Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Síða 12
12
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993.
Spumingin
Finnst þér réttlætanlegt
að hækka verulega verð
á tóbaki?
Díana Hrafnsdóttir húsmóðir: Já, al-
veg hiklaust.
Guðmundur Hreiðarsson verslunar-
maður: Já, er það ekki bara gott mál.
Guðjón Þorkelsson iðnaðartækni-
fræðingur: Mér fmnst verðið í lagi
eins og það er í dag.
Elsa Gunnarsdóttir, atvinnulaus:
Nei.
Brimar Gunnlaugsson nemi: Já, það
finnst mér.
Páll Amar Steinarsson verslunar-
maður: Mér fyndist það mjög ósann-
gjamt, verðið er nógu hátt þegar.
Lesendur
%
Hvað getur ITC gert
ffyrir bankamann?
Gunnjóna Guðmundsdóttir, banka-
maður og forseti ITC Korpu, skrifar:
Góður bankamaður þarf að vera
áreiðanlegur, háttvís og heiðarlegur.
Hann þarf helst aö vera vel máli far-
inn og fær um að tjá sig af öryggi.
Góöur bankamaður þarf að geta
stjómað öðrum og einnig að kunna
að láta að stjóm. Hann þarf að geta
tekið fullt tillit til annarra, jafnt
vinnufélaga sem viöskiptavina.
Það er t.d. nauðsynlegt fyrir deild-
arstjóra að eiga góð samskipti við
undirmenn sína, ekki síður en yfir-
menn, til þess að góður starfsandi
rtki á vinnustaðnum. Hæfni banka-
manna skiptir miklu máli fyrir af-
komu bankanna og ánægðir við-
skiptavinir em sú langbesta auglýs-
ing sem banki getur fengið.
Hvort allir bankamenn uppfylla
framangreind skilyrði skal ósagt lát-
ið en þar sem segja má að helsta við-
fangsefni ITC sé þjálfun í mannleg-
um samskiptum getur ITC hjálpað
bankamanninum til að ná betri ár-
angri í starfi og öðlast meiri starfs-
frama. ITC er félagsskapur fólks sem
leggur áherslu á að efla og styrkja
einstaklinginn þannig aö hann verði
hæfari til að taka að sér ný og erfið-
ari verkefni.
Fólk fær þar þjálfun í að flytja mál
sitt og fiá skoðanir sínar. Lögð er
áhersla á verndun móðurmálsins. í
ITC lærir fólk einnig fundarsköp og
fær alhliða þjálfun í að stjórna fund-
um en slík kunnátta er nauðsynleg
fyrir stjómir starfsmannafélaga svo
og trúnaðarmenn starfsfólks bank-
anna.
Bankamenn þurfa oft að flytja
skilaboð sem varða hagsmuni við-
skiptavina til yfirmanna bankanna
og er þá mikilvægt að þeir taki vel
eftir og geti síðan tjáð sig skýrt og
skilmerkilega. Það má því fullyrða
að ITC gerir góðan bankamann að
betri bankamanni.
: :
„Ánægðir viðskiptavinir eru sú langbesta auglýsing sem banki getur fengið,“ segir bréfritari m.a.
Ríkið þarf nast breytinga
Ólöf M. Þorsteinsdóttir skrifar:
Er ríkið orðið tæki gegn almúgan-
um? Og enn er spáð að vont geti
versnað. Öreigarnir eru orðnir
margir víöa um heim. Öreigaríki
leysir kannski aldrei af hólmi smá-
borgaralegt kerfi eða borgaralegt.
Það þarf hins vegar hugarfarsbylt-
ingu og svolitla heimspeki inn á okk-
ar íslenska, æruverðuga og fjöl-
menna þing. Þar þarf byltingu. Sauð-
svartur almúginn þarf að rísa upp
og mótmæla. Mótmæla vaxtahækk-
unum, allt of háum sköttum o.s.frv.
Ég tel að í stað hins borgaralega
skipulags megj koma á kerfi dipló-
mata. Andstæður stéttanna eru of
miklar. Enn hleðst upp gróði á heiid-
ur færri og færri, og hálaunaskattur
er því réttmætur. - Smáborgaralegir
sósíalistar - lýðræðissinnar - eru
kannski með draumóra um samein-
ingu stéttanna í stað stéttabyltingar
og vilja að minnihlutinn beygi sig
skilyrðislaust undir meirihlutann.
En ríkið á ekki að vera hafið yfir
stéttimár, heldur á þaö að vinna með
þeim.
Lífsskilyrði þurfa að batna. Öreig-
ar þurfa aðeins að skipuleggja sig
betur og láta ekki undan þeirri kúg-
un og oki sem þeir eru beittir. Þeir
vinna því miður langan vinnudag og
það kemur niður á heimilislífi og
uppeldi hinna ungu.
Ríkið, þetta stéttadrottnunartæki,
þarfnast breytinga, díalektískrar
efnishyggju og meiri heimspeki.
Skilnings á þörfum lýðsins. Um langt
skeið hefur verið lagður steinn í götu
alls byltingarkennds framtaks,
hverju sem það sætir. Nú er kominn
tími til að mótmæla og berjast fyrir
bættum lífskjörum. Sem betur fer er
það hægt hér á landi án vopna. Enda
með eindæmum hve skoðanafrelsi
ríkir þó þrátt fyrir mikla kúgun.
Er gift f ólk þriðja f lokks?
Vilborg Jónsdóttir skrifar:
Mig langar til að kasta fram þeirri
spumingu hve gift fólk þurfi að
ganga langt til þess að fá leikskóla-
pláss. Ekki þótt væri nema hálfan
daginn virðist vera nógu erfitt og það
fyrir barn sem er komið á fimmta ár!
Dóttir okkar er búin að bíða í tvö
heil ár eftir að komast inn eftir há-
degi í Hólaborg í Efra Breiðholti og
ekki er nokkur von til þess aö hún
fái pláss fyrr en næsta vor eða sum-
ar, þegar öll 6 ára bömin hætta. Hún
er greinilega þriðja flokks bam þar
sem hún á gifta foreldra en ekki
þessa dæmigerðu sem lifa á kerfinu,
svo sem einstæða (sem oftast em þó
í sambúð) eða námsfólk (sem ekki
er bundið við venjulega vinnu). Ofan
á þetta allt saman kemur svo hrein-
lega klíkuskapur.
DVáskilur sérrétt
tilaðstyttaaðsend
lesendabréf
Það virðist ekki skorta "peninga
þegar byggja á Ráðhús eða Perlu og
það nýjasta er að nú á að fara aö
eyða offjár til að útbúa skautasvell á
Tjörninni á sama tíma og þetta fína
skautasvell er að finna í Laugardaln-
um. Væri ekki betra að nota pening-
ana til að reisa fleiri leikskóla hér í
borginni og bæta aðstöðu komandi
kynslóða?
Ekki aldeilis. Það virðist vera aðal-
kappsmál fólks að láta reisa ein-
hverja minnisvarða úr steini svo að
komandi kynslóðir muni eftir sér á
dauðan hátt en ekki á hinn mannlega
og nýtanlega. Með þessu bréfi vona
ég að augu a.m.k. einhverra opnist
og sjái hvert stefnir í þessu samfélagi
okkar. Með von um betri framtíð fyr-
ir börnin okkar.
Ég er undrandi á því að þeir
menn sem týnast i óveðri eða á
veiðiferðum og alfarið á eigin
vegum og sér til skemmtunar
skuli ekki látnír greiða þann
kostnað sem hlýst af því að björg-
unarþyrlur og leitarflokkar sem
samanstanda af tugum jafhvel
hundraðum manna eru bundnir
viö svona leitarstörf. - Þetta era
þó mest hjálpartæki sem skatt-
borgararnir greiða fyrir. Það er
ekki sama hvort menn týnast við
skvldustörf eða skemmtun.
■■ ■ ■ ■»«!
Arnþór hringdi:
í ársbyrjun er oft rætt um
greiðslufyrirkomulag fasteigna-
gjalda í ýmsmn bæjarfélögum.
Svo virðist við fyrstu sýn að
Reykjavík gangi harðast fram í
innheimtunni, með aðeins tvo
gjalddaga. Víst eru greiðslurnar
aöeins þrjár en í Reykavik eru
lika mestu framkvæmdirnar sem
nýtast einnig að miklu leyti fyrir
landsbyggðarfólkið. í mörgum
bæjarfélögum er hins vegar afar
lítið um framkvæmdir og því
hægt að leyfa fólki að greiða sín
gjöld eftir dúk og disk.
Heyrnarlausum
ýttútíhom
Magnús Sverrisson skrifar:
Undánfarin ár hefur táknmáls-
túlkun fylgt ávarpi forseta ís-
lands samkvætnt beiðni hans
sjálfs. Nú gerðist það hins vegar
að táknmálstúikunin var klippt í
miðju kafi. í miðri ræðu hvarf
táknmálstúikunin án skýringa. Á
skjánum birtist kona og sagði
eitthvaö sem ég ekki skildi þvi
mér tókst ekki að lesa af vörum
hennar og ekki fylgdi neinn texti
með. Hver er meiningin með því
að nota þulu en ekki texta til að
tilkynna að ávarpið yrði endur-
sýnt næsta dag? Auðvitað fór það
iram hjá mér og öðrum heymar-
lausum því það kom ekki fram í
dagskrá Sjónvarpsins. En það var
eins og þetta væri ekki nóg. Ekki
voru neinar táknmálsfréttir
þennan daginn, þó svo að Ríkisút-
varpið héldi sínum fréttatíma. -
Ríkissjónvarpið er illa skipulagt
og því vil ég ekki greíða afnota-
gjald þess.
Háu Ijósin
Kristinn skrifar:
Ég þarf oft að stöðva bíiinn þeg-
ar ég mæti jeppa með allt of há
ijós sem beinlinis blinda mann.
Einnig er allt of mikiö um að aðr-
ir bílar noti þessi háu ljós hér í
borginni. Umferðarráð ætti að
reka áróður gegn notkun háu
ljósanna þar sem þau eru bönnuð
í borginni. Lögreglan er ekki
nógu virk í eftirliti gegn þessu en
er í þess staö mjög virk að sekta
menn, gleymi þeir sér við bið-
skyldu eöa stöðvunarmerki, þar
sem þó væri nóg aö veita áminn-
ingu við fyrsta brot. Ég skora á
Bifreiðaeftirlitið aðsjá svö um að
jeppar séu ekki með itá Ijós sera
blinda aðra í umferðinni.
Lokaþeiraugunum?
E.E. skrifar:
Alltaf erum við jafn heppnir. -
Nú stendur til að haJda hér
læknaráöstefnu með dr. Robert
Gallo sem telur sig hafa fyrstur
fundið Aids-veiruna. Hins vegar
segir í Newsweek 11. jan. sl. aö
doktorinn hafi verið kærður fyrir
vísindamisferli og hafi hann
komist yfir veiruna hjá Pasteur-
stofuninni i París. - Hann hefur
ámálgað að hann muni ái'rýja
ásökununum. En hvert? Geta is-
lcnskir læknar lokaö augunum
fyrir þessum ásökmium?