Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Page 20
20 LAUGARDAGUR 20. MARS1993 Kvikmyndir 10. Norræna kvikmyndahátíðin í Reykjaví k: Tuttugu kvikmyndir keppa um vegleg verðlaun Hinn fullkomni glæpur er norsk kvikmynd sem Eva Isaksen leikstýrir. Brunnurinn er finnsk kvikmynd, nútímasaga sem gerist á bóndabæ. Leikstjóri er Pekke Letho. Veglegasta kvikmyndahátíð, sem haldin hefur verið hér á landi, 10. Norræna kvikmyndahátíðin, verð- ur haldin í Reykjavík dagana 24.-27. mars í Háskólabíói. Setning hátíðarinnar verður þó kvöldið áður og verður kvikmyndin Börn náttúrunnar þá sýnd. Hún er ein fjögurra íslenskra kvikmynda sem taka þátt í keppninni. Á þessari hátíð verða sýndar tuttugu bestu kvikmyndir síðustu tveggja ára á Norðurlöndum, fjórar frá hveiju landi. Utan við keppnina verða svo sýndar tíu bestu kvikmyndir síð- ustu tíu ára á Norðurlöndum. í lok þessarar miklu kvikmyndahátíöar verður svo vahn besta kvikmynd Norðurlanda ’93 við sérstaka at- höfn sem veröur í beinni útsend- ingu Sjónvarpsins. Vigdís Finn- bogadóttir afhendir sigurvegaran- um verðlaun að upphæð 1.500.000 kr. Einnig verða veitt „áhorfenda- verðlaun" sem borgarstjórinn í Reykjavík, Markús Óm Antons- son, afhendir og Ólafur G. Einars- son menntamálaráðherra mun veita verðlaun fyrir bestu stutt- myndina. Hér á eftir fer stutt kynning á kvikmyndum þeim sem taka þátt í aðalkeppninni. Ekki er þó ástæða að kynna sérstaklega íslensku kvikmyndirnar, svo þekktar era þær hér á landi, en þær eru: Börn náttúrunnar, leikstjóri Friðrik Þór Friðriksson. Ingaló, leikstjóri Ásdís Thoroddsen.Só- dóma Reykjavík, leikstjóri Óskar Jónasson. Svo á jörðu sem á himni, leikstjóri Kristín Jóhannesdóttir. Danmörk Vofa Jaspers, leikstjóri er Brita Wielopolska. Þekktasta kvikmynd hennar er Hodja fra Port sem hún gerði 1985 og hefur sú mynd fengið mörg verðlaun. Vofa Jaspers er fjórða kvikmynd Britu og í henni er sögð saga hins 11 ára gamla Ja- spers sem uppgötvar land hinna ókunnu, þannig verður honum sín eigin veröld skiljanlegri. Sviðið er dansk þorp og er Vofa Jaspers fjöl- skyldumynd með ævintýrablæ en ásækin um leið. Sárar ástir, leikstjóri er Nils Malmros. Hann nam læknisfræði áður en hann sneri sér að kvik- myndum. Hann kvaddi sér fyrst hljóðs í kvikmyndinm Lars-Ole 5C árið 1973. Sárar ástir er mynd um unga stúlku, Kirsten, sem er að verða fulloröin. í upphafi sögunnar er hún í síðasta bekk grunnskól- ans. Hún daðrar við umhverfi sitt, ástin kemur, fer og kemur aftur og hún á erfitt með að fóta sig á þeim breytingum sem krafist er af henni með aldrinum. Snúkurinn er frumraun Jörgens Vestergaard í gerð leikinna kvik- mynda en áður hafði hann gert stutt- og heimildarmyndir og leik- brúðumyndir. Snúkurinn er gam- anmynd og er aöalsöguhetjan örs- mátt fyrirbæri með aðeins eina tá, Snúkurinn. Stundum er hann feim- inn en oftast er hann frökk og fram- takssöm lítil vera og verður hann besti vinur Egils sem er 7 ára og er í sumarleyfi þegar sagan hefst. Það er hin þekkta, norska leik- kona, Liv Ullmann, sem leikstýrir fjórðu dönsku kvikmyndinni, Sofie, sem gerist í Kaupmannahöfn árið 1866. Segir í myndinni frá gyð- ingastúlkunni Sofie, tilfinningum hennar og þroskaferli. í bakgrunni eru sterkar fjölskylduhefðir gyð- inga. Sofie er fyrsta kvjkmyndin sem Liv Ullmann leikstýrir og átti hún einnig þátt í gerð handritsins. Finnland Aki Kaurismaki er þekktasti leik- stjóri Finna og einn þekktasti leik- stjóri á Norðurlöndum. Kvikmynd hans í þessari keppni er Bóhemalíf sem fjallar um þrjá listamenn, málarann Rodolfo, skáldið Marcel og tónskáldið Schaunard. Þeir eru hstamenn af lífi og sál en peninga- leysi verður til þess aö þeir þurfa að hafa mikið fyrir því að sleppa undan húseigendum og rukkurum. Aki Kaurismaki er á heimavelli í frásögn af bóhemunum þremur og sambandi þeirra við tvær sveita- stúlkur, Mimi og Mausette, sem eru úti á þekju í stórborginni. Ást Söru, leikstjóri er Claes Ols- son. Frá 1970 hefur hann leikstýrt meira en 20 teikni-, heimildar- og Kvikmyndir Hilmar Karlsson stuttmyndum. Það var árið 1987 sem hann leikstýrði fyrstu leiknu kvikmynd sinni í fullri lengd. Ást Söru er nútíma ástarsaga. Aðalper- sónan er Sara sem skortir sjálfsör- yggi og hefur tilhneigingu til að horfa á sjálfa sig með annarra manna augum. Erfiðleikar hennar til að slaka á í unaði kynlífsins leiða hana út í öfgar lauslætis og oíbeld- is. Brunnurinn, leikstjóri er Pekka Lehto sem hefur verið viðloðandi kvikmyndagerð frá 1968. Hann leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd árið 1978, Kainuu 39. Hann hefur leikstýrt tveimur kvik- myndum sem tekið hafa þátt í aðal- keppninni í Cannes, Flame Top og Da capo. Brunnurinn er sjöunda kvikmynd hans. Sögð er nútíma- saga sem gerist á bóndabæ í Suð- vestur-Finnlandi. Anna-Maija er ung húsmóöir sem fellur saman undan miklu álagi. Hún missir tök- in á atburðarásinni og sjálfseyðing- arhvöt hennar brýst fram á hræði- legan hátt. Týndi sonurinn, leikstjóri er Veikko Aaltonen. Hann hefur með- al annars hefur unnið með Kaur- ismáki-bræðrum. Hann leikstýrði nokkrum sjónvarpsmyndum áður en hann gerði Týnda soninn sem fjallar um samband tveggja manna, samband sem einkennist af kvala- losta og sjálfspyndingarhvöt sem leiðir til ofbeldis og morðs. Noregur Pólstjamangerist í Finnmörk í Norður-Noregi. Sagan segir frá við- burðaríku lífi fjögurra manna fjöl- skyldu á tímum síðari heimsstyrj- aldarinnar og afdrifum hennar eft- ir stríð. Leikstjóri myndarinnar, Knut Erik Jensen, er fæddur í nyrsta hiusta Noregs. Heimabær hans var brenndur og gereyðilagð- ur af nasistum þegar hann var fjög- urra ára. Jensen lærði kvikmynda- gerð í London og gerði fyrstu stutt- mynd sína 1974. Pólstjarnan er fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd. Svartir hlébarðar fjallar um fimm unga uppreisnarmenn sem halda út í nóttina, bijótast inn í bygging- ar, stela og eyðileggja en hafa hreina samvisku. Þetta er þeirra aðferð við að frelsa „þræla“ okkar tíma. Myndinni leikstýrir Thomas Robsahm Tognazzi. Hann er sonur ítalska leikarans Ugo Tognazzi og bróðir Ricky Tognazzi sem vakti mikla athygh fyrir kvikmynd sína, Ultra, fyrir tveimur árum. Thomas fæddist í Noregi. Áður en hann tók til við gerð Svarta hlébarðans hafði hann leikstýrt tveimur stuttmynd- um. Loftskeytamaðurinn, leikstjóri er Erik Gustavson. Hann hefur starfað að kvikmyndagerð í tæpa tvo áratugi. Fyrstu kvikmynd sína í fullri lengd, Blackout, gerði hann 1986 og fjórum árum síðar verð- launamyndina Herman. Myndin er byggð á sögu eftir Knut Hamsun. Söguhetjan er Rolandsen sem er aht í senn, indælt fifl, slóttugur kvennabósi, sérvitur heimspeking- ur og bijálaður uppfinningamaður. Hann dreymir um að verða ríkur af uppfinningum sínum til að vinna ástir Elísu, dóttur auðkýfings í þorpinu. Hinn fullkomni glæpur fjallar um Pierre, sem er ungur kvikmynda- leikstjóri sem vinnur að erótískri hrohvekjumynd, þar sem ástkona hans, Gréta, leikur aöalhlutverkið. Meðan á upptökum stendur dofnar samband þeirra án þess þó að hann geri sér grein fyrir því. í hinum raunverulega heimi taka síðan at- burðir að gerast, áþekkir þeim sem myndin greinir frá. Leikstjóri er Eva Isaksen sem lengi hefur verið viðloðandi leikhús og kvikmyndir og verið aðstoðarleikstjóri hjá mörgum leikstjórum. 1990 gerði hún fyrstu kvikmynd sína, Dauð- inn á Oslo Central. Hinn fullkomni glæpur er þriðja kvikmynd hennar. Svíþjóð II Capitano er eina myndin af þeim sem keppa um verðlaunin sem einnig er sýnd í flokki tíu bestu kvikmynda síðustu tíu ár. Leik- stjóri hennar er Jan Troeh, einhver frægasti leikstjóri á Norðurlönd- um. Hefur hann leikstýrt mörgum þekktum kvikmyndum, þar af tveimur í Bandaríkjunum. II Capit- ano er fyrsta kvikmynd Jans Tro- eh í níu ár. Hlaut hann silfurbjöm- inn í Berhn á síðasta ári fyrir leik- stjórn sína. Myndin segir frá sönn- um atburðum sem gerðust 1988 þegar fimmtán ára phtur og faðir hans eru myrtir af þjófum sem stela hjóli sonarins. Skömmu síðar er móðirin einnig myrt. Stóri feiti pabbi, leikstjóri er Kjell-Áke Andersson. Hann gerði stuttmyndir sem unnu til verð- launa áður en hann sneri sér að kvikmyndum í fullri lengd. Frum- raun hans var Freinds sem hann skrifaði handritið að en tók yfir leikstjórn áður en yfir lauk. Stóri feiti pabbi er árangur samstarfs hans og leikritaskáldsins Magnus- ar Nilsson og fjallar um ellefu ára stúlku og samband hennar við föð- ur sinn sem er mjög náið.. Freud flytur að heiman fjahar um hina 25 ára gömlu Freud sem er á mörkum þess að flytja að heiman en ávaht kemur eitthvað í veg fyrir það. Fjölskyldan safnast saman þegar móðirin verður sextug en aht breytist þegar móðirin veikist. Leikstjórinn, Susanne Bier, er dönsk og lauk námi í kvikmynda- fræðum í Kaupmannahöfn. Freud flytur aö heiman er fyrsta kvik- mynd hennar, en hún hefur unnið mikið að tónhstarmyndböndum. Englabærinn er gamanmynd um þröngsýni, fordóma og kynþátta- hatur en fjallar einnig um ástir og vináttu og dregur upp fallega mynd af htríku sumri í Svíþjóð. Leikstjór- inn, Colin Nutley, er breskur en er samt talinn sænskari en aðrir sænskir 'leikstjórar. Hann fluttist til Svíþjóðar fyrir tíu árum og hefur gert bæði heimildarmyndir og leiknar myndir þar. Englabærinn er þriðja kvikmynd hans og sú mynd sem hefur hlotiö einna mestu aðsókn í Svíþjóð undanfarin miss- eri. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.