Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Page 30
42
LAUGARDAGUR 6. MARS1993
„Jesús Kristur" í Waco í Texas gefur lögreglunni langt nef:
Erum bara sprek
á hinn eilífa eld
- segir hann og bíður boða frá guði almáttugum um hvað gera skuli
Sérsveitir bandarísku alríkislögreglunnar guldu mesta afhroöiö i sögu sinni þegar lagt var til atlögu við sértrúar-
söfnuð Davids Koresh á sunnudaginn. Koresh vissi hvað var í vændum og bjóst til varnar. Hann beið þess að
lögreglan væri komin inn á búgarðinn þegar skothríð hófst með tilheyrandi mannfalli. Símamynd Reuter
„Við erum bara sprek á hinn eilífa
eld,“ segir Dadid Koresh, sjálfskipað-
ur Jesús Kristur á Carmel búgarð-
innum í Texas.
Hann hefur beint athygli gjörvallr-
ar heimsbyggðarinnar að afskekkt-
um stað á sléttum þessa víðlenda rík-
is í heila viku og vakið furðu manna
yfir hvernig hægt er að halda heilum
söfnuði í heljargreipum trúarofstæk-
is.
Lögreglan bíður grá fyrir jámum
með um 500 manna hði við búgarðinn
en getur ekkert að gert. Inni eru sak-
laus böm sem vafalítið yrðu að
sprekum á hinn eilífa eld ef ráðist
væri til inngöngu.
Drottnar yfir trúgjörn-
um lærisveinum
Foringjar lögreglunnar segjast dag
hvem ná góðum árangri í viðræðuin
við „frelsarann". Hvorki hefur þó
gengið né rekið alla vikuna. Koresh
segist reiðubúinn að gefast upp hve-
nær sem honum berist boð um það
frá guði. Og alhr bíða þess í ofvæni
að guð tali.
Kunnugir segja að Koresh sé mað-
ur hrífandi í framkomu. Hann hefur
fylkt söfnuði sínum að baki sér sem
einum manni og enginn virðist sjá í
hvert óefni er komið með trúariðkun
á búgarðinum.
Koresh hefur eins og margir leið-
togar sértrúarsafnaða náðarvald
sem hann beitir á fylgismenn sína.
Hann er um leið fram úr hófi ofbeld-
isfullur og drykkfelldur. Til að kór-
óna undrun manna á leiðtoganum
er hans getið fyrir fagurt gítarspil.
Fáir efast um að hann sé sálsjúkur.
Markmiðið er að undirbúa sig fyrir
endalok heimsins, sem era í nánd,
að sögn leiðtogans. Þá mun hann ríða
á hvítum hesti inn í Jerúsalem og
honum fylgja himneskir herskarar.
Það em lærisveinamir á búgarðin-
um.
Þegar þessi tíðindi em í vændum
skipta örlög manna frammi fyrir
byssum lögreglunnar litlu. Ríki Dav-
íðs konungs er að rísa að nýju eins
og Biblían spáir.
Hópurinn sjálfum sér
nægur á búgarðinum
Lögreglan segir að Koresh og menn
hans á búgaröinum geti haldið lengi
út. Þeir framleiði sín matvæli sjálfir
og séu vel birgir. Því geti hðið langur
tími áöur en hópurinn verður sveltur
til hlýðni.
Raunar spá menn því að allur söfn-
uðurinn fremji sjálfsmorð áður en til
uppgjafar kemur. Það óttast menn
mest og þá verður skuldinni að
nokkru skellt á lögregluna, sérstak-
lega ef börnin tuttugu verða deydd.
Almenningur mun spyija sig hvort
það hafi verið þess virði að sitja um
sérvitringa í trúmálum bara vegna
gmns um brot á áfengis- og vopna-
löggjöfinni.
Aðgerðirlögreglu
orka tvímælis
Hlutur lögreglunnar er þegar
slæmur. Hún lét flugumann sinn í
söfnuðinum vita síðasta sunnudag
að von væri á liði til aö uppræta
starfsemina á búgarðinum.
Koresh komst að hvað væri í vænd-
um og skipulagði varnir með þeim
árangri að flórir lögreglumenn féhu
og 15 særðust. Óstaðfestar fréttir eru
um að nær tveir tugir manna hafi
fallið af vamarliðinu og tvö börn.
Þetta er mesta afhroð sérsveita lög-
reglunnar frá því þær voru stofnaðar
árið 1972. Á þeim tíma höfðu fjórir
menn fallið við skyldustörf. Nú hefur
sú tala tvöfaldast.
Lögreglan á fárra kosta völ í stöð-
unni. Almenningur vih að bömun-
um verði ekki gert mein og af því
ráðastgerðirlögreglunnar. -GK
David Koresh er lýst sem mjög
hættulegum manni sem hafi lent
villigötum í trúmálum.
Koresh er
hættulega
trúaður
„Sonur minn trúir á það sem
hann er að gera. Það er enginn
hér á jarðríki sem getur tahð
honum hughvarf," segir Bonnie
Holdeman, móðir trúarleiðtogans
Vernon Howell, sem tók sér nafn-
ið David Koresh guði til dýrðar.
Lögreglunni hugkvæmdist að
fá gömlu konuna til að semja við
son sinn en hún brosti bara og
virtist ekki síður trúuð á hand-
leiðslu guðs en hann.
Því er haldið fram að Koresh
hafi á níu áram breytt tiltölulega
saklausum sértrúarsöfnuði í
hættulega hersveit sem hafi tap-
að öllum áttum og berjist í blindni
fyrir ímynduðum markmiðum.
Hættulegur hópur
Ástralíumaðurinn Geoffrey
Hossack rannsakaði starfsemi
hópsins fyrir nokkurm árum og
komst þá að þeirri niðurstöðu að
Koresh og fylgismenn hans væru
mjög hættulegir og virtust hafa
glatað heilbrigðri skynsemi. Hóp-
ur Ástrala fylgir frelsaranum.
Lögreglan hefur áöur reynt að
ná Koresh á sitt vald en tókst
ekki. Lengi hefur staðið til að
uppræta starfseminu á búgarðin-
um í Carmel við Waco í Texas.
Gripið var til aðgerða nú eftir
langan undirbúning þótt allt end-
aði í klúðri þegar á hólminn var
komið.
Dómsdagur í mánd
David Koresh er 33 ára gamall
og miklu yngri en almennt er um
leiðtoga sértrúarhópa í Banda-
ríkjunum. Hann hefur drottnað
yfir söfnuði sínum í níu ár og lað-
að til sín fylgismenn víða að úr
heiminum, mest þó frá Bretlandi
og Ástrahu auk Bandaríkjanna.
Koresh hóf að hervæða hópinn
eftir að hann komst til valda og
trúir því að hann ráði nú yfir
himneskri hersveit sem muni
fylgja honum sem Jesús Kristi
endurbornum þegar efsti dagur
rís. Skammt á að vera í þann
dag, samkvæmt kenningu Kor-
esh.
Markmiðið er að fara til ísraels
og berjast þar fyrir ríki Drottins
eins og spáö er í opinberunarbók-
inni. Hópurinn hefur verið að
undirbúa sig á búgarðinum í Tex-
as undanfarin ár og hefur ekki í
hyggju að láta lögregluna hindra
sig í störfum.
Sagt er að Koresh eigi 15 eigin-
konur en hann segist aðeins eiga
eina, Rachel, og með henni tvö
böm. Annað þeirra hafi látist í
árás lögéeglunnar síðasta sunnu-
dag.
Koresh gekk að eiga konu sína
þegar hún var 14 ára, sama árið
og hann náði völdum í söfnuðin-
um. Hann á að beita fólk sitt of-
beldi eftir því sem fyrram trú-
bræður segja en samt vantar ekk-
ertuppáfylgispektina. -GK
Grein Davíðssinna í Texas hefur verið til í 60 ár og lotið ýmsum leiðtogum:
Saga klofnings og valdabaráttu
David Koresh var 24 ára gamall
þegar hann náði tökum á sértrúar-
hópi Davíðssinna í Texas. Hann tók
þá að drottna yfir fámennri sveit
lærisveina og hefur leitt hópinn út
í fullkomnar ógöngur á níu ára ferh
sínum sem sjálfskipaður Jesús
Kristur og lamb guðs.
Söfnuður þessi varð upphaflega
til eftir deilur meðal aðventista í
Los Angeles árið 1933. Fram kom
maður að nafni Victor Houteff,
Búlgari að uppruna, og hóf að túlka
opinberanarbók Biblíunnar upp á
nýtt. Honum var vikið úr söfnuði
aðventista og með honum fór hóp-
ur fylgismanna.
Heimsendir22. apríl
Hinn nýi söfnuður tók sig upp frá
Kalifomíu og settist að í Texas. Þar
keypti fólkið búgarö nærri bænum
Waco og kenndi hann við fjallið
Carmel. Söfnuðurinn bjó einangr-
aður og leiðtoginn Houteff boðaði
lærisveinum sínum heimsendi og
endurkomu Krists.
Houteff fann út að dómsdagur
rynni upp þann 22. apríl árið 1959.
Hann liíði ekki þann dag en ekkjan
Florence tók við forystunni að
manni sínum látnum og söfnuður-
inn beið endalokanna hljóður.
Dómsdagur rann upp bjartur og
fagur en ekkert gerðist. Kristur
kom ekki á hvítum hesti og dagur-
inn leið að kveldi eins og aðrir dag-
ar. Spádómurinn reyndist rangur
og frækomum efasemdanna var
sáð.
Nýr spámaður
Nú kom fram nýr spámaður, Ben
Roden að nafni. Hann reiknaði allt
út að nýju og söfnuðurinn klofn-
aði. Sumir fóra en kjaminn varð
eftir á búgarðinum Carmel og
hýddi á boðskap nýja leiðtogans.
Hann lést árið 1978 áður en dóms-
dagur rann upp og ekkjan Lois tók
við hlutverki spámanns.
Ekki vora allir sáttir við kenn-
ingu hennar og enn kom fram nýr
spámaður á búgarðinum árið 1984.
Það var Vemon Howell sem svo tók
sér nafið David Koresh þegar hann
Búgarðurinn við Waco i Texas er
vígi Davids Koresh og lærisveina
hans. Simamynd Reuter
var búinn að koma Lois Roden frá.
Koresh vildi ekki aðeins bíða
dómsdags í bæn heldur gera eitt-
hvað í máhnu. Hann komst að því
að köllun sín væri að koma upp
hersveit sem berðist við heiðingja
og trúvillinga á efsta degi. Ríki
drottins á jörðinni myndi því eiga
sinn her eftir dómsdag.
Koresh hóf að vígvæðast á bú-
garðinum. Hann hefur á undan-
fómum árum keypt mikið af vopn-
um sem auðvelt er að komast yfir
í Texas. Lögreglan komst að því á
sunnudaginn að engu er logið um
vígvæðinguna.
Ofbeldi og drykkja
Jafnframt hafa borist sögur um
ofbeldi á búgarðinum. Fylgismenn
Koresh hafa flúið þaðan og borið
að hann beiti fólk sitt harðræði og
sé auk þess lagstur í drykkjuskap
og ómennsku.
En um leið hefur Koresh náð
ægivaldi yfir lærisveinunum. Þeir
virðast tilbúnir að fylgja leiðtoga
sínum út í dauðann þegar kalhð
kemur. Koresh heitir þeim sælu á
himnuni sem faha fyrir Krist í upp-
gjörinu mikla þegar heimurinn
ferst.
Koresh hafa hins vegar ekki orðið
á sömu mistök og fyrrirennara
hans að spá dómsdegi á tilteknum
degi. Dómsdagur er bara í nánd.
-GK