Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Side 19
LAUGARDAGUR 6. MARS 1993 19 Hreinn Friðfinnsson fyrir framan nokkur verka sinna. DV-mynd Þök Hrynjandi myndljóðs og forms - Hreinn Friðfinnsson í listasafni íslands Yfirgripsmikil sýning á verkum Hreins Friðfinns- sonar stendur nú yfir í Listasafni íslands. Þarna er um að ræða verk frá nær þriggja áratuga ferli lista- mannsins sem hingað er kominn frá ICA, nútímalista- safninu í Amsterdam. Vegleg bók hefur aukreitis ver- ið gefin út af Listasafni Islands í samvinnu við Mál og menningu, til að fylgja sýningunni úr hlaði. Um bókina verður fjallað síðar en sýningin skoðuð að þessu sinni. Hreinn Friðfinnsson varð fyrst þekktur sem meðlimur í SÚM á sjöunda áratugnum. Hann hefur síöustu tvo áratugina verið búsettur í Hollandi. Sýningin á verkum Hreins er í þremur neðri sölum Listasafnsins en þrátt fyrir umfangið er einfaldleiki og léttleiki í fyrirrúmi í öllum þrem sölum. Ljóðrænn tærleiki og rökræður við náttúruna í salnum á fyrstu hæð eru flest elstu verkin á sýning- unni. Hið elsta, „Að teikna tígrisdýr" frá 1971, sýnir vel þá leið sem listamaðurinn fylgdi á áttunda áratugn- um. Þar er áberandi hinn bókmenntalegi þráður, þ.e. verkin byggjast upp á texta ekki síður en mynd. Form- rænar vangaveltur á hinu ytra borði fara svo að blómstra á níunda áratugnum, en ávallt er ljóðrænn tærleiki og öguð myndhugsun í fyrirrúmi hjá lista- manninum. A meðail verka Hreins frá áttunda ára- tugnum má nefna „Attending" frá 1973 þar sem hin einfalda súrrealíska myndsýn í anda Magritte er hvað sterkust og „Húsið“ frá 1974 þar sem ljósmyndin gegn- ir hlutverki heimildar um náttúruinnsetningu. í því verki er jafnframt vísað til alþýðulistar - það er tileink- að Sóloni í Slunkaríki vestra sem veggfóðraði hús sitt að utan og klæddi bárujárni að innan. Með þessari tilvísuri bendir Hreinn á þá einfóldu og taóísku heim- speki sem liggur til grundvallar því slunkaríki sem eitt sinn var allra skotspónn: Alheimurinn hlýtur jú að rúmast innan veggja húskofans en utanhúss er einkastofan þar sem allir eru velkomnir. Með þessu verki, en þó e.t.v. enn fremur með „Fimm hliðum fyr- ir sunnanvindinn" frá 1972, sem því miður er ekki að frnna á þessari sýningu, en byggist jafnframt á ljós- myndum af náttúruinnsetningu, markar Hreinn Friðf- innsson sér strax listrænan farveg - sem að miklu leyti felst í rökræðum við náttúruna og ljóðrænni út- færslu þeirra rökræðna. í þessu síðamefnda verki birt- ist einnig vísir að víðtækari formrænni myndhugsun listamannsins. Formheild, sjón- hverfingar og hrynjandi Hið ytra form verkanna fékk aukið vægi hjá Hreini með verkum á borð viö „From time to time“ frá 1979. Það verk hefur súrrealískt yfirbragð, líkt og fyrrnefnt „Attending" en að þessu sinni er myndræn áhersla á formheildinni en ekki ljósmyndinni sem heimild. Þessa sér enn betur stað í verkum sem eftir fylgdu, s.s. „Við veginn" (1982) og „Samanbrotinni stjörnu" (1983), sem bæði búa yfir sérstökum kynngikrafti, hvort á sinn hátt. Fyrmefnda verkið er gott dæmi um Myndlist Ólafur Engilbertsson hvernig þáttur ljósmyndarinnar hefur meitlast í verk- um Hreins í gegnum árin - orðið dramatískari og um leið minnisstæðari. Hið síðarnefnda lýsir aftur á móti vel hve hin ljóðræna taug listamannsins er samþáttuð formhugsun og tilvistarspeki. Mestu varðar þó að á þessari sýningu eru mörg vel heppnuð nýleg verk. „Anatómía" frá 1989 er t.a.m. mjög eftirminnilegt verk sakir sjónhverfingar sem framkölluð er m.a. með vatni. Bogalínur veita svo örfinum hljómi inn í heildar- mynd verksins og aðrar bogalínur ríma við í öðrum sal. Hreinn hefur alla tíð verið hallur undir hrynjahdi og fyrstu verk hans minna jafnvel á ferskeytlur þar sem mynd og texti kveðast á. í nýjustu verkum lista- mannsins er hrynjandin í flestum tilvikum algerlega formræn. Þar er nærtækast að nefna til glænýtt verk, „Söng“ frá 1992. Þar eru hin ýmsu hljóð gerð sýnileg meö ljósmyndum af hljóðskjá - hrynjandi hljóðs verð- ur að hrynjandi myndar. Það er lofsvert framtak hjá Listasafni Islands að efna til þessarar yfirlitssýningar á verkum þessa hægláta myndhugsuðar sem hefur e.t.v. sameinað eigindir ljóðs og myndar betur en flest- ir aðrir núlifandi landar okkar. Ekki var undirritaður þó alls kostar sáttur við lýsinguna á þessari sýn- ingu,en salirnir virkuðu allir þrír dimmir og lítið gert til að styrkja útgeislun verkanna. Sýningunni á verk- um Hreins Friðfinnssonar lýkur þann 21. mars. EINSTMT INNGÖNGUTILBOÐr / / NITIMALEGUR MATREIÐSLU KLÍBBUR Matreiðsluklúbbur Vöku-Helgafells, Nýir eftirlætisréttir, hittir beint í mark. Þessi nútímaiegi kiúbbur sendir félögum mánaðarlega pakka með plasthúðuðum uppskriftaspjöidum með áhugaverðum mataruppskriftum og fróðleik um vín. Efnið er svo flokkað í handhæga möppu og myndar hugmyndabanka fyrir heimilið. Dagleg símaráðgjöf, matreiðslunámskeið, uppskrifta- samkeppni, félagakort og margs konar fríðindi. Engar skuldbindingar! Nýttu þér ótrúlega hagstætt inngöngutilboð í klúbbinn! sar ! sk— «r-w i vs„ • .......... , Ysaíaariböningi FYRSTIIJPPSKRIFTAPAKKINN með 50% afslætti: AÐEINS 298 KR. Fullt verð pakkans er 595 kr. SÉRHÖNNEÐ SAFNMAPPA AÐ GJOF! Áætlað verðmæti 980 kr. ÓKEYPIS TASKA! Ef þú skráir þig innan 10 daga! Áætlað útsöluverð 1.270 Samtals verðmæti tilboðs 2.845 kr. .fyrir aðcins 298 kr. MÖGELEIKI Á ÖKEYPIS HELGARFERÐ FYRIR TVO TIL PARÍSAR! Fyrir alia stofnfélaga Ferða- og glstikostnaður metínn á 94.000 kr. HRINGDU STRAX I DAG! sliviMrvrv er (91)(>88300 EÐA SENDU SVARSEÐILINN [► JÁ, ÉG VIL GERAST FÉLAGI í MATREIÐSLUKLÚBBI VÖKU-HELGAFELLS NAFN HEIMILl PÓSTSTÖÐ KENNITALA SÍMI SENDU SEÐILINN í L0KUÐU UMSLAGI TIL: NÝIR LFI IRLLTISRÉITIR, MATREIÐSLUKLÚBBUR VÖKU-HELGAFELLS, SÍDUMÚLA 6, 108 REVKJAVÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.