Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 6. MARS1993
Fyrirtækið rekur nú átta hótel
með tæpum 900 herbergjum. Þegar
Grand Hotel á Vesturbrú kom í hóp
Arp Hansens hótelanna var Hlín
ráðin hótelstjóri og var með í upp-
byggingu hótelsins frá byriun. Hót-
ehð var endurbætt fyrir um 320
milljónir króna. Þarna var hún í
þijú og hálft ár og kom rekstrinum
á góðan kjöl.
Endurbætur fyrir tvo
og hálfan milljarð
Þegar ráðist var í kaup á bygg-
ingu þessari, sem Hotel Phoenix er
í, var ljóst frá upphafi að hér ætti
að standa lúxushótel í heimsklassa.
Endurbætur þær sem framkvæmd-
ar voru áður en hótehð var form-
lega opnað í maí 1991 kostuðu um
tvo og hálfan mihjarð króna. Á
Phoenix éru 212 herbergi, þrjár
stórar svítur og fjórar minni. Eins
manns herbergin kosta um 9 þús-
und krónur yfir nóttina og svo
bætist morgunverður þar ofan á en
hann kostar um 1000 krónur. Dý-
rasta gisting kostar um 50.000 krón-
ur.
„Flestir gestir hótelsins eru við-
skiptamenn og -konur og hefur það
samninga við fjölmörg fyrirtæki
úti um allan heim. Því er það að
stóran hluta af árinu er fullt hús.
Yfirleitt tekur það um þrjú til fimm
ár að vinna upp hótel en við höfum
gert það á einu og hálfu ári,“ segir
Hlín. Hún hefur verið dugleg að
vekja athygh á hóteUnu og náð
góðri samvinnu við fjölmiöla en
það er vitaskuld mikUvægt í þess-
ari atvinnugrein sem öðrum. Hlín
segir ennfremur að um mikla sam-
vinnu sé að ræða á milU Phoenix
og frönsku Concorde hótelsam-
steypunnar en í þessari keðju eru
um 70 de Lux hótel. í þessa sam-
vinnu kemst ekki hver sem er og
er vandlega metið hver fær að vera
með. Vegna þessarar samvinnu má
segja að Phoenix sé með söluskrif-
stofur úti um aUan heim.
Fáaren athyglis-
verðar tómstundir
Vinnutíma sinn segir Hlín vera
sveigjanlegan. „Ég er hér þegar
þörf er á - og það er oft. Ég bý rétt
utan við borgina og ek í vinnuna
dag hvem. Eg fer aUtaf heim að
lokinni vinnu, enda þótt stundum
sé liðið langt fram á kvöld þegar
vinnudegi lýkur og freistandi að
halla sér í einhveiju herbergjanna.
Ég hef haldið mig við þá reglu.
Ég hef tekið mér eitt og annaö
fyrir hendur í frítímum. M.a. hef
ég prófað fallhlífarstökk, sigið í
böndum, klifrað í björg og nú upp
á síðkastið hef ég stundað köfun í
froskmannabúningi. Eftir að Pho-
enix tók til starfa hef ég haft lítinn
tíma til eigin nota. Annars er ég
dugleg að prófa nýja hluti og ný
viðfangsefni. Ég hef stundað nám
í rússnesku og stjömufræði, ég hef
líka „pungapróf' í skipstjóm og
sigli stundum á sumrin upp í
sænska skeriagarðinn. Annars er
ég hætt að gera áætlanir meira en
eitt ár fram í tímann.
Efst á baugi er að gera Phoenix
að besta og fínasta hótelinu í Kaup-
mannahöfn og haída því í fyrsta
sæti. Þaö er ærin vinna, skal ég
segja þér. Ég hef forstöðu fyrir
sameiginlegri söludeiid Arp Hans-
ens hótelanna átta og það er einnig
aukið vinnuálag, eiginlega fullt
starf.
Mér finnst gaman að þessu, ann-
ars væri ég ekki í því. Miöað við
bókanir næsta ár eram við nú með
um 30.000 fleiri gistinætur en á
sama tíma í fyrra svo að kerfið
skilar árangri.“
Á Hotel Phoenix ríkir góður andi
undir íslenskri stjóm. Alhr sem
vinna viö hótelstörf og fylgjast með
tímanum þekkja til Hlín Baldvins-
dóttur. Hér er mikilvægur fidltrúi
íslenskrar menningar og íslensks
athafnalífs á ferðinni og enn einn
fulltrúi íslenskra kvenna sem
vekja verðskuldaöa athygli á er-
lendri grand.
Hlín Baldvinsdóttir sveiflar sér eins og alvanur sigmaður frá Eyjum niður frá 6. hæð Grand Hótels. Með þessu vakti hún verðskuldaða athygli á því
að nýir siðir koma með nýjum frúm jafnt sem herrum. Dönsku blöðin birtu mynd þessa sem var verðmæt auglýsing fyrir Grand Hotel.
Hlín Baldvinsdóttir stýrir glæsihóteli í Kaupmannahöfn:
Athyglisverdur
fulltrúi íslenskra
athafnakvenna
Gizur Helgason, DV, Kaupmannahöfn:
Phoenix, nýjasta lúxushótel
Kaupmannahafnarborgar, var
opnað á vormánuðum 1991. Það er
álitamál hvort ekki sé um að ræða
glæsilegasta hótel Danmerkur.
Á Hótel Phoenix ræður ríkjum
íslenskur hótelstjóri, Hlín Bald-
vinsdóttir að nafni. Hún kallar sig
reyndar Hlín Jónsson hér í landi
því enginn Dani hefur möguleika á
því að böggla tungu sinni þannig
saman að hann geti borið orðið
Baldvinsdóttir þannig fram að
skiljanlegt sé.
Hótel Phoenix, sem er við Breið-
götu 37, steinsnar frá Kóngsins
Nýjatorgi og Magasin du Nord, er
í dag í harðri samkeppni við d’Ang-
leterre sem fram að þessu hefur
verið talið finasta hótel borgarinn-
ar við Sundið.
Ótrúlegurstíll
ogglæsileiki
Byggingin, sem Hótel Phoenix er
í, getur í ytra útliti engan vegin
staðist samanburð við glæsileika
d’Angleterre en þegar inn er komiö
verður annaö uppi á teningnum.
Hér er beinlínis ótrúlegur stíll og
glæsileiki, hvert sem litiö er. Hótel-
ið hefur verið tekið inn í hóp fárra
en útvaldra lúxushótela heimsins
en í þann hóp kemst ekkert hótel
nema að hafa undirgengist strangt
gæðaeftirlit.
Á dögunum brá ég mér á bak
reiðhjólinu mínu og hélt til fundar
við Hlín. Við áttum stefnumót kl. 9
að morgni. Ég kom aðeins fyrr og
hafði því tíma til að sitja og virða
fyrir mér annríkið í mótttökusal
hótelsins.
Hér virðist allt úr marmara.
Marmaragólf, marmaraveggir,
stórar þungar kristallslj ósakrónur
í lofti og frá veggjum. Á miðju gólfi
í móttökusal hótelsins, sem er stór
og rúmgóður, er gosbrunnur úr
svörtum marmara með styttu. Á
veggjum era hstaverk þekktra
listamanna, m.a. eitt sem ég veit
fyrir víst að er margra mihjóna
virði, eftir einn af hinum þekktu
Skagens-máluram. Hér era líka
stórir, gamhr kínverskir vasar.
Húsgögnin era bæði í rókókó og
Lúðvíks 16. stíl. Hér er létt og bjart
yfir öllu. Eitthvað hlýtur að kosta
að búa hér. Breiögata er ein af fin-
ustu götum borgarinnar. Dýrar
fomminjaverslanir era á hverju
strái með hstaverkauppboðum á
fárra daga fresti.
Hótelstjórinn birtist á mínútunni
9 og við höldum niður í veitingasal
við að vekja athygli á þeim hótelum
sem hún hefur veitt forstöðu en
minna gefið um að vekja athygli á
sjálfri sér.
Komin af vestfirsk-
um galdramönnum
Hlín Baldvinsdóttir, hótelstjóri
Phoenix, er fædd og uppahn í
Reykjavík. Annars er hún af vest-
firskum galdramönnum í báðar
ættir. Að loknu stúdentsprófi frá
MR nam hún viðskiptafræði í Lon-
don í eitt ár. í London ákvað Hhn
að fara í nám í hótelstjóm og hótel-
rekstri, fór til Frakklands og síðan
á hótelskóla í Sviss. Að námi loknu
var Hhn gjaldkeri í eitt ár í gestam-
ótttöku á Hilton hóteh í London.
Að þvi loknu dvaldi hún í tæpt ár
í Mexíkó, m.a. við spönskunám.
Frá Mexíkó fór hún til íslands.
Eftir nokkurra ára starf á hótel-
um og ferðaskrifstofu á íslandi
flutti Hhn ásamt eiginmanni og
tveimur ungum sonum th Kaup-
mannahafnar. Hér hefur Hlín síðan
búið í 17 ár. Hún vann fyrstu 7 árin
þjá Spies-ferðaskrifstofunni en fór
síðan yfir tíl Arp Hansens fyrirtæk-
isins. Það er fjölskyldufyrirtæki
sem byggt hefur upp hótelkeðju hér
í Danmörku.
hótelsins og finnum þar smáafdrep
þar sem við getum verið í friði.
Hhn hefur veríð mikið í fréttunum
hér og mér er kunnugt um íjöl-
margar greinar sem um hana hafa
verið ritaðar. Hún hefur verið ötul
kynningarbækllngi um glæsihót-
eliö Phoenlx býöur hótelstjórinn
Hlfn gesti velkomna.
I)•,!. ■ i ! I' í' „ í i,l l' | , }.
yrjwMcx uvifXc
\hiti <kt áhtfdí: foárc- $91.
; k lli |(í.!h ,.rw. >i\' .' Í'.L' '1
-'í„ .. ; u'( h \vai Ib. \
, kbl f •> '' '< > ' ’
h&várcírówswd ti! fívtofap %x*tx.
Utttíifpxx&ápa ft-^!«ír^gít»5}stár
............... í
'M , i ' l ' U< '\ ,t
bhíbst í UáwibvB,
H!ö|or»öc: