Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR 20. MARS 1993 7 Fréttir Veðurstofan beðin um skýrslu eftir slysin á Akranesi: Ráðherra vill virkara spákerfi Umhverfisráðherra hefur óskað eftir að Veðurstofa íslands útbúi skýrslu í kjölfar þeirra válegu at- burða sem urðu við Akranes í vik- unni. Hugmyndin er að kanna hvort hægt sé að koma á hraðvirkara kerfi í stofnuninni þegar slæm veður koma yfir landið þannig að hægt sé að tiikynna fyrr en ella um þau til sjómanna og annarra sem mjög eru háðir veðurspám. Eins og fram kom í DV í gær telur Páli Bergþórsson veðurstofustjóri að atburðir vikunnar hafi hvatt til þess að betra móttökutæki verði keypt fyrir gervitunglamyndir. Auk þess telur Páll vel koma til greina að Veð- urstofan komi sjálf með tölvuspár til skamms tíma - nákvæmari en þær sem koma á kortum erlendis frá. Páll telur að í „prinsippinu" sé við- eigandi að senda út stormviðvaranir til sjómanna í gegnum útvarp eða strandstöðvar jafnskjótt og upplýs- ingar um slíkt berast Veðurstofunni. -ÓTT GÆSLA Tökum að okkur gæslu á böilum, skemmtun- um og samkomum. Vinsamlega leggið inn símanúmer í símboða 985-51521. Lög á Herjólfsdeiluna? Eyjamanna þar um mjög alvarlega - segirHalldórBlöndal „Ég hef rætt við Vestmannaeyinga um þessi mál og þau eru í undirbún- ingi og athugun. Ég geri ráð fyrir að þetta skýrist allt á mánudaginn. Mér hafa borist óskir frá Vestmannaey- ingum um að lög verði sett til að leysa Herjólfsdeiluna og ég tek þær óskir mjög alvarlega," sagði Halldór Blöndal samgöngumálaráöherra í samtali við DV í gær. Halldór var spurður hvort hann teldi koma til greina að bjóða út feijuleiðina Vestmannaeyjar-Þor- lákshöfn-Vestmannaeyjar, eins og gert var með Eyjaíjarðarferjuna, og leigja Herjólf? „I sambandi við flóabátana höfum við ákveðið að fara okkur hægt og taka eitt mál fyrir í einu. En að gera þetta til aö leysa Herjólfsdeiluna hef- ur ekki verið rætt,“ sagði Halldór Blöndal. -sdór Landsbankalög- insamþykktá Alþingi í gær Frumvarp til laga um ráðstafanir til að efla eiginfiárstöðu innláns- stofnana, eða Landsbankalögin eins og þau eru kölluð, voru samþykkt frá Alþingi í gær. Leita varð aíbrigða til að koma lögunum í gegn vegna þess að ekki leið nógu langur tími milli umræðna. Alþýðubandalagsmenn einir fluttu breytingartillögur við frumvarpið. Þær voru allar felldar og frumvarpið samþykkt óbreytt frá því sem það var lagt fram. Fulltrúar Framsóknarflokksins og Kvennalistans studdu nefndarálit fulltrúa stjómarflokkanna í efna- hags- og viðskiptanefnd. -S.dór Egilsstaðir: Tenging á heitu vatniískoðun hjá lögreglu „Við teljum að mælir í ákveðnu atvinnuhúsnæði hér í bænum mæli ekki rétt og því báðum við lögregluna að rannsaka máhð. Eigandi hússins skipti nýlega úr rafhitun í hitaveitu. Við teljum að hann hafi ekki gert eins og reglur kveða á um. Við báð- um lögregluna um að taka skýrslu af honum til að fá hlutlausan aðila í málið og láta reyna á það hvort hann hefur farið að ákvæðum reglugerð- ar,“ segir Bjöm Sveinsson, hitaveitu- stjóri á Egfisstöðum. Reglugerð um Hitaveifima á Egils- stöðum var breytt mikið fyrir nokkr- um áram. „Við ætlmn að kanna hvernig svona mál hafa verið leyst hjá öðrum hitaveitum en svo býst ég við að við setjumst fljótlega niður tfi að leysa málið í bróðemi," segir Bjöm. -GHS MICRA SLÆR í GEGIM STÓRSÝNING UM HELGINA Ingvar Helgason hf. REYKJAVIK Sævarhöfða 2 BG bflasalan KEFLAVIK Bílakringlunni Sigurður Valdimarsson AKUREYRI □seyri 5a Enn og aftur bjóöum við alla velkomna að skoða og reynsluaka Nissan Micra, bíl ársins 1993. Fjölmargir íslendingar hafa þegar komið, skoðað og reynsluekið Micrunni og verið hæstánægðir með bílinn. Sannreynið sjálf gæði Nissan Micru á stórsýningu helgarinnar milli kl. 14-17/ BÍLL ÁRSINS 1993 Nú hefur Nissan Micra bætt enn einni skrautfjöður í hattinn. Hið virta þýska tímarit Auto Bild gerði samanburð á nokkrum bílum og þar hafði Nissan Micra að sjálfsögðu vinninginn. . Verðdæmi MICRA LX 3ja dyra, með VÖKVASTÝRI, beinni innspýtingu 1300cc, 16 ventla vél, hituð sæti VERÐ AÐEIIMS 799.000.- stgr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.