Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1993, Síða 31
LAUGARDAGUR13: FEBRÚAR1903
- 43 '
„Mikilvægast allra slíkra uppgjöra eru þó reikningsskilin viö eigin æsku. Sumir gera upp alla reikninga
æskuáranna á tvítugsaldri, aðrir síðar og enn aðrir ekki fyrr en báöir foreldrarnir eru dánir. Það er þó aldrei
of seint að eignast hamingjusama fortíð."
Efnt skal til
aðalfundar
Hann byrgði andlitíð í höndum
sér. „Ég mun aldrei lifa glaðan
dag,“ sagði hann lágt. „Lífið hefur
verið mér harður og erfiður skóh.
Foreldrar mínir voru óreglufólk
sem vanræktí mig. Þegar ég minnist
bemskuáranna fyllist ég angist og
hrylhngi. Bara ef ég hefði fengið
annað uppeldi, aöra foreldra, annað
heimili eða annan skóla, þá hefði
mér famast betur.“ Hann stundi
þungan og virtí shtna og óburstaða
skóna fyrir sér. „Hefurðu ahtaf ver-
ið svona beiskur?“ spurði læknirinn
lágt. „Já,“ sagði maðurinn, „og ég
mun aldrei fyrirgefa foreldmm
mínum meðan ég lifi. Aht er þeim
að kenna.“ Hann fór að gráta með
þungum ekka. Vonleysi og dapur-
leiki höfðu tekið sér bólfestu í þess-
um gráti. Læknirinn virti hann fyr-
ir sér og rifjaði upp ýmsar ávirðing-
areiginforeldra.
Beiskjan sem
lífsförunautur
Margir em þeir sem velja sér
beiskjuna að lífsforunaut. Ungir
bundust þeir henni try ggðaböndum
sem aldrei rofnuðu. Með beiskjuna
sér við hhð héldu þeir ótrauðir út í
lífíð og létu eitt yfir bæði ganga.
Þeir gátu ávaUt kvartað yfir ein-
hveiju; fjölskyldu, vinnufélögum,
nágrönnum, stjórnmálamönnum,
veðurfari og öllum þeim aragrúa
heimskingja sem aUs staðar verða á
veginum. Fullir gagnrýni virtu þeir
heiminn fyrir sér og skynjuðu ótal
ástæður fyrir eigin misgengi á
grýttri framabraut farsældar og
hamingju.
Fæstir samferðamanna stóðu
undir þeim kröfum sem til þeirra
vom gerðar. En alUr krefjast þó
mest af mömmu og pabba. Flestir
gera þá einfóldu kröfu til foreldra
sinna; að þeir séu fuUkomnir. Engir
foreldrar standa undir þeirri kröfu
þó fólk sé misvel til þess faUið að
axla þá ábyrgð sem fylgir bamaupp-
eldi og heimiU. Sumir era ágætlega
hæfir, aðrir Ula til þess fallnir en
engir fuUkomnir eða gaUalausir.
Margir segjast geta rakið aUa sína
ógæfu í lífinu tU foreldra sinna. Fólk
segir oft: „Bara ef mamma hefði
verið öðmvísi, veitt mér
meiri/minni umhyggju, komið fram
viö mig af meiri/minni kærleika,
vemdað mig meira/minna, þá væri
líf mitt bæði betra og skemmtilegra
í dag.“ „Bara ef pabbi hefði verið
meira/minna heima, sinnt mér
Á læknavaktinm
Óttar
Guðmundsson
læknir
meira/minna, gefið mér meiri/minni
peninga, þá hefði aUt gengið mér í
haginn." Þetta fólk hefur aUt á réttu
að standa. AUir foreldrar bregðast
börnum sínum einhvem tíma á ein-
hvem hátt. Það er vitað að hefðu
foreldramir verið öðravísi hefði
saga barnsins líka orðið önnur.
Böm velja sér ekki foreldra en á
hinn bóginn geta þau vaUð hvort
þau viija eyða fuUorðinsárum sín-
um í beiskju og ásakanir eða ekki.
Aðalfundir og
önnuruppgjör
Flest fyrirtæki halda árlega aðal-
fund. Þá em reikningar Uðins árs
gerðir upp, afgreiddir og samþykkt-
ir, ný stjóm kveður þá gömlu og
gerir starfsáætlun fyrir komandi ár.
Eftir aðalfundinn vita hluthafar
hver staða fyrirtækisins er, skuldir
og framtíðarhorfur. Manneskjan
ætti á sama hátt að halda öðru
hvom eigin aðalfund, gera upp for-
tíðina og snúa sér að nýjum verk-
efnum. MikUvægast allra slíkra
uppgjöra em þó reikningsskilin við
eigin æsku. Sumir gera upp aUa
reikninga æskuáranna á tvítugs-
aldri, aðrir síðar og enn aðrir ekki
fyrr en báðir foreldramir em dánir.
Það er þó aldrei of seint að eignast
hamingjusama fortíð. Þegar slíku
uppgjöri er lokið hefjast fúUorðins-
árin en ekki fyrr. Þeir sem velja að
ganga beiskir og reiðir aUt sitt ævi-
skeið vegna löngu Uðinna atburða
gefa sjálfum sér aldrei annað tæki-
færi. Þeir verða bandingjar eigin
þröngsýni og festast í þeirri æsku
sem kvelur þá og ergir. Foreldramir
halda áfram um stjómvölinn í lífi
þeirra og ráða um hamingju þeura
eðagæfuleysi.
Einhvers staðar las ég þessa speki:
Þú ert ekki fullorðinn þegar þú
giftirþig.
Þú ert ekki heldur ftúlorðinn þeg-
ar skólagöngunni er lokið.
Þú ert ekki fuUorðinn þegar þú
verður sjálfráða eða fiárráða.
Þú ert fuUorðinn daginn sem þú
fyrirgefur foreldrum þínum af öUu
hjarta.
Foreldrar em lfica manneskjur
sem gera mistök og bregöast stund-
um þegar mest á ríður. Þeir em
breyskir, hégómlegir og mannlegir.
Barnið getur á fuUorðinsárum sín-
um vaUð að heiðra foreldra sína og
sýna þeim virðingu og þakklætí.
Sumir ákveða að fyrirlíta foreldra
sína, hata þá og Utilsvirða. Það er
fullkomlega eðUlegt en mestu skipt-
ir að geta fyrirgefið þeim og sæst
við eigin æsku og eigið líf. Þeir sem
ekki gera það velja að gera beiskj-
una að lífsfórunaut sínum. Oft á tíð-
um er fuU ástæða fyrir aUri þessari
reiði en hún gegnir því hlutverki
einu að viðhalda ónægju og vanUð-
an og heldur allri Ufsnautn utan
dyra. Þess vegna skiptir svo miklu
máU að halda aðalfund í eigin lífi
og gera upp reikninga fortíðarinnar
en láta ekki beiskjunni eftir að ann-
ast aUt lífsbókhaldið um ókomna
tíð.
HÆTTU AÐ REYKJA
ÁTVEIMUR KVÖLDUM
Mjög kröftug námskeið verða haldin á nœstu dögum
fyrir þá sem vilja losna alveg við alla löngun og
vöntun til reykinga.
Fjöldi takmarkast við sex manns á hvert
námskeið. Notuð er dáleiðsla til að losna við
reykingarnar. Námskeiðið er á tveimur
kvöldum í röð samtals fjórir tímar.
viðurkeimdur í Interiiational Medical and
Dental Hypnotherapy Association.
Friðrik Páll Ágústsson R.P.H. C.Ht.
Vesturgata 16, Sími: 91-625717
Aðalfundur
Aðalfundur Skeljungs hf.
verður haldinn föstudaginn
12. mars 1993 í Átthagasal
Hótel Sögu, Reykjavík, og
hefst fundurinn kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv.
16. grein samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur
og reikningar félagsins munu
liggja frammi á aðalskrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn
verða afhent á aðalskrifstofu
félagsins Suðurlandsbraut 4,
6. hæð, frá og með 5. mars til
hádegis á fundardag, en eftir
það á fundarstað.
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur fariö fram fimmti
útdráttur húsbréfa í l.flokki 1991,
annar útdráttur í 3.flokki 1991
og fyrsti útdrátturí tflokki 1992
Koma þessi bréf til
innlausnar 15. apríl 1993.
Öll númerin veröa birt í
næsta Lögbirtingablaði
og í Degi á Akureyri
laugard.13. feb.
Auk þess liggja upplýsingar
frammi í Húsnæðisstofnun
ríkisins, á Húsnæöis-
skrifstofunni áAkureyri,
í bönkum, sparisjóöum
og verðbréfafyrirtækjum.
CpO HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK ■ SlMI 696900
V,