Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Page 9
LAUGARDAGUR 6. MARS 1993
9
Fjórmenningar, sem sviknir voru af bandarískum kaupsýslumanni og hyggjast endurheimta fé sitt; Jean Pi-
erre, sem leikinn er af Francois Eric Gendron, Stephen Bradley, leikinn af Ed Begley, James Brigsley, leikinn
af Brian Protheroe, og Robin Oakley, leikinn af Nicholas Jones. Harvey Metcalfe er leikinn af Ed Asner sem
íslenskir sjónvarpsáhorfendur hafa séð i hlutverki blaðamannsins Lous Grant.
Nýr myndaflokkur í Sjónvarpinu:
Hvorki meira
né minna
- byggður á metsölubók Jeffreys Archer
Hvorki meira né minna heitir
myndaflokkur í íjórum þáttum sem
hefst í Sjónvarpinu á mánudags-
kvöld. Myndaflokkurinn er byggö-
ur á metsölubók Jeffreys Archer,
Not a Penny More, Not a Penny
Less, sem komið hefur út í ís-
lenskri þýöingu.
Myndaflokkurinn hefst á því er
bandaríski kaupsýslumaöurinn
Harvey Metcalfe sendir ungan aö-
stoðarmann sinn, David Kesler, til
Englands til aö veita forstöðu skrif-
stofu nýstofnaðs olíufyrirtækis.
Þegar Kesler kemur til vinnu eru
honum sýndar skýrslur sem benda
tU mikils olíufundar. Eins og búist
var við lekur Kesler þessum upp-
lýsingum til vinar síns, Stephen
Bradiey, sem er gamall skólafélagi
hans frá Harvard en nú starfandi
í Oxford. Því næst er það læknirinn
Robin Oakley sem fréttir af vænt-
aniegum olíugróða.
Harvey fréttir af athafnasemi
Keslers og sér til þess að hann fær
bónus fyrir vel unnin störf. Kesler
ákveður að kaupa sér málverk og
galleríeigandinn Jean-Pierre La-
manns fær áhuga á olíuviðskipt-
um. Hlutabréfin í olíufyrirtækinu
halda áfram að hækka og James
Brigsley lávarður, sem Kesler hitt-
ir í næturklúbbi, bítur einnig á
agnið.
Þegar öll hiutabréfin hafa verið
seld fyrirskipar Harvey að öll sönn-
unargögn um starfsemi þess verði
eyðilögö. Þegar Kesler mætir til
vinnu einn morguninn er búið að
loka skrifstofu hans. Hann gerir
sér þá grein fyrir því hvemig hann
hefur verið notaður.
En áður en Kesler getur komið
sér úr landi tekst Stephen að hafa
uppi á honum. Þegar Stephen hefur
pumpað Kesler ákveður hann að
grípa sjálfur til aðgerða gegn Harv-
ey Metcalfe. Hann kemst að því að
Metcalfe ver alltaf sumarfríi sínu í
Evrópu. Stephen hefur samband
við hina aðilana þrjá sem voru
sviknir og býður þeim heim til sín
til Oxford. Þar leggja þeir á ráðin
um hvernig þeir geti náð aftur því
fé sem Metcalfe hafði af þeim, það
er einni milljón punda.
Jeffrey Archer, höfundur bókar-
innar Not a Penny More, Not a
Penny Less, krafðist hvorki meira
né minna en eins punds fyrir sjón-
varpsréttindi að bókinni. Archer,
sem er milljónamæringur, býst þó
við að græða um hálfa milljón
punda á samningnum. „Mikilvæg-
ast er að fá bækur sínar á skjá-
inn,“ segir hann. „Vinsæfl mynda-
flokkur getur leitt til sölu á milljón
bókum til viðbótar.“
Archer hóf ritstörf eftir að gjald-
þrot batt enda á pólítískan feril
hans. Hann segist hafa sett saman
lista yfir þau störf sem hann gæti
leyst af hendi til að hafa ofan af
fyrir sér og þau hafi ekki verið
mörg. „Konan mín merkti við rit-
störf,“ segir metsöluhöfundurinn.
Hugur hans er þó enn bundinn
við stjómmál og hann hefur ekki
gefið upp vonina um að koma aftur
fram á þeim vettvangi.
-------------------------------N
Útboð
Vegskáli um Hvanngjá innri
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í gerð 65
m langs vegskála um Hvanngjá innri á Djúpvegi.
Helstu magntölur: Mót 2.800 m2, steypustyrkt-
arstál 100 tonn og steinsteypa 1.000 m3.
Verki skal lokið 15. september 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Isafirði og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjald-
kera), frá og með 9. þ. m. Skila skal tilboðum á
sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 22. mars 1993.
Vegamálastjóri
_______________________________/
SUZUKISWIFT
3 DYRA, ÁRGERÐ1993
*
*
*
*
*
Aflmikil, 58 hestafla vél með beinni innspýtingu.
Ódýr í rekstri - eyðsla frá 4.0 1. á hundraðið.
Framdrif.
5 gíra.
Verð kr. 795.000 á götuna, stgr.
^SUZUKI
SUZUKIBÍLAR HF.
SKEIFUNNI 17 • SlMI 685100
SPARNEYTINN BÍLLÁVÆGU VERÐI
í S L A N D S
N-ÁM-A-N
Landsbanki íslands auglýsir nú fjórða árið í röð eftir
umsóknum um NÁMU-styrki. Veittir verða 7 styrkir.
Jfl Einungis aðilar að NÁMUNNI, námsmannaþjónustu
Landsbanka íslands, eiga rétt á að sækja um þessa
styrki.
IU Allir þeir sem gerst hafa félagar í NÁMUNNI fyrir
15. mars 1993 eiga rétt á að sækja um styrk vegna
þessa námsárs.
HI Hver styrkur er að upphæð 150 þúsund krónur. Þeir
verða afhentir í apríl 1993 og veittir NÁMU-félögum
skv. eftirfarandi flokkun:
2 styrkirtil háskólanáms á íslandi, 2 styrkirtil náms
við framhaldsskóla hérlendis, 2 styrkir til fram-
haldsnáms erlendis og 1 styrkurtil listnáms.
I5 Umsóknum ertilgreini námsferil, námsárangur,
heimilishagi og framtíðaráform, skal skilað til Lands-
banka íslands eigi síðar en 15. mars næstkomandi.
I§ Umsóknir sendist til:
Landsbanki íslands, Markaðssvið
b.t. Gunnbjörns Þórs Ingvarssonar
. Bankastræti 7, 155 Reykjavík
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna