Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUK 15. JANÚAR 1993. Útlönd Hættiíflokki jafnaðarmanna vegna kynferð- Mariko Mitsui, borgarráðsmaö- ur fyrir Jafhaðarmannaflokkinn í Tokyo, heiur sagt af sér og sagt sig úr flokknum vegna kynferðis- legrar áreitni af hálfu flokks- manna. Hún sagði að karlmenn í flokknum heiðu káfaö á lærum sínum og iendum og sagt að karl- ar væru konum æðri. Mariko hefur um árabil barist fyrir jafnrétti kynjanna í Japan. Hún sagði við afeögnina að engin von væri. tii að jafnaöarmenn tækju í alvöru upp baráttu fyrir jafnrétti. Þvi sæi hún enga ástæðu til að starfa meö þeim iengur. Lockerbie- tilræðið skipulagtí Bandaríkjunum Fyrrum sækruliðaforingi frá Líbanon segir í viðtali að liðs- menn Palestínumannsins Ahmed Jibril hafi staöið fyrir sprenging- unni í Pan Am þotunni yfir Loc- kerbie i Skotlandi árið 1989. For- ingjnn segir aö tilræðið hafi verið skipulagt í Bandaríkjunum og að hvorki Líbíumenn né Sýrlend- ingar hafi komið þar nærri. Foringinn, sem þekktur er und- ir nafninu Tunyab, segir að maö- ur að nafni Khaiid Jaafar hafði imniö verkiö og að hann hafi far- ist meö þotunni. Hann tilheyrði 'flokki islamskra bókstafstrúar- manna vestra. Norskur hval- fangari mótmæl- irhvalveiðum Ivan Nötnes, fyrrum hvaiveiði- maður í Norður-Noregi, hefur fengið nokkra mektarmenn til aö skrifa undir bréf til norksu ríkis- stjórnarinnar þar sem hvaiveiö- um er mótnæli. Meðal þeirra sem skrifa undir er skipakóngurinn Knut Kloster, sem kunnur er fyrir áhuga á nátt- úruvemdamálum. Hann kostaði ferð vfldngaskipsins Gaiu vestur um haf síöasta sumar. Ivan segir að ráðherrar í stjóm- inni geti ekkert ákveöiö af viti um hvaiveiöar því þeir þekki ekkert til málsins. ÚflynjanYlfa dæmdtildauða Yfirvöld í Vermalandi í Svíþjóð hafa fyrirskipað að úlfynjan Ylfa skuli tekin af lifi við fyrsta tæki- fáeri. Ylfa hefur farið hamfórum í skógum Vermalands það sem af er vetri og drepiö bæði hunda og kindur. Náttúrvemdarsamtök hafa mótmælt dauðadómnum og segja að Ylfa sé mjög óvenjuleg úlfynja og verðskuldi því 3íf. Hún er und- arlega hænd að mönnum og hræðist þá ekki. Því er hald sumra að hún hafi alist upp í mannheimi. Yfla hefur ekki sést eför að domurinn var kveðinn upp. Kennari í fang- eisifyrirklám Larry Lane Bateman, kennari viö virtan eínkaskóla í New Hampshire i Bandaríkjunum, hefur veriö dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að láta nemendum í té klámmyndir og að fá þessa sömu nemendur tfl að ieika í klámmyndum. NTB, TT og Reuter ;f éf l Poul Schlliter fer til Danadrottningar í dag og segir af sér: Ryk undir gólfteppi varð honum að falli - laug að þinginu og biðst lausnar frekar en að vera hrakinn úr embætti Poul Schluter forsætisráðherra var hress i bragði þegar hann boðaði afsögn sína í gær. Hann á þó vart afturkvæmt í dönsk stjórnmál eftir að hafa leitt fimm rikisstjórnir á rúmum tiu árum. Hann hefur lengst af verið í minnihluta en tekist að sigla milli skers og báru og halda velli. símamynd Reuter „Ég skil ekki þessa niðurstöðu hæstaréttardómarans. Ég kannast ekki viö annað en aö hafa greint satt og rétt frá en samt er þessi niður- staða ekki heppileg ef ég á að sitja áfram,“ sagði Poul Schlúter, forsæt- isráðherra Dana, þegar hann til- kynnti fréttamönnum að í dag gengi hann á fund Margrétar II drottningar og bæðist lausnar. Orðin, sem urðu Schlúter að falh, sagði hann í frægri þingræðu 25. apríl árið 1989. Þá var svokallað tam- ílamál komiö í hámæli og forsætis- ráðherrann sagði þingmönnum „að engu ryki hefði verið sópað undir gólfteppið" í málinu. Nú tæpum þremur árum síðar er búið aö fletta teppinu upp og í ljós komiö að þar var ryk. Málið snýst um hvort Schlúter vissi þegar hann flutti ræðuna að embættismenn í dómsmálaráðuneytinu hefðu með atfylgi dómsmálaráðherrans, Eriks Ninn-Hansen, komið í veg fyrir að ættingjar innflytjenda af ættflokki tamíla frá Sri Lanka gætu komið til Danmerkur þrátt fyrir að dönsk lög kvæðu skýrt á um þennan rétt. Mogens Hornslet hæstaréttardóm- ara var falið að rannsaka málið og hann komst að þeirri niðurstöðu að Schlúter hefði vitað um brot ráðherr- ans í meira en mánuð áður en hann flutti „gólfteppisræðuna" og neitaði allri vitneskju. Skýrsla dómarans var birt i gær. Hún tekur yfir sex þúsund blaðsíður enda er um að ræða eitt umtalaðasta stjórnmálahneyksh í síðari tíma sögu Damnerkur. Schlúter neyðist nú til að segja af sér vegna þess að hann nýtur ekki lengur stuðnings miðjuflokka á þing- inu sem undanfarin misseri hafa varið stjórn hans og Vinstri flokksins falli. Ritzau Bandaríkin senda hundruð hermanna til Kúveits: Loftvarnaf laugar íraka komnar í viðbragðsstöðu Bandaríkin sendu mörg hundruð hermenn til Kú- veits í gær til að sýna stjórnvöldum í írak að þau komist ekki upp með neitt múður. „Við erum að fara í æfingabúðir en veröum tilbún- ir þegar við verðum beðnir um aö gera annaö,“ sagði Wesley Clark, yfirmaður herfylkisins. Bill Clinton, verðandi forseti Bandaríkjanna, var ómyrkur í máh í gær þegar hann andmælti frétt þess efnis að hann ætlaði aö rétta Saddam Hussein Iraksforseta sáttahönd. „Ég hef alls ekki í hyggju að koma á eðlilegum samskiptum við hann.“ Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráðherra íraks, sagði aö árásimar á miðvikudag hefðu verið „svívirðileg- ar“. Brent Scowcroft, öryggismálaráðgjafi Banda- ríkjaforseta, sagði að aöeins helmingur átta skot- marka hefði eyðilagst. Aziz ítrekaði að írakar hefðu gefið eftir í tveimur veigamestu deilumálunum en sagði að stjórn sín við- urkenndi ekki loftferðabannsvæðin í noröur- og suð- urhluta íraks sem eiga að vernda Kúrda og síta fyr- ir árásum stjómarhersins. írakar munu því hætta að fara yfir landamærin inn í Kúveit til að ná þar í hergögn frá því í Persaflóastríðinu og flugvélum SÞ verður leyft að fljúga yfir írösku landi. íraska sjónvarpið sýndi myndir af reiðum mann- fjölda með hkkistur og með byssur á lofti í borginni Basra í sunnanverðu landinu. Talsmaður hersins sagði aö ratsjár loftvamailauganna hefðu ekki verið í gangi þegar loftárásimar vom gerðar. „En núna eru loftvamabyssumar í viðbragðsstööu og tilbúnar að mæta hvaðq árás sem er,“ bætti hann við. Reuter Saddam Hussein íraksforseti hefur hvatt tii þess að ráðist verði á allar erlendar hervélar í íraskri lotthelgi. Teikning Lurie Damnörk: Arftakann skortir per- sónutöfra Ólíklegt þykir aö stjórn danskra íhaldsmanna haldi velli þegar Paul Schlúter er farinn frá. Arftakinn, Henning Dyremose íjármálaráðherra, nýtur virðing- ar fyrir dugnað og vönduð vinnu- brögð en hann skotir persónu- töfrana sem hafa fleytt Schlúter lengst. Dyremose þarf að sýna sömu lipurðina og Schlúter hefur sýnt á löngum ferli. Víst er þó að Schlúter vonast til að Dyremose geti sest í sæti hans. Uffe Elieman Jensen utan- ríkisráðherra er hugmyndinni ekki fráhverfur en stjóm íhalds- manna og Vinstri flokksins er í minnihluta á þingi og varin van- trausti, m.a. af Radikale Venstre. Þar á bæ hafa menn hug á að söðla um. Allt er þvi í óvissu í dönskum stjómmálum þessa stundina. Jafnaðarmenn hafa hug á kosn- ingum og gera sér vonir um auk- ið fylgi. Fari svo gæti Poul Nymp Rasmussen orðið næsti forsætis- ráðherra. Jafnaðarmenn hafa verið utan stjómar í rúman ára- tug og hafa því fullan hug á að komastívaldastóla. Ritzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.