Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1993, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1993, Blaðsíða 28
36 FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR1993 ögmundur Jónasson. Ögmund til Fær- eyja „Ábyrgir launþegaforingjar koma fram og segja að lausnin Ummæli dagsins ss út úr þeim vanda sem íslenska þjóðin á við að etja sé að hækka launin. Og formaður BSRB vill hækka launin um svona 5-7%. Ég held að það ætti að kosta und- ir hann Ögmund til Færeyja," segir Jón Baldvin Hannibalsson. Aðgerðaleysi krata „Stefna núverandi ríkisstjórnar í atvinnumálum er að gera ekki neitt,“ segir Guðmundur Ámi Stefánsson, bæjarstjóri Alþýðu- flokksins í Hafnarfirði. Skattstjóraskrattinn „Það vár eintómt vesen að eiga við skattayfirvöld hér á meðan þessi maður var skattstjóri og mér fannst þvi upplagt að breyta nafni þessara fyrirtækja sem hafa verið ónýt í mörg ár og nefna þau eftir skattstjóranum fyrrver- andi,“ segir Stefán Þengilsson á Akureyri sem nefndi gjaldþrota fyrirtæki sín Gunnar Rafn eftir fyrrum skattstjóra á Norður- landi. Aðalfimdur Hampiðjunnar verður haldinn í fundarsal fyr- irtækisins, Stakkholti 4, kl. 16.00. Fundiríkvöld Múrverk á Jslandi Ráðstefna um múrverk á íslandi í nútfð og framtíð verður haldin á Hótel Holiday Inn 1 dag. Forystuþjálfun SUS Forystumannanámskeið SUS hefet í kvöld kl. 19 og stendur fram á sunnudag. Smáauglýsingar Mikið frost Á höfuðborgarsvæðinu verður vest- an og síðar norðvestan kaldi og smá- Veðrið í dag él í kvöld en lægir síðan og léttir til. Veður fer kólnandi og í nótt verður frostið nálægt 10 stigum. í dag verður vestan- og síðar norð- an- eða norðvestanátt á landinu, víðast kaldi eða stinningskaldi í fyrstu en í nótt verður allhvöss norð- vestan- og norðanátt um landið vest- anvert. Um vestanvert landið verður lítils háttar éljagangur í fyrstu og síðar einnig norðaustanlands. Suðaustan- lands verður lengst af léttskýjað. Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri snjókoma -6 Egilsstaöir snjókoma -6 Galtarviti snjókoma -7 Hjarðarnes léttskýjað -6 Keflavíkuiflugvöllur haglél -4 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað -8 Raufarhöfn snjóél -8 Reykjavík úrkoma -4 Vestmannaeyjar hálfskýjað -5 Bergen snjóél 0 Helsinki snjókoma -7 Kaupmannahöfn komsnjór -1 Ósló snjókoma -1 Þórshöfn léttskýjað -3 Amsterdam rigning 3 Barcelona léttskýjað 0 Berlín þokumóða -3 Chicago snjókoma -6 Frankfurt þokumóða -6 Glasgow rigning 3 Hamborg þokumóða -4 London skýjað 4 Lúxemborg snjókoma -2 Madrid heiðskírt -2 Malaga léttskýjað 8 Mallorca skýjað 7 Montreal skýjað -17 New York skýjað -6 Nuuk léttskýjað -13 Oriando alskýjað 18 París þokumóða 1 Róm heiðsklrt -3 Valencia heiðskírt 2 Vín skýjað -3 Winnipeg heiðskírt -19 „Tilraunin er að reyna að vera fyndnir. Þetta er eiginlega sjón- varpsþáttur um sjónvarpsþátt, þar sem stjómendumir eru misvel í stakk búnir til aö gera svona skemmtiþátt. Þátturinn er svo brotinn upp raeð því sem við köll- um litlar flugur," segir Steinn Ár- mann Magnússon, leikari með meira. Á laugardagskvöldið verður Maöux dagsins sýndur gamanþátturinn Limbó eft- ir þá Stein Armann, Davíð Þór Jónsson og Óskar Jónasson Íeik- stjóra. Annar þáttur verður að þremur vikum liönum en óvíst er um framhaldið. „Frá þvíað ég lauk leíklistarskól- anum hef ég verið í lausamennsku. Stærsta hlutverkið í leikhúsi var í barnaleikritinu Töfrasprotanum. Svo lék ég í DjöOunum hjá Frú Emiiíu, Rómeó og Júlíu, Gleðispil- inu og er nú aö æfa í Tartuffe eftir Moliére. Þá var ég í sjónvarpsþátt- unum Ungmcnnafélaginu, lék í Veggfóðri og hef verið með eigin útvarpsþætti, Radíus.“ Steinn Ámtann er fæddur 1964, sonur Sesselíu Helgadóttur og Magnúsar Gunnþórssonar. Kona hans heitir Jenný Berglind Rún- ai-sdóttir og þau eiga háifs árs gamlan strák, Tuma Stemsson. Áður en Steinn fór í Leíklistarskól- ann var hann í Flensborgarskóla. „Ég á eftir tvo áfanga í stærð- fræði til stúdentsprófs en býst varla við að ljúka því. Ég væri frek- ar til í að fara í Iðnskólann og klára húsasraíði sem ég hef verið viðloð- andi frá 15 ára aldri. Þegar ég út- skrifaðist fékk ég ekkert að gera sem leikari en hef verið mikið uppi í Sjónvarpi við leikmyndasmiðar þar. Það væri miklu nær að klára eitthvert iðnnám en að taka ein- hverja stærðfræðiáfanga sem ég get ekkert notað." Steinn Armann Magnússon. Island - Danmörk í Austur- bergi í kvöldleikur íslenska landslið- iö í handknattleik viö landsliö Dana. Þetta er vináttulandsleikur og fer hann fram í íþróttahúsinu við Austurberg og hefst klukkan 20.30. Þess má geta að síðari hálf- rþróttiríkvöld leikurinn er sýndur beint í Sjón- varpinu klukkan 21.10. Landsleikur: ísland - Danmörk kl. 20.30 Skák Skákforrit verða snjallari með degi hverj- um. Forritið M-Chess Professional var aðeins tvær og hálfa mínútu að tilkynna mát í 11. leik í meðfylgjandi stöðu. Hermt er að hún hafi komiö upp í skák P.F. Schmidt og P.R. Schmidt í Heidelberg 1946. Hvitur, Paul Felix, var kunnur eist- neskur skákmeistari: Lausnin erl. Dh6 +!! Kxh6 2. hxg6 + Kg5 3. Hh5 +!! Kxh5 4. f4+ Df3+ 5. Bxf3+ Rxf3 6. Hhl + Rh2 7. Rf6 + Kh6 8. Hxh2 + Kg7 9. Re8+! Hxe8 10. Hxh7+ Kf6 11. Hxf7 mát. E.S. Beðist er velvirðingar á því að í stöðumynd miðvikudagsins, úr skák unghngsins Morosjevits gegn stórmeistaranum Balashov, vantaði svartan riddara á e5. Jón L. Árnason Bridge Sex spaðar eiga að vinnast með öryggi í þessu spili, jafnvel þó að laufin liggi 4-1 hjá andstöðunni. Sagnir eru einfaldar, austur gjafari: ♦ D1085 V ÁD109 ♦ Á A Á864 ♦ 2 V G6543 ♦ KD10432 * G ♦ ÁKG9763 V 2 ♦ G + K532 + 4 V K87 ♦ 98765 .1. mno'7 Austur Suður Vestur Norður Pass 4* Pass 64 p/h Opnun suðurs á fjórum spöðum var dæmigerð hindrunaropnun fyrir hendi af þessu tagi og þar sem norður var ekki viss um hvaða aðferöum væri hægt aö beita til að leita að slemmu, ákvað hann einfaldlega að stökkva beint í 6 spaða. Útspil vesturs var tígulkóngur og sagn- hafi tók einu sinni tromp og toppaði síðan laufið. Þegar fyiár lá að það skiptist 4-1 þjá andstöðunnl var tiltölulega einfalt mál að innbyrða vinningirm. Næst var hjartaás spilað og síðan hjartadrottningu. Ef austur hefði sett lítið hefði laufi verið hent og vestur er endaspilaður ef hann á kónginn. Hann yrði að spila í tvöfalda eyðu eða gefa tólfta slaginn á híarta. Austur lagði hins vegar á, sagnhafi trompaði, fór inn í blindan á tromp og spilaði þjartatiu og henti laufi. Vestur fékk á gosann en hjartanían sá um síð- asta laufið á hendi sagnhafa. ísak öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.