Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Page 8
8
LAUGARDAGUR6. MARS1993
Svipmyndin
Af hverjum er
svipmyndin?
Þaö var stríð. Sá sem svipmyndln
er af var liðþjálfi. Óvinimir sóttu
fram. Sá sem hér er lýst særðist
alvarlega. Félagar hans komu hon-
um upp á kerru og tóku hann með
sér.
Allir flúðu. Það var öngþveiti á
vegunum. Flugvélar óvinarins réð-
ust á raðir flóttafólksins. Það kast-
aði sér í skuröi. Sá sem svipmyndin
er af gat sig ekki hreyft. Hann lá á
kerrunni á miðjum veginum. Það
var kraftaverki líkast að hann
skyldi halda lífi.
Loks komst hann á sjúkrahús.
Þar tóku Þjóðverjar hann til fanga.
Þeir sendu hann í Stalag 9A.
Auðvitað lét hann sig dreyma um
að flýja. Hann tók höndum saman
við prest. Þeir folsuðu persónuskil-
ríki og notuðu til þess stimpil sem
skorinn var úr kartöflu.
Eftir níu mánaða fangavist kom-
ust þeir í gegnum gaddavírsgirð-
inguna. Takmarkið var Sviss, sem
var hlutlaust. Þangað var sex
hundruð og fjörutíu kílómetra leið.
Þeir gengu dag sem nótt. Eftir tutt-
ugu og tvo daga voru þeir hand-
teknir og þá voru þeir aðeins
nokkra kílómetra frá landamær-
unum.
Hálfu ári síðar gerði sá sem hér
er lýst aðra flóttatilraun. Hún mis-
tókst einnig. Nú voru Þjóðverjarnir
orðnir þreyttir á þessum erfiða
fanga. Þeir ákváðu að senda hann
austur á bóginn, 1 fangabúðir í Pól-
landi. Þaðan tækist honum aldrei
að flýja.
Sá sem svipmyndin er af fylltist
nú örvæntingu. Færi hann til Pól-
lands ætti hann sér enga von. Hann
var í fangabúðum í Lorraine þegar
hér var komið sögu. Orðrómur
hermdi að tvo kílómetra frá væri
kaffihús og eigandi þess hjálpaði
stríðsfongum.
Konuefni á
ólíklegum stað
Sá sem hér er lýst ákvað að hætta
öllu. Snemma að morgni 10. des-
ember 1941 hljóp hann af stað í átt-
ina að fangabúðahiiðinu. Varð-
mennimir hófu skothríð. En hon-
um tókst að klifra yfir hliðið án
þess að verða fyrir skoti.
Hann hljóp nú eins og fætur tog-
uðu. Og þegar hann kom að kaffi-
húsinu var hann alveg örmagna.
Kaffihúsið var lokað! Að baki sér
heyrði hann hrópin í þýsku her-
mönnunum.
Skyndilega heyrðist hljóð. Ein-
hver var draga upp jámgrindina
fyrir framan kaffihúsið. Það átti að
fara að opna. Sá sem hér er lýst
kastaði sér undir grindina á meðan
verið var að draga hana upp. Eför-
leitarmennimir komu ekki auga á
hann.
Nokkmm árum síðar var sá sem
svipmyndin er af orðinn foringi
stærstu mótspymuhreyfingarinn-
ar í landinu. I henni hitti hann
konuefnið sitt. Það gerðist fyrir
hreina tilviljun.
Hann var heima hjá ungri stúlku
sem var í hreyfingunni. Hún var
með mynd á píanóinu sínu. Hún
var af systur hennar, Danielle, sem
var yngri.
Sá sem hér er lýst varð afar hrif-
inn af Danielle sem var aðeins nítj-
án ára.
„Henni ætla ég að kvænast,"
sagði hann.
Hann fékk Danielle til að koma
til Parísar. Þar bauð hann henni til
hádegisverðar. En hann varð að
sýna mikla varúð. Þjóðveijar réðu
enn lögum og lofum í höfuðborg-
inni.
Til æðstu metorða
Af hálfu Danielle var ekki um að
ræða ást við fyrstu sýn. Henni
fannst maöurinn, sem hún hafði
komið til fundar við, dálítið furðu-
legur. Hann var þá tuttugu og sjö
ára og dulbúinn. Hann var með
gerviyfirskegg og hatt sem náði
langt niður fyrir eyru. Það gerði
hann til þess að ekki yrðu borin
kennsl á hann.
Danielle leist ekki á blikuna. En
sá sem hér er lýst beitti þá töfrum
sínum og þá stóðst hún ekki. Per-
sónuleiki hans þrengdi sér út í
gegnum dularklæöin. Nokkram
mánuðum síðar var brúðkaupið
haldið.
í raun var hér um að ræöa stökk
út í óvissuna. Þau höfðu aðeins
hist þrisvar áður en þau giftu sig.
En allt gekk vel hjá þeim. Hjóna-
bandið varð hamingjusamt. Þau
eignuðust tvo syni sem era nú full-
vaxta menn.
Sá sem svipmyndin er af var al-
inn upp í htlu sveitaþorpi. Hann
er mikih náttúruunnandi og veit
mikið um gróður, dýr og fugla.
Um tíma, þegar hann var ungur,
ætlaði hann sér að verða prestur.
Og fram til ársins 1960 var hann
trúaður kaþólikki. Árið 1975 lýsti
hann hins vegar yfir því að hann
hefði gengið af trúnni.
Hann er mikill áhugamaður um
bókmenntir og hefur sjálfur skrifað
tíu bækur.
Hann hefur verið ráðherra í eh-
efu ríkisstjómum og í framboði til
forseta nokkrum sinnum.
Þrátt fyrir að hann hefur verið í
sviðsljósinu í mörg ár hafa blaða-
menn ekki átt auðvelt meö að fá
viðtöl við hann. Hafa nokkrir
þeirra sagt að hann sé sjúklega
fælinn. Hann getur hins vegar
komið vel fyrir sig orði án minnsta
hiks gerist þess þörf.
Hann er mjög margslungin per-
sóna sem erfitt er að kynnast.
Árið 1981 var hann kjörinn for-
seti lands síns.
Hver er hann?
Svar á bls. 56
Matgæöingur vikunnar
Djúpsteiktar
gellur með tómat-
og hvítlaukssósu
Sigfús Marinósson, kokkur á Ými
HF 343 og matgæöingur vikunnar,
var á miðum fyrir sunnan landið
þegar DV falaðist eftir uppskrift
hjá honum. Rétturinn, sem Sigfús
býður lesendum upp á, er djúp-
steiktar gellur með tómat- og hvít-
laukssósu sem hann segir mjög
vinsælan um borð.
„Það er nú yfirleitt venjulegt
heimilisfæði hér en það þarf aö
gera vel við strákana svo að þeir
fá steikur nokkuð oft,“ segir Sigfús
sem hefur verið kokkur í tíu ár og
á sjó síðan í sumar.
Sjálfur kveðst hann mjög hrifinn
af fiskréttum og pastaréttum. Þar
sem hann er um heilan mánuð í
hveijum túr og ekki nema þrjá th
fjóra daga í landi á milli túra slepp-
ur hann við að elda heima. „Það
er þá helst að ég aðstoði," segir
hann.
Gelluréttinn, sem Sigfús segir
fljótlagaðan, miðar hann við fjóra.
Uppskriftin
150 til 180 g gellur á mann
Orlydeig:
4 dl pilsner
3 dl volgt vatn
1 egg
500 g hveiti
4 eggjahvítur
Sigfús Marinósson.
Zi til 1 msk. sykur
salt og pipar
Sósan
Vi saxaður laukur
1 msk. oha
1 dl hvítvín
3 til 4 hvítlauksrif
2Zi msk. tómatpuré
2Vi dl tómatsósa
Vi msk. piparmix
Vi msk. hvítlauksduft
- 1 temngur kjúklingakraftur
400 g niðursoðnir tómatar
2 tsk. soyasósa
1 til 2 tsk. salt
1 dl vatn
1 til 2 msk. sykur
1 tsk. majoram
Aðferðin
Byrjaö er að laga sósuna. Laukur
og hvítlaukur saxaðir og látnir
krauma í olíu. Öllu öðra blandað
saman við. Soðið við vægan hita í
15 til 20 mínútur. Hrært í annað
slagið.
Gellumar era þerraðar. 1 msk.
af hveiti og örhtlu salti stráð yfir
þær.
Því næst er orlydeigið búið til.
Pilsner, vatni og eggi er blandað
saman og jafnað út með hveitinu.
Kryddi bætt út í. Fjórar eggjahvítur
stífþeyttar og þeim blandað varlega
saman við. Sigfús segir deigið þurfa
að vera í þykkara lagi og bragö-
sterkt.
Gehunum er dýft í deigið og þær
djúpsteiktar þar til þær era fallega
brúnar. Rétturinn er borinn fram
með pasta og hrásalati.
Sigfús skorar á Inga Hafliða Guð-
jónsson, matreiðslunema hjá veit-
ingaeldhúsinu Skútunni í Hafnar-
firði, að vera matgæðingur næstu
viku. Að sögn Sigfúss er Ingi Hafl-
iði mjög fær að matreiða fiskrétti.
-IBS
Hinhliðin
Launin eru
óskaplega lítil
- segir Guðrún Marinósdóttir leikkona
Guðrún Marinósdóttir leikkona
sýndi áhorfendum Sjónvarpsins
góðan leik í sjónvarpsmyndinni
Camera Obscura fyrir viku síöan.
Guðrún hefur ekki mikið leikið frá
þvi hún lauk námi í leikhst árið
1986. Hún starfaði þó einn vetur
hjá Iðnó. Guðrún hefur einnig lokið
BA námi í sálfræði og er í vetur
að ljúka námi í félagsráðgjöf. Hún
segist þó ahtaf hafa stefnt á leikhst-
ina enda langi hana mjög til að fást
við hana. Félagsráðgjöfin sé hins
vegar ágæt samhhða og segja megi
aö fógin bæti hvort annað upp.
Guörún er ættuð frá Akureyri en
faðir hennar, Marinó Þorsteinsson,
er þekktur leikari þar í bæ. Það er
Guðrún sem sýnir hina hhðina að
þessu sinni:
Fullt nafn: Guðrún Marinósdóttir.
Fæðingaruagur og ár: 19. janúar
1960.
Maki: Kristján Lilhendahl.
Böm: Sigrún, 14 ára, og ívar sem
er tveggja ára.
Bifreið: Opel árg 1990.
Starf: Nemi í félagsráðgjöf í Há-
skóla íslands.
Laun: Þau era óskaplega htil.
Áhugamál: Þessa dagana er það
skólinn enda kemst ekki annað að
hjá mér.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Aðeins tvær tölur.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Mér finnst mjög skemmtilegt
að horfa á góöar bíómyndir.
Draumurinn er líka að geta sofið
frameftir um helgar.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Mér finnst óþolandi leiðinlegt
Guðrún Marinósdóttir leikkona.
DV-mynd Sveinn
að taka þátt í naggi og nöldri.
Uppáhaldsmatur: Fiskur á kín-
verska vísu.
Uppáhaldsdrykkur: Te.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Mér þótti
séra Pálmi Matthíasson standa sig
mjög vel í íþróttaþættinum á Stöð
2 á þriðjudagskvöld. Annars fylgist
ég ekki mikið með íþróttum.
Uppáhaldstímarit: Ég les bara
timarit þegar ég sit á hárgreiðslu-
stofum og það er ekkert sérstakt í
uppáhaldi.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan maka: Woody Allen.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Andvíg.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Eg myndi gjaman vilja hitta
skólasystur mína sem var með mér
á leiklistarskóla í London og fara
með henni út aö borða.
Uppáhaldsleikari: Það era leikar-
arnir sem leika Súper Maríó bræð-
urna.
Uppáhaldsleikkona: Þær eru marg-
ar góðar en mér finnst Michelle
Pfeiffer alveg frábær um þessar
mundir.
Uppáhaldssöngvari: Þessa dagana
er það sonur minn.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Öm
Árnason í hlutverki Davíðs Odds-
sonar.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Lísa í Undralandi en ég tala ein-
mitt inn á hana.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Það eru
íslenskar myndir.
Uppáhaldsmatsölustaður: Æth
Pizzahúsið við Grensásveg sé ekki
vinsælast.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins hér á landi? Andvig.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Líklegast rás tvö þar sem ég
hlusta mest á hana.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Haukur
Hauksson.
Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða
Sjónvarpið? Bara jafnt.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Simp-
son.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ég fer
oftast í Kjallarann.
Uppáhaldsfélag í iþróttum: KA.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Ég stefni á að fá meira-
að gera í leiklistinni og að ég fái
vinnu í því sem ég er að mennta
mig í núna.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Njóta lífsins með fjölskyldunni
hvar á landinu sem það verður.
-ELA