að sök. Mál framangreindra bræðra, svo og annarra brotlegra aðha í máhnu, eru afgreidd aðskihð frá því máli sem hér um ræðir. -ÓTT „Mér var sagt að ekkert væri hægt að gera fyrir mig nema gefa mér deyfilyf og smyrsl,“ sagði Jósef Fransson sem fór i ijósabekk á sjúkrahúsinu á Akranesi á þriðjudag samkvæmt tilmælum læknis og skaðbrenndist. DV-mynd Dröfn Átti aö vera 10 mínútur í ljósalampa en sofnaöi í klukkutíma: Sjötíu prósent líkam- ans eru alveg logandi - fyrst og fremst slys, segir héraðslæknir Vesturlands „Ég er búinn að vera svo kvalinn í hkamanum að ég hef veriö hálfgrát- andi af verkjum. Þetta hefur verið martröð. Sjötuíu prósent af húöinni á skrokknum eru alveg logandi. Það eina sem læknirinn geröi var að kíkja á mig, skrifa lyfseðh og segja mér að viðtahð kostaöi 600 krónur. Mér var sagt að ekkert væri hægt aö gera fyrir mig nema gefa mér deyfilyf og smyrsl," sagði Jósef Fransson sem fór í ljósabekk á sjúkrahúsinu á Akranesi á þriðjudag samkvæmt tilmælum þar sem hann þjáist af exemi. Jósef hefur hðið miklar kvalir frá því á þriðjudagskvöld en þá lá hann í um eina klukkustund í íjósalampa í stað þess að vera aðeins í tíu mínút- ur eins og honum hafði verið sagt - í sérstakri tegund af ljósabekkjum fyrir psoriasissjúkhnga á sjúkrahús- inu. „Stúlka á sjúkrahúsinu útskýrði auðvitað fyrir mér hvemig ég ætti að sthla klukkuna á ljósabekknum. Ég átti að vera í tíu mínútur en gleymdi mér og sofnaöi og lá í bekkn- um í klukkutíma. Þetta var því minn klaufaskapur en auðvitað býður bekkurinn upp á þetta. Ég er orðinn aðeins skárri núna en mér finnst skrýtið að ekki skuh vera hægt að gera meira við svona tilfehum,“ sagði Jósef. Halldór Jónsson, héraðslæknir Vesturlands, sagði í samtali við DV að í tilfehum eins og Jósef lenti í væri aðalatriðið að kæla niður húð og taka síðan verkjalyf. „Ef það er svona stórt svæði er ekki hægt að setja á þetta nokkum skapaðan hlut. Þetta er meöhöndlað svipað og sólbruni eins og flestir ís- lendingar þekkja. Það sem skiptir máh er að maöurinn var í sérstakri tegund af Ijósum. Fólki er sérstaklega kennt á bekk- inn. Fólk með mjög slæmt exem fær að koma í lampann. Svona lagað á auðvitaö ekki að geta komið fyrir. Hver og einn fær persónulega kennslu um hvað á að sthla og gera við lampann. Þetta er mikið notaður lampi og þetta hefur aldrei komið fyrir áður. Ég held að það verði að hta á þetta eins og hvert annaö slys. Það verður erfitt að koma því í framkvæmd að manneskja sitji yfir mönnum. En vegna þessa sérstaka tilfelhs er ástæða til að athuga hvort hægt sé að bæta eitthvað,“ sagði Halldór. -ÓTT Jón Sigurðsson eftir stofnfund Barentsráðsins: Viðskipti við Rússa f ari í nýjan farveg „Það er eiginlega tvennt sem skýr- ir áhuga okkar á Barentsráðinu. Annars vegar eigum við mikið undir því að ekki sé settur úrgangur í sjó- inn á norðurslóðum. Hins vegar telj- um við mikhvægt að viðskiptum ís- lands og Barentssvæðislanda, til dæmis Rússlands, verði komiö í nýj- an farveg," segir Jón Sigurðsson, iðnaöar- og viðskiptaráðherra. Hann mætti á stofnfund ráðsins í Norður- Noregi i byrjun vikunnar. í tengslum við umhverfismálin segir Jón að það hafi tíökast að skip sigh með úrgang út á sjó á Barents- svæðinu og sökkvi honum. íslend- ingar séu aðilar að banni við slíkri losun og með þátttöku í ráðinu verði þess freistað að fá því framfylgt. ■ Að sögn Jóns er nú þegar kominn vísir að vaxandi samvinnu íslend- inga og Rússa á viðskipasviðinu. Dæmi sé samningur Stálsmiðjunnar um endurbætur á fimm rússneskum togurum í skiptum fyrir þorsk. Hann segist vænta að um frekara samstarf geti oröið að ræða á sviði sjávarút- vegsmála og segir vaxandi styrk þorskstofnsins í Barentshafi gefa góðar vonir í því sambandi. „Þá teljum við okkur geta komið á markað fiski frá Rússlandi með okk- ar markaðskerfi. Um gagnkvæma hagsmuni gæti verið að ræöa.“ Jón segir hiö nýstofnaða Barents- ráð starfa með öðrum hætti en Norð- urlandaráð. Utanríkisráðherrar landanna muni th dæmis einungis hittast einu sinni á ári. Fundir á veg- um ráðsins kunni þó að verða fleiri, til dæmis sé ætlunin að umhverfis- ráðherrarríkjannahittistívor. -kaa Verjandi ákæröa fyrir íkveikju í Klúbbhúsinu: - héraðsdómurhafharkröfunni-kærttilHæstaréttar Magnús Thoroddsen, vetjandi þau eru send til ríkissaksóknara. mannsinssemákæröurhefurverið Klúbbákæran er þriðja málið af fyrir að hafa lagt eld að Sport- þessu tagi. Jón H. Snorrason, lög- klúbbnum við Borgartún i febrúar lærður fuhtrúi RLR var falin sókn á síðasta ári, hefur krafist þess að málsins. löglærður fulltrúi RLR, sem á að „Þá getur ríkissaksóknari falið sækja málið af hálfu ákæruvalds- lögreglustjónim, þar á meðal rann- ins, víki sæti þar sem ekki sé skýrt sóknarlögreglustjóra, flutning ákvæöi fyrir hendi í lögum til þess máls fyrir héraösdómi, Lögreglu- aö fúlltrúar RLR sæki mál. Sverrir stjórar geta fahð löglærðum starfs- Einarsson, héraösdómari i Reykja- mönnum sínum að flytja shkt mál.“ vík, hafnaði kröfu verjandans en Aö mati veijandans var heimild úrskurður hans hefur nú veríð rannsóknarlögreglustjóra sam- kærður til Hæstaréttar. kvæmt þessu ekki heimil i lögum Eftiraðnýlögtókugildiásíðasta - því ekki sé farið berum oröum ári um meðferð opinberra mála umþaöíframangreindrithvitnun. hafa löglærðir fuhtrúar RLR tvi- Veijandinnbentieinnigáaðekki svar sínnum sótt sakamál fyrir væri við hæfi að sami maöur rann- héraðsdómi - í máli svonefhds sakaði opinbert mál og flytti það bamsræningja og í máli fyrrum síðan sjálfur fyrir dómi. Þannig aðstoöarútsölustjóra ÁTVR viö skorti hlutlægni við rannsókn á Lindargötu. í þvi fýrmefhda er hlutum sem horfa th sýknu eöa genginn dómur en i hinu er dóms sektar og bryti gegn 6. grein mann- að vænta á næstunni. réttindasáttraáia Evrópu. Hér er um algjöra nýbreytni að Héraðsdómur féhst ekki á þessi ræða því með þessu er mögulegt rök og taldi sömuleiðis aö fyllstu fyrir löglærða fuhtrúa RLR aö hafa hlutlægni væri gætt þótt sami mað- bæði umsjón með rannsókn mála ur heföi með höndum rannsókn og fylgja þeim síöan eftir fyrir dómi máls og sækti það síðan fyrir dómi. sem sækjendur - í staö þess að Hæstiréttur mun fljótlega dæma í hætta afskiptum af málum þegar máhnu. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.