Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Page 5
LAUGARDAGUR 6. MARS 1993
_______5
Fréttir
Miklar greiðslur úr Atvinnúleysistryggingasjóði:
Um 500 milljónir í bæt-
ur fyrstu tvo mánuðina
ríkissjóður kemur til kastanna 1 ágúst ef fram heldur sem horfir
250 milljónir króna voru greiddar
í atvinnuleysisbætur í janúarmán-
uði. Tölur yfir febrúar eru ekki til-
búnar en búist er við að upphæðin
verði svipuð sem þýðir um 500
milljónir fyrstu tvo mánuði ársins.
Á fjárlögum fyrir þetta ár hefur
1.464 milljónum verið ráðstafað
vegna atvinnuleysisbóta. 500 millj-
ónir koma í Atvinnuleysistrygg-
ingasjóö frá sveitarfélögunum. Þau
geta síðan sótt um styrki út á þetta
fé og lækka bæturnar í sveitarfé-
lögunum um sömu upphæð og
styrkirnir nema. Samtals hefur
Atvinnluleysistryggingasjóður því
úr tæpum 2.000 milljónum að moða
í ár. Ef fram heldur sem horfir
verður það fé uppurið í ágústlok.
Allt árið í fyrra voru greiddar um
1.900 milljónir í atvinnuleysisbæt-
ur. 1.280 milljónum var ráðstafað
af fjárlögum 1992 en fyrir áramót
bættist við aukafjárveiting upp á
709 milljónir.
„Lögin um atvinnuleysistrygg-
ingar segja að ríkissjóður ábyrgist
greiðslur sjóðsins ef hann verður
uppiskroppa með lausafé. Þess
vegna þufum við ekki að stressa
okkur á því að einn góðan veðurdag
verði peningarnir búnir og við
þurfum að segja fólki að ekki verði
greiddar meiri atvinnuleysisbætur
það árið. Sú staða þarf ekki að
koma upp,“ sagði Margrét Tómas-
dóttir, deildarstjóri Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs, í samtaii viö DV.
Margrét sagði að Atvinnuleysis-
tryggingasjóður ætti eignir, verðbréf,
sem ganga yrði á. I gegnum árin hefði
sá háttur verið hafður á að hafl sjóð-
urinn farið fram úr áætlun hafi riíás-
sjóður lagt til fé. Hafi dæmið síðan
verið gert upp eftir á með sölu verð-
bréfa eða annarra eigna. „Við þurf-
um því ekki að standa í þvi að vera
á verðbréfamörkuöum og selja. Það
má ganga frá hlutunum við ríkissjóð
áeftir." -hlh
Önnur Saabbifreiðanna tveggja, sem síbrotaungiingarnir, sem handteknir
voru við Meðalfellsvatn, stálu á miðvikudag, er komin í leitirnar. Unglingarn-
ir höfðu stolið tveimur bílum af Saabgerð og fannst önnur þeirra fyrir utan
bústað þann sem verst var útleikinn vegna skemmdarverka krakkanna.
Hinn billinn fannst skömmu fyrir hádegi í gær þar sem hún stóð mannlaus
við Dunhaga í Reykjavík. Bílinn hafði eitthvað verið skemmdur, meðal ann-
ars hafði gírkassi í honum verið eyðilagður. DV-mynd Sveinn
Svart útlit atvinnulausra komi til verkfalla:
Missa bæturnar fari
félagiðí
Á meðan verkfaU varir, eða ef
verkbann er sett á stéttarfélagið,
missa þeir félagar sem eru á atvinnu-
leysisbótum bæturnar sínar. Þá
verða þeir að leita til verkfallssjóðs
síns félags.
„VerkfaUssjóðimir eru misstórir
og sterkir en umsóknir eru metnar
hver fyrir sig. Eflaust hiýtur sá ein-
stakUngur, sem verið hefur atvinnu-
laus, að hafa forgang. Þetta á hins
vegar aðeins við um almennu verka-
lýðsfélögin. Ríkisstarfsmenn eru
faUnir út af félagaskrá hjá sínu félagi
um leið og þeir hætta störfum hjá
hinu opinbera. Þeir fá ekki greitt úr
verkfallssjóði þar sem þeir era ekki
til á félagaskrá, hafa ekki atkvæðis-
verkfall
rétt vegna verkfallsboðunar eða
vegna kjarasamnings. En þeir fá at-
vinnuleysisbætur út á vinnu sem
þeir unnu sem félagsmenn í tilteknu
félagi og eru merktir því meðan þeir
njóta bótanna. Það eru engin önnur
tengsl við félagið nema þau að fari
félagið í verkfall missa þeir bæturn-
ar,“ sagði Margrét Tómasdóttir,
deUdarstjóri hjá Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði, við DV.
Samkvæmt kjarasamningum
bankamanna borga bankamir at-
vinnulausum bankamönnum bætur.
Er miðað við sömu reglur og gUda
hjá Atvinnuleysistryggingasjóði. Fari
bankamenn í verkfaU missa atvinnu-
lausir bankamenn bætumar. -hlh
Bónus auglýsir eftir lyúafræðingi:
Ætlum að opna apótek
verði lögunum breytt
- og lækka lyfjaverðið, segir Jóhannes Jónsson
„Verði frumvarpið um að gefa
lyfjaverslun frjálsa samþykkt ætlum
við að opna apótek og vUjum vera
tilbúnir um leið og grænt ljós verður
gefið. Þess vegna erum við að aug-
lýsa eftir lyfjafræðingi tU að sjá um
apótekið," sagði Jóhannes Jónsson,
forstjóri verslunarkeðjunnar Bón-
uss, vegna auglýsingar sem er í DV
í dag.
Hann sagði að ef frumvarpið um
að gefa lyfjasölu fijálsa yrði sam-
þykkt og Bónus opnaði apótek yrði
sama stefna þar og í öUum verslun-
um fyrirtækisins, að ná verðinu nið-
ur.
„Við munum lækka lyfjaverðið ef
lyfsala verður gefin frjáls," sagði Jó-
hannes.
Hann sagði að aðstaða væri í tveim-
ur Bónus-verslunum til að koma upp
lyfjasölu og væri ætlunin að opna
apótekíþeimbáðum. -S.dór