Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993.
Fréttir
Hjálparsveitarmaður slasaðist við leitina að vélsleðamönnunum:
Kastaðist af sleðanum
og tognaði mjög illa
að minnsta kosti þrír vélsleðar eyðilögðust í leitinni
„Vélsleðinn hentist upp í loftið
og ég kastaöist aftur af honum. í
byltunni rak ég fótinn niður og fór
svo harkalega í splitt aö ég tognaði
mjög illa í nára og læri,“ segir Alex-
ander Ingimarsson, félagi í Hjálp-
arsveit skáta í Reykjavík, sem slas-
aðist við leitina að vélsleðamönn-
unum tveimur á BláfjaUasvæðinu.
„Við vorum sjö saman á leiðinni
á leitarsvæðið á vélsleðum. Á ein-
um stað misreiknaði ég snjóalagið.
Ég taldi mig vera að keyra á lausa-
mjallarskafli en þaö reyndist vera
klakadröngull. Við að keyra upp á
dröngulinn flaug sleðinn á loft og
sló mig af sér. Eg lenti með bakið
á kassanum aftan á sleðanum og
höfuöið skall á klakann. Hjálmur-
inn er skemmdur en hann hefur
sennilega bjargað hausnum,“ segir
Alexander.
Hann fór á slysadeild Borgarspít-
alans og hefur nú verið frá vinnu
í íjóra daga vegna slyssins.
„Þetta er bara eins og hvert ann-
að óhapp sem verður. Það var kol-
vitlaust veður en það er liður í
okkar starfi að taka áhættu.
Markmið þjálfunarinnar er að tak-
ast á við svona aðstæður og þetta
óhapp skrifast að öllu leyti á minn
reikning."
Að sögn Bjöms Hermannssonar,
framkvæmdastjóra Landsbjargar,
er algengt að björgunarmenn slas-
ist í leitum.
„Það er regla fremur en undan-
tekning að menn slasist eitthvað í
svona erfiðum og umfangsmiklum
leitum. Það er einnig algengt að
eitthvert hnjask verði á tækjum og
tólum sveitanna. Það er aÚtaf að
shtna belti undan snjóbíium eða
sleðum og bílar bræða úr sér eða
keyra á. Ég veit um að minnsta
kosti þijá vélsleða sem eyðilögðust
í þessari leit og einhveijar fleiri
skemmdir urðu. Þetta er eðlilegt
miðað við þann fjölda tækja sem
þama vom,“ segir Bjöm.
-ból
„Það er regla fremur en undantekning að menn slasist eitthvað i svona erfiðum og umfangsmiklum leitum,“ seg-
ir Björn Hermannsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar. DV-mynd BG
Björgunarsveitarmenn óánægðir með þungaskattinn:
Ríkið græðir á leitar-
aðgerðum hjálparsveita
- segir Gunnar Stefánsson, Hjálparsveit skáta, Njarðvík
„Björgunar- og bjálparsveitir
borga þúsundir króna beint til ríkis-
ins í formi þungaskatts þegar þær
taka þátt í leitaraðgerðum. Þessi
kostnaður sveitanna er beinn gróði
ríkisins og þetta finnast okkur vera
blóðpeningar,“ segir Gunnar Stef-
ánsson, fyrrverandi formaður Hjálp-
arsveitar skáta í Njarðvík.
„Eftir svona leit em menn stund-
um að velta fyrir sér hvort það eigi
að rukka eða sekta þá einstaklinga
sem era að týnast. Við erum ósam-
mála því en það er aftur á móti mjög
óréttlátt að ríkið skuli hegna sveitun-
um á þennan hátt fyrir að taka þátt
í leitum. í raun þurfa þær að borga
ríkinu fyrir að fá að hjálpa fólki.
Hjálparsveitir vora undanþegnar
greiðslum á þungaskattinum þar til
fyrir um fimm árum en svo var þessu
breytt af einhveijum orsökum."
Hjálparsveit skáta í Njarðvíkum á
tvo stóra dísiljeppa og að sögn Gunn-
ars borgar sveitin um 150 þúsund
krónur á ári í þungaskatt.
„Þetta era háar upphæðir fyrir
svona björgunarsveitir. Þessir bílar
era keyrðir um 10-15 þúsund kíló-
metra á ári og eru notaðir í æfingar,
útköll og leitir en auk þess eru þeir
til dæmis notaðir til að aðstoða lög-
reglu og almenning í ófærð. Við borg-
um auðvitað olíu á tækin en okkur
finnst ósanngjamt að þurfa aö borga
ríkinu rúmlega 5 krónur af hveijum
eknum kílómetra, bara til að koma
tækjunum á staöinn," segir Gunnar.
-ból
um fækkar
GyffiEristjánsson, DV, Aknreyri;
Öllu starfsfólki dvalarheimilis-
ins í Skjaldarvík 1 Eyjafirði verð-
ur sagt upp um næstu mánaða-
mót. Uppsagnimar eru liður í
þeirri áætlun að draga úr starf-
semi heimilisins en áætlun, sem
gerð var, gerði ráð fyrir aö rekstr-
inum í Skjaldarvík yröi aö fullu
hætt í lok ársins 1994. Um 30
starfsmenn eru í Skjaldarvík.
Karólína Guðmundsdóttir, for-
stööumaöur dvalarheimilisins í
Skjaldarvík, segir að með þessum
uppsögnum sé verið að hagræða
innanhúss. I nóvember voru upp-
sagnir í Skjaidarvík en þá var
aðallega um að ræða að starfsfólk
minnkaði við sig vinnu. Karólína
segir ekki liggja fyrir nú hversu
mikill hluti uppsagna um næstu
mánaðamót komi til fram-
kvæmda.
Rekstur dvalarheimilisins í
Skjaldarvík er hluti öldrunar-
þjónustu Akureyrarbæjar sem
rekur einnig dagvist, sjúkradeild
og íbúöir að Hlíð á Akureyri og
sambýli við Bakkahlíð. Þegar
reksturinn í Skjaldarvík leggst
af er reiknað með að þörfinni
hafi verið mætt með sambýlum á
Akureyri, bærinn kaupir tvær
hæðir í nýju fjöibýlishúsi á Akur-
eyri og þá fer hluti vistfólks í
Skjaldarvík í dvalarheimilið Hlíö.
Tálknafjörður:
Tölvuvætt
vigtarhús
á hafnar-
svæðinu
IAðvig Thoiberg, DV, TálknafirðL-
Tekið hefur verið í notkun hér
nýbyggt vigtarhús ásamt vand-
aðri tölvuvog og lilheyrandi bún-
aði. Húsiö er 20 m- að stærð og
stendur við sjávarkambinn miös-
vegar á athafnasvæði Tálkna-
fjarðarhafnar.
Gamla vigtarhúsiö var aðeins
þrír fermetrar og hefur því
vinnuaðstaöa vigtarmanns
breyst umtalsvert til batnaöar
með tilurö nýja hússins.
Nýja vigfarhúsið er teiknað og
smlðað af heimamönnum enda
er hér hæfileika- og listafólk á
þriðja hveiju strái.
Sementsverksmiðjan:
Ný stjóra kosin
til fjögurra ára
Alþingi kaus í gær menn í
stjóm Sementsverksmiðju rikis-
ins til fjögurra ára. Stjómarskipti
munu fara fram 6. febrúar næst-
komandi. í komandi stjóm eiga
sæti þau Guðjón Guðmundsson
alþingismaður, Guðjón Ingvi
Stefánsson, framkvæmdastjóri í
Borgamesi, Kristján Sveinsson
deildarstjóri, Akranesi, Gissur
Þór Ágústsson, bæjarfUIltrúi á
Akranesi, og Inga Harðardóttir,
iþróttakennari á Akranesi.
> -kaa
Alþingj:
Nýirdómendur
í Kjaradóm
Alþingi kaus í gær tvo dómend-
ur og tvo varadómendur í Kjara-
dóm til fjögurra ára. Magnús
Óskarsson borgarlögmaður og
Jón Sveinsson hdl. vora kosnir
dómendur. Varadómendur voru
kosnir Óttar Ingvarsson hrl. og
Þuríður Jónsdóttir hdl.
-kaa
Akureyri:
Bandarisk
hljómsveit
á Norðuriandi
GyffiKristjánsse»i,DV, Akurayri;
70 manna hljómsveit frá MIT
háskólanum í Boston í Banda-
rfldunum verður hér á Iandi í
næstu viku og leikur á ýmsum
stööum víða um land. Hflóra-
sveitarmennimir eru flestir nem-
endur í framhaldsnámi í vísinda-
og verkfiæðigreinum við skólann
og leika þeir ýmis þekkt verk eft-
ir 20. aldar tónskáld.
Stjóraandi hljómsveitarinnar,
John D. Corley, hóf feril sinn sem
hUómsveitarsfjórnandi fyrir 50
árum í Keflavík þar sem hann
stjómaöi hljómsveit á vegum
Bandaríkjahers. Fyrstu tórdeikar
hljómsveitarinnar hér á landi
verða á Akureyri nk. miöviku-
dagskvöld kl. 20.30 í Glerárkirkju,
næsta kvöld verða tónleikar á
Sauðárkóki og á föstudagskvöld
verða tónleikar á Blönduósi. Síð-
an liggur leið hfjómsveitarinnar
til Stykkishólms, Akraness og
Reykjavíkur.