Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 20. MARS1993 Fréttir Hæstaréttardómur um lækkun lyflaálagningar: Úrskurður Sighvats felldur úr gildi - Guöjón Magnússon vanhæfur í lyfl averðlagsnefnd Hæstiréttur feOdi í gær úr gildi úrskurö Sighvats Björgvinssonar heilbrigðisráðherra frá 18. desember síðastliðnum um lækkun heildsöluá- lagningar á lyfjum um 17-20%. Jafn- framt segir í dómi Hæstaréttar að skipun Guðjóns Magnússonar, skrif- stofustjóra í heilbrigðisráðuneytinu, í lyfjaverðlagsnefnd sé ólögmæt. Forsaga málsins er sú að Guðjón, sem skipaður var í lyfjaverðlags- nefndina af Sighvati, bar upp tillögu í nefndinni um lækkun heildsöluá- lagningar á lyfjum um 17-20%. Ágreiningur varð um málið og fór ráðherra því með úrskurðarvald og staðfesti tillöguna. Apótekarar voru mjög óánægðir með þennan úrskurð og sögöu þetta leiða til verri afkomu minnstu apó- tekanna sem þegar væru rekin með tapi. Félag íslenskra stórkaupmanna stefndi Sighvati og krafðist þess að afgreiðslur lyfjaverölagsnefndar um máhð yrðu dæmdar ógildar, svo og úrskurður ráðherra. í dómi Hæstaréttar segir að þar sem Guðjón Magnússon sé skrif- stofustjóri í heObrigðisráðuneytinu og jafnframt staðgengill ráðuneytis- stjóra sé ljóst að hann gæti í starfi sínu þurft að hafa afskipti af málum sem koma til kasta ráðherra frá lyfja- verðlagsnefnd. Seta hans í lyíjaverð- lagsnefnd bijóti í bága við grundvall- arreglu um hæfi í opinberri stjóm- sýslu. í þessu máli hafi Félag ís- lenskra stórkaupmanna haft rétt- mæta ástæðu til að efast um að Guð- jón væri óháður í störfum sínum í lyfjaverölagsnefnd því vegna stöðu sinnar í heilbrigðisráðuneytinu sé Guðjón vanhæfur til setu í nefndinni. Þar sem Guðjón var skipaður á ólögmætan hátt í lyfjaverðlagsnefnd- ina þá leiðir það til þeirrar niður- stöðu Hæstaréttar að úrskurður ráð- herra um lækkun á lyfjaálagningu sé ógOdur enda hafi undirbúningur málsins hjá nefndinni ekki verið í samræmi við lög. -ból Heilbrigöisráöherra: Hækkun lyfja- verðs - og fordæmisgildi „Hér er um að ræða dóm sem dregur mikinn dOk á eftir sér fyr- ir íslenska stjórnkerfið. Ég fæ ekki betur séð en að Hæstiréttur sé að segja að menn úr ráðuneyt- um geti ekki setið í neinum þeim nefndum á vegum þess opinbera þar sem vera kann að ráðherra þurfi að úrskurða. Þetta hefur mikið fordæmisgildi. Nú hlýtur að þurfa að taka allar vinnuregl- ur til endurskoðunar," segir Sig- hvatur Björgvinsson um hæsta- réttardóminn. Hann segir ljóst að sú lækkun lyijaálagningar, sem gekk í gildi 1. febrúar, gangi nú til baka. „Við erum að tala um 20% hækkun heildsöluálagningar sem þýðir tæplega 3% hækkun á lyfjaverði," segir Sighvatur. Hann segist hafa leitað umsagn- ar umboðsmanns alþingis áður en hann skipaði Guðjón Magnússon í lyfjaverðlagsnefndina. „Héraðs- dómur staðfesti áht umboðs- manns en nú kemst Hæstiréttur að öfugri niðurstöðu." -ból Sáum eldtungurnar út úr eldhúsinu - segja Guðlaugur og Þórður sem björguðust úr brennandi húsi Guðlaugur, 10 ára, og Þórður, 8 ára, með hundunum Heyko og Sooty sem björguðu lifi þeirra þegar hús þeirra brann aðfaranótt miðvikudags. DV-mynd BG „Ég hafði heyrt í hundunum en fór aftur að sofa og vaknaði ekki fyrr en mamma kom og sagði, vaknaðu, vaknaðu, það er kviknað í. Þegar hún sagði aö það væri eldur þá hljóp ég strax út,“ segir Guðlaugur, 10 ára, sem bjargaðist ásamt fjölskyldu sinni þegar Fagranesið brann. Bróðir Guðlaugs, Þórður, 8 ára, segist hafa vaknað þegar pabbi hans vakti hann. „Ég heyrði hljóð eins og í eldi svo ég spratt á fætur og reyndi að taka fötin mín. Þá lyfti pabbi mér upp og fór með mig fram í anddyri," segir Þórður. Þeir segja að mikiH reykur hafi verið um allt húsið þegar þeir fóru út og þeir sáu eldtungurnar koma út úr eldhúsinu. „Við urðum dálítið hræddir en ég varð eiginlega meira hræddur eftir á því ég áttaði mig ekki almennilega á því að það hefði kviknað í fyrr en ég var kominn út,“ segir Guðlaugur. Þeir segja að aUt dótið þeirra hafi brunnið og eyðilagst í eldinum. „Það er ekkert heilt eftir nema kannski nokkur föt sem ógeðsleg lýkt er af,“ segja þeir. Núna hafa þeir hins vegar eignast hvor sinn körfuboltann því að vinur þeirra gaf þeim báðum körfubolta daginn eftir brunann. -ból urinn spangólaði sem er mjög tungurnar þar út þegar fólkið hfjóp óvenjulegt og um feið fann ég fram hjá til að komast út. Reykur- reykjarlyktina. SlökkviUðsmenn- inn lá þykkur og loðinn í loftinu irnir sögðu að ekki hefðu liöið og færöist sífellt neðar þannig að nema örfáar mínútur frá því að við þau þurí'tu að beygja sig undir urðum vör við eldinn og þar til hann. húsíð varö alelda. Við höfðum örfá- „Ég sneri mér við í anddyrinu og ar mínútur til að komast út úr hús- ætlaði að kippa með mér fötum sem inu og ég þakka hundunum fyrir lágu hálfan metra frá mér en þá að við erum á Iífi,“ segir Jón Magn- varð öflug súrefnissprenging svo ússon sem bjargaöist naumiega ég hrökklaðist öfugur út aftur,“ ásarot konu sinni, Jónu Thors, og segir Jón. tveimur börnum, 8 og 10 ára, þegar Þau segjast ekld vilja hugsa þá hús þeirra, Fagranes viö Elliðavatn, hugsun til enda ef þau heföu vakn- brann aðfaranótt miðvikudags. að aðeins seinna. „Við tvö hefðum Heimilishundarnir Heyko og kannski sloppið á lifi nokkrum Sooty, af scháfertegund, vöktu minútum síðar með því aö fara út heimilisfólkið upp með gelti og umgluggaenviðhefðumörugglega spangóli. ekki náð strákunum í tæka tíö,“ „Hundamir geltu og góluðu því segja þau. aö dýr eru mjög hrædd við eld. Ég Fagranes er mjög mikið skemmt er frekar svefnstyggur en ef hund- eftir eldinn og aUt innbú eyðilagð- arnir heföu ekki látið í sér heyra ist. „Við misstum aHt en það hafa hefði ég sennilega ekki vaknað því allir brugöist svo skjótt og vel við þaö heyrðist ekkert hljóö. Það var aö maður veröur hrærður. Viö bara þykkur reykur, brak og stóðum bara á nærfötunum fyrir snark,“ segir Jón. után húsið en nú erum við orðin Eldurinn kom upp í eldhúsi á velfötuð,“segirJóna. -ból Spasskíj óáreittur þrátt fyrir brot á samskiptabanni SÞ gegn Júgóslaviu: Rangt að gera þessa menn ábyrga fyrir stríðsglæpum - segir Guömundur G. Þórarinsson, forseti Skáksambandsins „Ég velti mikið vöngum yfir spum- ingum um siðferðHegu hfiðina á heimsókninni en ég á aHs ekki von á að allir verði sammála um heim- sókn Spasskíjs hingað. Ég geri mér grein fyrir því sjónarmiði að hann eigi ekki að koma hingað. En mér finnst rangt að einangra þessa menn og gera þá ábyrga fyrir þeim stríðs- hörmungum sem eiga sér stað í lýð- veldum fyrrum Júgóslavíu. Spasskíj gerði ekki annað en bjarga Fischer, þessum mikla skáksnillingi, út úr einangrun. Það er stórmál út af fyrir sig. Spasskíj hefur sjálfsagt haft sín markmið með þessu einvígi í Júgó- slavíu en markmiðin og gUdin í lífinu eru nú svo mörg og þau verða ekki mæld á einn mælikvarða, Við vitum að eingvígið haföi engin áhrif á gang mála í Júgóslavíu, til eða frá, og ég get ekki séð að það hafi verið nokkur auglýsing fyrir Júgóslava út af fyrir sig,“ sagði Guðmundur G. Þórarins- son, forseti Skáksambands íslands, við DV. Guðmundur var inntur eftir því hvaða afstöðu Skáksambandið tæki til heimsóknar Borisar Spasskíjs, fyrrum heimsmeistara í skák, í ljósi brota hans gegn sam- skiptabanni Sameinuðu þjóðanna gegn Júgóslavíu. Spasskíj mun dvelja hér nokkra daga. Nokkra undrun vakti að hann var ekki í hópi frönsku skákmann- anna sem heyja einvígi við íslend- inga í landskeppninni sem fram fer í Hafnarfirði. Mun Spasskíj hafa átt í defium við franska skáksambandið sem aftur má rekja tfi einvígis hans við Bobby Fischer í Júgóslavíu í haust. Með því aö tefla í Júgóslavíu brutu Spasskij og Fischer samskiptabann það sem Sameinuðu þjóðimar höföu samþykkt gegn landinu og hlutu for- dæmingu víða. Bandaríkjamenn hafa tekið hart á þessu samskipta- broti. Á Fischer fangelsi og gríðarleg- ar fjársektir yfir höföi sér snúi hann aftur tfi heimalands síns. Segja óstaðfestar fréttir að Fischer hafi nú gerst júgóslavneskur ríkisborgari og vinni að auki í bankanum sem fjár- magnaði einvígi hans og Spasskíjs. Hins vegar hefur ekki fengist staðfest hvort þeir hafi fengið greitt fyrir ein- vígið eins og um var samið. Frakkar hafa ekki tekið jafnfast á málum og Bandaríkjamenn og hefur Spasskíj fengið að vera óáreittur eftir einvígið við Fischer. Til stóð að Spasskíj teíldi einvígi við Friðrik Ólafsson meðan hann dveldi hér en þaö vfidi hann ekki. Aftur á móti hefur hann sýnt áhuga á að heimsækja skóla, þar á meðal Skákskólann, tala um skák og jafn- vel tefla fiöltefli. „Það eru auðvitað ny ög stórar spurn- ingar í kringum þetta. Við þekkjum dæmi úr skáksögunni þar som menn hafa verið einangraðir í samabandi við svona mál. Það má taka dæmið um Aljekin sem framdi sjálfsmorð í Portúgal. Hann haföi verið einangr- aður vegna þess að hann var taHnn hlynntur nasistum. Menn gráta í dag að svo skyldi fara. Það er ekki hægt að gera menn eins og Spassldj og Fischer ábyrga og ein- angra þá vegna þeirra svakalegu hluta sem epu að gerast í Júgóslavíu á sama tíma og menn treysta sér ekki tfi að gera neinn af stjómar- mönnum þar ábyrgan eða taka á þeim. Þetta eru mál sem sagan mmi dæmá,“ sagði Guðmundur. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.