Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Page 14
14
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR1993.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðafritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Forsetinn gerði rétt
Eftir aö Alþingi samþykkti endanlega aöild íslands
aö Evrópska efnahagssvæðinu kom upp sá kvittur aö
forseti íslands hygðist neita aö skrifa undir og staöfesta
samninginn. Gekk sá orörómur svo langt aö ein útvarps-
stööin fullyrti aö svo væri og send voru fréttaskeyti til
annarra landa í nafni þekktrar fréttastofu sama efnis.
Þetta voru óheppilegar getgátur og óviöeigandi, eins
og raunar áskoranir þær sem forseta bárust um aö neita
aö staðfesta lögin. Sagt er aö margir af nánustu vinum
og stuðningsmönnum frú Vigdísar hafi veriö meö á þess-
um undirskriftarlistum. Það eru ekki vinargreiðar. Slík-
ar áskoranir setja forseta íslands í klípu og stilla henni
raunar upp andspænis þeirri ákvöröun að taka tillit til
vinskapar annars vegar og þjóðarhagsmuna hins vegar.
Forseti íslands má ekki og á ekki aö vera undir þrýst-
ingi frá sínum nánustu um veigamiklar athafnir í þjóö-
málum. Vinir forsetans eiga inanna best að treysta frú
Vigdísi til að taka sjálfstæðar ákvarðanir án þess aö
vera beitt þrýstingi. Frú Vigdís hefur sýnt og sannað á
löngum forsetaferh aö dómgreind hennar og skilningur
á eöh forsetastarfsins er í góðu lagi og þess vegna á að
láta hana í friði meö sínar ákvarðanir. Enginn vafi er
á því af ef frú Vigdís væri þeirrar skoöunar að forseta
íslands beri aö neita aö staöfesta lög frá Alþingi þá hef-
ur hún th þess hugrekki og einurð aö taka þá ákvörðun
á eigin spýtur. Aö því leyti voru áskorunarundirskriftir
andstæöinga EES-málsins óheppilegar að ef frú Vigdís
hefði neitaö aö staðfesta EES-samkomulagið hefði hún
legiö undir því ámæli að beygja sig fyrir þeim áskorun-
um.
Sú skoðun skal sett hér fram að ekkert óeðlilegt hefði
verið viö það að forseti íslands neitaði aö staöfesta samn-
inginn. Með því heföi málinu veriö skotið th þjóðarinn-
ar og þaö eru fullkomlega stjórnskipunarleg rök fyrir
því aö íslenska þjóöin sjálf og öll taki afstööu í slíku
stórmáh. Stjórnarskráin gerir ráð fyrir aö forseti ís-
lands staöfesti lög frá Alþingi eða staðfesti þau ekki og
þann rétt getur forseti íslands nýtt sér á hvorn veginn
sem er, án þess aö farið sé út fyrir ramma stjórnarskrár.
Hins vegar er þaö rétt ákvöröun í stöðunni aö stað-
festa lögin. Máhð hefur hlotið ítarlega meöferð á Al-
þingi, meirihluti Alþingis hefur lýst vilja sínum í at-
kvæðagreiðslu, ríkisstjóm íslands er einhuga í málinu.
Neitun forseta hefði kostaö mikið umrót í þjóöfélaginu,
pólitíska upplausn og harðar dehur um forsetaembætt-
ið. Við núverandi aðstæður eru slíkar dehur ekki í takt
við þjóðarhagsmuni fyrir tilsthh forseta íslands.
Ef og þegar forseti íslands hefur afskipti af stjórnmál-
um eða stjómskipun skal það gert th að setja deilur
niður eða höggva á hnúta sem annars eru óleysanlegir.
Ef forseti íslands hefði kosið að neita að staðfesta sam-
þykktir Alþingis hefðu engar deilur verið settar niður
heldur hefði það magnað þær.
í yfirlýsingu frú Vigdísar segir:
„Frá stofnun lýðveldis á íslandi hefur embætti for-
seta íslands verið í mótun. Þar hefur jafnt og þétt styrkst
sá meginþáttur embættisins að vera óháð og hafið yfir
flokkapóhtík og flokkadrætti, en um leið samnefnari
fyrir íslenska þjóðmenningu, mennta- og menningar-
stefnu íslendinga, tákn sameiningar en ekki sundrung-
ar,“
Undir þessi orð er tekið. Forseti íslands hefur tekið
skynsamlega ákvörðun eins og jafnan áður.
Ehert B. Schram
„Það hlýtur að vera erfitt fyrir Bush að kyngja því að Saddam Hussein skuli lifa hann sjálfan í embætti... “
segir m.a. í grein Gunnars.
Aðsættasig
viðSaddam
í ágúst síðastliðnum gerði Bush
Bandaríkjaforseti örvæntingar-
fulla tilraun til að endumýja stríðið
við frak, sér til framdráttar í kosn-
ingabaráttunni, með því að banna
allt flug íraskra flugvéla yfir suður-
hluta landsins. Tilgangurinn var
að nafninu til að stöðva ofsóknir
gegn shía múshmum á því svæði,
en um þær ofsóknir eru Banda-
ríkjamenn einir til frásagnar.
Sá flugufótur sem fyrir þeim var,
var sá, að í fenjunum syðst í írak
búa svokallaðir fenjaarabar, sem
hafa í áratugi varist öhum tilraun-
um stjórnvalda í Bagdad til að
þurrka upp fenin og nýta þau til
landbúnaðar, en fenjaarabar lifa á
fiskveiðum fyrst og fremst. Þessi
landbótastefna íraka er nú kölluð
ofsóknir og þeim bannað að fljúga
yfir sitt eigið land, meðal annars
til Basra, næststærstu borgar
landsins. Þetta bann var ekki sett
af Sameinuðu þjóðunum, heldur
vesturveldunum þremur, Banda-
ríkjunum, Bretlandi og Frakk-
landi.
Stríöið út af Kúveit var alla tíð
persónulegt stríð Bush forseta við
Saddam. Bush gat heldur ekki til
þess hugsað að landamæmm eða
ríkjandi ástandi væri breytt,
hvorki í Miðausturlöndum, Sovét-
ríkjunum né Júgóslavíu. Það hlýt-
ur aö vera erfitt fyrir Bush að
kyngja því aö Saddam Hussein
skuli lifa hann sjálfan í embætti,
að því er virðist traustur í sessi og
með mikinn hluta almennings í ír-
ak að baki sér, meðan hann sjálfur
hrökklast frá.
Refsiaðgerðir
Móðursýkin út af írak er eitthvað
að dvína, eftir því sem fleiri gera
sér grein fyrir hinni raunverulegu
stöðu mála og samhengi hlutanna
í Miðausturlöndum. Saddam Hus-
sein er samt í huga Bandaríkja-
manna skrattinn sjálfur og refsiað-
Kjállarinn
Gunnar Eyþórsson
fréttamaður
gerðirnar gegn írak eru persónu-
gerðar. Aht sem gerist þar, er verk
„Saddams", þ.e.a.s. skrattans.
Refsiaðgerðum stórveldanna er
beint gegn honum persónulega,
nærri 19 mihjónir manna verða að
líða fyrir einn mann.
Aðflutningsbann er enn nær al-
gert og írökum er bannað að flytja
út olíu, auk þess sem eignir þeirra
í erlendum bönkum hafa verið
gerðar upptækar sem er einsdæmi
í samskiptum ríkja. Samt er engan
bilbug að finna á írökum. Þreng-
ingar þjóðarinnar hafa þjappað
henni saman um leiðtoga sinn,
andstætt óskhyggju vesturveld-
anna.
Borin von
Nú síðast vonuðust Bandaríkja-
menn til að geta hafiö stríð að nýju
vegna loftvamaeldflauga sem írak-
ar höfðu sett upp í suðurhlutanum.
Þeir segja nú að írakar hafi gengið
að þeim afarkostum sem þeim voru
settir enda þótt stjórnin í Bagdad
neiti því. Enginn veit hvað rétt er
í því máh. Enn er von fyrir Banda-
ríkjamenn.
írakar eru nú að tæma vöru-
geymslur sínar við Umm Qasr, sem
lenti innan landamæra Kúveits eft-
ir stríðið. Þeir eru þar óvopnaöir
að sækja eigur sínar en Banda-
ríkjamenn vonast enn eftir átyllu
til að Bush geti kvatt forsetaemb-
ættið með loftárásum á sjálfan
„Saddam", sem brjóti með þessu
vopnahlésskilmálana.
Þessi framkoma gegn írak er þeg-
ar gengin út í öfgar og í saman-
burði við það sem Bandaríkjamenn
láta Serba komast upp með er hún
út í hött. Að því hlýtur að koma
fyrr en síðar að hinar raunveru-
legu Sameinuðu þjóöir - ekki ný-
lenduveldin tvö og Bandaríkin -
taki refsiaðgerðirnar til endur-
skoðunar. Þær þjóna engum til-
gangi lengur. - Þær eru aðeins vitni
um hefnigirni og sært stolt Bush
forseta.
Gunnar Eyþórsson
„Stríðið út af Kúveit var alla tíð per-
sónulegt stríð Bush forseta við Saddam.
Bush gat heldur ekki til þess hugsað
að landamærum eða ríkjandi ástandi
væri breytt, hvorki í Miðausturlönd-
um, Sovétríkjunum né Júgóslavíu.“
Skoðanir annarra
Forsetaembætti
of ar f lokkadráttum
„Frá stofnun lýðveldis á íslandi hefur embætti
forseta íslands verið í mótun. Þar hefur jafnt og þétt
styrkst sá meginþáttur embættisins að vera óháð og
hafið yfir flokkapóhtík og flokkadrætti, en um leið
samnefnari fyrir íslenska þjóðmenningu, mennta-
og menningarstefnu íslendinga, tákn sameiningar
en ekki sundrungar. Glöggt vitni um það eðh emb-
ættisins er að enginn forseti hefur gripið fram fyrir
hendur á lýðræðislega kjömu Alþingi sem tekið hef-
ur ákvarðanir sínar með lögmætum hætti.“
Úr yfirlýsingu forseta fslands
fyrir undirskrift laga um EES-samninginn.
Tvíhliða viðræður við EB
„Fyrir hggur tihaga til þingsályktunar frá for-
manni og varaformanni Framsóknarflokksins um
tvíhhða viðræður. í ljósi þessa ahs er það undarlegt
að stjómvöld skuli ekki nú þegar taka af skarið í
þessu máh. Þannig væri hægt að draga úr ótta þjóð-
arinnar við að skrefiö, sem stigið hefur verið með
samþykkt EES-samningsins, leiði okkur að endingu
inn í Evrópubandalagið.“
Niðurlag forystugreinar Tímans 14. jan.
Tvöfalt siðgæði
í skattamálum
„Tvöfalt siðgæði í skattamálum hefur veriö nokk-
uð ríkjandi hér á landi. ... Þannig telja ýmsir sig
hafa himin höndum tekið þegar þeim er boðið að
sleppa við 24,5% virðisaukaskatt með nótulausum
viðskiptum.... Þann kostnað fá hinir almennu skatt-
borgarar í hausinn aftur í formi hærri skatta og/eða
minni þjónustu frá hinu opinbera."
Úr forystugr. Alþbl. 14. jan.