Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1993, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1993, Side 18
26 FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR1993 Menning_____________________________ _________________________ dv Menningarverðlaun DV afhent 115. sinn: Listastarfsemi í landinu sómi sýndur Menningarverðlaun DV voru af- hent í 15. sinn í boði sem verðlauna- höfum og dómnefndarmönnum var haldið í veitingasalnum Þingholti á Hótel Holti í gærdag. Menningar- verölaun DV hafa skipað sér fastan sess í menningarlífi íslendinga, eru langlífari en nokkur örmur sambæri- leg hérlend verðlaun. Hartnær eitt hundrað listamenn úr ýmsum hst- greinum hafa á þessum fimmtán árum tekið við viðurkenningu DV fyrir framúrskarandi framlög til ís- ; lenskrar menningar. „Þetta eru ekki vinsældakosningar heldur tilraunir til hlutlægs mats á menningarlegu ástandi hveiju sinni. Þetta mat hefur tekist framar öllum vonum eins og sést á því að við erum enn að, meðan allar aðrar viður- kenningar af þessu tagi hér á landi hafa dottið uppfyrir," sagði Aðal- steinn Ingólfsson Ustfræðingur með- al annars áður en verðlaunin voru afhent. Verðlaunin voru síðan afhent hver á fætur öðrum fyrir sjö listgreinar. Verðlaunagripinn hannaðr Svava „Einarsdóttir glerlistamaður en hún ér búsett í Englandi. Gastrónómísk framúrstefna Sem fyrr gerði Jónas Kristjánsson grein fyrir áttundu listgreininni, matargerðarlistinni, en gastrónó- mísk framúrstefna hefur ætíð verið ástunduð við afhendingu menning- aiyerölaunanna. í forrétt var skötukjaftur með kart- öfluklöttum, vinaigrettesósu með villisveppum og ferskum búrahrogn- um. Skötukjaftur er kjálkavöövinn úr skötunni, mjúkur og bragðgóður. Þá fylgdi svartháfur með rauðvíns- Pétur Arason tekur við Menningarverðlaunum DV fyrir myndlist úr höndum Aðalsteins Ingólfssonar. Pétur Arason - myndlist: Víkkar sjónhring ís- lenskra myndlista „Pétur hefur farið svo leynt með afskipti sín af myndhst að lands- menn, eða a.m.k. Reykvíkingar á gallabuxnaaldri, þekkja hann ein- ungis sem „Pétur í Faco“ nú „Pétur í Levi’s búðinni" - fuhu nafni Pétur Arason. Af eðhslægri ljúfmennsku og brennandi áhuga hefur Pétur gert sér far um að rækta tengsl við máls- metandi safnamenn og hstamenn í útlöndum. Þessir aðilar hafa síðan gert sér sérstakar ferðir hingað til lands, bæði til að sýna íslendingum verk sín og kynna sér íslenska myndhst, jafnvel veita henni braut- argengi. Sjálfur hefur Pétur einnig greitt fyrir sýningum íslenskra hsta- manna viða um lönd og opnað fyrir þá dyr í völdunarhúsi nútímalist- anna. Með þessu óeigingjama starfi hefur Pétur Arason séð til þess að ekki þrengdist um of sjónhringur ís- lenskra myndhsta. Fyrir það vhjum við þakka,“ sagði Aðalsteinn Ingólfs- son, en hann afhenti Pétri Arasyni menningarverðlaun DV fyrir mynd- hst. Aðalsteinn sagði fæsta vita að á hæðinni fyrir ofan verslun Péturs, fyrir ofan steinþvegnu buxumar, kúrekahattana og annan hirðingja- fatnað, væri að finna eitt fahegasta sýningarrými í bænum. Það var opn- að „í því augnamiði að færa okkur verk eftir marga þekktustu mynd- listarmenn vorra tíma. Markmið hans ar að opna eihtinn glugga út á við, gefa íslendingum kost á að sjá með eigin augum myndverk sem móta myndhstarumræðu sam- tímans, myndverk sem við mundum annars ekki sjá nema í útlendum fag- blöðum." Með Aðalsteini í dómnefnd um myndhst voru Ólafur Enghbertsson ogÓlafurGíslason. -hlh Menningarverðlaun DV voru afhent í 15. sinn í boði sem verðlaunahöfum og dómnefndarmönnum var haldið í veitingasalnum Þingholti á Hótel Holti í gærdag. Hartnær eitt hundrað listamenn úr ýmsum listgreinum hafa á þessum fimmtán árum tekið við viðurkenningu DV fyrir framúrskarandi framlög til íslenskrar menningar. DV-myndir GVA perusósu, vihihrísgriónum og fínt skomu grænmeti. „Skötukjafturinn eða kinnamar vom eldaöar ferskar, ekki kæstar eða upphengdar. Að því leytí er þetta brot á hefð. Svartháfur var venjulega borðaður kæstur í gamla daga og var talinn hættulegur fiskur eins og skat- an. Sums staðar var svartháfur jafn- vel tahnn eitraður. Sama hefur verið sagt um marga rétti sem við höfum haft við þetta thefni í gegnum árin en ég get ekki séð að neinn hafi horf- ið frá borðum þess vegna," sagði Jón- as Kristjánsson meðal annars. Með sjávarfanginu var drukkið Chateau du Cleray hvítvín frá 1990 en fyrir borðhaldið dreyptu gestir á Tio Pepe sérrn og bergvatni í for- stofu. Eftir matinn var drukkiö kaffi sem borið var fram með konfekti hússins og Noval portvíni frá 1987. Kveðja úr háloftunum Thor Vhhjálmsson hefur verið fastagestur við afhendingu menning- arverðlaunanna undanfarin ár, með- al annars sem verðlaunahafi, en var nú fjarri góðu gamni. Barst hófinu kveðja frá honum þar sem hann sat í 30 þúsund feta hæð, á heimleið frá Færeyjum. Sveinbjöm I. Baldvins- son, sem kom í forfóhum Hjálmars H. Ragnarssonar, forseta Bandalags íslenskra hstamanna, flutti stutta tölu og sagði meðal annars: „Ég vh þakka DV fyrir þann sóma sem blaðið sýnir hstastarfsemi í landinu með því að halda uppi þess- um verðlaunum. Manni finnst oft, þegar hstastarfsemi er annars vegar, að fjölmiðlar einbeití sér mjög að og fjalli um í löngu máh þegar hsta- menn fá laun greidd fyrir sína vinnu eða fé th að standa straum af fjár- frekum framkvæmdum eins og t.d. kvikmyndagerð. Þess vegna er það kærkomin hvhd að efna th verðlauna af þessu tagi. Að jafnaði hefur tekist ákaflega vel th um veitingu þeirra. Svo er einnig að þessu sinni." -hlh Ólafur Haukur Símonarson - leiklist: Höf undur sem kann að skrifa fyrir leikhús Auður Eydal afhendir Ólafi Hauki Símonarsyni Menningarverðlaun DV fyrir „Hafið er þróttmikið og dramatískt verk, metnaðarfuht og runnið upp úr rammíslenskum venheika. Ólaf- ur byggir atburðarásina upp af th- finningu fyrir möguleikum leikhúss- ins, persónur eru skýrt mótaðar og samtölin snörp. Það er ómetanlegt fyrir leikhstína í landinu að eiga á að skipa samtímahöfundum sem fjaha í verkum sínum um nærtækan veruleika, hafa kjark th að kryfja veigamikla þættí þjóðlífsins og skáld- legt innsæi th að byggja upp skýrar persónur og dramatískt ferh sem getur notið sín á leiksviði. Höfunda, sem kunna að skrifa fyrir leikhús," sagði Auður Eydal meðal annars þegar hún afhenti Ólafi Hauki Sím- onarsyni Menningarverðlaun DV fyrir leikhst. „Það dottar enginn á meðan öldu- rótið gengur yfir á sviðinu. Undirald- an í Hafinu er þung og átökin hatrömm. Ólafur kemur beint aö kjama málsins og í textanum togast á galsi og dýpsta alvara. Hann leggur net sín af kunnáttu, þróar persón- umar innan verksins og flettir yfir- borðinu af þeim lag fyrir lag uns þær standa berskjaldaðar eftir. Atburðarásin er sett í víðara sam- hengi með því að tvinna saman öriög sjávarþorpsins, sem gæti verið hvaða lelklist. pláss sem er á landinu í dag, og misk- unnarlaus átök innan fjölskyldu út- gerðarmannsins á staðnum. Og áhöfhin í sýningunni, undir sljóm Þórhahs Sigurðssonar leikstjóra, grípur boltann á loftí, úrvinnslan er sterk og einkum verður minnisstæð framganga leikaranna, sem þróuðu persónumar áfram á sviöinu og gáfu þeim líf og fylhngu," sgði Auður. Með Auði í dómnefnd um leiklist sátu Hahmar Sigurðsson leikstjóri og Láms Ýmir Óskarsson kvik- myndaleikstjóri. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.