Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Page 2
2
LAUGARDAGUR 6. MARS1993
Fréttir_______________________________________________________________________________pv
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB:
Önnur atkvasðagreiðsla
kemur alveg til greina
- úrslitin flarri því að vera vantraust á forystu BSRB
„Vissulega eru úrslitin mér von-
brigði. Ég vonaðist eftir því aö við
fengjum sterkari samningsstöðu með
jákvæðri niðurstöðu úr þessum
kosningum. Ég vil einnig taka fram
að því fer fjarri að ég útiloki aðra
atkvæðagreiðslu um verkfail ef á
þarf að halda. Ég minni menn á að
það kemur dagur eftir þennan dag.
Því fer hins vegar íjarri að ég líti á
niðurstöðuna sem vantraust á for-
ystu BSRB. Þaö var ekkert verið að
kjósa um það. Það var verið að kjósa
um hvort fólk væri reiðubúið tÚ að
fara í verkfall eða ekki. Það er rétt
að við lögðum áherslu á aö verkfall
yrði samþykkt. Þaö 'gerðum við
vegna þess að við töldum að það
væri eldd hljómgrunnur fyrir okkar
kröfum hjá viðsemjendum okkar.
Þess vegna töldum við það óábyrgt
að halda áfram þessu árangurslausa
þófi, án þess að gefa fólki kost á því
að segja til um hvort það vildi styrkja
okkar samningsstöðu með verkfalli,"
sagði Ögmundur Jónasson, formað-
ur BSRB, þegar niðurstöður úr verk-
fallskjörinu lágu fyrir í gær.
Ögmundur benti á að það væru
mörg félög sem samþykktu verkfalls-
boðun. Það væru því mörg þúsund
manns sem væru tílbúin til að beita
afli ef með þyrfti. Það væri því ljóst
að það væri sterk undiralda.
„Ég tel að með atkvæðagreiðslunni
hafi kviknað þjóðfélagsumræöa sem
á eftir að bera ávöxt. Því ætlum við
okkur að skoða kostina í þessari
stöðu en ekki ókostina enda þótt við
hefðum kosið aðra niðurstöðu úr
kosningunum. Það viðurkenna allir
að gerð hefur verið mjög alvarleg
aðför að velferðarkerfinu og lífskjör-
um almennings. Á öllum fundum
sem við höfum átt í félögunum hefur
verið fullkomin samstaða og ein-
drægni um allt sem varðar okkar
baráttu fyrir bættum kjörrnn. Þegar
hins vegar kemur að því að greiða
atkvæði um verkfaU er það annar
hlutur. Mat manna er það að meiri-
hlutinn er ekki reiðubúinn á þessari
stundu," sagði Ögmundur Jónasson.
-S.dór
Agústa Þorkelsdóttfr, bóndl á Refstað I Vopnaflrði, mættl prúðbúin á búnaö-
arþlng sem nú stendur yfir I Reykjavfk. íklædd jakka og pilsi úr hreindýra-
skinni með skreytta leggi I eyrum vlldi hún vekja athygli á að hægt er að
stunda ýmislegt fleira en hefðbundinn landbúnað í sveitum landsins. Fatnað-
urlnn og djásniö, sem hún kallar sláturúrgang, er austflrsk framleiðsla,
unnln af hagleiksfólki á Jðkuldalnum, i Fellabæ og Miöhúsum.’ DV-mynd GVA
Opinberir starfsmenn:
Stuttarfréttir
Verkfalli haf nað
með miklum meiri-
hluta atkvæða
Félagar í BSRB höfnuöu með mikl- þau að 41,3 prósent vildu fara í verk-
um meirihluta aö fara í verkfall 22. faU en 55,8 prósent höfnuðu því.
mars. Atkvæðagreiðsla fór fram í 24 Kjörsókn var 68 prósent.
félögum af 34 sem eru í BSRB. Af Þau 7 félög sem vildu fara í verk-
þessum 24 félögum var verkfaU sam- faU eru Félög opinberra starfsmanna
þykkt í 7 félögum en hafnað í 17. í á Austurlandi, Suðurlandi, í Kópa-
tíu félögum var ekki efnt til atkvæða- vogi, í Borgamesi og í Neskaupstað.
greiðslunnar. Landssamhand slökkviUðsmanna og
ÚrsUt atkvæðagreiðslunnar urðu Fóstrufélagið. -S.dór
Friðrik Sophusson hármálaráðherra:
Raunsæið sigraði í
þessari kosningu
„Þessi afgerandi niðurstaða í at-
kvæðagreiðslunni um verkfaUsboð-
im er að mínu áUti skýr skUaboð til
forystumanna launþegasamtakanna
um að fólk vilji ekki grípa til verk-
fallsvopnsins á þessu stigi. Fólk viU
reyna til þrautar að finna ábyrga
niðurstöðu í samriingunum. Mitt áUt
er því að í þessari atkvæðagreiðslu
hafi raunsæið sigrað," sagöi Friðrik
Sophusson fjármálaráöherra um
niðurstöðu kosninga BSRB um verk-
faUsboðun.
Hann sagði að ljóst væri að vinnu-
stöðvim leiddi ekki til kjarabóta.
Hann sagðist vilja minna menn á
verkfaU BSRB 1984 sem enginn
græddi á í því sambandi. Friðrik
sagði að niðurstaðan úr þessari verk-
faUskosningu hefði engin áhrif á
samningaviðræðumar sem em í
gangi. Þær muni halda áfram eins
og ekkért hafi í skorist.
„Þótt þess hafi gætt í málflutningi
sumra forystumanna BSRB að verið
væri að kjósa um stjómarstefnuna,
Utum við í ríkisstjóminni ekki á nið-
urstöðu kosninganna sem einhvem
sigur fyrir okkur. Við teljum þetta
einungis vera mat manna á því að
það séu hinar efnahagslegu aðstæður
sem marka mönnum kjörin í þessu
landi. Það verða engin verðmæti til
í kjarasamningum. Það er ekki hægt
að skipta meiru en því sem til skipt-
ana er. Og þegar þjóðartekjurnar
dragast jafn mikið saman og raun
ber vitni og atvinnuleysi hefur auk-
ist, þá er augljóst mál að verkfoll til
að knýja fram fleiri krónur í umslag-
ið leiða aðeins til verðbólgu og verri
kjara en eUa,“ sagði Friðrik Sophus-
son.
-S.dór
HaHiábotnfiski
Samtök fiskvinnslustöðva segja
að botnfiskvinnsla f landinu sé
rekin með 6,5% halla þíátt fyrir
síðastiiöið haust. Nærri lætur að
haUi vinnslunnar sé um tveir
miUjarðar á ári.
PáU Sigurjónsson, forsijóri ís-
taks; var kosinn formaður stjóm-
ar Útflutningsráðs í gær í stað
Magnúsar Gunnarssonar.
50milljarðarburt
Magnús Gunnarsson, formaöur
Vinnuveitendasambandsins,
sagði í fréttum RÚV í gær að ís-
lendingar heföu sett um 40-50
miUjarða á síðustu 10 árum í
óarðbærar fjárfestingar svo sem
ónýtta orku, fiskeldi, loðdýra-
rækt og ferðaþjónustu.
Afli Andeyjar skemmdist
MikUl hluti af afla Andeyjar
eyðUagöisl í gær þegar sjór komst
í lest skipsins. Aflinn var metinn
á 13 milljónir en um % hans
skemmdust. Skipið var aldrei tal-
ið í hættu.
Tvíkosning stúdents í nýlegum
jH yj stúdentaráðs og
juwftuiai íjus geia uienu ut str
ari aðgæslu við gerð kjörsk
framtíðinni að sögn rektors
Fjórir nýir gufuhverflar voru
gangsettir í orkuveri Hitaveitu
Suðurnesja í Svartsengi í gær.
Þegar DV fór í prentun i gær-
kvöldi höfðu um 30 mffljónir
safnast til styrktar krabbameins-
sjúkumböraum. -ból
Agústa Þorkelsdóttir hefur ekki trú á starfi búnaðarþings:
Bændur til sem trúa á kerf ið
„Ég á eftir eftir aö sitja eitt ár á
búnaðarþingi og mun eklti gefa kost
á mér aftur. Mér finnst ég ekki gera
gagn þarna og trúi ekki á það starf
sem fer fram. Þeir bændur era til
sem trúa á kerfið eins og það er og
það er rétt aö þeir fái að spreyta
sig,“ segir Ágústa Þorkelsdóttir,
bóndi á Refstaö í Vopnafirði.
Ágústa er fuUtrúi á búnaöarþingi
sem fer fram í Reykjavík þessa dag-
ana. Aðeins tvær konur sitja þingið,
Ágústa og AnnabeUa Harðardóttir
frá Hækingsdal í Kjós. AUs sitja 28
fuUtrúar bænda á fundinum auk
búnaðarmálastjóra og starfsmanna.
Ágústa er mjög gagnrýnin á núver-
andi skipan landbúnaðarmála og
segir þörf á róttækum breytingum.
Kerfið sé staðnað og umbúðimar
bæði kostnaðarsamar og flóknar. í
raun hafi kerfið lítið sem ekkert að-
lagað sig þeim breytingum sem
bændur hafi upplifað.
„Það má svo sem segja að kostnað-
urinn við félagskerfið sé tittiinga-
skítur í samanburði viö annaö. Hins
vegar þarf að gera búnaðarþingin
virkari. Þar ættu að sitja formenn
búnaðarsambanda því almennir
bændur eins og ég em ekki nógu vel
inni í kerfinu. Þingið ætti að vera
miUtiiður bænda og kerfisins. Að
sama skapi mætti draga úr starfsemi
Búnaðarfélagsins. Leiöbeininga-
þjónustunni þurfa bændur hins veg-
ar á að halda.“
Aö sögn Ágústu er og verður þörf
á landbúnaði hér á landi. Á hinn
bóginn verði að efla atvinnumögu-
leika fólks þannig aö það geti unnið
fyrir sér þó samdráttur eigi sér stað
í hefðbundinni landbúnaðarfram-
leiðslu. Aö því segist hún vinna á
öUumvígstöðvum. -kaa