Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Qupperneq 10
10
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993.
Vanefndauppboð
Vegna vanefnda fyrri uppboðskaupanda verður fasteignin Vagnhöfði 17,
Reykjavík, þingl. eign Hellu- og steinsteypunnar, seld á vanefndauppboði
sem haldið verður á eigninni sjálfri þriðjudaginn 19. janúar 1993 kl. 15.30.
Uppboðsbeiðendureru: Iðnþróunarsjóður, Verðbréfamarkaður Fjárfestingar-
félags íslands hf., nú Fjárfestingafélagið Skandía hf., Steinunn Káradóttir
og Eyjólfur Matthíasson.
SÝSLUMAÐURINN I REYKJAVÍK
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
632700
TIL SÖLU
Mercedes Benz 280 SE, árg. ’83, ek. 118.000 km.
Topplúga. Glæsilegt eintak. Verð 1.200.000,-
Til ábúenda og
eigenda lögbýla
Á síðastliðnu hausti var fullvirðisréttur til framleiðslu
mjólkur og sauðfjárafurða færður niður til að laga
hann að innanlandsmarkaði samkvæmt ákvæðum
búvörusamnings frá 11. mars 1991 og samnings um
mjólkurframleiðslu frá 16. ágúst 1992. í þeim samn-
ingum og í lögum, sem samþykkt voru á Alþingi 22.
desember sl. um breytingar á búvörulögum nr.
46/1985, er kveðið á um greiðslur fyrir niðurfærslu
fullvirðisréttar. Greiðslur vegna niðurfærslu fullvirðis-
réttar verða greiddar handhafa beinna greiðslna á
lögbýlinu en greiðslur þessar á að greiða 31. janúar
nk. vegna niðurfærslu fullvirðisréttar til framleiðslu
sauðfjárafurða og 31. mars nk. vegna niðurfærslu
fullvirðisréttar til framleiðslu mjólkur. Þær skulu þó
ekki greiddar handhafa beinna greiðslna geri ábú-
andi og eigandi lögbýlis samkomulag um að viðtak-
andi verði annar aðili enda berist skrifleg tilkynning
þess efnis til landbúnaðarráðuneytisins fyrir greiðslu-
daga, þ.e. 31. janúar og 31. mars nk.
Landbúnaðarráðuneytið, 11. janúar 1993.
Ullönd
Tíu ára stúlka geymd í dýflissu í 16 daga:
Hírðist undir bfl-
skúr hjá frænda
- frændinn ætlaði að vernda hana fyrir foreldrunum
„Halló, Nonni frændi," var það
fyrsta sem tíu ára gömul stúlka á
Long Island í Bandaríkjunum sagði
þegar henni var bjargað úr dýflissu
hjá þessum frænda sínum eftir 16
daga vist fjarri foreldrum sínum.
Hún virtist ekki hafa áttað sig á
hver olli raunum hennar og heilsaði
frænda sínum glaðlega. Hann er
truflaöur á geði og tók það í sig að
foreldrar stúlkunnar færu illa með
hana og ákvað því að ræna henni og
geyma á öruggum stað.
Katie Beers heitir stúlkan. Frændi
hennar útbjó lítiö fangelsi undir bíl-
skúrnum hjá sér og hlekkjaöi stúlk-
una þar við vegg svo hún reyndi ekki
Hulunni hefur verið svipt af mesta
leyndarmálinu í Washington, höfuð-
borg Bandaríkjanna. Nei, það kemur
skipan nýrra ráðherra eða stefnu-
mótun Clintons, væntanlegs forseta,
ekkert viö. Það er bailkjóllinn henn-
ar Hillary Clinton sem hún verður í
þegar maður hennar verður svarinn
inn í embætti forseta Bandaríkjanna.
Kjóllinn verður víður, blár og á
honum verða litlar perlur og hann
var efni í forsíðufrétt blaðsins Wom-
en’s Wear Daiiy, biblíu tískuiðnaðar-
ins vestra.
Blaðið birti teikningu af kjólnum,
eins og það segir að hann verði, og
var andlitsmynd af Hillary skeytt
við.
Hönnuður kjólsins heitir Sarah
PhiIIips, 37 ára gömul kona sem hef-
að flýja. Hann kom sjónvarpi fyrir í
dýflissunni og sá til þess að sú stutta
fengi reglulega að borða.
Stúlkunnar var leitað í marga daga
en án árangurs. Grunur beindist um
síðir að frændanum og fann lögregl-
an stúlkuna eftir húsleit hjá honum.
Sálfræðingar sögðu að stúlkan virtist
hafna öllu því sem hafði gerst en svo
gæti farið síðar að minningarnar um
dvölina í svartholinu undir bílskúrn-
um sæktu á hana.
Ekki er vitað tii að frændinn hafi
gert stúlkunni nokkurt mein. Hann
verður ákæröur fyrir mannrán og á
yfir höfði sér fangavist. Vera má að
fleiri ákærur verði gefnar út á hend-
ur starfrækt eigið fyrirtæki í aðeins
tvö ár. Áður hafði hún unnið við
helstu tískuhúsin, svo sem Ralph
Lauren, Yvest St. Laurent og Christ-
ian Dior.
Blaöið segir að kjóllinn sé „eins og
langt slíður með löngum ermum,
aðskorinni treyjú úr fjólubláu
blúnduefni og ísaumuðum lithverf-
um kristölum".
Hillary Clinton komst í kynni við
fatahönnun Söruh Phillips í flnni búð
heima í Little Rock í Arkansas og var
í silkidragt eftir hana þegar Bill Clin-
ton tók við útnefningu Demókrata-
flokksins á flokksþinginu í fyrra.
Ekki er vitað hvað kjóllinn kostar
en yfirleitt kosta ballkjólar Söruh
rúmar 80 þúsund krónur.
Reuter
ur honum. Einkum vill lögreglan
vita vissu sína um hvort hann hafi
áreitt stúlkuna kynferðislega. Reyn-
ist svo vera má „frændi" búast við
þungum dómi.
Hann reyndi ekki að afsaka gerðir
sínar við yfirheyrslur hjá lögregl-
unni en hélt því statt og stöðugt fram
að hann hefði orðið að vernda
frænku sína. Hann hefur verið látinn
laus gegn tryggingu.
Einn sálfræðingurinn, sem ræddi
viö Katie, sagðist aldrei hafa vitað til
þess að fómarlamb mannræningja
hefði ekki eitt einasta illt orö að segja
um misgjörðarmanninn.
Reuter
DanQuaylevilS
forsetaembættið
eðaekkert
Dan Quayle, varaforseti Banda-
ríkjaxma, sagði í blaðaviðtali í
vikunni að ef hann ætti eftir að
bjóða sig fram tíl opinbers emb-
ættis á nýjan leik yrði það tfl for-
setaembættisins. Hann sagði að
hann hefði engan áhuga á að
verða fylkisstjóri í Indiana,
heimasveit sinni.
Quayle sagði viö blaðið Was-
hington Post að hann ætlaði núna
að setjast niður og skrifa pólitísk-
ar endumúnningar sinar en
hann ætlaði þó ekki aö kjafta frá
öllu og öllum. Hann heföi hins
vegar frá mörgu að segja um árin
sín sextán í opinberri þjónustu.
Suðurpóisfarimt
ætiaraddrsfasig
HeimtilÓslóar
Norski landkönnuðurinn Erl-
ing Kagge, sem á dögunum varð
fyrstur allra til að ganga til suð-
urpólsins án utanaðkomandi að-
stoðar, segir að tilhugsunin um
heita máltíð og stöku hugleiðing-
ar um heillandi konur hafi knúið
sig áfram.
Hann segir að sér hafi dottið
ýmislegt í hug á leiöinni en ekk-
ert sé þó ákveðið um næstu ferð.
„Fyrst ætla ég að koma mér
heim tfl Óslóar þar sem ég þarf
m.a. að innrétta íbúðina mína.
Þar að auki ætla ég að skrifa bók
til að reyna að fjármagna hluta
ferðarinnar,'* sagöi Kagge.
Hann dvelur nú í bandarísku
rannsóknarstöðinni Patriot Hills.
Áformaö er aö fljúga þaðan 17.
janúar.
Alzheimerpró-
tíniðborargatá
heilafrumurnar
Bandarískir vísindamenn hafa
náð mikilvægum áfanga í rann-
sóknum á alzheimersjúkdómn-
um því þeir hafa uppgötvaö
hvernig prótín, sem lengi hefur
verið talið eiga sök á sjúkdómn-
um, fer að því að drepa heila-
frumur.
Þeir komust aö því að prótíniö
borar pínulitlar holur í heila-
frumurnar og verður það til þess
að þær fyllast af kalki. Frumum-
ar deyja síðan vegna of mikils
kaiks. ReuterogNTB
Svona lítur ballkjóllinn hennar Hillary Clinton út, að sögn biblíu tískuiðnaðar-
ins í Ameríku. Simamynd Reuter
Hulunni svipt af
ballkjól Hillary