Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Blaðsíða 16
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993.
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993.
Iþróttir
Iþróttir
Rögnvaldur
íStjörnuna
Rögnvaldur Rögnvaldsson,
fyrrum leikmaður meö Breiða-
bliki í knattspymunni, er geng-
inn til liðs við 2. deildar lið Stjörn-
unnar. Hann er 27 ára gamall
sóknarmaöur, hefur leikið 31 leik
með Breiðabliki í 1. deild og skor-
að 4 mörk. Hann fór til Hauka á
miðju síðasta sumri og lék með
þeim í 3. deildinni út tímabilið.
-VS
Landsliðskona
íLeiftur
Helgi lónsson, DV, Ólafefixði
María Magnúsdóttir, fyrrum
iandsliðskona á skíðum, hefur
ákveðið að keppa fyrir I.eiftur í
vetur en hún hefur d valið á Ólafs-
firði að undanförnu ásamt Klem-
ens Jónssyni, unnusta sínum, og
stundað vinnu þar. María sagði
sig úr skíðalandsliðinu í fyrra og
hafði ráðgert að taka sér fri frá
æíingum og keppni í vetur.
Steffánvekur
athyglivestanhaffs
Stefán Þór Stefánsson, ungur
piltur sem lék um skeið með ÍR
í 2. deildinni í knattspyrnu, hefur
vakið nokkra athygli í leikjum
meö háskólaliði Methodist í
Bandaríkjunum. Fyrir skömmu
var nokkuð fjaliaö um það í
myndum og máli þegar Stefán lék
með andlitsgrímu eftir að hafa
nefbrotnað, og skoraði tvö mörk
í 3-0 sigri Methodist á Greens-
boro. Talað var um sæta hefnd
þvi Stefán nefbrotnaöí einmitt í
ieik gegn sama liði skömmu áður.
-VS
Úrval-Útsýn
kynnirHM-ferð
Úrval-Útsýn gengst fyrir hóp-
ferð á heimsmeistarakeppnina í
handknattleik sem frem fer í Sví-
þjóð 9.-20. mars. Ferðaskrifstofan
býöur upp á tvo valmöguleika.
Annars vegar að fylgjast með
allri úrslitakeppninni og hins
vegar að fylgjast með milliriðlum
og úrslitunum, Kynningarfundur
verður haldinn mánudaginn 18.
janúar klukkan 20 á skrifstofu
.Úrvais-Útsýnar að Álfabakka 16.
Góðurárangur
hjá skotmönnum
Um síðustu helgi kepptu
skammbyssuskotmenn á móti í
Lúxemborg og var keppt í þremur
mótum í loftskammbyssu. Ólafur
P. Jakobsson varð í 9. sæti með
567 stig sem er aðeins þremur
stigum frá ólympiulágmörkum
fyrir leikana 1996. Hannes Tóm-
asson varð 20. með 556 stig,
-GH
Afturelding vann
Tveir leikir voru i 2. deíld karla
í handboltanum í gærkvöldi. Aft-
ureiding sigraði HKN, 24-23, og
Grótta lagði Fjölni aö velli, 23-19.
-GH
FH-ingar og Valsmenn gefa ekkert eftir:
Engin eftirgjöf
Körfuknattleikur:
Joe Wright
með annan
stórleikinn
Skotlandsferðin
vó þungt í lokin
- sagði liðsstjóri Skallagríms eftir sigur á Snæfelli
„Það var barátta í þessu eins og
alltaf þegar þessi lið eigast við. Ég tel
að Skotlandsferðin hjá okkur fyrir
áramótin hafi vegið þungt í lokin og
til að mynda lék Gunnar Þorsteins-
son alla leikina þar úti og það skilaði
sér svo sannarlega hjá honum í þess-
um leik,“ sagði Hans Egilsson, liðs-
stjóri Skallagríms, eftir mikilvægan
sigur Borgnesinga á Snæfelli í Borg-
amesi í gær og spennan í B-riðli er
orðin mögnuð.
Eftir að gestimir höfðu skorað
fyrstu 4 stigin í leiknum gerði Skalla-
grímur næstu 10 stigin og leiddi
mestallan fyrri hálfleik meö þetta 3-5
stigum. Þegar 12 sekúndur voru eftir
komst Snæfell yfir en Birgir Mikaels-
son átti lokaorðið á lokasekúndunni.
Henning Henningsson skoraði
fyrstu 7 stigin í síðari hálfleik fyrir
Skailagrím en Snæfell náði að jafna
metin eftir 6 mínútna leik. Um miðj-
an hálfleikinn vom Borgnesingar
komnir með 11 stiga forskot en eftir
að Alaxender Ermolinskij fór út af
meö 5 villur söxuöu Snæfellingar á
niður í 4 stig en síðan ekki söguna
meir. Bilið breikkaði aö nýju og
heimamenn tryggðu sér sanngjarnan
og öuggan sigur.
Gunnar Þorsteinsson var nú í byrj-
unarliði Skallagríms í fyrsta sinn í
vetur og stóö sig mjög vel en annars
var liösheildin mjög jöfn hjá liðinu.
í liði Snæfells var Bárður Eyþórsson
yfirburöamaður.
-EP-Borgarnesi/GH
Spilar enginn þessara leikmanna með Víkingi i sumar? Frá vinstri: Aöal-
steinn Aðalsteinsson sem genginn er í Völsung, Atli Helgason er sterklega
orðaður við Val, Helgi Sigurðsson er á leið I Fram, samkvæmt öruggum
heimildum DV, og Helgi Bjarnason er orðaður við Fylki. DV-mynd GS
- landsliðsmenn FH og Vals fara ekki á Lotto Cup
Enn er allt við það sama í hat-
rammri deilu FH og Vals annars veg-
ar og mótanefndar HSÍ hins vegar
vegna deilna um neitun á frestun á
leikjum Vals og FH í 1. deildinni í
fyrrakvöld í tengslum viö Evrópu-
leiki félaganna. Forráðamenn félag-
anna neita enn alfarið aö gefa lands-
liðsmenn sína lausa á alþjóðlegt mót,
Lotto Cup, sem fram fer í Noregi um
næstu helgi.
í gærkvöldi var haldinn formanna-
fundur hjá HSÍ þar sem formenn
allra handknattleiksdeilda í 1. deild
hittust og ræddu meðal annars um
framangreint mál. Valsmenn og FH-
ingar afhentu formanni landsliðs-
nefndar bréf eftir fundinn þar sem
sagði að leikmenn félaganna myndu
ekki fara með landsliðinu til Noregs.
Fundarmenn samþykktu samhljóða
áskorun til Vals og FH að endurskoða
afstöðu sína. Formenn handknatt-
leiksdeilda FH og Vals ákváðu að
fenginni þessari áskorun að fara aft-
ur með málið fyrir stjórnir sínar án
nokkurra skuldbindinga um breytta
ákvörðun og þannig stendur málið.
Þorbergur Aðalsteinsson á stærst-
an þáttinn í því að íslenska landslið-
inu var boðið á Lotto Cup. Notfærði
hann sér kunningsskap og aðrar fær-
ar leiðir til þess að tryggja landslið-
inu þátttökurétt á mótinu. Það verö-
ur því varla gaman fyrir hann aö
mæta meö b-landslið íslands á mótiö.
-SK
Martin Schwalb átti mjög góðan leik með Wallau Massenheim gegn FH i Þyskalandi og skoraði 7 mörk. Hvað gerir hann
í Kaplakrika?
FH og Valur leika síðari leiki sína á Evrópumótunum:
Ekkert útilokað
Þaö veröur á brattann aö sækja fyrir
lið FH og Vals þegar þau leika gegn
Wallau Massenheim og Tusem Essen í
síðari leikjum sínum á Evrópumótunum
í handknattleik. FH-ingar þurfa að vinna
upp sex marka tap gegn Wallau en Vals-
menn 9 marka tap gegn Essen. Þýskum
félagsliðum hefur oft vegnaö illa á úti-
völlum og fái íslensku liðin góðan stuðn-
ing er ekki útilokað að slá þýsku liðin
úr keppni.
Eigum möguleika
„Ég tel möguleika okkar á að vinna
þennan mun upp alveg fyrir hendi. Til
þess þurfum við að sýna jafn góðan leik
og í fyrri hálfleiknum gegn Stjörnunni
og þá þurfum við að fá öflugan stuðning
frá áhorfendum," sagði Kristján Arason,
þjálfari og leikmaður FH-inga.
„Ég tel að við mætum þeim á góðum
tímapunkti. Þeir hafa verið heldur á nið-
urleið og 9 marka tap gegn Grosswall-
stadt í fyrrakvöld sýnir að liðið getur
dottið niður á lágt plan. Við þurfum að
ná upp jafnsterkri 6:0 vörn og gegn Ystad
og það verður okkar sterkasta vopn
ásamt hraðaupphlaupunum.“
Komum Essen á óvart
„Það er alveg ljóst að við verðum að taka
sénsa í leiknum gegn Essen. Við ætlum
að koma þeim á óvart og verðum að gera
það ætli okkur að takast að slá þá út úr
keppni. Við verðum að ná að keyra upp
hraðann strax í byrjun og náum við 3-5
marka forskoti í fyrri hálfleik er ég sann-
færður um að okkur tekst að vinna
þennan mun upp,“ sagði Valdimar
Grímsson.
„Ég tel okkur vera með betra lið þrátt
fyrir 9 marka tap í fyrri leiknum. Okkar
takmark er að vinna leikinn og fara
áfram og ég tel þetta verkefni mjög
skemmtilegt. Stuðningur áhorfenda er
mikilvægur og ég vona að þeir mæti og
styðji við bakið á okkur.“
Bæði félögin verða með forsölu. FH-
ingar í Kaplakrika frá klukkan 16-22 í
dag og 10-16 á laugardag í Kaplakrika.
Forsala Vals verður í Valsheimilinu og
í Hummelbúðinni.
-GH
Joe Wright, nýi leikmaðurinn i liði Breiðabliks, átti stórieik í gærkvöldi gegn Haukum og skoraði 52 stig. Hann
hefur skorað 107 í tveimur fyrstu leikjum sínum með UBK. DV-mynd GS
Nýi leikmaðurinn hjá Breiðabliki, Joe
Wright, heldur áfram að gera góða hluti þótt
ekki hafi hann enn unnið leik með liöi sínu
í úrvalsdeildinni. í gærkvöldi unnu Haukar
Blika í Hafnarfirði með 104 stigum gegn 97
og skoraði Wright 52 stig í leiknum eða liðlega
helming stiga Breiðabliks.
Joe Wright var sérstaklega í stuði í fyrri
hálfleik en þá skoraði hann 33 stig og Blikar
höfðu yfirhöndina í leikhléi, 48-54.
Haukar mættu mjög grimmir til leiks í síð-
ari hálfleik og Wright hafði þá hægar um sig.
Haukarnir voru einfaldlega of sterkir fyrir
Blikana í síöari hálfleik og léku oft skínandi
vel. Blikar komu þó á óvart og höfðu til að
mynda yfirhöndina, 83-76, þegar nokkuð var
liðið á síðari hálfleikinn.
í liði Hauka kom Bragi Magnússon sérstak-
lega á óvart en hann átti mjög góðan leik.
John Rhodes átti ekki góðan leik, hefur oftast
leikið betur og hitti afleitlega úr vítaskot-
um.
Lið Breiðabliks virðist vera að eflast þessa
dagana þótt varla dugi það til að liðið haldi
sæti sínu í úrvalsdeildinni. Er reyndar hægt
að fuilyrða að liðiö falli i 1. deild og í reynd
virðist liðið eiga þar heima. Joe Wright hefur
haft mikil áhrif á leik liðsins og er mikill yfir-
burðamaður í liðinu. Aðrir leikmenn liðsins
standa honum langt að baki.
-SK/-RR
- dugði þó Blikum ékki
Samvinna Hafnarfjarðar og Garðabæjar:
Risaskemma á
bæjarmörkum
- verið að kanna byggingu 9 þús. fermetra skemmu
Hafnarfjarðabær og Garðabær
hafa í samvinnu við FH og Stjöm-
una verið að kanna möguleika á
að reisa í sameiningu skemmu sem
myndi hýsa knattspyrnuvöll í fúliri
stærð. Þetta yrði mannvirki upp á
9 þúsund fermetra þar sem grunn-
flöturinn yrði 110x80 metrar og
hæðin nálægt 20 metrum og gert
fyrir áhorfendarými fyrir um 2
þúsund manns. Áætlaður kostnað-
ur við byggingu slíkrar skemmu
er um 250 milljónir króna og hefur
verið rætt um staðsetningu hennar
í hrauninu fyrir ofan æfingagras-
völhnn í Kaplakrika en þar hggja
einmitt landamörk bæjarfélag-
anna.
í fyrstu er ráðgert að undirlagið
verði möl og í framtíðinni gæti
komið til greina að leggja gervigras
og myndi mannvirkið geta nýst
knattspymumönnum, svo og
fijálsíþróttafólki, auk þess sem
hægt væri að nýta húsið á margvís-
legan hátt.
Nokkuð er síðan nefnd var skip-
uð frá fulltrúum beggja kaupstað-
anna til að kanna ítarlega hvort
grundvöllur væri fyrir byggingu
sem þessari. Samkvæmt heimild-
um DV er mikill vilji hjá báöum
aðilum að hrinda þessu í fram-
kvæmd en ekki hefur enn verið
tekin endanleg afstaða hvort svo
verði eða hvenær.
Hugmynd þessi varð fyrst til hjá
FH-ingum. Þeir telja gervigrasvöll
utanhúss ekki leysa vandann sem
fylgir því aö þurfa að stunda og
æfa íþrótt sína í vetrarveðrum.
Þeir segja að vindurinn og kuldinn
geri knattspyrnumönnum hérlend-
is lífið leitt og með tilkomu innan-
hússknattspymuvallar í fullri
stærð myndi algjör bylting eiga sér
stað.
-GH
Helgi Sig. í Fram?
- Atli Helgason, fyrirliði Víkings, í Val?
Samkvæmt mjög áreiðanlegum
heimildum DV hefur Víkingurinn
Helgi Sigurðsson ákveðið að leika
með Fram og hyggst skipta um félag
á næstu dögum.
Helgi er aðeins 18 ára gamall og án
efa einn efnilegasti leikmaðurinn
hérlendis um þessar mundir. Hann
lék mjög vel með Víkingum á síðasta
tímabih og skoraði 10 mörk.
Helgi hefur ekki enn skrifað undir
félagaskiptin og ekkert er öruggt fyrr
en þaö hefur gerst. Heimildir DV
herma einnig að fleiri leikmenn
kunni að vera á fömm frá Víkingi.
Atli Helgason, fyrirliði Víkinga á síð-
asta keppnistímabili, er sterklega
orðaður við Val og hefur átt í viðræö-
um við Valsmenn. Þá er Helgi
Bjarnason orðaður við Fylki. Sam-
kvæmt heimildum DV fer það mikið
eftirþvíhvortGuðmundurSteinsson .
og Atli Einarsson verða áfram í Vík-
ingi hvort Atli Helgason fer í Val eða
ekki.
Einn leikmanna Víkings sagði í
samtah við DV í gærkvöldi: „Leik-
menn eru að ræða framtíðina þessa
dagana og það skýrist á næstu dögum
hvað verður. Annaðhvort fer enginn
leikmaður frá félaginu eða það fara
allir.“
-SK/-GH
NBA-deiIdin í nótt:
Malone magnaður
- skoraöi 38 fyrir Utah gegn Seattle
Karl Malone tryggði Utah sigur fyrir Sacramento.
á Seattle, 96-89, í stórleik NBA- Portland þurfti framlengingu
deildarinnar í körfuknatöeik í nótt. gegn Miami en vann loks með 11
Hann skoraði 38 stig, þar af 27 í stigum. Terry Porter skoraði 32
síöari hálfleik og flmm í lokin. fyrii' Portland en Haroid Miner 20
Mark Eaton hjá Utah blokkaði sitt fyrir Miami.
3.000. skot í leiknum og aðeins SA Spurs vann sinn fimmta leik
Kareem Abdul Jabbar hefur gert í röð og Dale Ellis gerði 26 stig í
betur i sögu deildarinnar. Shawn Milwaukee. Frank Brickowski
Kemp skoraði 15 stig fyrir SeatUe. skoraði 18 fyrir Milwaukee.
Úrslit í nótt urðu þessi: Dominique Wflkins er kominn
Utah - Seattle....... 96-89 aftur í gang með Atlanta og skoraöi
Sacramento - Phoenix.104-114 26 stig gegn Detroit. Orlando Wo-
Portland - Miami....104-93 olridge skoraði 23 fyrir Detroit.
LA Clippers - LA Lakers.105-102 Clippers haiöi betur í nágranna-
Atlanta - Detroit....108-91 slagnum viö Lakers. Danny Mann-
Houston - Charlotte..114-102 ing skoraði 19 íVrir Clippers en
Milwaukee - SA Spurs. 93-108 Sam Perkins 16 fyrir Lákers.
Phoenix vann enn og Richard Robert Horry skoraði 26 stíg og
Dumas of Dan Majerle skoruðu 23 Vernon Maxweli 25 fyrir Houston
stig hvor en Wayman Tisdale 21 enDeliCmry21fyrirCharlotte.-VS
Fylkismaður
fagnarí
Framheimilinu
Þorsteinn Þorsteinsson, for-
maður knattspyrnudeildar Fylk-
is, veröur fertugur á laugardag-
inn. Shkt er auðvitað ekki í frá-
sögur færandi nema fyrir þær
sakir að formaðurinn ætlar að
bjóða til veislu í félagsheimili
Framara í Safamýri.
: FylMsmenii segjast ekki vera
að leggja Fram undir sig en þeirra
heimili hafi verið upptekið. Veisl-
an stendur frá kl. 17-20.
-SK
Haukar (48) 104
UBK (54) 97
4-9, 24-24, 41-42, (48-54), 56-65,
83-76, 96-87,104-97.
Stig Hauka: Rhodes 24, Bragi 23,
Pétur 20, Jón Amar 17, Jón Örn
14, Tryggvi 2, Sigfús 2, Sveinn 2.
Stig UBK: Wright 52, Hjörtur 16,
Grissom 15, Brynjar 5, Egill 5, ívar
2, Björn 2.
3ja stiga körfur: Haukar 7,
Breiöabiik 4.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og
Jón Bender, slakir.
Áhorfendur: Um 150.
Maður leiksins: Bragi Magnús-
son.
SkaUagr. (41) 83
Snæfell (40) 72
4-4, 14-10, 22-17, 29-26 (41-40),
48-47, 57-53, 68-57, 70-66, 76-66,
83-72.
Stig Skallagríms: Ermolinskij 20,
Henning 14, Gunnar 14, Birgir 14,
Skúli 12, Elvar 7, Þóröur 2.
Stig Snæfells: Bárður 22, Lopez
19, Kristinn 16, ívar 5, Henning 4,
Rúnar 4, Sæþór 2.
Fráköst: Skallgr. 33, Snæfell 26.
3ja stiga körfur: Skallgr. 4, Snæ-
fell 4.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og
Leifur Garðarsson, ágætir.
Áhorfendur: 500.
Maður leiksins: Gunnar Þor-
steinsson, Skallagrími.
GOLF -
GOLF-GOLF
Ein vika á Madeira á hót-
eli við sjóinn. 350 ensk
pund fyrir tvo.
Hafið samband við Hörpu
Hauksdóttur, sími
91-24595 eðafaxnr.
91-17175.