Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Blaðsíða 24
88 32 .890' FÖSTOÐAGURiiSl/JANÖÁK 1993. Merming Goldie Hawn, Bruce Willis og Meryl Streep leika aðalhlutverkin í Eilífðardrykknum. Laugarásbíó/Bíóborgin - Eilíföardrykkurinn: ★★ !4 Dauðinn fer þeim vel Eilíföardrykkurinn er tilraun Hollywood til að búa til milljóna dollara svarta kómedíu. Ekkert hefur ver- ið til sparað í tæknideildinni og þijár stórstjörnur fengnar til að leika. Það sem vantar er hins vegar ferskt yfirbragð og meira af smellnum atriðum. Myndin gerir gys að fjandskap tveggja prímadonna sem hafa bitist vun allt síðan í skóla. Leikkonan Madel- ine Ashton (Streep) hefur margoft stolið kærustum vinkonu sinnar Helen Sharp (Hawn) en steininn tekur úr þegar hún rænir frá henni færasta lýtalækni vestur- strandarinnar, Emest Mellville (Willis). Nokkmm ára- tugum seinna taka þær upp þráðinn aftur. Leikferill Madeline er farinn í vaskinn, Emest er orðinn líksn- yrtir vegna ofdrykkju og hjónabandið er orðið að klakastykki. Madeline er vænsæl vegna hrörnandi úthts og ekki batnar það þegar hún sér Helen á ný, en hún lítur út fyrir að vera tvítug. í örvinglan leitar Madeline til dularfullrar konu (Rosselini) sem býður henni lífselexír til sölu. Þá fyrst byija vandræðin fyrir alvöra. Það vantar ekki fagmennskuna í myndina og öll umgjöröin er eins og best verður á kosið. Sagan er meinfyndin og inniheldur margar góðar hugmyndir. Ég er þó ekki frá því að kvikmyndagerðarmennimir hefðu átt að sleppa meira fram af sér beislinu, vera geggjaðri. Flestir brandaramir em svo skipulagðir og úthugsaðir að það er ekki pláss fyrir nema nokkra í hveiju atriði. Þar að auki era þeir ekkert sérstaklega góðir. Mun fyndnari er hvað brellumar fara illa með persónumar. Líkamsmeiðingamar era með ólikindum og jafhvel hrottalegar á köflum. Myndin kemst langt á gráglettninni og ólíklegri atburðarásinni. Af stórstjömunum er Goldie Hawn sú eina sem get- ur flokkast sem gamanleikkona en hún nær ekki að sýna neina snilldartakta. Meryl Streep famast betur Kvikmyndir Gísli Einarsson og er sérstaklega góð herfa. Bruce Willis er utangátta á miUi valkyijanna. Hans persóna er „eðlilegust" en leikari með lúmskari hú- mor (t.d. Kevin Kline sem átti fyrst að leika) hefði örugglega getað gert betur. Death Becomes Her (Band. 1992) 103 min. Handrit: Martin Donovan, David Koepp. Leikstjórn: Robert Zemekis. Leikar- ar: Meryl Streep, Bruce Willis, Goldie Hawn, Isabella Rossel- ini, lan Ogilvy (The Saint). Kvikmyndir Gísli Einarsson Regnboginn: Tommi og Jenni mála bæinn rauðan: ★★ Stríðsöxin graf in í bili Hvemig nokkrum gat dottið í hug að það borgaði sig að gera Tom og Jerry að vinum er mér ráðgáta. Senni- lega hefur það verið tilraun til að snúast gegn þeirri gagnrýni sem teiknimyndimar fengu á sig fyrir að vera of ofbeldisfullar. Einhveijir hafa eflaust klappað sjálfum sér á bakið því í leiðinni getur myndin verið með boðskap um hve gott það sé að standa saman. Tommi og Jenni grafa stríðsöxina eftir að þeir kom- ast að því skyndilega að þeir geti bæði talað og skihð hvor annan. Þeir koma htihi stúlku, sem er mihjóna- erfingi, til hjálpar en vond frænka og eitthvert annað illfygh er á höttunum eftir henni. Sagan er eins ófrumleg og hugsast getur en hún sleppur fyrir hom ef maður getur gleymt þvi hvað það var ahtaf gaman að gömlu myndunum með þeim félög- um. Myndin hefði eins getað verið um einhverja aðra mishta félaga. Hún er vel gerð tæknhega og sæmhega hröð en það besta er að íslensk talsetningin skhar þeim húmor sem ýktar raddir teiknimynda eiga að gera. Ég er á móti talsetningu á bíómyndum, hvort sem er fyrir böm eða ekki, en fyrst þetta er orðið svona algengt héma þá er gott að gæðin skuh vera komin á það stig að skemma ekki fyrir. Tom & Jerry: The Movie (Þýsk/band.1992) Jenni er hér í hrókasamræðum við tvo félaga sína. Kvæði Kristj- áns Karlssonar Þetta er sjöunda ljóðabók Kristjáns og ber ámóta yfirlætislausan tith og hinar flestar, Kvæði með styttu ártah. Bókin tengist auðvitað á marg- an hátt fyrri bókum hans. Hér er eitt kvæði í ljóðabálkinum New York og tvö kvæði á ensku enda er höfundur hagvanur vestra. Einfaldleiki í þessari bók finnst mér bera sérlega mikið á ljóðum sem era fremur stutt en umfram aht einfóld. Dregin er upp ein mynd eða hugleiðing, oft sérstæð. Þetta virðist vinsælt um þessar mundir en ég verð að segja það Bókmenntir Örn Ólafsson hreinskilnislega að ég get ekki fylgt skáldinu eftir í þessu, mér finnst þetta of einfalt. Hér vh ég telja m.a. New Orleans í júní, Útgarðar, í Aust- urstræti, í Breiðdal, Orrustan, 17. júni og lítum á eitt þessara ljóða: Eftirvænting Eftir vindhviðu fellur laufið hik- andi eins og jámþynnur gegnum vatn það hafnar nær trénu en á horfðist. Þetta finnast mér engin tíðindi, myndin ekki neitt sérstök og ég sé ekki að hún hafi neina víðari skírskotun. En það er aftur í öðram kvæðum í þessari bók. Þar má taka dæmi af einu þeirra ljóða Kristjáns sem bera algengt mannsnafn sem ekki verður séð að eigi við neinn thtekinn mann. Eggert Fariö vel vinir og bræður þér sem minnist min þegar þér sjáið á náttborði nöturlegs hótels gamlan reyfara enskan hjá ódýrri útgáfu á Dante ég söng í vUltum skógi þar sem vorgalinn lék sér vinir mínir og bræður (andlit mitt hart hjarta mitt viðkvæmt sem bams) stillti söng minn við ódælan pípuleik Pans blaðka flautunnar úr eir blá eins og myrkur skir eins og geish næmari nefi fugls þér eydduð skóginn og annarleg hljómaði rödd min á ímynduðum ökmm, farið vel. í þessu Ijóði ríkja andstæður sem birtast þegar í fyrsta erindi. Þetta er ævikveðja Eggerts, og þess vegna er ljóðið í upphöfnum sth. En einu menjamar, sem hann lætur eftir sig, era slitið og verðlítið dót í nötur- legu umhverfi. í þeim umbúðum er þó eitt mesta skáldverk veraldar, Guðdómlegur gleðileikur Dantes. Það verk hefst svo að mælandi þess er einn á ferð og vihtur í eyðilegum skógi. Og þar eru tengslin við 2. erindi þar sem mælandi birtist einnig í andstöðu við nöturlegar umbúðirnar, viðkvæmur undir harðri skel, en umfram allt þrunginn vihtum lífs- mætti. Sama einkennir þá líka kjamann í pípu skógarguðsins Pans í 3. erindi, hún rúmar hinar mestu andstæður og næmleika. Þessi þunga- miðja ljóðsins er dregin fram með breyttu letri. Enn sjáum við þessar andstæður í lokaerindi en nú kemur í ljós að þær eru í raun mihi mæl- anda og þeirra viðmælenda sem hann kveður svo fjálglega. Þeir hafa útrýmt skóginum og þar með mælanda sem ekki gat þrifist í taminni náttúra - sem hann raunar kahar ímyndaða enda mótuð af misvitrum mannshugum. Þetta er vel byggt ljóð þar sem sama meginhugsun birtist aftur og aftur í óvæntum myndum. Fleiri ljóð mætti telja af því tagi, og sum jafnvel enn thkomumeiri, svo sem Eyvindur og dansmærin. Komum við þar enn að algengu nafni, Eyvindur birtist í þremur kvæðum. Þessa bók þurfa allir ljóðavinir að lesa en hér er nú ekki rúm th að rekja meira. Kristján Karlsson: Kvæði 92. AB 1992, 83 bls. Kristján Karlsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.