Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Page 13
FÖSTÚDAGUR 15. MNÚAR 1993. 13 Neytendur Merkingar á frosnu lambakjöti ekki alltaf fullnægjandi: Lágmark að upplýsa um sláturdag - segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna „Sláturdagur á að vera eðlilegar og sjálfsagðar lágmarksupplýsingar sem ættu skilyrðislaust að vera á öllum kjötumbúðum í frystiborðum í verslunum. Ef þessar upplýsingar er ekki að finna gerum við þá kröfu að því verði kippt í lag. Ef menn eru að reyna að selja fryst kjöt án þess að geta um það á umbúðum hvenær slátrað var er verið að viUa um fyrir neytendum, sem er bannað í lögum. Vanti þessar upplýsingar kunna neytendur að telja að um kjöt frá í haust sé að ræða án þess að hafa nokkra tryggingu fyrir því,“ sagði Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna við DV. Það færist í vöxt að frosið lamba- kjöt í verslunum sé merkt á þann hátt að neytendur sjái hvenær lamb- inu var slátrað en nokkuð vantar þó á að allt fryst eða unnið lambakjöt sé merkt á þann hátt. Því er full ástæða fyrir neytendur að hafa aug- un opin. Til að mynda er þess getið á öllum loftæmdum frystipakkningum frá Sláturfélagi Suðurlands og Goða hvenær slátrað var. Þar stendur þá annaðhvort: september 1992 eða haustslátrun 1992. Fleiri kjötvinnslu- og söluaðilar merkja kjöt með þess- um hætti, einnig ófrosið kjöt. Hins vegar eru brögð að því að fryst kjöt, bæði í smærri neytendapakkningum og stærri tilboðspokum, sé ekki merkt á þennan hátt né heldur mar- inerað kjöt eða hangikjöt. Nákvæmir Frakkar í einu lesendabréfa í DV fyrr í vet- ur var birt mynd af ábyrgðarskír- teini sem fylgdi lambalæri sem keypt var í franskri verslun. Á því var get- ið um númer skírteinisins, nafn framleiðanda (ræktanda) og heimil- isfang, auðkenni eða númer viðkom- andi sláturdýrs, aldur dýrsins, slát- urdag, nafn og heimilisfang slátur- húss og seljanda og staðfesting á því hvenær kjötið var sett í sölu. DV fór í nokkrar matvöruverslanir í Reykjavík af handahófi og skoðaði kjöt í frystiborðum og kælum. Hvergi var að sjá jafn nákvæmar upplýs- ingar og á franska ábyrgðarskírtein- inu en nokkrum lærum fylgdi þó nafn sláturhúss, dagsetning slátrun- ar og undirskrift dýralæknis á miða. í nokkrum búðum virtist frystu kjöti hafa verið pakkað í versluninni án þess aö getið væri um sláturdag, hvorki á kótelettum, lærissneiðum, læri eða hrygg. Að sögn Guðmundar Sigþórssonar, skrifstofustjóra í landbúnaðarráðu- neytinu, er það sjálfsagður réttur neytandans að vita hvaða vöru hann er að kaupa. Hann segir merkingam- ar vera á hreinu við forgun og kaup- maður fari ekki í grafgötur um hvað hann sé aö kaupa. „Almennar reglur eiga að tryggja dagsetningar á neysluvöru. En það getur verið að við þurfum að skoða nánar ef reglurnar ná ekki yfir þessa vöru, til að tryggja að neytandinn kaupi það sem hann heldur að hann sé að kaupa,“ sagði Guðmundur. -hlh Vafasamar upplýs- ingar DV til neytenda í neytendadálki DV þ. 13. janúar sl. mátti lesa að „þægilegast" væri að greiða fasteignagjöld í Kópavogi og Vestmannaeyjum. Jafnframt stóð þar í fyrirsögn að Reykvíkingar væru „harðast keyrðir". Eitthvað hefur greinarhöfundur ruglast á aukaatriðum og aðalatrið- um, að minnsta kosti ef hann ber hag neytenda/skattgreiðenda fyrir brjósti. Ef greinarhöfundur hefði skoðað málið ofan í kjölinn hefði hann eflaust komist að rökréttri nið- urstöðu og aðalatriði fyrir umbjóð- endur sína, þ.e. neytendur, að fast- eignagjöld eru allt að 61% hærri í Kópavogi en þau eru í Reykjavík. (Sjá meðfylgjandi samanburðartöflu sem gerð er skv. upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.) En tökum eitt lítið dæmi um „þæg- indin" sem íjallað er um í umræddri neytendagrein. Til grundvallar er 3 herbergja íbúð, þar sem fasteigna- matið er 6,7 millj. kr. ogfasteignamat lóðar 300 þús. kr. Á þessa eign eru lögð 39.805 króna fasteignagjöld í Reykjavík, en 64.058 kr. í Kópavogi, eða 61% hærri gjöld. í Reykjavík eru 3 gjalddagar sem koma til greiðslu á fyrstu fimm mánuðum ársins, þ.e. í maímánuði er búið að greiða 39.805 kr. í Kópavogi eru greiðsludagamir 10 og um mánaðamótin maí-júní er búiö aö greiða u.þ.b. 32.030 kr. sem er mismunur upp á 7.775 kr. En þá eru þægindin eftir. Næstu 5 mánuði þarf skattgreiðandinn í Kópavogi að greiða aðrar 32.030 kr. á meðan skatt- greiðandinn í Reykjavík er laus allra mála. Ólíklegt er að margir vildu skipta á þessum kjörum, en aðalatriði máls- ins hlýtur að vera hver greiðslubyrði skattgreiðanda er. Borgaryfirvöld í Reykjavík hafa, „eins og elstu menn muna“ valiö að halda gjöldum lág- Fasteignagjöld í nokkrum sveitarfélögum 1992 Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður Akureyri Seifoss [] Fjölbýlishús |J Einbýlishús um. Forsendur: Fasteignamat á 3 herbergja íbúð 6,7 milljónir og fasteignamat á lóð (200 fm) 300 þúsund krónur. Fasteignamat einbýlishúss 13,1 milljón og lóðar (800 fm) 900.000 krónur. Ólafur Jónsson upplýsingafulltrúi Athugasemd blaðauianiis Vegna orða Ólafs Jónssonar um „Varöandigjalddaganaerþómikil- bera í þessum efhum. Eftir stend- vafasamar upplýsingar DV til neyt- vægt að hafa í huga að fasteigna- ur, burtséð frá upphæðunum, að enda er rétt að kon tali við Jón Tóm; d fram að í sam- skattar í Rf isson borgarrit- en víðast a ykjavík eru mun lægri ófáum þykja óþægindi af aðelns 3 nnars staðar." Aðalat- gjalddögum í Reykjavik og þægindi ara, þar sem hann rökstuddi ítar- riðið, að ma ti Ólafs, var því til staö- felast í fjölgun þeirra. lega af hverju gj ekki verið fjölgað alddögum hefði ar í fréttin Reykjavxk, var nákvæmar ni þó ekki sé tíundað Haukur Lárus Hauksson hvaða byrðar íbúar eftiríarandihaftbeinteftirhonum: mismunandi bæjarfélaga hafi að HRAÐNAMSTÆKNI í TUNGUMÁLANÁMI ENSKA -ÞÝSKA - DANSKA - FRANSKA - ÍTALSKA - SPÆNSKA OG ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA SKRÁNING STENDUR YFIR Opið um helgina frá kl. 12-16. MALASKOLINN MIMIR SÍMI 10004 Námskeiðin hefjast 18. janúar Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa í 1. flokki 1991 3. flokki 1991 Innlausnardagur 15. janúar 1993. 1. flokkur 1991 Nafnverð: 10.000 100.000 1.000.000 Innlausnarverð: 12.284 122.843 1.228.429 3. flokkur 1991 Nafnverð: 10.000 100.000 500.000 1.000.000 Innlausnarverð: 10.931 109.306 546.532 1.093.065 Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Suðurlandsbraut 24. [&] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS U HÚSBRÉFADEILD SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK SÍMI 696900 ERTU I RUSLI? Um miðjan janúar taka gildi nýjar reglur sem takmarka aðgang fyrirtækja að gámastöðvum SORPU. Þessi breyting hefur það í för með sér að ekki er lengur hagkvæmt fyrir fyrirtæki að sjá sjálf um flutning á úrgangsefnum. HIRÐIR veitir alhliða söfnunarþjónustu, býður upp á flokkunarkerfi fyrir endurvinnanleg efni og losar fyrirtæki við sorp á ódýran og hagkvæman hátt. Hafðu samband við okkur og við veitum þér nánari upplýsingar um starfsemi HIRÐIS. HIRÐIR l UMHVERFISÞJÓNUSTA | HÖFÐABAKKI 1,112 REYKJAVÍK SÍMI 67 68 55

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.